Morgunblaðið - 23.04.2021, Blaðsíða 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. APRÍL 2021
Ágúst Ásgeirsson
agas@mbl.is
Indverjar eignuðust heimsmet í ný-
smitun af völdum kórónuveirunnar
um árstíðaskiptin í gær er 314.835
einstaklingar greindust. Sjúkrahús í
Nýju Delhí sendu út neyðarkall og
vöruðu við dauðsföllum vegna skorts
á súrefni. Hið fjárvana heilbrigðis-
kerfi landsins er komið að fótum
fram vegna álags af nýrri bylgju
kórónuveirufaraldursins sem nýtt
„tvístökkbreytt“ afbrigði veirunnar
og fjölmennar trúarsamkomur hafa
kynt undir.
Að sögn heilbrigðisyfirvalda á
Indlandi hafa 15,9 milljónir Indverja
smitast af kórónuveirunni frá því í
ársbyrjun í fyrra er hún kom til
skjalanna. Í gær dró veiran 2.074
menn til dauða en dauðsföllin frá
upphafi eru komin í tæplega
185.000. Þrátt fyrir þetta eru dauðs-
föllin á Indlandi mun færri miðað
við íbúafjölda margra landa og því
er óttast að ástandið eigi enn eftir
að versna til muna.
Bæði einkarekin sjúkrahús og
ríkisrekin í Nýju Delhí hafa ákallað
ríkisstjórn landsins og farið þess á
leit að spítölunum verði séð fyrir
auknum birgðum af súrefni og önd-
unarvélum fyrir mörg hundruð fár-
veika sjúklinga. Ellegar sögðu þau
dauðsföllum geta fjölgað stórum. Í
fyrradag var dreift um 500 tonnum
súrefnis til borgarinnar, sem ekki
nægir, því til að halda í horfinu var
þörf fyrir súrefni áætluð 700 tonn á
dag. Stjórnmál hafa flækt stöðuna
því Delhí stjórnar annar flokkur en
flokkur Narendra Modi forsætisráð-
herra sem sakað hefur grannríkin á
Indlandi um að halda aftur af súr-
efnisbirgðum.
Í fyrrakvöld fyrirskipaði Hæsti-
réttur Delhí ríkisstjórninni að
tryggja greiða flutninga súrefnis frá
verksmiðjum til sjúkrahúsa um land
allt. „Þið betlið, fáið að láni og stelið
en verðið að skaffa,“ sögðu dómar-
arnir sem spurðu hvers vegna rík-
isstjórnin virtist ekki gera sér grein
fyrir vandanum alvarlega.
„Síðustu daga hefur verið háð
brjáluð barátta um súrefni. Spítöl-
unum er að blæða út vegna skorts-
ins,“ sagði Arvind Kejriwal for-
sætisráðherra Indlands í gær. „Nú
er súrefni tekið að berast [...] við
reynum að tryggja að hver vörubíll
með birgðir komist til spítalanna,“
bætti hann við. Þá kvaðst ráð-
herrann hafa gefið fyrirmæli um að
súrefni skyldi sent loftleiðis með
þyrlum til ríkisins Odisha í austur-
hluta landsins.
Með allt niður um sig
Á undanförnum vikum og mán-
uðum hefur mikið verið um fjölda-
samkomur á Indlandi. Þar á meðal
hafa milljónir sótt trúarsamkomuna
Kumbh Mela, pólitíska útifundi,
bruðlunarsöm fjöldabrúðkaup og
krikketleiki fyrir fullum stúkum
áhorfenda. „Ríkisstjórnin hefur ver-
ið gripin með allt niður um sig,“
sagði framkvæmdastjóri símafyrir-
tækis við AFP um ástandið. Hafa
mörg indversku ríkjanna gripið til
ýmissa takmarkana til að vinna á
veirufaraldrinum. Þannig er út-
göngubann í gildi í Delhí til einnar
viku, öllum verslunum með vörur
aðrar en matvæli og brýnustu nauð-
synjar hefur verið lokað í Maharas-
htra og Uttar Pradesh.
Modi hvatti eftir sem áður kjós-
endur til að fara á kjörstað í kosn-
ingum í Vestur-Bengal um helgina
þótt heilbrigðiskerfið riði þar til falls
vegna alvarlegs skorts á sjúkrarými.
Hægst hefur á framleiðslu lyfja
og bóluefnis gegn kórónuveirunni á
Indlandi og neyðast örvinglaðir ætt-
ingjar til að kaupa lyf og súrefni
óhóflegu verði og WhatsApp-hópar
fullir örvæntingar kalla úrkula von-
ar eftir hjálp.
Vegna ástandsins á Indlandi er
bandarískum þegnum ráðið að
leggjast þangað ekki í ferðir, ekki
einu sinni þeir sem eru bólusettir að
fullu. Í Bretlandi er Indland komið á
rauðan lista og Hong Kong og Nýja-
Sjáland hafa bannað flug til og frá
Indlandi. Ástralar settu í gær
strangari takmarkanir við komum
frá Indlandi. Sagði Scott Morrison
forsætisráðherra að fólk sem sneri
þaðan fyllti um 40% þess hóps er
greinst hefði í sóttkví.
Bólusetningarherferð indverskra
yfirvalda hefur þurft að yfirstíga
birgðahindranir en nú hafa verið
reistar skorður við útflutningi Ast-
raZeneca-bóluefnisins sem framleitt
er í landinu af Serum-lyfjaverk-
smiðjunni. Hafa 130 milljónir Ind-
verja verið sprautaðir og frá og með
1. maí fá allir íbúar landsins rétt til
að verða bólusettir.
Ríkisstjórnin hafi brugðist
„Ég á bara eitt orð yfir ástandið
sem er ógnþrungið,“ sagði 22 ára
námsmaður, Ananya Bhatt, við
AFP. „Allt þetta er um að kenna
skelfilegri óstjórn af hálfu ríkis-
stjórnarinnar. Hvers konar land er
það sem lætur borgara kafna og
deyja með þessum hætti?“ „Þjáist
þeir ríku og komist ekki í rúm og
súrefni á spítala hvað í ósköpunum
eigum við að gera veikjumst við?“
spurði 43 ára grænmetissali, Mukh-
tar. „Fólk deyr vegna þess að fólk
fær ekki súrefni á sjúkrahúsunum.
Hver ber ábyrgð á dauða þess? Rík-
isstjórnin gerir það, hún hefur
brugðist okkur.“
Gert er ráð fyrir að bólusetning
verði opin öllum fullorðnum og að-
gengileg í Þýskalandi frá og með
júní, að sögn heilbrigðisráðherrans
Jens Spahn. Sagðist hann vona að
þá verði hægt að aflétta öllum for-
gangi í bólusetningu, og jafnvel
fyrr. Í gær höfðu 21,6% Þjóðverja
fengið fyrri skammt bóluefnis gegn
kórónuveirunni. Þeir hafa til þessa
verið bundnir ströngu kerfi for-
gangshópa, sem aðallega hafa verið
skilgreindir eftir aldri.
Þrátt fyrir harðar gagnaðgerðir
hefur kórónuveiran verið harðsnúin
Þjóðverjum og sýkingar af hennar
völdum miklar mánuðum saman. Í
gær greindust 29.518 nýsmit sem er
með því versta frá upphafi.
AFP
Óvissa Fólk í löngum röðum bíður eftir bólusetningu í Mumbai á Indlandi
þar sem kórónuveira hefur valdið usla. Óánægju gætir meðal almennings.
Ógn vegna súrefnisskorts
- Óttast er að ástandið eigi enn eftir að versna til muna á Indlandi - Sjúkrahúsin
kalla eftir súrefni - Hafa farið fullgeyst um gleðinnar dyr - Álasa stjórnvöldum
„Kostnaður vegna aðgerðaleysis
hækkar og hækkar. Bandaríkin bíða
ekki lengur. Við einsetjum okkur að
taka í taumana,“ sagði Joe Biden
Bandaríkjaforseti er hann setti leið-
togafund um loftslagsmál sem fram
fór sem fjarfundur á netinu.
Um 40 leiðtogar munu koma við
sögu en samkvæmt áætlunum sem
Biden kynnti munu Bandaríkjamenn
tæplega helminga losun skaðlegra
lofttegunda fram til 2030.
Biden sagði að glíman við lofts-
lagsbreytingar væri mikilvægt tæki-
færi til að skapa ný störf og draga
þar með úr atvinnuleysi. „Með því að
finna þessu fólki atvinnu er það
markmið Bandaríkjanna að minnka
gróðurhúsaloft um helming fyrir lok
áratugarins,“ sagði Biden.
Markmið hans er að gera Banda-
ríkin að nýju forysturíki í loftslags-
málum að loknum valdatíma Don-
alds Trumps sem forseta en hann
dró Bandaríkin út úr loftslagssamn-
ingunum 2015 sem kenndir eru við
París. Var það fyrsta embættisverk
Bidens að fá aðild að því aftur.
„Þessi áratugur er afgerandi. Þau
skref sem við stígum nú og í Glasgow
munu skila jörðinni árangri. Tæki-
færið er alveg sérstakt,“ sagði Bi-
den. Næsti loftslagsfundur SÞ fer
fram í Glasgow í Skotlandi síðar í ár.
Leiðtogar hvattir áfram
Fyrir leiðtogafundinn höfðu leið-
togar heims verið hvattir til að sýna
meiri metnað, ekki síst ríki sem þótt
hafa drollað í loftslagsmálunum.
Meðal fundarmanna á hinum tveggja
daga netfundi eru leiðtogar Kína,
Bretlands, Indlands, Kanada,
Frakklands, Þýskalands, Suður-Afr-
íku, Bangladesh, Indónesíu og Rúss-
lands. agas@mbl.is
„Verðum að
gera betur“
- Leiðtogar funda um loftslagsmál
AFP
Loftslagsmál Frá leiðtogafund-
inum sem um 40 manns tóku þátt í.
Lítið rannsókn-
artæki á stærð
við brauðrist sem
er hluti af til-
raunatækjum
Marsfarsins
Þrautseigju hef-
ur breytt koltví-
ildi í lofthjúpi
reikistjörnunnar
í súrefni. Tækið,
sem kallað er
Moxie, skilaði 5 grömmum súrefnis
í fyrstu tilraun en það magn dugar
geimfara á mars í um 10 mínútur.
Afköst tækisins munu vera 10
grömm á klukkustund. Hugmynd
bandarísku geimferðastofnunar-
innar NASA er að í framtíðinni taki
geimfarar stærri útgáfu Moxie með
sér til mars fremur en að geimför
færi þeim allt súrefni sem þeir
þyrftu til dvalar á plánetunni
rauðu. Koltvíildi er ríkjandi í loft-
hjúpi Mars eða 96%. Súrefni mælist
aðeins 0,13% hjúpsins.
GEIMFERÐIR
Nýtt tæki framleiðir
súrefni á Mars
Ný tækni Moxie
skilar sínu á Mars.
Eftir nokkurra
vikna spennu
vegna aukins
samdráttar rúss-
neskra hersveita
í nágrenni landa-
mæra Úkraínu
tilkynnti varn-
armálaráðherr-
ann Sergej
Shoígu að hann
hefði fyrirskipað
nokkrum fylkjum að hverfa aftur
til búða sinna.
Evrópusambandið hafði áætlað
að yfir 100.000 rússneskir hermenn
hefðu safnast saman við landamæri
Úkraínu og á Krímskaga sem Rúss-
ar innlimuðu í ríki sitt 2014.
Shoigu talaði frá Krím og sagði
markmið „skyndiskoðunarinnar“
hafa náðst. Forseti Úkraínu, Vo-
lodymyr Zelensky, fagnaði að Rúss-
ar skyldu draga úr spennunni við
landamærin, en áður hafði hann
skorað á Pútín forseta að mæta sér
á fundi á umdeildu svæði við Krím.
LANDAMÆRADEILUR
Rússar munu draga
sig frá Úkraínu
Deila Hermenn á
landamærunum.