Morgunblaðið - 23.04.2021, Side 12

Morgunblaðið - 23.04.2021, Side 12
FRÉTTASKÝRING Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Líkt og Morgunblaðið fjallaði um í mars hafa bæði Google og Apple gert breytingar á vöfrum sínum og stýrikerfum til að gera auglýsendum erfiðara fyrir að vakta netnotkun fólks með vafrakökum. Fram til þessa hafa auglýsendur notað vafra- kökur til að afla alls kyns upplýsinga um netnotendur og þannig getað sniðið markaðsefni sitt betur að hin- um ýmsu markhópum. Financial Times greindi frá því á fimmtudag að Apple muni ekki láta þar við sitja heldur hyggist fyrir- tækið auka umsvif sín á auglýsinga- markaði. Vitnar FT í tvo ónafn- greinda heimildarmenn sem þekkja til áætlana Apple. Markaðurinn fyrir stafrænar aug- lýsingar veltir nú nærri 380 millj- örðum dala árlega og hafa Facebook og Google þar afgerandi forystu. Þrátt fyrir stærð sína hefur Apple gengið erfiðlega að ná fótfestu á þessum markaði. Misheppnuð innreið iAd Apple reyndi að gera sig gildandi í netauglýsingaheiminum árið 2010 með kaupum á farsímaauglýsinga- fyrirtækinu Quattro Wireless fyrir 275 milljónir dala eftir að hafa misst af möguleikanum á að kaupa AdMob sem Google hrifsaði til sín síðla árs 2009 fyrir 750 milljónir dala. Eftir kaupin á Quattro Wireless kynnti Apple til sögunnar auglýsingaþjón- ustuna iAd sem í fyrstu tók aðeins að sér auglýsingaherferðir fyrir að lágmarki eina milljón dala. Var lág- markið fljótlega lækkað niður í hálfa milljón, og tveimur árum síðar niður í 50 dali. Var iAd sett á ís 2016 og ófarir verkefnisins m.a. raktar til þess að Apple vildi helst ekki deila notendaupplýsingum með auglýs- endum og að Apple reyndi að hafa áhrif á innihald og ásýnd auglýs- inga. Í dag selur Apple auglýsingar í snjallforritabúð sinni, App Store, þar sem framleiðendur geta látið forrit sín birtast ofar í leitarniður- stöðum. Nema tekjur Apple af þess- ari auglýsingasölu um 2 milljörðum dala árlega en í snjallforritaheim- inum getur sýnileiki í niðurstöðum App Store skilið á milli feigs og ófeigs. Að auki selur Apple auglýs- ingapláss í eigin verðbréfa- og frétta-snjallforritum. Ekki er ljóst hversu langt Apple mun ganga í sókn sinni inn á auglýs- ingamarkaðinn en FT hefur þó feng- ið staðfest að nýju auglýsingaplássi verði bætt við í App Store. Sumir markaðsgreinendur hafa spáð því að eftir að hafa sett vafrakökum stólinn fyrir dyrnar muni Google og Apple í staðinn safna notendaupplýsingum í eigin gagnagrunn og síðan selja aug- lýsendum aðgang að þessum upplýs- ingum. Þannig geti auglýsendur klæðskerasniðið auglýsingaefni sitt og birtingar án þess að lúra sjálfir á upplýsingum um netnotendur. Apple vill stærri bita af auglýsingamarkaðinum AFP Sóknarfæri Fólk á vappi um Apple-verslun. Fram til þessa hefur Apple aðeins náð að krækja í agnarsmáa sneið af netauglýsingamarkaðinum. - Fjölga auglýsingum í App Store - Meira gæti verið í vændum 12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. APRÍL 2021 L augarnar í Rey k javí k w w w. i t r. i s O P N A R LAUGARNAR ERU S ý num hve r t öð ru t illi t s s e mi og virðum 2 me t ra f ja rlægða rm ö rk in 23. apríl 2021 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 125.43 Sterlingspund 174.61 Kanadadalur 99.47 Dönsk króna 20.252 Norsk króna 14.994 Sænsk króna 14.836 Svissn. franki 136.59 Japanskt jen 1.1604 SDR 179.76 Evra 150.6 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 182.1096 Hrávöruverð Gull 1781.05 ($/únsa) Ál 2344.0 ($/tonn) LME Hráolía 67.2 ($/fatið) Brent Bandaríski netverslunarrisinn mun í næstu viku opna nýja hárgreiðslu- stofu á besta stað í London. Þar verður gerð tilraun með nýja tækni sem gæti gjörbreytt rekstri hár- greiðslustofa. Þökk sé gagnvirkum veruleika geta viðskitpavinir fengið að sjá á skjá hvernig nýr hárlitur eða tiltekin klipping fer þeim áður en hársker- inn svo mikið sem mundar skærin. Á meðan þeir sitja í rakara- stólnum hafa viðskiptavinir spjald- tölvu til afnota til að stytta sér stundir á meðan hárskerinn athafn- ar sig. Að klippingu og litun lokinni geta viðskiptavinir síðan tekið myndir af sjálfum sér í sérstökum krók á hárgreiðslustofunni. Þá verður nýja hárgreiðslustofan líka notuð til að prófa vörukynning- arlausn þar sem viðskiptavinir ein- faldlega benda með fingri á vöru sem stillt hefur verið upp í hillu og birtast þá á skjá ýmsar upplýsingar um vöruna sem viðskiptavinurinn getur síðan pantað heim að dyrum í gegnum netverslun Amazon. Til að byrja með mun aðeins starfsfólk Amazon geta nýtt sér þjónustu hárgreiðslustofunnar en á komandi vikum verður almenningi gefinn kostur á að panta þar tíma. ai@mbl.is Amazon opnar hárgreiðslustofu - Með gagnvirkum veruleika geta við- skiptavinir „mátað“ klippingar og liti Ljósmynd/Amazon Öryggi Viðskiptavinur skoðar lita- möguleikana á spjaldtölvuskjá. Sala á lúxusvarningi virðist ganga vel og útlit fyrir að greinin verði fljót að hrista af sér niðursveifluna sem varð í kórónuveirufaraldrinum. Þannig birti Hermès nýjar rekstr- artölur á fimmtudag sem sýndu að salan á fyrsta ársfjórðungi gekk mun betur en markaðsgreinendur höfðu spáð. Námu sölutekjur félags- ins um 2 milljörðum evra sem er 33% meira en á sama tímabili árið 2019. Einnig bárust sterkar tölur frá lúxusvörurisanum LVMH en þar voru sölutekjur á fyrsta ársfjórð- ungi 8% hærri en á fyrsta ársfjórð- ungi 2019, að því er FT greinir frá. Hjá Kering, sem m.a. rekur versl- anir Gucci, Saint Laurent og Balen- ciaga, mældist vöxturinn 5,5% mið- að við árið 2019. Vænta markaðsgreinendur þess að tekjur félaganna á þessu ári verði jafnháar eða hærri en árið 2019 og ætti hagnaður LVMH og Hermés að vera meiri en í hitteð- fyrra. Fækkun ferðamanna kom ekki að sök Í upphafi kórónuveirufaraldursins höfðu margir óttast að fram undan væri djúp lægð á lúxusvörumarkaði, m.a. vegna þess hve mikið geirinn reiðir sig á viðskipti ferðamanna sem þræða búðirnar þegar þeir heimsækja höfuðborgir tískuheims- ins í Evrópu. En strax um mitt síð- asta ár mátti greina vöxt í sölu. Örvunaraðgerðir stjórnvalda höfðu m.a. þau áhrif að hlutabréfa- verð leitaði upp á við sem kom sér vel fyrir marga fjársterka neyt- endur sem fyrir vikið voru viljugri til að eyða peningum sínum í lúxus- varning. Þá má ætla að ákveðinn hópur neytenda hafi haft meira eyðslufé milli handanna vegna lokana veit- ingastaða og takmarkana á flugi á milli landa, og því keypt sér lúxus- varning fyrst ekki var í boði að ferðast á fjarlægar slóðir eða gera vel við sig í mat og drykk á veitinga- stöðunum. ai@mbl.is AFP Gæði Skósmiður LVMH að störfum. Viðsnúningur í lúxusvörugeira - Meiri sala á fyrsta ársfjórð- ungi 2021 en 2019

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.