Morgunblaðið - 23.04.2021, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 23.04.2021, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. APRÍL 2021 Smiðjuvegur 68, Kópavogi | S. 587 1350 | bifreidaverkstaedi.is Höfum sérhæft okkur í Toyota viðgerðum síðan 1995 Fljót, örugg og persónuleg þjónusta Allar almennar bílaviðgerðir Helgi Bjarnason Ragnhildur Þrastardóttir Eftir breytingar á sóttvarnalögum sem samþykktar voru á Alþingi í fyrrinótt er heilbrigðisráðherra heimilt að skylda ferðamenn sem koma frá eða hafa dvalið á hááhættu- svæði vegna kórónuveiru til að dvelja í sóttkví eða einangrun í sótt- varnahúsi. Það sama á við ferða- menn sem fullnægjandi upplýsingar liggja ekki fyrir um. Þó er sóttvarna- lækni heimilt að veita undanþágu frá þessari skyldu sýni ferðamaður með fullnægjandi hætti fram á að hann muni uppfylla öll skilyrði sóttkvíar eða einangrunar í húsnæði á eigin vegum. Heimildin gildir til loka júní næstkomandi. Við þinglega meðferð stjórnar- frumvarpsins var, að tillögu fyrsta minnihluta sem skipaður var fjórum nefndarmönnum úr stjórnarflokkun- um, bætt inn ákvæði um að ráðstaf- anir ríkisins í þessu efni skuli grund- vallast á tillögum sóttvarnalæknis. Sömuleiðis voru sett ákvæði inn í lagagreinina um að sóttvarnalækni og ráðherra sé heimilt við tillögu- gerð og útgáfu reglugerðar að líta til forsendna um nýgengi smita á til- teknu svæði og til útbreiðslu mis- munandi afbrigða kórónuveiru. Skil- greiningar um hvað teldust hááhættusvæði höfðu aðeins verið í greinargerð með upphaflegu frum- varpi og einkum miðað við nýgengi smita. Lagabreytingin var samþykkt með 28 atkvæðum stjórnarliða gegn tveimur atkvæðum. Flestir viðstadd- ir stjórnarandstæðingar sátu hjá við atkvæðagreiðsluna ásamt Birgi Ár- mannssyni Sjálfstæðisflokki. Sigríð- ur Á. Andersen Sjálfstæðisflokki og Olga Margrét Cilia Pírötum greiddu atkvæði gegn frumvarpinu. Ánægja með breytingar Þórólfur Guðnason sóttvarna- læknir og Sigurgeir Sigmundsson, yfirlögregluþjónn á Keflavíkurflug- velli, segjast ánægðir með lögin eins og þau voru afgreidd en þeir voru meðal þeirra sem velferðarnefnd Al- þingis leitaði til við umfjöllun um málið. „Mér finnst þetta bara ágætislög, þau gefa svigrúm til ýmislegs,“ sagði Þórólfur í gær þegar hann var spurð- ur hvort lögin gengju nægjanlega langt. „Það er ekkert neglt niður í þessum lögum um það hvaða ný- gengi eigi að miða við, það er á herð- um sóttvarnalæknis að skilgreina það og koma með þær tillögur sem verða þá birtar í reglugerð. Það er líka hægt að taka tillit til veiruaf- brigða þegar verið er að meta áhættusvæði, hvaða veiruafbrigði eru að ganga í þessum löndum og hversu hættuleg þau eru og svo framvegis. Ég tel að það sé fram- faraskref að geta stuðst við þessi lög.“ Þórólfur átti von á því að skila minnisblaði með tillögum sínum um aðgerðir í gær. Sagðist hann munu nota áhættumat sem almannavarna- deild ríkislögreglustjóra gerir á landamærum og byggist á því hvað- an smitin eru að koma, en ekki flokk- un landa hjá Sóttvarnastofnun Evr- ópu. Reynsla í að flokka fólk Sigurgeir Sigmundsson reiknar ekki með að reglugerð um skyldu- dvöl í sóttvarnahúsi taki gildi fyrr en á mánudag, í fyrsta lagi. Byggir hann það mat á því að þótt reglu- gerðin verði gefin út í dag þurfi lík- lega þrír dagar að líða fram að gild- istöku til þess að þeir sem óska eftir undanþágu til að vera í sóttkví á eig- in vegum geti sótt um það með tveggja daga fyrirvara, eins og kveð- ið er á um í lögunum. Sigurgeir segir að lögreglan og annað starfsfólk á Keflavíkurflug- velli hafi nokkra reynslu í að flokka farþega og senda á sóttkvíarhótel. Það hafi þeir gert í nokkra daga í byrjun apríl, eða þar til þágildandi reglugerð var dæmd ólögleg, og þá hafi verið komið upp kerfi sem virk- ar. Áskorun er fyrir starfsfólkið að finna út hvaðan farþegarnir koma í raun. Sigurgeir segir að hægt sé að skoða bókanir í flug en oft þurfi að treysta orðum fólksins sjálfs. „Við erum orðin vön að eiga við þá hluti,“ segir Sigurgeir. Nýtt sóttvarnahótel Sóttvarnahótelið við Þórunnartún var að fyllast í gær, þar voru yfir 300 gestir, og var opnað nýtt hótel, Hótel Rauðará. Þangað er ætlunin að beina fólki sem er talið berskjaldað fyrir smiti. Þá er útlit fyrir að rými skap- ist aftur í Þórunnartúni næstu daga þegar fólk útskrifast úr sóttkví. Búast má við að enn fleiri verði sendir í sóttkví eða einangrun á veg- um ríkisins þegar nýju reglurnar taka gildi. Gylfi Þór Þorsteinsson, forstöðumaður sóttvarnahúsa Rauða krossins, óttast ekki að allt fyllist. Hann segir að Sjúkratryggingar Ís- lands séu skjótar að bregðast við með útvegun fleiri hótela, þegar á þarf að halda. Þá sé starfsfólk til staðar og auðvelt að fjölga því. Morgunblaðið/Sigurður Unnar Í sóttkví Nokkur fjöldi bættist í hóp gesta á Fosshóteli við Þórunnartún í gær. Rauði krossinn hefur fengið til afnota nýtt hótel við Rauðarárstíg. Segja lögin framfaraskref - Heimilt er að skylda ferðamenn frá hááhættusvæðum til að dvelja í sóttvarna- húsi á vegum ríkisins - Reiknað með að reglugerð taki gildi eftir fáeina daga Þorgeiri Pálssyni var sagt upp störfum sem sveitarstjóra Strandahrepps á þriðjudaginn. Hann íhugar nú réttarstöðu sína eftir brottrekst- urinn og skoðar að fara með málið fyrir dómstóla. Í tilkynningu í gær sagði Þorgeir að brottreksturinn hefði komið á óvart þótt vissulega hafi ágreiningur verið innan sveitarstjórnar. Hann segir sumar ákvarðanir sem teknar hafi verið í sveitarstjórn stangast á við sveitarstjórnarlög, samþykktir og siðareglur. Hann segir að honum hafi áður verið vísað úr vinnuhópum vegna gagnrýni sinnar þrátt fyrir að vera æðsti yfirmaður annars starfs- liðs sveitarfélagsins. Þorgeir segir brottreksturinn ekki tengjast fjár- hagsstöðu sveitarfélagsins en nýlega þurfti ríkið að hlaupa undir bagga með sveitarfélaginu sem hlaut 30 milljónir króna úr jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Íhugar að leita réttar síns - Brottreksturinn kom á óvart Þorgeir Pálsson Guðni Th. Jóhannesson, forseti Ís- lands, keypti fyrsta ljósið í lands- söfnun Barnaheilla sem hófst í gær, fimmtudag. Guðni kom í húsnæði Barnaheilla og keypti ljós til að sýna landssöfnuninni og baráttunni móti kynferðisofbeldi gegn börnum sam- stöðu. Hann fór fögrum orðum um starf Barnaheilla en þetta er í fjórða sinn sem hann kaupir ljós til styrkt- ar þessari mikilvægu baráttu. Söfnunin í ár ber heitið „Staldraðu við. Með þinni hjálp getum við verndað börn“ og rennur allur ágóði af sölunni í forvarnafræðslu Vernd- ara barna. Ljósið kostar 2.000 krón- ur og fæst um allt land og í vefversl- un Barnaheilla. Söfnun Barna- heilla hafin Morgunblaðið/Sigurður Unnar Barnaheill Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands keypti fyrsta ljósið. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Ákveðið hefur verið að aflýsa Heimsleikum íslenska hestsins sem átti að halda í Herning í Dan- mörku í byrjun ágúst. Ástæðan er óvissa með þróun kórónuveirufar- aldursins og að miklar líkur eru taldar á því að ekki geti lið frá öll- um aðildarríkjum sent keppendur til leiks. Gunnar Sturluson, formaður Feif sem eru alþjóðasamtök um ís- lenska hestinn, segir að útgöngu- bann sé í ákveðnum héruðum í Austurríki og faraldurinn á upp- leið. Sömuleiðis í Þýskalandi og víðar. Takmarkanir séu á ferðum fólks á milli svæða. „Staðan á far- aldrinum er þannig að miklar líkur eru á að þetta haldi áfram í einhverj- um aðildarlönd- um að ekki er talið forsvaran- legt að halda áfram vinnu við undirbúning mótsins,“ segir Gunnar. Þá telur hann litlar líkur á að keppendur komi frá Banda- ríkjunum og Kanada. Skipuleggjendur mótsins í Dan- mörku höfðu undirbúið mismun- andi sviðsmyndir fyrir mótshald, allt frá engum áhorfendum og upp í hefðbundið mót. Þótt áhorfendur komi ekki þarf leyfi fyrir að fjöldi fólks komi saman, keppendur og starfsfólk, allt að 500 manns. Ekki liggur fyrir hvort það verður heim- ilt í byrjun ágúst. Gunnar segir að nú sé komið að greiðslum inn á leigu fyrir svæði og ýmsan búnað og innheimta leigu fyrir verslunar- svæði. Einnig þurfi liðin að leggja út í kostnað. Því hafi þurft að taka ákvörðun um mótið og niðurstaðan hafi orðið sú að ekki væri hægt að tryggja að hægt yrði að halda mót- ið og öryggi og heilsu allra sem að því þurfa að koma. Næsta mót verður haldið í Hol- landi eftir tvö ár. Gunnar segir að með niðurfellingu mótsins verði Feif af miklum tekjum og þurfi að vinna sig út úr þeim vandamálum. Heimsleikar falla niður - Sterkar líkur á að ekki komist öll liðin til Herning Gunnar Sturluson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.