Morgunblaðið - 29.04.2021, Side 6

Morgunblaðið - 29.04.2021, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 2021 STUÐ Í ÚTILEGUNNI MEÐ EXIDE RAFGEYMUM Áreiðanlegir og sterkbyggðir AGM rafgeymar henta vel fyrir ferðavagna, s.s. hjólhýsi, fellihýsi o.fl. Hraðari hleðsla, minna viðnám í hleðslu, engin uppgufun í hleðslu og lengra úthald. Veldu þaulreynda vöru frá gæðaframleiðanda. Ráðgjafar Olís og Rekstrarlands veita allar nánari upplýsingar í síma 515 1100 eða pontun@olis.is. Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is „Það er enn þá mjög rólegt yfir þess- um markaði og við erum mjög langt frá því sem var fyrir faraldurinn. En við finnum fyrir áhuga, ekki síst frá Bandaríkjunum og það virðist tengj- ast því að bólusetningar ganga nú vel.“ Þetta segir Stefán Smári Krist- insson, rekstrarstjóri ACE FBO, sem sinnir þjónustu við einkaþotur á Reykjavíkurflugvelli. Tilefni þess að blaðamaður hafði samband við Stefán var mynd sem náðist af glæsilegri og stórri einka- þotu sem staðið hefur nokkra daga við einn brautarenda Reykjavíkur- flugvallar. Þar er á ferðinni nýleg þota úr smiðju Bombardier sem er af svokallaðri Global 6000-gerð. Kom hún til landsins á sunnudag eftir beint flug frá Ben Gurion-flugvelli í Tel Aviv í Ísrael. Samkvæmt upplýs- ingum sem flightaware.com heldur utan um tók flugið til Íslands 6 klukkustundir og 37 mínútur. Dag- ana á undan hafði vélin verið í förum milli Tel Aviv og Paphos-flugvallar á Kýpur. Líkt og almennt gildir um vél- ar af þessu tagi er örðugt að fá upp- lýsingar um hverjir nýta sér þjónustu þeirra á hverjum tíma. Stefán Smári ítrekar að vélin sem hér um ræðir hafi ekki notið þjónustu ACE FBO. Hins vegar séu vélar sem þessi nokkuð algengar þegar verið er að ferja auðugt fólk til og frá landinu. „Þetta eru stórar vélar og sumar þeirra eru það stórar að ef þær eru með fullfermi og fullar af eldsneyti, ekki síst ef verið er að fljúga héðan til Asíu, þá duga flugbrautirnar hér í Reykjavík ekki. Þá verður að ferja farþegana til Keflavíkur og vélarnar taka á loft þaðan. Einfaldara er fyrir þær að lenda hér þegar þær koma til landsins enda er þá búið að brenna stórum hluta eldsneytisins.“ Stefán Smári segir að ACE FBO þjónusti ekki aðeins einkaþotur sem hingað koma með ferðamenn. Meðal annars felist verkefni fyrirtækisins í að þjónusta vélar sem verið er að ferja milli Evrópu og Bandaríkjanna en þar er gjarnan um vélar að ræða sem verið er að selja milli landa. „Það er eitthvað að gera í þessu en þetta nær ekki einni vél á dag. Það lagast vonandi fljótt enda skiptir þessi starfsemi miklu máli og margir sem hafa atvinnu af því að hingað komi ferðamenn, m.a. með einkaþot- um.“ Áhugi á flugi með einkaþotu að aukast - Ein og ein vél sem tínist inn - Stór Bombardier Global Express 6000-vél á vellinum síðustu daga - Sumar vélarnar það stórar að með fullfermi geta þær ekki tekið á loft á Reykjavíkurflugvelli Morgunblaðið/Eggert M-ARVA Þotan sem verið hefur á Reykjavíkurflugvelli síðustu daga kom hingað beint frá Tel Aviv í Ísrael. Bombardier Global 6000 » Vélin sem verið hefur á Reykjavíkurflugvelli er Bomb- ardier Global 6000-vél. » Smíðuð árið 2017. » Þykir afar góð í ókyrru lofti. » Ný kostar vélin 60 milljónir dollara eða um 7,5 milljarða ís- lenskra króna. » Leiga á svona vél kostar frá 10 þúsund dollurum á klukku- stund eða 1,2 milljónir króna. Það var ekki dónalegt útsýnið sem blasti við göngu- og hlaupagörpum á Esjunni í gærmorgun. Talsverð umferð var af fólki árla morguns enda veður gott. Enn mátti þó greina leifar af mistri sem verið hefur yfir höfuðborginni og víðar um landið í vikunni. Einar Sveinbjörnsson veð- urfræðingur segir að um sé að ræða þurramistur sem hvorki verði rakið til eldgossins í Geld- ingadölum né til foks frá söndum hér á landi eða svifryks frá um- ferð. „Það er búið að vera hæglátt veður undanfarið og þetta mistur hefur sennilega verið á hringsóli í loftinu í einhverja daga eða vikur,“ segir veðurfræðingurinn. „Líklega er þetta reykur kominn mjög langt að og í hægum vindum háloftanna er þynningin minni en alla jafna. Mögulega eru þetta fín- agnir sem haldist hafa á lofti og sveimað um á hringsóli, þess vegna í vikur. Uppruninn er hins vegar mjög sennilega vegna bruna á jörðu niðri eða iðnaðarmengunar.“ Margir nýttu fallegt veður til morgunferðar á Esjuna í gær Óútskýrt mistur yfir landinu Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Einstakt Margir fengu þá hugmynd að nýta morguninn í gær til ferðar á Esjuna. Útsýnið var einstakt þótt þurramistur væri enn greinilegt.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.