Morgunblaðið - 23.04.2021, Side 27
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. APRÍL 2021
_ Handknattleiksmaðurinn Arnór
Freyr Stefánsson spilar ekki meira
með Aftureldingu á tímabilinu en von-
ast var til að hann myndi snúa aftur í
síðustu deildarleikina. Markvörðurinn
meiddist á hné í lok febrúar og tók
ekki þátt í síðustu leikjum Mosfellinga
áður en Íslandsmótinu var frestað
vegna hertra sóttvarna. Gunnar Magn-
ússon, þjálfari Aftureldingar, greindi
frá þessu í samtali við handbolta.is.
Arnór hefur komið við sögu í 13 leikj-
um til þessa en ásamt honum eru
markmennirnir Bjarki Snær Jónsson
og Brynjar Vignir Sigurjónsson í leik-
mannahópi liðsins.
_ Knattspyrnumaðurinn Zlatan Ibra-
himovic verður áfram í herbúðum AC
Milan á næstu leiktíð og mun því fagna
fertugsafmæli sínu sem leikmaður í
efstu deild á Ítalíu. Miðillinn Goal
greinir frá því að Zlatan hafi samþykkt
eins árs framlengingu á samningi en
hann hefur skorað 15 mörk í 17 leikjum
fyrir liðið í vetur. Svíinn, sem sneri á
dögunum aftur í sænska landsliðið,
verður fertugur í október.
_ Jón Dagur Þorsteinsson lagði upp-
fyrra mark AGF í 2:0-heimasigri á
Randers í úrslitakeppni dönsku úrvals-
deildarinnar í knattspyrnu í gær. Sig-
urinn var sá fyrsti hjá AGF í úr-
slitakeppninni en liðið situr í 3. sæti
riðilsins af sex. Íslendingurinn var í
byrjunarliðinu og spilaði fyrstu 84.
mínúturnar en hann lagði upp opn-
unarmark leiksins strax á sjöundu
mínútu, átti fyrirgjöf frá vinstri sem
Albert Gronbæk skoraði úr með
skalla. Alexander Ammitzboll skoraði
svo annað markið í uppbótartíma eftir
að Jón Dagur var farinn af velli.
AGF er sem fyrr segir í 3. sæti með 42
stig en sex umferðir eru eftir af tíma-
bilinu.
Eitt
ogannað
Leicester nældi í langþráð og mik-
ilvæg þrjú stig í baráttunni um sæti í
Meistaradeild Evrópu á næstu leik-
tíð er liðið lagði West Brom að velli,
3:0, í ensku úrvalsdeildinni í gær-
kvöldi. Leicester er í þriðja sæti, nú
með fjögurra stiga forystu á Chelsea
og West Ham í fjórða og fimmta
sæti. Sex umferðir eru eftir af deild-
inni.
Leicester tryggði sér sinn fyrsta
úrslitaleik í enska bikarnum síðan
1969 um síðustu helgi er liðið vann
sigur á Southampton í undanúrslit-
unum á Wembley en þar áður voru
lærisveinar Brendans Rodgers bún-
ir að tapa tveimur deildarleikjum í
röð. Þau töp, gegn Manchester City
og West Ham, hafa eflaust minnt
stuðningsmenn Leicester á hvað
gerðist á síðustu leiktíð en þá missti
liðið af Meistaradeildarsæti í loka-
umferðinni eftir að hafa verið meðal
efstu liða allan veturinn. Jamie
Vardy og félagar sýndu þó í gær að
þeir ætla að forðast endurtekningu á
slíku í sumar. Vardy kom heima-
mönnum yfir snemma leiks og mörk
frá Jonny Evans og Kelechi Ihea-
nacho innsigluðu svo öruggan sigur
gegn lánlausu liði West Brom sem er
að öllum líkindum á leiðinni niður.
West Brom var reyndar búið að
vinna tvo í röð, gegn Chelsea og
Southampton, fyrir leikinn í gær-
kvöldi. Þrátt fyrir það er liðið í 19.
sæti, átta stigum frá Burnley og
öruggu sæti þegar aðeins sex um-
ferðir eru eftir. Sam Allardyce og
hans menn þurfa á litlu kraftaverki
að halda í þeim leikjum sem eftir
eru.
Meistaradeildarsætið í augsýn
- West Brom þarf á kraftaverki að
halda til að bjarga sér frá falli
AFP
Sjaldgæft Jonny Evans, annar frá hægri, skoraði sitt fyrsta mark í vetur.
Íslandsmeistarinn Valgarð Rein-
hardsson er úr leik á Evrópumótinu
í áhaldafimleikum en hann meiddist
á ökkla á fyrsta áhaldi í undan-
úrslitunum í gær. Martin Bjarni
Guðmundsson og Jónas Ingi Þór-
isson kepptu báðir á sínu fyrsta
Evrópumóti í fullorðinsflokki og
kláruðu sína fjölþraut með ágæt-
isárangri. Martin endaði í 61. sæti
og Jónas í 63. sæti af 152 kepp-
endum. Jón Sigurður Gunnarsson
keppti í hringjum og endaði í 49.
sæti en átta efstu á hverju áhaldi
fóru áfram í úrslit.
Meiddist á ökkla
á fyrsta áhaldi
Ljósmynd/FSÍ
Meiddur Valgarð Reinhardsson
varð að draga sig úr keppni.
Elvar Már Friðriksson er einn at-
kvæðamesti leikmaðurinn í efstu
deildinni í körfuknattleiknum í
Litháen á sínu fyrsta tímabili í
deildinni. Eins og fram kom í
blaðinu í gær átti Elvar magnaðan
leik á miðvikudag og hitti úr öllum
skotunum. Skoraði hann 33 stig og
fékk 51 í framlag.
Elvar er hæstur allra þegar kem-
ur að framlagi í vetur en á bak við
hana er heildarframmistaða í leikj-
um. Elvar er einnig með flestar
stoðsendingar og þriðji í stiga-
skorun að meðaltali. kris@mbl.is
Elvar Már einn sá
atkvæðamesti
Ljósmynd/Sveinn Helgason
Litháen Elvar Már Friðriksson er
einn sá atkvæðamesti í deildinni.
Olísdeild karla
Grótta – KA........................................... 33:37
Fram – FH............................................ 30:34
Staðan:
Haukar 15 12 1 2 426:362 25
FH 16 10 3 3 475:435 23
Afturelding 15 9 1 5 392:389 19
ÍBV 15 8 1 6 435:413 17
KA 15 6 5 4 400:384 17
Valur 15 8 1 6 437:410 17
Selfoss 15 7 2 6 386:375 16
Fram 15 7 2 6 387:383 16
Stjarnan 15 7 2 6 413:402 16
Grótta 16 3 4 9 402:421 10
Þór Ak. 15 3 0 12 343:412 6
ÍR 15 0 0 15 349:459 0
Þýskaland
Flensburg – Ludwigshafen................ 35:29
- Alexander Petersson skoraði ekki fyrir
Flensburg.
Melsungen – Kiel ................................. 26:32
- Arnar Freyr Arnarsson skoraði 1 mark
fyrir Melsungen. Guðmundur Þ. Guð-
mundsson er þjálfari liðsins.
Balingen – Essen ................................. 31:28
- Oddur Gretarsson skoraði 4 mörk fyrir
Balingen.
Hannover-Burgdorf – Wetzlar ........... 25:24
Nordhorn – Minden ............................. 20:22
Staða efstu liða:
Flensburg 44, Kiel 43, RN Löwen 40,
Magdeburg 38, Göppingen 34, Füchse
Berlín 29, Wetzlar 28, Bergischer 27, Mel-
sungen 25, Leipzig 25, Lemgo 24.
Sviss
Bikarkeppnin, undanúrslit:
Bern – Kadetten .................................. 20:27
- Aðalsteinn Eyjólfsson þjálfar Kadetten.
.$0-!)49,
Geysilega óvænt úrslit urðu í öðr-
um leik Fjölnis og Skautafélags
Akureyrar í úrslitarimmunni um
sigurinn á Íslandsmóti kvenna í ís-
hokkí í Egilshöllinni í gærkvöldi.
Fjölnir vann eftir framlengdan
leik og vítakeppni. Jafnaði Fjölnir
þar með 1:1 í úrslitunum og munu
liðin mætast í oddaleik á Akureyri
um titilinn. Fer leikurinn fram
annað kvöld og hefst klukkan 21.
Að loknum venjulegum leiktíma
var staðan 3:3 en í framlenging-
unni varði Andrea Jóhannesdóttir
öll þrjú víti SA og Laura Murphy
skoraði úr víti fyrir Fjölni.
Sveiflurnar á milli leikja voru
gífurlegar því SA vann fyrsta
leikinn á Akureyri 13:1.
Fjölnir komst þrívegis yfir í
leiknum. Laura Murphy skoraði
fyrsta markið strax á 3. mínútu
eftir stoðsendingu frá Kristínu
Ingadóttur en Berglind Leifs-
dóttir var snögg að jafna eftir
stoðsendingu frá Teresu Snorra-
dóttur. Laura Murphy skoraði aft-
ur fyrir Fjölni en Sunna Björg-
vinsdóttir jafnaði eftir
stoðsendingu frá Jónínu Guð-
bjartsdóttur.
Staðan var 2:2 að loknum fyrsta
leikhluta og stóð þannig fram í
þriðja leikhluta. Þá kom Sigrún
Árnadóttir Fjölni í 3:2 en Hilma
Bergsdóttir jafnaði eftir und-
irbúning Berglindar Leifsdóttur
þegar þrettán mínútur voru eftir.
Andrea varði víti frá Kolbrúnu
Garðarsdóttur, Sunnu Björgvins-
dóttur og Sögu Sigurðardóttur.
Birta Þorbjörnsdóttir markvörður
SA varði víti frá Kristínu Inga-
dóttur. sport@mbl.is
Morgunblaðið/Sigurður Ragnarsson
Á vaktinni Andrea Jóhannesdóttir í marki Fjölnis í leik liðanna í Egilshöllinni í gær en hún réð úrslitum í vítakeppninni.
Andrea lokaði markinu