Morgunblaðið - 23.04.2021, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 23.04.2021, Qupperneq 11
SVIÐSLJÓS Atli Vigfússon Laxamýri „Ég var lítill þegar afi fór að bjóða mér með á dorg og mér finnst mjög gaman að fara og veiða. Það er ákveðin ró í því að sitja úti á ísnum þegar gott er veður og njóta náttúrunnar.“ Þetta segir Sigtryggur Andri Vagnson frá Hriflu í Þingeyjar- sveit en hann fór nokkrum sinnum í vetur á Vestmannsvatn ásamt fleirum og stundum var aflinn nokkuð góður. „Það er auðvitað alltaf skemmti- legra að verða var en það er ekki alltaf sem veiðist. Mest fékk ég fimm silunga en annars svona einn til tvo. Þá fór ég líka að dorga á Ljósavatni en nú er ísinn að gefa eftir svo veiðitímabilið er að verða búið,“ segir Sigtryggur og bætir við að það þurfi ákveðna þolin- mæði í þetta en það sé bara gam- an. Eldaður sama daginn Silungurinn sem hann veiðir er notaður á heimilinu og oftast er hann eldaður sama daginn til þess að hann sé alveg nýr. Hann er grillaður, soðinn eða steiktur en einstaka sinnum flakaður og fryst- ur til þess að geyma til betri tíma. Sigtryggur segist eingöngu nota hvítmaðk til beitu en maðkinn fær hann hjá dorgfélaga sínum, Atla Sigurðssyni á Ingjaldsstöðum, sem kann að leggja í maðkaveitu. Hann notar margt lífrænt sem fellur til og má þar m.a. nefna sil- ungsslóg, sláturúrgang og margt fleira. Fallegar bleikjur Að sögn reyndra veiðimanna sem stundað hafa dorgveiði á Vestmannsvatni í áratugi hefur oft verið meiri veiði á dorginu en í vetur. Það var á þeim tíma sem vatnið var ofsetið og þá var sil- ungurinn smærri. Í fyrravetur var ekki hægt að stunda veiði á vatn- inu í gegnum ís vegna mikillar ótíðar sem stóð í marga mánuði og aldrei gaf á dorg. Í vetur brá hins vegar til betri tíðar og nú fyrri partinn í apríl var kuldatíð, ekki miklar úrkomur og oft mikið frost, sem varð til þess að ísinn hélst lengur en búast hefði mátt við. Einn bóndi fór nú í vikunni og fékk fimm fallegar bleikjur sem hann sagði að hefðu verið feitar. Gott jafnvægi er í vatninu og silungurinn hefur stækkað með árunum. Þakklátur afa sínum Á dorginu á Vestmannsvatni eru oft að veiðast nokkur hundruð sil- ungar og sagt er að silungurinn sé bestur á bragðið þegar farið er beint heim og hann settur í pott- inn spriklandi af dorginu. Ekki sé til betri silungur en það. Sumir segja að best sé að geyma soðið og úr því má seinna búa til sil- ungssúpu með sveskjum og rús- ínum og sjóða hausana í súpunni. Þannig kemur gott bragð af bein- um og brjóski. Dorgveiði er stunduð á mörgum vötnum í Suður-Þingeyjarsýslu og má þar nefna Ísólfsvatn, Kringlu- vatn, Mývatn, Langavatn, Sand- vatn og fleiri vötn fyrir utan Ljósavatn og Vestmannsvatn. Sigtryggur í Hriflu kann vel að meta þetta vinsæla vetrarsport og er þakklátur afa sínum og nafna fyrir að hafa tekið sig með, snáð- ann, og þannig fékk hann áhugann á þessari ánægjulegu útivist. Dorgveiðin vinsælt vetrarsport - Dorgveiði er þolinmæðisverk - Veiðitímabilið á enda núna í byrjun sumars - Ágæt veiði hefur verið í Vestmannsvatni í vetur - Dorgveiði stunduð í mörgum vötnum í Suður-Þingeyjarsýslu FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. APRÍL 2021 Vestmannsvatn er stöðuvatn á mörkum Aðaldals og Reykja- dals í S-Þing. Það er fremur grunnt og er 2,38 ferkílómetr- ar að flatarmáli. Það er gott veiðivatn með víðivöxnum hólmum og á bökkum þess eru staraflögur nema að aust- an. Þar er allbrött hlíð sem nefnist Vatnshlíð og er skógi vaxin. Þar er mikil berja- spretta. Í Vestmannsvatn fellur Reykjadalsá en afrennsli þess er Eyvindarlækur sem fellur í Laxá í Aðaldal. Vestmannsvatn tilheyrir nokkrum jörðum og má þar nefna Fagranes, Fagra- neskot, Helgastaði, Hólkot, Höskuldsstaði og Pálmholt. Tilheyrir nokkrum jörðum VESTMANNSVATN Morgunblaðið/Atli Vigfússon Dorgveiði Sigtryggur Andri Vagnsson situr og dorgar á Vestmannsvatni. Atli Sigurðsson situr í baksýn. Fengurinn Vænir silungar komu upp úr Vestmannsvatni í vikunni. Borgarráð hefur samþykkt að fjölga þeim einstaklingum um 750 sem fá sumarstörf hjá borginni. Er þetta gert til að koma sérstaklega til móts við 17 og 18 ára ungmenni. Með þessu verða yfir 1.700 sumarstörf í boði, að því er kemur fram í tilkynn- ingu frá Reykjavíkurborg. Fyrir námsmenn 18 ára og eldri verða 500 ný sumarstörf í boði. Ráðningartímabilið hjá hverjum og einum verður allt að tíu vikur. Áætl- aður heildarkostnaður Reykjavík- urborgar, þegar búið er að reikna mótframlag frá ríki, verður 131 milljón króna. Þetta er sambærileg aðgerð og ráðist var í síðasta sumar. Sumarstörf fyrir 17 ára einstaklinga verða 250 og ráðningartímabilið hjá hverjum og einum verður sex vikur. Kostnaður vegna starfanna verður 147 milljónir kr. Borgin hafði áður auglýst sum- arstörf fyrir ungmenni og áætlað að ráða 994 einstaklinga í þau. Þar af eru 115 sem munu starfa hjá íþrótta- félögum og æskulýðssamtökum í samvinnu við ÍTR. Morgunblaðið/Ásdís Sumarstörf Borgin hefur fjölgað störfum fyrir ungmenni í sumar. Bæta við 750 störf- um fyrir sumarið - Komið til móts við 17 og 18 ára

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.