Morgunblaðið - 29.04.2021, Side 59

Morgunblaðið - 29.04.2021, Side 59
sama hátt og við verðum vitni að hruni einstaklingsins Ölmu og væri jafnframt í fullkominni and- stöðu við þessa hvítu sterilíseruðu ganga réttargeðdeildarinnar,“ seg- ir Kristín og tekur fram að hug- myndir hennar, hvort heldur er í kvikmyndum eða leikhúsi, kvikni ávallt út frá hinu sjónræna. Dauðastund að ná réttri töku „Ég leita sjálf að öllum töku- stöðum og finn lausnir út frá því. Það sama gildir í leikhúsinu. Ég get ekki farið að vinna í einhverri sviðsmynd sem einhver annar hef- ur ákveðið. Það kvikna myndir í kringumstæðum og ég verð að elta þær hugmyndir og í framhaldinu kveikir ein hugmynd aðra. Allt er breytingum undirorpið. Það er ekkert, hvorki í kvikmyndum né leikhúsi, klappað í marmara. Þetta er allt lifandi, kvikt efni og síbreytilegt. Það er það sem er svo dásamlegt við sköpunina. Þetta er eins og lífið. Við erum stöðugt að skapa okkur og lífið, eins og myndlistarmaður er stöð- ugt að þróa mynd á ramma, alltaf að bæta einhverjum nýjum lit við og kannski fara í nýjar áttir sem enginn sá fyrir.“ Talandi um leikhús þá hefur þú verið virkur sviðsleikstjóri í gegn- um tíðina. Hvernig horfa þessir tveir miðlar við þér sem leik- stjóra? „Kvikmyndin og leikhúsið eru gjörólíkir miðlar. Leikhúsið er lif- andi miðill og hluti af helgiathöfn sem krefst nærveru. Leikhúsið er list augnabliksins og því eru engar tvær sýningar eins,“ segir Kristín og tekur fram að hún hvetji fólk til að sjá leiksýningar oftar en einu sinni með einhverju millibili til að sjá hvernig þær þróast. „Kvikmyndirnar aftur á móti eru einhvers konar röð dauða- mómenta. Það er alltaf ákveðin dauðastund þegar þú ákveður á setti að búið sé að ná réttu tök- unni, sem verður eftir það ekki breytt. Þó svo að okkur finnist kvikmyndir einhvern veginn vera raunverulegri og raunsærri en leikhúsið, þá er kvikmyndin alltaf ákveðinn draumur. Ég vísa nú bara í Luis Buñuel í því sambandi. Í kvikmyndasal fara áhorfendur út úr sjálfum sér og varpa sér inn í tálsýnina sem kvikmyndin er. Kvikmyndin er draumsýn sem er ekki til í raun, þó eða jafnvel vegna þess að hún er gerð á mjög raunverulegan hátt.“ Á félaga í hugmyndunum Aðal leiksýninga þinna hefur iðulega verið hversu sjónrænt sterkar þær eru. Upplifir þú ein- hver líkindi milli þess hvernig þú vinnur sjónrænt fyrir leikhúsið annars vegar og kvikmyndina hins vegar? „Mér finnst mjög spennandi að fara á milli þessara tveggja miðla af því hvað þeir eru ólíkir. Í leik- húsi ferðu ekki auðveldlega milli staða. Í leikhúsi verður þú því allt- af að kjarna ákveðinn stað. Mér finnst einmitt mjög spennandi að vinna mig inn að kjarna verksins til að finna þetta innra rými sem er líka ytra rýmið. Þetta er staður helgileiksins sem segir fullt eins mikið um hvað leikritið er eins og leiktextinn sjálfur.“ Hefði viljað gefa fólki meira Sérðu fyrir þér að þú munir gera fleiri kvikmyndir á ferlinum? „Helstu leikstjórar heims hafa verið að gera myndir jafnvel yfir nírætt. Í huga mínum er ekki þverfótandi fyrir hugmyndum að nýjum kvikmyndum og nýjum sviðsetningum. Ég nærist á þess- um hugmyndum. Í allri auðmýkt hefði ég gjarnan viljað gefa fólki meira. Það var að minnsta kosti minn draumur. En ég vissi það líka fyrir fram þegar ég byrjaði í kvikmyndum að ég myndi ekki fá að gera óteljandi myndir. Kringumstæður og umhverfið var þannig. Ég sagði einhvern tímann á einhverjum nefndarfundi hjá kvikmyndasjóði að ég væri að spekúlera í því að gera sjö myndir um skilningarvitin og þá spurði einn nefndarmanna: „Hvernig heldur þú að þú getir gert það?“ Það var því ekki verið að hvetja mann áfram. En til þess að geta gert kvikmynd er nauðsynlegt að finna framleiðanda sem hægt er að treysta. Sigurður var einn slík- ur en hann kaus að einbeita sér að skáldskapnum eftir tvær kvik- myndir okkar saman, ákvörðun sem ég skildi djúpum skilningi,“ segir Kristín, eftirlifandi ekkja Sigurðar Pálssonar skálds sem lést haustið 2017. Ég þrífst á sköpuninni Þú hefur sjálf skrifað handritin að kvikmyndum þínum. Hefur þér aldrei dottið í hug að leikstýra eigin leikriti á sviði? „Nei, aldrei hefur sú hugsun flögrað að mér. Kannski af því ég var gift leikskáldi og setti á svið verk hans. Mér fannst það full- komið fyrirkomulag. Mér datt bara aldrei í hug að skrifa fyrir leikhús þar eð verk Sigurðar voru þau bestu, en hver veit nema ég geri það. Það er þó heilt lífsstarf að verða gott leikritaskáld. Úr því að þú minnist á þetta þá fæðist kannski einhver hugmynd,“ segir Kristín kímin og tekur fram að hún sé að minnsta kosti ekki sest í helgan stein. „Mér finnst ég hafa þrek og löngun og gleði af því að vinna áfram í leikhúsinu – og þess vegna kvikmyndum líka ef hag- stæðar kringumstæður skapast. Ég er til í hvað sem er. Ég þrífst á sköpuninni.“ Konur skynja tímann öðruvísi Að lokum er ekki úr vegi að spyrja hvort þú sjáir einhverja breytingu til batnaðar frá því þú fluttir eldheita þakkarræði þína þegar þú tókst við heiðurs- verðlaunum Eddunnar árið 2013? Í ræðunni gerðir þú rýran hlut kvenna í kvikmyndum að umtals- efni og minntir á að slíkur ójöfn- uður hamlaði ekki bara eðlilegri framþróun greinarinnar heldur samfélagsins alls. Þú kallaðir eftir því að konur fengju að segja fleiri sögur og að sögur kvenna væru sagðar. Alma er ótvírætt kvenna- saga og á nýliðnum árum hafa til dæmis bæði Silja Hauksdóttir og Ísold Uggadóttir sagt sterkar kvennasögur í myndum sínum. Heldur þú að ræða þín hafi haft jákvæð áhrif á kvikmyndabrans- ann hérlendis? „Ég get ekki varist því að tengja þær breytingar sem orðið hafa í bransanum a.m.k. að ein- hverju leyti við ræðuna. Ég man eftir þessum tveimur ungu konum á hátíðinni þegar ég flutti þessa hvatningarræðu. Hópur kvenna í kvikmyndabransanum mætti á verðlaunaafhendinguna klæddar í jakkaföt og sumar með gerviskegg til að vekja athygli á rýrum hlut kvenna í bransanum. Skilaboðin voru skýr: Þurfum við að vera eins og karlar til að fá inngöngu inn í kvikmyndasamfélagið? Ég vissi að ég yrði í beinni út- sendingu og hefði forseta Íslands sem lífvörð á sviðinu þannig að enginn gæti stoppað mig í miðri ræðu. Ég ákvað því að láta bara vaða,“ segir Kristín og rifjar upp að ræðan hafi valdið ákveðnu upp- námi hjá sumum. „En í framhald- inu fékk ég fjölda tölvupósta frá konum hvaðanæva á landinu sem mér þótti ótrúlega vænt um og langar að nota tækifærið hér til að þakka fyrir þessa fallegu pósta. Konurnar þökkuðu mér fyrir ræð- una og höfðu margar orð á því hversu mikilvægt það væri að kon- ur fengju tækifæri til að sjá á hvíta tjaldinu sögur kvenna út frá forsendum kvenna, en ekki bara með augum karla,“ segir Kristín og tekur fram að myndmálið sjálft segi sitt um upplifun og hvernig konur sjá heiminn. „Sem dæmi er magnað að sjá hvernig konur skynja tímann með öðrum hætti en karlmenn og eru einnig miklu óhræddari við að brjóta upp línulega frásagnar- formið,“ segir Kristín og vísar í því samhengi til heimildarþátt- anna Women Make Film: A New Road Movie Through Cinema frá 2018 sem Mark Cousins gerði, en þættirnir, sem eru samtals 14 klukkustundir í spilun, spanna 13 áratugi og fimm heimsálfur í við- leitni sinni til að skrásetja hvernig konur hafa nýtt kvikmyndamið- ilinn sem listform í gegnum tíðina. „Mark Cousins skoðaði kvik- myndagerð kvenna frá upphafi og komst að því að það eru til myndir eftir þúsundir kvenna sem enginn hefur heyrt minnst á eða nokkur man eftir. Hann tekur til með- höndlunar 183 konur og þar á meðal eru snilldarverk sem standa upp úr í kvikmyndasögunni. Ég horfði á þessa þætti þegar þeir voru sýndir í sænska ríkissjón- varpinu og skora á RÚV að sýna þá hérlendis,“ segir Kristín að lokum. Kvóti Ölmu er ætlað að taka við útgerðinni sem er á hausnum. Hins vegar eru menn sem ásælast kvótann, „þannig að þetta eru mjög þekktar kringumstæður sem ég nota í þessu tilviki“, segir höfundur og leikstjóri Ölmu. Alma Snæfríður Ingvarsdóttir „er sérstaklega næm stúlka og upprennandi stórleikkona“, segir leikstjórinn um Snæfríði sem leikur titilhlutverkið. Jafnræði Kristbjörg Kjeld og Emmanuelle Riva „eiga saman dásamlegar senur í myndinni“, segir Kristín Jóhannesdóttir leikstjóri Ölmu. » Aðalatriðið er að hafa ætíð meðferðis lyklakippu með þúsund lyklum sem opnað geta fyrir manni möguleika og hjálpað til við að finna lausnir. MENNING 59 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 2021 Húðfegrun ehf | Vegmúli 2 | Sími 533 1320 | www.hudfegrun.is Tímapantanir í síma 533 1320 Búumyfir 20 ára reynslu í húðmeðferðum -Þitt útlit.Okkar þekking. VARANLEG Laser háreyðing •Öflug og áhrifarík háreyðing • Fjarlægir óæskilegan hárvöxt Kostir okkar háreyðingalaser umframönnur lasertæki: . Auðveldara er að losna við ljósari og fíngerðari hár. . Hægt er að losna við hár ámilli augabrúna og í kringumaugabrúnir. . Hægt er að losna við hár inni í eyrumog nefi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.