Morgunblaðið - 23.04.2021, Side 11
SVIÐSLJÓS
Atli Vigfússon
Laxamýri
„Ég var lítill þegar afi fór að
bjóða mér með á dorg og mér
finnst mjög gaman að fara og
veiða. Það er ákveðin ró í því að
sitja úti á ísnum þegar gott er
veður og njóta náttúrunnar.“
Þetta segir Sigtryggur Andri
Vagnson frá Hriflu í Þingeyjar-
sveit en hann fór nokkrum sinnum
í vetur á Vestmannsvatn ásamt
fleirum og stundum var aflinn
nokkuð góður.
„Það er auðvitað alltaf skemmti-
legra að verða var en það er ekki
alltaf sem veiðist. Mest fékk ég
fimm silunga en annars svona einn
til tvo. Þá fór ég líka að dorga á
Ljósavatni en nú er ísinn að gefa
eftir svo veiðitímabilið er að verða
búið,“ segir Sigtryggur og bætir
við að það þurfi ákveðna þolin-
mæði í þetta en það sé bara gam-
an.
Eldaður sama daginn
Silungurinn sem hann veiðir er
notaður á heimilinu og oftast er
hann eldaður sama daginn til þess
að hann sé alveg nýr. Hann er
grillaður, soðinn eða steiktur en
einstaka sinnum flakaður og fryst-
ur til þess að geyma til betri tíma.
Sigtryggur segist eingöngu nota
hvítmaðk til beitu en maðkinn fær
hann hjá dorgfélaga sínum, Atla
Sigurðssyni á Ingjaldsstöðum,
sem kann að leggja í maðkaveitu.
Hann notar margt lífrænt sem
fellur til og má þar m.a. nefna sil-
ungsslóg, sláturúrgang og margt
fleira.
Fallegar bleikjur
Að sögn reyndra veiðimanna
sem stundað hafa dorgveiði á
Vestmannsvatni í áratugi hefur oft
verið meiri veiði á dorginu en í
vetur. Það var á þeim tíma sem
vatnið var ofsetið og þá var sil-
ungurinn smærri. Í fyrravetur var
ekki hægt að stunda veiði á vatn-
inu í gegnum ís vegna mikillar
ótíðar sem stóð í marga mánuði og
aldrei gaf á dorg.
Í vetur brá hins vegar til betri
tíðar og nú fyrri partinn í apríl
var kuldatíð, ekki miklar úrkomur
og oft mikið frost, sem varð til
þess að ísinn hélst lengur en búast
hefði mátt við. Einn bóndi fór nú í
vikunni og fékk fimm fallegar
bleikjur sem hann sagði að hefðu
verið feitar. Gott jafnvægi er í
vatninu og silungurinn hefur
stækkað með árunum.
Þakklátur afa sínum
Á dorginu á Vestmannsvatni eru
oft að veiðast nokkur hundruð sil-
ungar og sagt er að silungurinn sé
bestur á bragðið þegar farið er
beint heim og hann settur í pott-
inn spriklandi af dorginu. Ekki sé
til betri silungur en það. Sumir
segja að best sé að geyma soðið
og úr því má seinna búa til sil-
ungssúpu með sveskjum og rús-
ínum og sjóða hausana í súpunni.
Þannig kemur gott bragð af bein-
um og brjóski.
Dorgveiði er stunduð á mörgum
vötnum í Suður-Þingeyjarsýslu og
má þar nefna Ísólfsvatn, Kringlu-
vatn, Mývatn, Langavatn, Sand-
vatn og fleiri vötn fyrir utan
Ljósavatn og Vestmannsvatn.
Sigtryggur í Hriflu kann vel að
meta þetta vinsæla vetrarsport og
er þakklátur afa sínum og nafna
fyrir að hafa tekið sig með, snáð-
ann, og þannig fékk hann áhugann
á þessari ánægjulegu útivist.
Dorgveiðin vinsælt vetrarsport
- Dorgveiði er þolinmæðisverk - Veiðitímabilið á enda núna í byrjun sumars - Ágæt veiði hefur
verið í Vestmannsvatni í vetur - Dorgveiði stunduð í mörgum vötnum í Suður-Þingeyjarsýslu
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. APRÍL 2021
Vestmannsvatn er stöðuvatn á
mörkum Aðaldals og Reykja-
dals í S-Þing. Það er fremur
grunnt og er 2,38 ferkílómetr-
ar að flatarmáli. Það er gott
veiðivatn með víðivöxnum
hólmum og á bökkum þess
eru staraflögur nema að aust-
an. Þar er allbrött hlíð sem
nefnist Vatnshlíð og er skógi
vaxin. Þar er mikil berja-
spretta.
Í Vestmannsvatn fellur
Reykjadalsá en afrennsli þess
er Eyvindarlækur sem fellur í
Laxá í Aðaldal. Vestmannsvatn
tilheyrir nokkrum jörðum og
má þar nefna Fagranes, Fagra-
neskot, Helgastaði, Hólkot,
Höskuldsstaði og Pálmholt.
Tilheyrir
nokkrum
jörðum
VESTMANNSVATN
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Dorgveiði Sigtryggur Andri Vagnsson situr og dorgar á Vestmannsvatni. Atli Sigurðsson situr í baksýn.
Fengurinn Vænir silungar komu upp úr Vestmannsvatni í vikunni.
Borgarráð hefur samþykkt að fjölga
þeim einstaklingum um 750 sem fá
sumarstörf hjá borginni. Er þetta
gert til að koma sérstaklega til móts
við 17 og 18 ára ungmenni. Með
þessu verða yfir 1.700 sumarstörf í
boði, að því er kemur fram í tilkynn-
ingu frá Reykjavíkurborg.
Fyrir námsmenn 18 ára og eldri
verða 500 ný sumarstörf í boði.
Ráðningartímabilið hjá hverjum og
einum verður allt að tíu vikur. Áætl-
aður heildarkostnaður Reykjavík-
urborgar, þegar búið er að reikna
mótframlag frá ríki, verður 131
milljón króna. Þetta er sambærileg
aðgerð og ráðist var í síðasta sumar.
Sumarstörf fyrir 17 ára einstaklinga
verða 250 og ráðningartímabilið hjá
hverjum og einum verður sex vikur.
Kostnaður vegna starfanna verður
147 milljónir kr.
Borgin hafði áður auglýst sum-
arstörf fyrir ungmenni og áætlað að
ráða 994 einstaklinga í þau. Þar af
eru 115 sem munu starfa hjá íþrótta-
félögum og æskulýðssamtökum í
samvinnu við ÍTR.
Morgunblaðið/Ásdís
Sumarstörf Borgin hefur fjölgað störfum fyrir ungmenni í sumar.
Bæta við 750 störf-
um fyrir sumarið
- Komið til móts við 17 og 18 ára