Morgunblaðið - 23.04.2021, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 23.04.2021, Qupperneq 25
DÆGRADVÖL 25 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. APRÍL 2021 ÁR 1921-2021 Í Y KKA R ÞJÓNUSTU 10% afsláttur fyrir 67 ára og eldri Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „Í SÍÐASTA SKIPTI, RUNÓLFUR, ÉG ER SVARAMAÐURINN OG ÞÚ ERT BRÚÐGUMINN. VIÐ GETUM EKKI SKIPT UM STAÐ!“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að hlaupa maraþon fyrir góðgerðar- samtökin hennar TILBÚIN Í ÆFINGAR? VIÐ SKULUM BYRJA Á NOKKRUM ÖNDUNARÆFINGUM ÉGÆTLA RÉTT AÐ VONA AÐ ÞÚ HAFIR EKKI KVEIKT Í KASTALANUM TIL AÐ RÆNA ÞESSU! ÉG TRÚI ÞVÍ EKKI AÐ ÞÚ HAFIR SKOÐUN Á ÞESSU! VEISTU HVERSU ERFITT ÞAÐ VÆRI AÐ NÁ REYKJARLYKT ÚR FÖTUM DROTTNINGARINNAR? ÞEF VOF F! „VEISTU, ÞÚ ÞARFT EKKI AÐ STOPPA VIÐ HVERN BRUNAHANA.“ HUNDAÞJÁLFUN Hrauni, og Guðríður Guðjónsdóttir, f. 7.10. 1931, d. 20.9. 2002, húsfreyja. Þau bjuggu í Reykjavík. Fyrrver- andi sambýliskona Þrastar er Íris Guðmundsdóttir, f. 11.1. 1962. Börn Þrastar og Írisar eru 1) Silja Lind Þrastardóttir, f. 3.5. 1982, vinn- ur á kaffihúsi, býr í Reykjavík. Maki: Hafþór Páll Bryndísarson. Börn þeirra eru Vilborg Elín, f. 2009, Brynhildur Íris, f. 2013, og Hafrún Björg, f. 2016; 2) Pálína Margrét Þrastardóttir, f. 6.3. 1993, skrif- stofumaður og býr í Kópavogi: Maki: Aðalsteinn Arnór Sigurpálsson. Börn þeirra eru Rúrik Leó, f. 2017, og Ylfa Mardís, f. 2020; 3) Vilborg Kristín Þrastardóttir, f. 26.2. 1995, vinnur hjá Aur, býr í Reykjavík; 4) Guðmundur Leó Þrastarson, f. 11.7. 1997, vinnur á bílasölu, býr í Reykja- vík. Dóttir Þrastar og Helgu er 5) María Þrastardóttir, f. 29.6. 2005. Stjúpdætur Þrastar og dætur Helgu eru Guðríður Hlín Geirsdóttir, f. 1.4. 1987, forstöðumaður Muggsstofu á Bíldudal, hún á tvo stráka, og Sól- veig Magnea Guðjónsdóttir, f. 15.1. 1995, náttúrufræðingur á Hafrann- sóknastofnun. Maki: Jorid Tase. Systkini Þrastar: Jón Rúnar Gunnarsson, f. 22.2. 1954, d. 8.10. 2012, kaupmaður og leikari á Bíldu- dal; Fríða Björk Gunnarsdóttir, f. 27.2 1956, leikskólakennari á Álfta- nesi, býr í Kópavogi; Valdimar Smári Gunnarsson, f. 8.7. 1958, framkvæmdastjóri UMSK, býr í Reykjavík; Svanur Kolbeinn Gunn- arsson, f. 27.2. 1964, fiskifræðingur, býr í Reykjavík, og Unnsteinn Vík- ingur Gunnarsson, f. 31.12. 1966, framkvæmdastjóri Arnarlax, býr í Reykjavík. Foreldrar Þrastar: Hjónin Vil- borg Kristín Jónsdóttir, f. 8.12. 1931, ljósmóðir og Gunnar Knútur Valdi- marsson, f. 3.11. 1924, d. 20.6. 2010, vörubílstjóri, flugvallarvörður, fjár- bóndi og bíóstjóri. Þau bjuggu á Bíldudal, en Vilborg dvelur nú á Patreksfirði. Þröstur Leó Gunnarsson Mikkelína Jensdóttir húsfreyja í Bolungarvík Guðjón Gíslason bóndi og sjómaður í Bolungarvík Guðrún Jóna Bjarney Guðjónsdóttir húsfreyja á Vindheimum og Fífustöðum Jón Bjarni Ólafsson bóndi á Vindheimum í Tálknafirði og Fífustöðum í Arnarfirði Vilborg Kristín Jónsdóttir ljósmóðir á Bíldudal Jóna Gísladóttir húsfreyja á Vindheimum Ólafur Kolbeinsson bóndi á Vindheimum Guðbjörg Kristín Guðmundsdóttir húskona í Auðkúluhr. og húsfreyja á Þingeyri Bjarni Bjarnason húsmaður víða í Auðkúluhr. og á Þingeyri Jónfríður Bjarnadóttir húsfreyja á Bíldudal Valdimar Bjarnason fiskverkamaður og fjárbóndi á Bíldudal Ingibjörg Vilborg Ásbjörnsdóttir húsfreyja á Auðkúlu Bjarni Sigurðsson bóndi á Auðkúlu í Arnarfirði Úr frændgarði Þrastar Leós Gunnarssonar Gunnar Knútur Valdimarsson flugvallarvörður og bíóstjóri á Bíldudal Um helgina fjölgaði þeim semgreindust með Covid og spurður hvort von væri á hertum aðgerðum svaraði Þórólfur Guðna- son sóttvarnalæknir, að hann væri með hönd á byssunni en ekki búinn að draga hana upp. Helgi Ingólfs- son orti á Boðnarmiði: Um kúrekanna byggð og ból beitt skal pestin hörku’ á ný. Er aðalstrætið signir sól sériff tekur gikkinn í. Síðan bætti Helgi við: Ef helst sú pörupilta vá pestin verður fljót inn, og skrambi miklu skiptir þá að skjóta sig ekki’ í fótinn. „Vorbrigði“ segir Ólafur Stef- ánsson og yrkir: Það var um páska að pikkað fannst mér og barið, í prýðisveðri, rólegt var skýjafarið. Svo rauk hann upp, rétt svo að næmi ég svarið: hér ráfaði vorið um garða, – búið og farið. Indriða á Fjalli þykir vora seint: Ekki gengur allt í haginn. Alveg komið nóg. Sumarmála miðjan daginn mokar niður snjó. Guðmundur Arnfinnsson yrkir og kallar „Sjálfstæðingur“: Bjartur var baráttuglaður og blés á allt samvinnuþvaður, ei studdist við staf og standandi svaf, enda sannur sjálfstæðismaður. Það var í fréttum RÚV að héraðs- dómur Reykjaness hefði gert rækt- anda að afhenda viðskiptavini sín- um hund sem hann var með í pössun. Halldór Guðlaugsson orti: Ákaft skelfur aftur grund er það núna vegna þess að konur berjast hart um hund í Héraðsdómi Reykjaness. Friðrik Steingrímsson gefur holl ráð: Ýmsra líf er ansi hart oft þó hrjái saklaus pest, þegar skitu verður vart vinsamlegast farð’í test. Áætlanir um að stofna „of- urdeild“ knattspyrnuliða hafa vak- ið sterk viðbrögð. Kristján H. Theó- dórsson tekur djúpt í árinni: Auraglýja og græðgin hörð, gjörðum þeirra ræður. „Ofurdeild“ um alla jörð, aðeins nokkrar hræður. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Af byssugikk, ofurdeild og veðurfari

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.