Morgunblaðið - 23.04.2021, Blaðsíða 21
MINNINGAR 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. APRÍL 2021
✝
Sigríður Vil-
mundardóttir
fæddist 2. nóv-
ember 1924 á Lönd-
um í Staðarhverfi í
Grindavík. Hún lést
á Dvalar- og hjúkr-
unarheimilinu
Lundi, Hellu, 8.
apríl 2021.
Foreldrar henn-
ar voru Guðrún
Jónsdóttir og Vil-
mundur Árnason, útvegs-
bændur á Löndum. Sigríður var
sjöunda í röð systkinanna, sem
voru Guðvarður, Árni, Anna,
Magnús, Borghildur, Guðni,
Gísli, Erlendur, Eyjólfur, Eð-
varð, Kristinn Jón og Hjálmar,
þau eru öll látin.
Dóttir Sigríðar og Júníusar
Halldórs Valdimarssonar, f. 11.
nóvember 1920, d. 7. apríl 1987,
er: 1) Elsie, f. 5. ágúst 1945.
Maki Runólfur Haraldsson, f. 26.
október 1941. Þeirra dætur eru
flutti með foreldrum sínum til
Reykjavíkur vorið 1947 og vann
þar ýmis störf. Sigríður og Ólaf-
ur réðu sig árið 1951 sem ráðs-
fólk til Skúla Thorarensen á
Geldingalæk á Rangárvöllum.
Árið 1953 flytja þau á nýbýlið
Hjarðarbrekku, sem þau
byggðu upp frá grunni. Sigríður
var húsmóðir af gamla skól-
anum, bakaði, prjónaði og saum-
aði flest til heimilisins ásamt því
að sinna bústörfum með Ólafi.
Sigríður starfaði með kven-
félaginu Unni, var um tíma for-
maður þess og seinna gerð að
heiðursfélaga. Sigríður og Ólaf-
ur stunduðu búskap uns þau
fluttu á Selfoss í nóvember 1999.
Eftir andlát Ólafs bjó Sigríður
ein í húsi þeirra fram að andláti.
Útförin fer fram frá Odda-
kirkju í dag, 23. apríl 2021, kl.
13. Streymt verður frá athöfn-
inni á slóðinni:
https://www.facebook.com/
groups/jardarforsigridarvilmund-
ardottur
Stytt slóð:
https://tinyurl.com/wwdxarcw
og útvarpað í nágrenni Odda-
kirkju á tíðninni FM 103,5.
Streymishlekk má nálgast á:
https://www.mbl.is/andlat
Sigríður, Val-
gerður Lára og
Ólafía Ósk. Afkom-
endur eru 17 tals-
ins.
Sigríður giftist
10. maí 1951 Ólafi
Gíslasyni, f. 10. maí
1919, d. 22. janúar
2004. Börn þeirra
eru: 2) Vilmundur
Rúnar, f. 5. desem-
ber 1951. Maki
Helga Sigurðardóttir, f. 1. apríl
1951, þeirra börn eru: drengur,
f. 1974, d. 1974, Ólafur, Árni og
María. Barnabörnin eru 6. 3)
Svala, f. 3. maí 1953. Maki Svav-
ar Jóhannesson, f. 15. október
1961, synir þeirra eru: Sindri, f.
1993, d. 1993 og Styrmir. 4) Guð-
rún Bára, f. 7. ágúst 1955. Maki
Árni Snævar Magnússon, f. 27.
janúar 1951, þeirra dóttir er:
Hafrún Gróa. Barnabarnið er 1.
Sigríður ólst upp á Löndum í
Staðarhverfi í Grindavík. Hún
Tárin blika í augum en bros
færist á vanga þegar ég sest niður
með penna og blað til að minnast
þín, elsku mamma. Tilfinningin er
svo skrítin að skreppa ekki í
Grenigrundina til þín tvisvar eða
þrisvar á dag. Síminn hringir aldr-
ei meir og þú spyrð hvort ég sé á
leiðinni af því þig vantar smá að-
stoð. Öll kvöldin sem við eyddum
við spjall og hlátur því alltaf var
stutt í bros og smá grín. Nú er
hláturinn þagnaður í Grenigrund-
inni. Aldrei oftar heyri ég setn-
inguna: „Ég er að fara í búð á
morgun, hvað ætli mig vanti?“
Minnismiðinn þinn liggur enn á
borðinu fyrir síðustu búðarferðina
sem aldrei var farin. Já, þú sást
ekki til að skrifa, sjónin þín hvarf.
Það var það versta hjá þér að geta
ekki gert neitt í höndunum; prjón-
að, heklað, nú eða ráðið sudoku.
Mörg kvöldin sátum við í Greni-
grund og rifjuðum upp liðna daga
og var gott að minnast þess sem á
dagana hafði drifið, t.d. afans sem
þú hafðir hjá þér fyrstu 10 árin.
„Besti afi í heimi“ eða hann Þor-
geir sem ætlaði að gefa þér
gullskó þegar þú yrðir stór en
þegar kom að skuldadögum var
hann látinn. Oft var líka minnst á
sunnudagasvuntuna sem þú náðir
þér í á virkum degi til að geta
dansað í uppi á hólnum og svo það
löppin undan eldavélinni sem þú
skírðir Sullu og notaðir sem
dúkku. Oft var minnst á góða fólk-
ið sem gaf þér hádegismat alla
skólagönguna og gönguna á milli
hverfa.
Eins og hjá flestum var lífið
ekki alltaf dans á rósum og fékk
fjölskyldan á Löndum að finna
fyrir því. Næstyngsta barnið dó
þriggja ára og húsfreyjan missti
heilsuna, en alltaf stóðuð þið sam-
an og allir lögðust á eitt til að ekki
þyrfti að sundra heimilinu.
Þegar árin liðu og þið ákváðuð
að yfirgefa Staðarhverfið fluttuð
þið til Reykjavíkur, stutt stopp
þar, svo var flutt austur á Rang-
árvelli. Þar byggðuð þið pabbi ný-
býlið Hjarðarbrekku, þar sem þið
lifðuð og störfuðuð til ársins 1999.
Í Hjarðarbrekku varst þú hin ís-
lenska húsmóðir í sveit. Þú gekkst
í störfin innan og utan húss. Oft
var heimilið mannmargt og allt
bakað heima, brauð, kökur, svo
var sett í eina brúna lagtertu með
hvítu kremi og vínartertu fyrir
helgar. Fjósið og beljurnar okkar
voru fastur punktur, alltaf mætt í
mjaltir á réttum tíma. Margar
góðar stundir áttum við þegar ver-
ið var í fjósaverkunum. Rólegheit
og yfirvegun kusanna var
heillandi. Ekki má gleyma sauð-
burðinum, það eru ófá lömbin sem
þú hjálpaðir í heiminn.
Garðurinn þinn í sveitinni var
þitt stolt og yndi. Gleðin þegar
ræktunin fór að skila sínu og
skjólið myndaðist og fyrsta rifs-
berjauppskeran kom. En oft hlóg-
um við þegar við minntumst reyni-
viðarins sem hvergi leið nógu vel í
garðinum og var tekinn upp og
gróðursettur á 4-5 mismunandi
stöðum í garðinum.
Elsku mamma, nú ertu farin að
hitta pabba aftur eftir 17 ár. Þú
stóðst þig eins og hetja þegar
hann dó og allt í einu þurftir þú að
hugsa um allt sem hann hafði séð
um. Ég veit hann beið þín hinum
megin á gamla Glað með Eitil sér
við hlið og þið hélduð saman af
stað út í gróandann. Takk, elsku
mamma, fyrir allt, ég sakna þín
endalaust.
Þín dóttir,
Bára.
„Tilvera okkar er undarlegt
ferðalag, við erum gestir og hótel
okkar er jörðin.“ Þetta er m.a. eitt
af þeim ljóðum sem hún tengda-
móðir mín valdi til að láta flytja við
útförina sína. Það verður dálítið
skrítið að kíkja ekki við í Greni-
grundinni þegar leið liggur á Sel-
foss og þiggja kaffibolla og aðrar
góðgjörðir. Hún Sigga hefur svo
sannarlega lifað tímana tvenna.
Fædd árið 1924 í litlu timburhúsi á
Löndum í Staðarhverfi, Grinda-
vík, sem að hluta til var byggt úr
hinu fræga James Town-timbur-
flutningaskipi, 37,6 fermetrar að
gólffleti. Þar bjuggu foreldrar
hennar og komu upp stórum
barnahóp, hún var 7. í röðinni af 13
börnum þeirra Guðrúnar Jóns-
dóttur og Vilmundar Árnasonar.
Það hefur því stundum verið
þröng á þingi, en samstaðan og
samhjálpin fleyttu fjölskyldunni
áfram. Lengstan hluta ævinnar
bjó hún með manni sínum og
börnum í Hjarðarbrekku á Rang-
árvöllum.Hún vildi láta kalla sig
„Siggu í Hjarðarbrekku“. Fyrir
rétt tæpum 50 árum kom ég fyrst
að Hjarðarbrekku með einkasyni
hennar sem átti eftir að verða
maðurinn minn. Frá fyrstu tíð tók
hún mér opnum örmum. Við grín-
uðumst stundum með það að ég
væri „uppáhalds“-tengdadóttirin.
Það er margs að minnast og geymi
ég góðar minningar í huga mínum
eftir 48 ára kynni. Hún hafði ein-
staklega góða nærveru og var
ávallt glæsileg og vel til fara.
Sigga var hamhleypa til allra
verka og mikil húsmóðir og
handavinnukona, það eru ófá
prjónuðu sjölin og rúmteppin sem
hún útbjó svo listilega og gaf vin-
um og vandamönnum eða þá dúk-
arnir stórir og smáir sem hún
prjónaði úr silkigarni. Ég er þess
ekki megnug að fara ítarlega í
gegnum lífshlaup hennar en síð-
ustu skiptin sem ég hitti hana líða
mér seint úr minni. Þó sjón og
heyrn hefðu yfirgefið hana og erf-
iðara reyndist að hafa ekki eitt-
hvað á „prjónunum“ þá hafði hún
andlegt atgervi til hinstu stundar.
Hvíl í friði. Takk fyrir allt og allt.
Helga Sigurðardóttir.
Ég kveð nú hana ömmu mína,
Sigríði Vilmundardóttur, sem lést
8. apríl síðastliðinn. Amma mín
var ein af mínum uppáhaldsman-
neskjum. Það er mjög sárt að sjá
hana fara en þannig er lífið. Síðan
amma kvaddi hef ég verið að velta
mér upp úr gömlum minningum
sem ég á um hana. Ég man hlý-
lega eftir því þegar ég var lítill og
við amma vorum að horfa á Bang-
símon og þáttinn Hvíti Úlfur, sem
sýndur var á Stöð tvö hér áður
fyrr. Hún virtist aldrei verða
þreytt á því að horfa með mér á
þessa vitleysu og mér þótti mjög
vænt um það. Í seinni tíð minnist
ég þess að koma í kaffi til hennar
þar sem við spjölluðum um allt
milli himins og jarðar. Mér þótti
alltaf óþarfi og smá fyndið hvað
hún hafði mikið fyrir kaffitíman-
um, þar sem hvorki ég né hún
höfðum sérstaka ánægju af kræs-
ingunum sem hún lagði fram. Við
höfðum eiginlega bara áhuga á
kaffinu.
Elsku amma, nú þegar þú ert
farin, þá er mjög erfitt að hugsa að
ég muni aldrei aftur koma aftur í
heimsókn til þín og hitta þig. Ég
mun ekki koma til með að kíkja í
heimsókn og drekka kaffi með þér
og spjalla um hitt og þetta.
Þú varst alltaf svo hlýleg og góð
við mig og mér mun alltaf þykja
vænt um þig. Þín verður sárt
saknað, amma.
Guð geymi þig.
Þinn
Styrmir.
Sigríður
Vilmundardóttir
- Fleiri minningargreinar
um Sigríði Vilmundar-
dóttur bíða birtingar og
munu birtast í blaðinu næstu
daga.
✝
Pálmar Björg-
vinsson er
fæddur í Mið-
húsum á Djúpavogi
29. júní 1949 og
þar ólst hann upp í
stórum systk-
inahópi. Pálmar
lést á gjörgæslu-
deild Landspítal-
ans við Hringbraut
3. apríl 2021.
Foreldrar hans
voru Halldór Björgvin Ív-
arsson, f. 18. desember 1904, d.
7. desember 1988, og Þorgerð-
ur Pétursdóttir, f. 2. ágúst
1913, d. 3. júlí 1997.
Systkini Pálmars í réttri
aldursröð eru:
Una Stefanía, f. 1931, d.
1995, Anna Margrét Björgvins-
dóttir, f. 1933, d. 1951, Haukur
Björgvinsson, f. 1935, Fjóla
Björgvinsdóttir, f. 1937, d.
2017, Ragna Björgvinsdóttir, f.
kvæntur Ingibjörgu Jónsdóttur,
f. 1972. Börn þeirra eru Jó-
hann Fannar, f. 1991, barn Jó-
hanns er Eyþór Atli, f. 2011,
Freydís Ösp, f. 1996, og Viktor
Daði, f. 2002.
Sigrún Huld, búsett í Þor-
lákshöfn, f. 1975. Er hún gift
Guðmundi Hjartarsyni, f. 1973,
börn þeirra eru Eiður Smári, f.
1999, Auðunn Ari, f. 2007, og
Eyrún Saldís, f. 2009.
Harpa Lind, f. 1979, d. 2019.
Fyrir átti Sigrún tvo drengi,
Jón Magnússon, f. 1960, og
Ingvar Oddgeir Magnússon, f.
1963.
Jón er kvæntur Kristínu
Önnu Jónsdóttur, f. 1963. Börn
þeirra eru Drengur, f. 1984, d.
1984, Anna, f. 1986, Hrefna, f.
1986, barn hennar Baldur, f.
2020, Magnús, f. 1988, börn
hans eru Jón Karel, f. 2010, og
Rúnar Elí, f. 2013.
Ingvar Oddgeir á þau
Sunnu, f. 1981, barn hennar er
Jón Guðni, f. 2017, Pétur Inga,
f. 1986, Ernu Ósk, f. 1995, börn
hennar eru Oliver Líndal, f.
2019, og Darri Líndal, f. 2020,
og Helgu Rún, f. 1999.
Ólst Pálmar upp á Djúpavogi
í Miðhúsum með foreldrum og
systkinum, hann byrjaði ungur
að stunda sjómennsku á Djúpa-
vogi þar sem hann reri á bát-
um frá sínum heimabæ og
einnig frá Hornafirði. Um tví-
tugt lá leið hans til Reykjavík-
ur.
Árið 1969 kynntist hann Sig-
rúnu og fóru þau fljótlega að
búa saman í Skólagerði. Það
var svo 20. maí árið 1972 sem
þau gengu í hjónaband og árið
1972 eignuðust þau sitt fyrsta
barn, Pálmar Ægi. Árið 1975
fæddist svo Sigrún Huld og ár-
ið 1976 keyptu þau sína fyrstu
íbúð í Kjarrhólma 18. Harpa
Lind fæddist síðan árið 1979 og
lá svo leið fjölskyldunnar til
Þorlákshafnar í maímánuði ár-
ið 1981 þegar þau keyptu í
Eyjahrauni. Þá reri Pálmar á
báti sem var í eigu Glettings
sem var gerður út frá Þorláks-
höfn. Það var fátt sem Pálmar
gat ekki gert. Hann var lista-
smiður eins og sést vel á sum-
arbústað þeirra hjóna sem
hann byggði sjálfur árið 1995
en hann er staðsettur í Gríms-
nesi. Útför hefur farið fram í
kyrrþey að ósk hins látna.
1938, d. 2018,
Berta Björgvins-
dóttir, f. 1939, Ívar
Björgvinsson, f.
1941, Björk Björg-
vinsdóttir, f. 1942,
d. 2018, Pétur
Björgvinsson, f.
1944, Stúlka Björg-
vinsdóttir, f. 1945,
d. 1945, Hrafnhild-
ur Björgvinsdóttir,
f. 1947, Anna Mar-
grét Björgvinsdóttir, f. 1951.
Þann 20. maí 1972 kvæntist
Pálmar Sigrúnu G. Guðmunds-
dóttur, f. 1942, frá Stíflu í V-
Landeyjum. Foreldrar hennar
voru Guðlaug Ingvarsdóttir, f.
1923, d. 1979, frá Stíflu í V-
Landeyjum, og Guðmundur
Pétursson, f. 1917, d. 2002, frá
Hellissandi.
Pálmar og Sigrún eignuðust
þrjú börn: Pálmar Ægir, bú-
settur í Noregi, f. 1972, og er
Elsku hjartans pabbi minn.
Aldrei óraði mig fyrir að þú
fengir ekki lengri tíma með okk-
ur. Ég veit að sérhvern dag á ég
eftir að hugsa til þín og ég veit
líka að elsku Harpa Lind litla
systan mín og þitt yngsta barn
hefur tekið vel á móti þér.
Ég ætlaði heldur ekki í þetta
verkefni sem okkur var falið núna
að missa þig frá okkur, eftir mjög
snarpa en erfiða baráttu í þínum
veikindum, ég sagði við þig þegar
við fórum suður til að hitta lækn-
inn þinn fimmtudaginn 25. mars
að þetta væri sko verkefni sem
við ætluðum að tækla saman. En
oftar en ekki ráða örlögin og
varstu tekinn allt of fljótt frá okk-
ur en elsku pabbi, það er svo
margt sem ég er þakklát fyrir,
mest fyrir að hafa átt þig fyrir
pabba, svo bestur og blíðastur og
líka fyrir hve frábær vinur þú
varst, ég gat alltaf leitað til þín og
mömmu alveg sama hve málið var
smátt eða risastórt, þú varst góð-
ur vinur, frábær tengdapabbi og
veit ég að Gummi á eftir að sakna
þín mikið, þið áttuð ekki sjaldan
bátspjall saman, þú sagðir svo oft
ef Gummi veit það ekki þá veit
það enginn. Ég er þakklát fyrir
helgina sem við áttum saman
uppi í bústað í mars. Við systkinin
vorum svo ótrúlega lánsöm að
ferðast mikið með ykkur mömmu
hérna innanlands, krúsa um klak-
ann á gulum Bronco með bleika
tjaldið, ferðanna sem voru farnar
í Miðhús á Djúpavogi til ömmu og
afa, hitta Ívar og Pétur bræður
þína og fjölskyldurnar þeirra,
fara niður í Tríton með afa, rölta
fjöruborðið, læra að fleyta kerl-
ingar og sjá aflann hjá Ívari þeg-
ar hann kom í land á Möggunni.
Með tárum og trega þarf ég að
kveðja þig en efst í huga mér er
þakklæti fyrir að hafa átt þig að,
eins mikinn klett og þú varst,
staðfastur og einlægur, en ég er
lánsöm að fá að hafa mömmu hjá
okkur.
Þangað til næst, þín dóttir
Sigrún Huld.
Pálmar
Björgvinsson
Ástkær eiginkona mín, móðir, dóttir,
tengdadóttir, tengdamóðir og amma,
ÓLAFÍA KRISTÍN SIGURÐARDÓTTIR,
Lúlla,
Skagfirðingabraut 8, Sauðárkróki,
lést föstudaginn 16. apríl.
Hún verður jarðsungin frá Sauðárkrókskirkju fimmtudaginn
29. apríl klukkan 14. Vegna fjöldatakmarkana verða einungis
nánustu ættingjar og vinir viðstaddir. Útförinni verður streymt á
https://www.youtube.com/watch?v=-hzQqQdkHb8
Lúðvík R. Kemp
Friðgeir Kemp Hulda Hákonardóttir
Sigurður St. Björnsson Rakel Sigurðardóttir
Elísabet G. Kemp
Rósa Kristín Kemp
Lúðvík Kemp
Hákon Kemp
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
HALLGRÍMUR HALLGRÍMSSON
frá Akranesi,
lést á Landspítalanum sunnudaginn 18.
apríl. Útför fer fram frá Fossvogskirkju
miðvikudaginn 28. apríl kl. 13.
Í ljósi aðstæðna verða einungis nánustu aðstandendur og vinir
viðstaddir. Athöfninni verður streymt. Hlekk á streymi verður
hægt að nálgast á mbl.is/andlat.
Guðlaug Jónsdóttir
Helga María Hallgrímsdóttir Andreas Gollenstede
Ingunn Hallgrímsdóttir Hlynur Jónsson
Stefanía Ellingsen Jesper Holdt Jensen
Tatiana Hallgrímsdóttir
Kristinn Bjarnason Rakel María Eggertsdóttir
barnabörn og barnabarnabarn
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
UNNUR KARLSDÓTTIR,
Básbryggju 51, Reykjavík,
lést á Landspítalanum 19. apríl. Jarðarför
auglýst síðar.
Úlfur Þór Ragnarsson
Karl Ágúst Úlfsson Ágústa Skúladóttir
Inga Úlfsdóttir Ragnar S. Ragnarsson
Linda Rán Úlfsdóttir Sigurður Ingi Jónsson
barnabörn og barnabarnabörn
Eiginkona mín,
ESTER ZOPHONÍASDÓTTIR,
Sílatjörn 14, Selfossi,
áður til heimilis að Ásavegi 16,
Vestmannaeyjum,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands
sunnudaginn 18. apríl.
Fyrir hönd aðstandenda,
Ástþór E. Ísleifsson