Morgunblaðið - 29.04.2021, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 29.04.2021, Blaðsíða 38
SVIÐSLJÓS Ómar Friðriksson omfr@mbl.is V erulegar breytingar á vinnutíma vaktavinnufólks hjá ríki og sveitarfélögum taka gildi 1. maí eftir vandasaman og flókinn undirbúning. Alls eru um 7.300 starfsmenn í vaktavinnu hjá ríkinu. Fram kom í máli Bjarna Benediktssonar fjár- mála- og efnahagsráðherra á Alþingi í vikunni að stytting vinnuskyldu vaktavinnufólks myndi að öðru óbreyttu mynda mönnunargat sem gæti orðið allt að 780 stöðugildi. Hins vegar væri gert ráð fyrir að þetta gat mætti manna að mestu með breyt- ingum á starfshlutföllum vakta- vinnufólks í hlutastarfi. Áhrif styttingarinnar úr 40 tím- um í 36 eða jafnvel niður í 32 stundir verða mismikil eftir stofnunum. Á sumum er flest vaktavinnufólk í 100% starfi og þar þarf að ráða nýtt fólk til að fylla upp í mönnunargatið. Á öðrum er fjöldi starfsmanna í hlutastörfum og munu margir bæta við sig starfshlutfalli. Vaktavinnufólk er um þriðjungur ríkisstarfsmanna, langflestir við störf í heilbrigðisþjón- ustu og í löggæslu. 3.000 í vaktavinnu á LSH Stærsti hópurinn er á Landspít- alanum og mun breytingin hafa áhrif þegar vinnutími um 3.000 vakta- vinnustarfsmanna fer úr 40 stunda vinnuskyldu jafnvel niður í allt að 32 tíma að sögn Gunnars Ágústs Bein- teinssonar, framkvæmdastjóra mannauðsmála. Hann segir þetta verkefni „Betri vinnutími“ sennilega vera mestu byltingu á íslenskum vinnumarkaði í 40 ár. „Verkefnið hef- ur reynst gríðarlega viðamikið og margs hefur þurft að gæta við aðlög- un vakta- og vinnufyrirkomulags að breyttum vaktakafla kjarasamninga þannig að ekki verði röskun á okkar viðkvæmu þjónustu. Mannauðsfólk og stjórnendur spítalans hafa kapp- samlega unnið að undirbúningi verk- efnisins frá upphafi þess og það er útilokað annað en að það trufli starf- semi okkar að einhverju leyti, en við lítum á þetta sem jákvætt framfara- skref,“ segir hann. Gunnar segir stjórnendur spít- alans hafa staðið í ströngu að raða saman vöktum og gefa út nýjar vaktaáætlanir fyrir breytt vinnu- fyrirkomulag og það hafi gengið mjög vel. Þá sé launamyndun vakta- vinnustarfsmanna að breytast í grundvallaratriðum þar sem nýir launamyndandi þættir koma inn, aðr- ir breytast og enn aðrir detta út. „Áskorunin sem stjórnendur spítalans hafa staðið frammi fyrir er að mönnunargat mun myndast í kjöl- far þessara breytinga en þó hafa hækkanir á starfshlutfalli núverandi starfsmanna farið fram úr vonum og von er á að einhverjir starfsmenn muni áfram óska eftir auknu starfs- hlutfalli eftir að vinnutímabreyting- arnar taka gildi. Þá munu verða ráðnir inn nýir starfsmenn fljótlega. Eins og staðan hjá okkur er í dag vantar um 120 stöðugildi til þess að loka ætluðu mönnunargati en rétt er að geta þess að heildarfjöldi stöðu- gilda vaktavinnumanna er um 2.200 á Landspítala,“ segir hann í skriflegu svari. Spurður hvort breytingin muni hafa áhrif á skurðaðgerðir segir hann enn unnið að útfærslu verkefnisins á skurðstofum og því liggi möguleg áhrif ekki fyrir. Engin skerðing á þjónustu Hjá lögreglunni á höfuðborgar- svæðinu starfa nær allir lögreglu- menn á 100% vöktum og hefur breyt- ingin mest áhrif í almennu deildinni og umferðardeild. Ásgeir Þór Ás- geirsson yfirlögregluþjónn segir verkefnið á almennu deildinni, sem er fjölmennust, í sjálfu sér ekki tæknilega erfitt. Lögreglumenn eru með valkvætt vaktakerfi og með þessum breytingum gæti vöktum hvers og eins fækkað um tvær eða þrjár í mánuði. Gert er ráð fyrir að ráða þurfi 16 nýja lögreglumenn á al- mennu deildinni vegna vinnutíma- breytinganna og viðbótarráðningar starfsmanna hjá embættinu eru alls 23 eða 24. „Við erum með allt klárt og það eina sem fólk mun mögulega sjá 1. maí eru nokkur ný andlit sem við er- um búin að ráða. Það á ekki að verða nein þjónustuskerðing, alla vega mið- að við þær forsendur sem við miðum við,“ segir Ásgeir en þær forsendur byggjast m.a. á að nægir fjármunir fáist til verkefnisins. 13 mínútur hjá slökkviliðinu Hjá Slökkviliði höfuðborgar- svæðisins eru vinnutímabreyting- arnar innleiddar í tveimur áföngum á þessu og næsta ári. Stéttarfélag slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna samdi um það á sínum tíma að sögn Jóns Viðars Matthíassonar slökkvi- liðsstjóra. 1. maí næstkomandi verð- ur stytting vinnuvikunnar 13 mín- útur fyrir hverja vakt en breytingin í heild verður svo innleidd að ári. „Við erum búin að leysa þetta með því að fjölga hjá okkur mönn- um,“ segir hann en 14 manns hafa fengið fastráðningu hjá slökkviliðinu í tengslum við þessar breytingar. Slökkviliðs- og sjúkraflutninga- menn hafa líka samið um lengingu sumarorlofs í 240 stundir eða sex vik- ur í stað orlofs, sem var mislangt eft- ir aldri. Því þarf einnig að ráða eitt- hvað fleiri sumarstarfsmenn. Mönnunargat áskor- un fyrir stjórnendur Morgunblaðið/Eggert Landspítali Vinnutími 3.000 vaktavinnustarfsmanna styttist 1. maí. 38 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 2021 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Spenna ríkirnú í Frakk-landi eftir að 25 fyrrverandi hershöfðingjar í franska hernum undirrituðu opið bréf til stjórn- valda um helgina, þar sem var- að var við því að „borgarastyrj- öld“ væri handan við hornið vegna ásóknar íslamista í land- inu. Fjöldi manns hefur síðan lýst yfir stuðningi við bréfið og voru sumir þeirra núverandi hermenn. Hefur varnarmála- ráðherrann sagt að „vissulega verði afleiðingar“ af stuðnings- yfirlýsingunni fyrir starfandi hermenn, þar sem þeir séu að brjóta lög með yfirlýsingu sinni. Þótti tímasetning bréfsins ekki síst athyglisverð, en á mánudaginn voru sextíu ár liðin frá lokum valdaránstilraunar, þar sem franskir hershöfð- ingjar reyndu að neyða Charles de Gaulle, þáverandi Frakk- landsforseta, til þess að draga ekki franskt herlið frá Alsír. Vakti ekki síður athygli að í bréfinu var vikið að því að mögulega þyrftu þeir sem nú væru enn við skyldustörf að grípa í taumana til að verja „menningarleg gildi Frakka“. Bréfið kemur á vondum tíma fyrir Emmanuel Macron Frakklandsforseta, en Frakkar eru enn að jafna sig á atviki í síðustu viku, þar sem hryðjuverka- maður ættaður frá Túnis myrti lög- reglukonu, en einn- ig ákváðu dóm- stólar nýverið að öðrum slíkum, sem myrti konu af gyðinga- ættum, yrði ekki gerð refsing, þar sem sá hefði verið undir áhrifum kannabisefna. Þá hefur hann sjálfur verið í eldlínunni vegna ummæla sinna eftir að franskur skólakennari var myrtur í fyrra fyrir að sýna um- deildar teikningar af Múhameð spámanni. Marine Le Pen, sem sumir telja að gæti á ný orðið helsti keppinautur Macrons um for- setastólinn, fagnaði framtaki hershöfðingjanna fyrrverandi og bauð þeim að styðja sig opin- berlega í forsetakapphlaupinu sem nú er að hefjast. Nær engar líkur eru taldar á því að franski herinn muni reyna að skipta sér af frönskum innanríkismálum, þrátt fyrir opna bréfið. Bréfið sýnir hins vegar að í Frakklandi ríkir mik- il ólga og hætta er á að upp úr sjóði. Macron, sem sakaður er um linkind gagnvart hryðju- verka- og ofbeldismönnum, þarf að íhuga vandlega hvernig hann hyggst taka á þessari ólgu. Það verður ekki gert með því einu að fordæma hershöfð- ingjana fyrrverandi. Afmæli valdaráns- tilraunar markað með opnu bréfi} Frakkland á suðupunkti Hildur Sverris-dóttir vara- þingmaður Sjálf- stæðisflokksins í Reykjavík skrifaði í vikunni athyglis- verða grein hér í blaðið. Hún vildi að fólki væri gert það auðveldara að eignast börn en steinar ekki lagðir í götu þeirra sem vildu og þyrftu að leita sértækra úr- ræða í þeim efnum. Í grein Hildar segir: „Af ill- skiljanlegum ástæðum er sem dæmi lagt bann við því að gefa tilbúinn fósturvísi þótt bæði sé heimilt að gefa sæði og egg. Fólk sem vill fara í tækni- frjóvgun skal sömuleiðis vera skráð í staðfesta sambúð. Við skilnað verður að eyðileggja fósturvísi jafnvel þótt ein- staklingarnir vilji samt eignast barnið eða fyrir liggi samþykki beggja aðila fyrir því að annað þeirra nýti fósturvísinn. Eins má nefna að ef par telur full- reynt að eignast barn sjálft, sem oft gerist á síðustu metr- um frjósemisaldurs, gera ætt- leiðingarreglur þeim ekki auð- veldara fyrir. Par verður þá að hafa verið gift í þrjú ár eða skráð í staðfesta sambúð í fimm ár, þá tekur við líffræðilegt þak þar sem fólk má ekki hafa náð 45 ára aldri til að mega ættleiða – né reyndar vera í yfir- þyngd. Allt þetta er eflaust, eða var, hægt að rökstyðja út frá ýms- um ástæðum líkt og flest. En ég er ósammála því að þessar reglur þurfi.“ Augljóst má vera að mjög stjórnlynt fólk hefur stofnað til slíkra reglna og komið þeim í gegn. Til að mynda er ljóst að fólk hefur gjarnan leitað allra leiða og þar með talið utan- aðkomandi hjálpar til að eign- ast börn með hefðbundnum hætti. Þegar það virðist full- reynt getur tekið við umþótt- unartími um að leita annarra leiða við fjölskyldumyndun. Á meðan gengur klukkan. Regl- an um 45 ára takmörk þess að fólk megi ættleiða börn er því mjög íþyngjandi og í rauninni óeðlileg og grein varaþing- mannsins sýnir að full ástæða er til að skoða fleiri hömlur í samræmi við breyttan tíðar- anda og önnur skilyrði en áður var. Augljóst er að þær reglur sem Hildur Sverrisdóttir gerir athugsasemdir við eiga vart við lengur} Staðnaðar reglur S trandveiðivertíð ársins hefst nk. mánudag, 3. maí. Búast má við að ríflega 700 bátar rói í sumar. Hver bátur má vera með fjórar hand- færarúllur og stunda veiðar frá mánudegi til og með fimmtudegi í viku hverri, annaðhvort þar til veiðitímabilinu lýk- ur í lok ágúst eða fyrr ef svo fer að heildar- aflaheimildapottur strandveiðiflotans veiðist upp. Í ár er lagt upp með að hann verði 10 þúsund tonn af þorski, þúsund tonn af ufsa og 100 tonn af gullkarfa; alls 11.100 tonn af óslægðum botnfiski. Öllum sem fylgjast með sjávarútvegi og mannlífi í sjávarbyggðum landsins er löngu orðið ljóst að strandveiðarnar eru mikil lyfti- stöng. Þær skapa mikilvægar tekjur sem hríslast um hagkerfi landsbyggðarinnar. Mikil umsvif eru kringum þessar veiðar, ekki bara að því er varðar veiðar og vinnslu, heldur einnig kringum ýmsa þjónustu við bátana og þá sem róa. Trilluflotinn skilar fersku hráefni á land sem aflað er með kyrrstæðu veiðarfæri á einn vistvænasta hátt sem hugsast getur. Það er alveg sama hvernig á er litið, strandveiðarnar eru afar jákvæðar fyrir þjóðarbúið og mannlífið í þessu landi. Flokkur fólksins vill stórefla strandveiðar. Strax í sumar ætti að tryggja að flotinn fái að veiða óáreittur 12 daga í mánuði þessa fjóra mánuði sem ætlaðir eru til strandveiða, óháð því hvort aflaþaki sé náð áður en dag- arnir hafi verið notaðir. Það skiptir nákvæm- lega engu máli fyrir velferð þorskstofnsins þó farið sé eitthvað yfir 10 þúsund tonna markið í þorski í strandveiðum. Flokkur fólksins mun berjast fyrir því að sjómönnum sem það kjósa verði leyft að stunda handfæraveiðar að eigin vild hér við land í atvinnuskyni. Þó samt með vissum reglum, svo sem að fjórar rúllur verði á hverjum báti að hámarki og að sá sem rói bátnum sé jafnframt þinglýstur eigandi hans að fullu. Handfæraveiðar munu aldrei setja þorsk- stofninn í neina hættu. Náttúran sjálf, það er veður, fiskgengd og fleiri þættir, dugar til að takmarka þessar veiðar. Þó að þetta frelsi yrði innleitt þá fer því fjarri að menn myndu hópast á handfæraveiðar í þúsundatali. Það kostar mikla fyrirhöfn og fjármagn að eignast fullbúinn bát og reka hann. Þeir sem stunda veiðarnar verða að hafa tilskilin réttindi. Ávinningur af þessu frelsi er hins vegar augljós fyrir þjóðarbú sem glímir við mikið at- vinnuleysi og þarf á næstu árum á öllum sínum mögu- leikum að halda til að greiða ógrynni skulda sem hlaðist hafa upp í faraldrinum. Boltinn er hjá stjórnvöldum sem endranær. Sjósóknarviljann skortir sannarlega ekki hjá trillukörlunum okkar. Nýtum mannauðinn og tækifærin okkur öllum til hagsældar. Inga Sæland Pistill Gefum frelsi til handfæraveiða Höfundur er alþingismaður og formaður Flokks fólksins. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.