Morgunblaðið - 23.04.2021, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 23.04.2021, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. APRÍL 2021 Ljósmyndir Rutar og Silju Skipholti 31 | 105 Reykjavík | Sími 568 0150 | www.rut.is | Opið alla virka daga kl. 10-17 Starfsmanna- myndatökur Tímapantanir í síma 568 0150 eða á rut@rut.is Förum eftir öllum sóttvarnartilmælum fyrir fyrirtæki og stofnanir Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Sveitarstjórn Dalabyggðar hefur samþykkt að breyta aðalskipulagi á tveimur stöðum í sveitarfélaginu með það fyrir augum að þar megi setja upp vindorkuver. Breytingin nær til Hróðnýjarstaða, neðst og fremst í Laxárdal, og Sól- heima sem er efsti bærinn í dalnum. Ríkjandi vindáttir ráða því að hagstætt gæti verið að setja upp vindorkuver á um- ræddum jörðum, enda óskuðu eig- endur þeirra eftir því að sveitar- stjórnin breytti aðalskipulagi með það fyrir augum. Breytingin gekk í gegn með samþykkt á fundi sveitar- stjórnar í sl. viku og bíður nú stað- festingar Skipulagsstofnunar. „Að ná þessari breytingu á aðal- skipulagi í gegn hefur verið fjögurra ára ferli. Þetta er þó aðeins einn áfangi á langri vegferð,“ segir Eyjólf- ur Ingvi Bjarnason, oddviti Dala- byggðar, við Morgunblaðið. Hann bendir á að í upphafi árs hafi verið gerð skoðanakönnun meðal íbúa Dalabyggðar um afstöðu þeirra til vindorkuvera. Þar kom fram að rúm 50% eru hlynnt eða mjög hlynnt vindorkuverum. Í ljósi þess m.a. var haldið áfram með málið. Áður en kemur til útgáfu fram- kvæmdaleyfis á bæði eftir að vinna deiliskipulag og meta umhverfis- áhrif. Eins á eftir að koma í ljós hvort og hvernig rammaáætlun mun hafa áhrif á ferlið. Ýmis sjónarmið hafa þó verið uppi um vindorkuver á þessum slóðum og margir hafa staðnæmst við hugsanleg áhrif á fuglalíf, segir Eyjólfur. Tillaga um breytingar á skipulagi, sem nú hefur verið samþykkt, var auglýst í nóvember 2020 og bárust umsagnir og athugasemdir víða frá. „Athugasemdirnar kölluðu ekki á efnislegar breytingar á aðalskipulag- inu,“ segir í bókun sveitarstjórnar Dalabyggðar. Í aðalskipulagi Dalabyggðar verða fyrirhuguð vindorkuver skilgreind sem iðnaðarsvæði. Áætlað er að upp- sett afl verði allt að 280 MW til sam- ans á báðum jörðum. Hæð vindmylla verður allt að 120 m í miðju hverfils og spaðar munu ná í allt að 200 m hæð. Myllurnar gætu þá orðið allt að þrjátíu í Sólheimum en allt að 40 á Hróðnýjarstöðum. Þá þarf hugsan- lega að gera ráð fyrir ljósabúnaði efst á myllum, til aðvörunar fyrir flugum- ferð. Eflir atvinnu og byggð „Með tilliti til sjálfbærni, atvinnu- mála og eflingar byggðar hér í Döl- um er ég áfram um að þessi upp- bygging verði að veruleika. Slíkt myndi skapa störf og renna sterkari stoðum undir byggðina hér. Þetta gerist hins vegar ekki á einni nóttu, en við erum komin aðeins fram fyrir byrjunarreit í löngu ferli,“ segir Eyj- ólfur Ingvi. Vindorkuver komin á aðalskipulag Morgunblaðið/Árni Sæberg Afl Vindmyllurnar í Laxárdal í Dalabyggð gætu orðið allt að 200 m á hæð. - Sveitarstjórn samþykkir breytingu - Fremst og efst í Laxárdalnum - Ríkjandi vindáttir skapa góðar aðstæður - Áfangi á langri vegferð - Meta þarf umhverfisáhrif - Komin frá byrjunarreitnum Eyjólfur Ingvi Bjarnason Sonja Sif Þórólfsdóttir sonja@mbl.is Vegfarendur við Austurvöll hafa eflaust tekið eftir því að hlaðnir veggir við torgið hafa verið teknir niður. Í stað þeirra verður hellulagt og blómabeð- um komið fyrir. Pawel Bartoszek, borgarfulltrúi Viðreisnar og staðgengill formanns skipulags- og samgönguráðs, segir að hugmyndin um að opna betur inn á torgið hafi reglulega komið upp og nú hafi hún loksins orðið að veruleika. Hann segir að upprunalega hafi veggirnir verið hlaðnir til að skýla Austurvelli fyrir umferð bíla í gegnum Vallarstræti. Lokað hefur verið fyrir um- ferð í gegnum Vallarstræti í áratugi og ekki er stefnt að því að opna fyrir hana aftur. Veggirnir hafa því staðið í ákveðnu tilgangsleysi við torgið lengi. „Þegar þetta var skoðað fyrir ári síðan komust menn að því að veggurinn var dálítið illa farinn. Þannig að niðurstaðan varð að taka hann einfald- lega niður og opna þannig betur inn á torgið. Þá geta veitingastaðir nýtt þetta svæði til að setja borð og stóla út. Síðan munum við setja bekki og blómabeð,“ segir Pawel. Veitingahús hafa und- anfarið nýtt götuplássið á Vallarstræti til að setja fram borð og stóla og á sólríkum sumardögum myndast góð stemning. Í sumar munu því veit- ingamenn hafa pláss fyrir enn fleiri borð og meira flæði verður inn á Austurvöll. „Við ákváðum að drífa í þessu snemma árs þannig að þegar sumarið birtist í allri sinni dýrð þá verður þetta klárt,“ segir Pawel. Austurvöllur fær nýja ásýnd - Gamlir veggir barn síns tíma - Rýmra svæði fyrir borð og stóla veitingahúsa Morgunblaðið/Eggert Horfinn Veggurinn við Austurstræti víkur fyrir mannlífinu. Morgunblaðið/Styrmir Kári Þéttsetið Veitingastaðir munu hafa rýmra pláss eftir breytingarnar. Stjórn Læknafélags Íslands telur ekki lagastoð fyrir nýjum skil- yrðum sem heilbrigðisráðherra hyggst setja fyrir því að Sjúkra- tryggingar Íslands (SÍ) greiði vegna þjónustu sjúkratryggðra hjá sérgreinalæknum. Leggst stjórnin eindregið gegn því að ráðherra staðfesti þau drög að reglugerð sem kynnt hafa verið um leið og hún er hvött til að gefa SÍ fyrirmæli um það að ganga sem fyrst til samninga við sérgreinalækna um þá þjónustu sem þeir veita sjúkra- tryggðum. Telur félagið ábyrgðina á því að samningar hafa ekki náðst liggja aðallega hjá Sjúkratrygg- ingum og heilbrigðisráðherra. Læknafélagið leggst gegn nýrri reglugerð Viðskiptavinir Samkaupa geta sparað allt að 50 þúsund krónur á ári með því að nota nýtt smáforrit sem fyrirtækið kynnir til leiks í dag. Með því að nota forritið fá viðskiptavinir 2% afslátt í formi inneignar í hvert skipti sem þeir versla. Séu viðskiptavinir duglegir að nota forritið geta þeir því spar- að ágætisupphæð á ári hverju. „Appið er bylting á matvöru- markaði en við erum að fylgja nýj- ustu tækni og færa matvöruversl- unina nær viðskiptavinum okkar. Við hófum innleiðingu á appinu um síðustu jól þegar starfsfólk Samkaupa fékk aðgang en nú eru um 10 þúsund ánægðir viðskipta- vinir komnir með það,“ segir Gunnar Egill Sigurðsson, fram- kvæmdastjóri verslunarsviðs Sam- kaupa. Inneignina geta notendur nýtt hvenær sem þeir vilja, í næstu búðarferð eða geymt hana og not- að fyrir stórhátíðir eða veisluhöld. Auk hins reglubundna 2% af- sláttar stendur notendum reglu- lega til boða að nýta sér sér- afslætti að sögn Gunnars. Um páskana gátu notendur til dæmis nýtt sér 10-25% afslátt af páska- eggjum og 10% afslátt af ávöxtum. Forritið virkar í öllum verslun- um Samkaupa sem rekur rúmlega 60 verslanir víðs vegar um landið undir vörumerkjum Nettó, Kram- búðarinnar, Kjörbúðarinnar, Ice- land og Samkaup Strax. Í forrit- inu er hægt að hafa yfirsýn yfir innkaupin því rafræn kvittun birt- ist þar. Það er hannað að erlendri fyrirmynd en slík forrit eru vel þekkt á Norðurlöndunum sem og víðar um heim, segir Gunnar. Coop í Danmörku hannaði forrit Samkaupa en forritið er eitt það vinsælasta þar í landi að hans sögn. sonja@mbl.is Geti sparað 50 þúsund á ári - Smáforrit að danskri fyrirmynd „bylting á markaði“ Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Nettó Nýtt app sem kynnt verður í dag veitir viðskiptavinum afslátt. Smávægilegar breytingar voru gerðar á gildandi reglugerð heil- brigðisráðherra á þriðjudag. Breyt- ingin nær meðal annars til veitinga- húsa og skemmtistaða sem mega taka á móti 30 manns í stað 20 áður. Afgreiðslutímar haldast óbreyttir. Rekstraraðilar tjaldsvæða mega taka á móti helmingi leyfilegra gesta hvers svæðis og það sama gildir um söfn. Breytingarnar ná einnig til líkamsræktarstöðva en enn þarf að sótthreinsa búnað og snertifleti á milli hóptíma. Vægar tilslakanir hafa tekið gildi

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.