Morgunblaðið - 23.04.2021, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. APRÍL 2021
Smiðjuvegur 68, Kópavogi | S. 587 1350 | bifreidaverkstaedi.is
Höfum sérhæft okkur í Toyota viðgerðum síðan 1995
Fljót, örugg og persónuleg þjónusta
Allar almennar bílaviðgerðir
Helgi Bjarnason
Ragnhildur Þrastardóttir
Eftir breytingar á sóttvarnalögum
sem samþykktar voru á Alþingi í
fyrrinótt er heilbrigðisráðherra
heimilt að skylda ferðamenn sem
koma frá eða hafa dvalið á hááhættu-
svæði vegna kórónuveiru til að
dvelja í sóttkví eða einangrun í sótt-
varnahúsi. Það sama á við ferða-
menn sem fullnægjandi upplýsingar
liggja ekki fyrir um. Þó er sóttvarna-
lækni heimilt að veita undanþágu frá
þessari skyldu sýni ferðamaður með
fullnægjandi hætti fram á að hann
muni uppfylla öll skilyrði sóttkvíar
eða einangrunar í húsnæði á eigin
vegum. Heimildin gildir til loka júní
næstkomandi.
Við þinglega meðferð stjórnar-
frumvarpsins var, að tillögu fyrsta
minnihluta sem skipaður var fjórum
nefndarmönnum úr stjórnarflokkun-
um, bætt inn ákvæði um að ráðstaf-
anir ríkisins í þessu efni skuli grund-
vallast á tillögum sóttvarnalæknis.
Sömuleiðis voru sett ákvæði inn í
lagagreinina um að sóttvarnalækni
og ráðherra sé heimilt við tillögu-
gerð og útgáfu reglugerðar að líta til
forsendna um nýgengi smita á til-
teknu svæði og til útbreiðslu mis-
munandi afbrigða kórónuveiru. Skil-
greiningar um hvað teldust
hááhættusvæði höfðu aðeins verið í
greinargerð með upphaflegu frum-
varpi og einkum miðað við nýgengi
smita.
Lagabreytingin var samþykkt
með 28 atkvæðum stjórnarliða gegn
tveimur atkvæðum. Flestir viðstadd-
ir stjórnarandstæðingar sátu hjá við
atkvæðagreiðsluna ásamt Birgi Ár-
mannssyni Sjálfstæðisflokki. Sigríð-
ur Á. Andersen Sjálfstæðisflokki og
Olga Margrét Cilia Pírötum greiddu
atkvæði gegn frumvarpinu.
Ánægja með breytingar
Þórólfur Guðnason sóttvarna-
læknir og Sigurgeir Sigmundsson,
yfirlögregluþjónn á Keflavíkurflug-
velli, segjast ánægðir með lögin eins
og þau voru afgreidd en þeir voru
meðal þeirra sem velferðarnefnd Al-
þingis leitaði til við umfjöllun um
málið.
„Mér finnst þetta bara ágætislög,
þau gefa svigrúm til ýmislegs,“ sagði
Þórólfur í gær þegar hann var spurð-
ur hvort lögin gengju nægjanlega
langt. „Það er ekkert neglt niður í
þessum lögum um það hvaða ný-
gengi eigi að miða við, það er á herð-
um sóttvarnalæknis að skilgreina
það og koma með þær tillögur sem
verða þá birtar í reglugerð. Það er
líka hægt að taka tillit til veiruaf-
brigða þegar verið er að meta
áhættusvæði, hvaða veiruafbrigði
eru að ganga í þessum löndum og
hversu hættuleg þau eru og svo
framvegis. Ég tel að það sé fram-
faraskref að geta stuðst við þessi
lög.“
Þórólfur átti von á því að skila
minnisblaði með tillögum sínum um
aðgerðir í gær. Sagðist hann munu
nota áhættumat sem almannavarna-
deild ríkislögreglustjóra gerir á
landamærum og byggist á því hvað-
an smitin eru að koma, en ekki flokk-
un landa hjá Sóttvarnastofnun Evr-
ópu.
Reynsla í að flokka fólk
Sigurgeir Sigmundsson reiknar
ekki með að reglugerð um skyldu-
dvöl í sóttvarnahúsi taki gildi fyrr en
á mánudag, í fyrsta lagi. Byggir
hann það mat á því að þótt reglu-
gerðin verði gefin út í dag þurfi lík-
lega þrír dagar að líða fram að gild-
istöku til þess að þeir sem óska eftir
undanþágu til að vera í sóttkví á eig-
in vegum geti sótt um það með
tveggja daga fyrirvara, eins og kveð-
ið er á um í lögunum.
Sigurgeir segir að lögreglan og
annað starfsfólk á Keflavíkurflug-
velli hafi nokkra reynslu í að flokka
farþega og senda á sóttkvíarhótel.
Það hafi þeir gert í nokkra daga í
byrjun apríl, eða þar til þágildandi
reglugerð var dæmd ólögleg, og þá
hafi verið komið upp kerfi sem virk-
ar.
Áskorun er fyrir starfsfólkið að
finna út hvaðan farþegarnir koma í
raun. Sigurgeir segir að hægt sé að
skoða bókanir í flug en oft þurfi að
treysta orðum fólksins sjálfs. „Við
erum orðin vön að eiga við þá hluti,“
segir Sigurgeir.
Nýtt sóttvarnahótel
Sóttvarnahótelið við Þórunnartún
var að fyllast í gær, þar voru yfir 300
gestir, og var opnað nýtt hótel, Hótel
Rauðará. Þangað er ætlunin að beina
fólki sem er talið berskjaldað fyrir
smiti. Þá er útlit fyrir að rými skap-
ist aftur í Þórunnartúni næstu daga
þegar fólk útskrifast úr sóttkví.
Búast má við að enn fleiri verði
sendir í sóttkví eða einangrun á veg-
um ríkisins þegar nýju reglurnar
taka gildi. Gylfi Þór Þorsteinsson,
forstöðumaður sóttvarnahúsa Rauða
krossins, óttast ekki að allt fyllist.
Hann segir að Sjúkratryggingar Ís-
lands séu skjótar að bregðast við
með útvegun fleiri hótela, þegar á
þarf að halda. Þá sé starfsfólk til
staðar og auðvelt að fjölga því.
Morgunblaðið/Sigurður Unnar
Í sóttkví Nokkur fjöldi bættist í hóp gesta á Fosshóteli við Þórunnartún í gær. Rauði krossinn hefur fengið til afnota nýtt hótel við Rauðarárstíg.
Segja lögin framfaraskref
- Heimilt er að skylda ferðamenn frá hááhættusvæðum til að dvelja í sóttvarna-
húsi á vegum ríkisins - Reiknað með að reglugerð taki gildi eftir fáeina daga
Þorgeiri Pálssyni
var sagt upp
störfum sem
sveitarstjóra
Strandahrepps á
þriðjudaginn.
Hann íhugar nú
réttarstöðu sína
eftir brottrekst-
urinn og skoðar
að fara með málið
fyrir dómstóla. Í
tilkynningu í gær sagði Þorgeir að
brottreksturinn hefði komið á óvart
þótt vissulega hafi ágreiningur verið
innan sveitarstjórnar. Hann segir
sumar ákvarðanir sem teknar hafi
verið í sveitarstjórn stangast á við
sveitarstjórnarlög, samþykktir og
siðareglur. Hann segir að honum
hafi áður verið vísað úr vinnuhópum
vegna gagnrýni sinnar þrátt fyrir að
vera æðsti yfirmaður annars starfs-
liðs sveitarfélagsins. Þorgeir segir
brottreksturinn ekki tengjast fjár-
hagsstöðu sveitarfélagsins en nýlega
þurfti ríkið að hlaupa undir bagga
með sveitarfélaginu sem hlaut 30
milljónir króna úr jöfnunarsjóði
sveitarfélaga.
Íhugar
að leita
réttar síns
- Brottreksturinn
kom á óvart
Þorgeir
Pálsson
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Ís-
lands, keypti fyrsta ljósið í lands-
söfnun Barnaheilla sem hófst í gær,
fimmtudag. Guðni kom í húsnæði
Barnaheilla og keypti ljós til að sýna
landssöfnuninni og baráttunni móti
kynferðisofbeldi gegn börnum sam-
stöðu. Hann fór fögrum orðum um
starf Barnaheilla en þetta er í fjórða
sinn sem hann kaupir ljós til styrkt-
ar þessari mikilvægu baráttu.
Söfnunin í ár ber heitið „Staldraðu
við. Með þinni hjálp getum við
verndað börn“ og rennur allur ágóði
af sölunni í forvarnafræðslu Vernd-
ara barna. Ljósið kostar 2.000 krón-
ur og fæst um allt land og í vefversl-
un Barnaheilla.
Söfnun Barna-
heilla hafin
Morgunblaðið/Sigurður Unnar
Barnaheill Guðni Th. Jóhannesson
forseti Íslands keypti fyrsta ljósið.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Ákveðið hefur verið að aflýsa
Heimsleikum íslenska hestsins
sem átti að halda í Herning í Dan-
mörku í byrjun ágúst. Ástæðan er
óvissa með þróun kórónuveirufar-
aldursins og að miklar líkur eru
taldar á því að ekki geti lið frá öll-
um aðildarríkjum sent keppendur
til leiks.
Gunnar Sturluson, formaður
Feif sem eru alþjóðasamtök um ís-
lenska hestinn, segir að útgöngu-
bann sé í ákveðnum héruðum í
Austurríki og faraldurinn á upp-
leið. Sömuleiðis í Þýskalandi og
víðar. Takmarkanir séu á ferðum
fólks á milli svæða. „Staðan á far-
aldrinum er
þannig að miklar
líkur eru á að
þetta haldi
áfram í einhverj-
um aðildarlönd-
um að ekki er
talið forsvaran-
legt að halda
áfram vinnu við
undirbúning
mótsins,“ segir
Gunnar. Þá telur hann litlar líkur
á að keppendur komi frá Banda-
ríkjunum og Kanada.
Skipuleggjendur mótsins í Dan-
mörku höfðu undirbúið mismun-
andi sviðsmyndir fyrir mótshald,
allt frá engum áhorfendum og upp
í hefðbundið mót. Þótt áhorfendur
komi ekki þarf leyfi fyrir að fjöldi
fólks komi saman, keppendur og
starfsfólk, allt að 500 manns. Ekki
liggur fyrir hvort það verður heim-
ilt í byrjun ágúst. Gunnar segir að
nú sé komið að greiðslum inn á
leigu fyrir svæði og ýmsan búnað
og innheimta leigu fyrir verslunar-
svæði. Einnig þurfi liðin að leggja
út í kostnað. Því hafi þurft að taka
ákvörðun um mótið og niðurstaðan
hafi orðið sú að ekki væri hægt að
tryggja að hægt yrði að halda mót-
ið og öryggi og heilsu allra sem að
því þurfa að koma.
Næsta mót verður haldið í Hol-
landi eftir tvö ár. Gunnar segir að
með niðurfellingu mótsins verði
Feif af miklum tekjum og þurfi að
vinna sig út úr þeim vandamálum.
Heimsleikar falla niður
- Sterkar líkur á að ekki komist öll liðin til Herning
Gunnar
Sturluson