Morgunblaðið - 29.04.2021, Qupperneq 54
54 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 2021
Meistaradeild karla
Undanúrslit, fyrri leikur:
París SG – Manchester City.................... 1:2
England
Arsenal – West Ham................................ 2:0
- Dagný Brynjarsdóttir lék allan leikinn
með West Ham.
Grikkland
Bikarinn, undanúrslit, seinni leikur:
Olympiacos – Giannina ........................... 3:1
- Ögmundur Kristinsson var ekki í leik-
mannahópi Olympiacos.
_ Olympiacos í úrslit, 4:2 samanlagt.
Rúmenía
Meistarakeppnin:
CFR Cluj – Botosani ................................ 2:0
- Rúnar Már Sigurjónsson lék fyrstu 63
mínúturnar með CFR Cluj og skoraði bæði
mörkin.
_ CFR Cluj 41, FCSB 39, Universitatea
Craiova 34, Sepsi 30, Botosani 28, Academ-
ica Clinceni 22.
Spánn
Athletic Bilbao – Real Valladolid............ 2:2
>;(//24)3;(
Grill 66-deild karla
Kría – HK.............................................. 22:31
Víkingur – Fjölnir ................................ 25:24
Staða efstu liða:
HK 14 12 0 2 416:303 24
Víkingur 14 12 0 2 378:331 24
Valur U 13 8 1 4 390:378 17
Fjölnir 14 6 3 5 388:371 15
Kría 14 6 3 5 377:377 15
Undankeppni EM karla
3. riðill:
Úkraína – Tékkland ............................. 26:28
Rússland – Færeyjar ........................... 31:24
_ Rússland 8, Tékkland 5, Úkraína 5, Fær-
eyjar 0.
6. riðill:
Lettland – Noregur.............................. 23:28
_ Hvíta-Rússland 6, Noregur 6, Ítalía 2,
Lettland 2.
7. riðill:
Finnland – N-Makedónía .................... 22:27
Sviss – Danmörk................................... 29:30
_ Danmörk 8, Norður-Makedónía 8, Sviss
4, Finnland 0.
8. riðill:
Rúmenía – Svíþjóð................................ 23:31
Kósóvó – Svartfjallaland...................... 22:27
_ Svíþjóð 8, Svartfjallaland 4, Kósóvó 3,
Rúmenía 3.
E(;R&:=/D
Dominos-deild kvenna
Breiðablik – Keflavík ........................... 73:66
Fjölnir – Haukar .................................. 73:65
Snæfell – KR......................................... 77:61
Valur – Skallagrímur......................... (66:46)
_ Leiknum var ekki lokið þegar blaðið fór í
prentun. Sjá mbl.is/sport/korfubolti.
Staðan fyrir leik Vals og Skallagríms:
Valur 17 14 3 1310:1051 28
Keflavík 18 13 5 1429:1294 26
Haukar 18 13 5 1332:1206 26
Fjölnir 18 12 6 1369:1299 24
Skallagrímur 17 8 9 1188:1222 16
Breiðablik 18 6 12 1162:1219 12
Snæfell 18 3 15 1286:1448 6
KR 18 2 16 1207:1544 4
Spánn
Zaragoza – Andorra ........................... 99:89
- Tryggvi Snær Hlinason skoraði tvö stig,
tók eitt frákast og gaf eina stoðsendingu á
16 mínútum hjá Zaragoza.
- Haukur Helgi Pálsson hjá Andorra er
frá vegna meiðsla.
Litháen
Siauliai – Nevezis ................................ 85:73
- Elvar Már Friðriksson skoraði 12 stig
fyrir Siauliai, átti átta stoðsendingar og tók
tvö fráköst á 23 mínútum.
NBA-deildin
Boston – Oklahoma City .................. 115:119
Charlotte – Milwaukee..................... 104:114
Indiana – Portland ........................... 112:133
Toronto – Brooklyn .......................... 103:116
Houston – Minnesota ....................... 107:114
Golden State – Dallas....................... 103:133
>73G,&:=/D
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, Dominos-deildin:
Ásvellir: Haukar – Tindastóll .............. 18.15
Höllin Ak.: Þór Ak. – Höttur ............... 19.15
MG-höllin: Stjarnan – Njarðvík .......... 19.15
HS Orkuhöll: Grindavík – ÍR .............. 20.15
HANDKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, Olísdeildin:
Origo-höllin: Valur – Fram.................. 19.30
ÍSHOKKÍ
Þriðji úrslitaleikur karla:
Akureyri: SA – Fjölnir......................... 19.30
Í KVÖLD!
Markvörðurinn Kristijan Jajalo
verður ekki með KA í fyrstu leikj-
unum á Íslandsmótinu í knatt-
spyrnu en hann handleggsbrotnaði
á æfingu á þriðjudaginn.
Þetta kom fram hjá Arnari Grét-
arssyni þjálfari KA á Fótbolta. net í
gær. Steinþór Már Auðunsson, sem
hefur varið mark Magna í 1. deild-
inni undanfarin þrjú ár, gekk til
liðs við KA í vetur og verður í
marki KA í byrjun mótsins. Um leið
kom fram að belgíski miðjumað-
urinn Sebastiaan Brebels hefði
einnig meiðst á æfingu.
Markvörðurinn
handarbrotnaði
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Brotinn Kristijan Jajalo getur ekki
varið mark KA á næstunni.
Rúnar Már Sigurjónsson, landsliðs-
maður í knattspyrnu, skoraði tví-
vegis fyrir CFR Cluj í úrslitakeppn-
inni um rúmenska meistaratitilinn í
gær. CFR Cluj sigraði Botosani 2:0
og skoraði Rúnar mörkin á 25. og
28. mínútu. Rúnar fór af leikvelli á
63. mínútu en CFR komst á toppinn
með þessum sigri.
Rúnar skoraði einnig um síðustu
helgi og varð þá fyrsti Íslending-
urinn sem skorar mark í deildarleik
í Rúmeníu. Rúnar hefur því skorað
þrjú mörk á nokkrum dögum í
Rúmeníu.
Rúnar Már í
aðalhlutverki
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Öflugur Rúnar Már Sigurjónsson er
á skotskónum í Rúmeníu.
TOPPSLAGUR
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Valur, Breiðablik, KR og FH eru
þau fjögur félög sem eru líklegust til
að slást um Íslandsmeistaratitil
karla í fótbolta á komandi keppn-
istímabili, samkvæmt spá íþrótta-
deildar Morgunblaðsins.
Sú niðurstaða kemur væntanlega
fáum á óvart enda hafa þessi lið
ásamt Stjörnunni, sem spáð er
fimmta sæti, meira og minna raðað
sér í efstu sætin á undanförnum ár-
um. Öll eru þau með öfluga leik-
mannahópa og ljóst að Blikar, KR-
ingar og FH-ingar horfa til þess að
geta velt sigurstranglegum Vals-
mönnum úr sessi. Valur vann sann-
færandi sigur á síðasta Íslandsmóti
en Hlíðarendaliðið var komið með
átta stiga forskot á FH og var þrett-
án stigum á undan Stjörnunni og
Breiðabliki þegar keppni var hætt
vegna kórónuveirufaraldursins. Þá
voru fjórar umferðir eftir.
Undanfarna tvo daga höfum við
skoðað hin átta liðin í deildinni og nú
eru það þessi fjögur líklegustu.
Vel fyllt í skörð á Hlíðarenda
Valsmenn eru eins og áður með
firnasterkan hóp og Heimir Guð-
jónsson hefur fyllt í skörðin af vand-
virkni. Ætla mætti að það væri áfall
fyrir íslenskt lið að missa Eið Aron
Sigurbjörnsson og Valgeir Lunddal
úr vörninni, Lasse Petry og Einar
Karl Ingvarsson af miðjunni og Ar-
on Bjarnason af hægri kantinum.
Heimir hefur hins vegar í staðinn
fengið sænska bakvörðinn Johannes
Vall, miðjumennina Almar Orm-
arsson, Arnór Smárason og Christi-
an Köhler, og kantmanninn Tryggva
Hrafn Haraldsson. Tryggvi missir
reyndar af fyrstu tveimur mánuðum
tímabilsins vegna fótbrots.
Auk þess ætti Andri Adolphsson
að vera klár í slaginn en hann missti
af síðasta tímabili.
Skarð Eiðs Arons í vörninni er
vandfyllt en með Rasmus Christian-
sen, Orra Sigurð Ómarsson og Seb-
astian Hedlund tilbúna í mið-
varðastöðurnar tvær eru Valsmenn
ekki í sérstökum vandræðum þar.
Sem fyrr mun þó talsvert byggj-
ast á því að Patrick Pedersen skori
reglulega en hann er með leikmenn í
kringum sig á köntum og miðju sem
allir geta komið boltanum í netið.
Miðað við leikmannahóp og
frammistöðu síðasta árs er í hæsta
máta eðlilegt að Valsmenn komi afar
sigurstranglegir til leiks.
Tilbúnir í meistaraslaginn?
Breiðablik er það lið sem flestir
virðast hafa trú á að geti veitt Val
mestu keppnina um Íslandsmeist-
aratitilinn í ár og það er ekki að
ástæðulausu.
Óskar Hrafn Þorvaldsson er kom-
inn á annað ár með liðið og takist
Blikum að ná að útfæra betur sína
leikaðferð, fá á sig færri slysamörk
þegar þeir spila út úr vörninni, er
engin ástæða til að ætla annað en lið-
ið verði við topp deildarinnar.
Breiddin hefur aukist, Árni Vil-
hjálmsson kemur með meiri slag-
kraft í sóknarleikinn, Finnur Orri
Margeirsson snýr heim með gríð-
arlega reynslu á miðjuna og Davíð
Örn Atlason hefur verið einn besti
bakvörður deildarinnar síðustu ár.
Þá hefur Mosfellingurinn Jason
Daði Svanþórsson verið öflugur í
sóknarleik Blika í vetur. Hann gæti
fyllt skarð Brynjólfs Willumssonar
sem fór til Noregs í vetur.
Davíð hefur reyndar átt við
meiðsli að stríða og reynsluboltinn
Andri Rafn Yeoman missir af fyrstu
sjö umferðunum vegna náms erlend-
is. Thomas Mikkelsen mun alltaf
skora mörk og það er undir Blikum
sjálfum komið að ná upp þeim stöð-
ugleika sem þarf til að fara alla leið.
Þeir hafa burðina til þess.
Vörnin spurningarmerki
hjá KR
KR er spáð þriðja sætinu en Vest-
urbæingar gætu þurft að hafa mikið
fyrir því að komast í Evrópukeppni á
ný. Hópurinn hjá Rúnari Krist-
inssyni virðist ekki alveg eins þéttur
þegar Finnur Orri Margeirsson,
Pablo Punyed og Finnur Tómas
Pálmason eru horfnir á braut.
Guðjón Baldvinsson eykur mögu-
leikana í sóknarleiknum og þar eru
KR-ingar afar vel mannaðir, með
hann, Kristján Flóka Finnbogason,
Atla Sigurjónsson, Óskar Örn
Hauksson, Pálma Rafn Pálmason og
Ægi Jarl Jónasson til að herja á
varnir mótherjanna. Sóknarbakverð-
irnir Kennie Chopart og Kristinn
Jónsson eru líka tveir af þeim bestu í
sínum stöðum í deildinni.
Spurningarmerki er hins vegar
hægt að setja við bæði miðju og
vörn. Emil Ásmundsson kemur
reyndar inn sem nýr miðjumaður
eftir að hafa misst af öllu síðasta
tímabili og Alex Freyr Hilmarsson
gæti verið í stærra hlutverki í ár.
Emil verður að vísu ekki tilbúinn í
byrjun móts.
Grétar Snær Gunnarsson kemur
frá Fjölni og honum mun vera ætlað
varnarhlutverk enda virðist ljóst að
KR vanti miðvörð eftir að hafa misst
Finn Tómas til Svíþjóðar.
FH með sterkara lið í ár?
Minni pressa virðist á FH en oft-
ast áður, fáir virðast reikna með
Hafnfirðingunum sem meist-
araefnum, en það væri hættulegt að
vanmeta Loga Ólafsson og hans
menn.
Hópurinn er þrátt fyrir allt sterk-
ari hjá FH en í fyrra þegar grannt er
skoðað. Matthías Vilhjálmsson kem-
ur heim frá Noregi með gríðarlegan
styrk og reynslu og ungu mennirnir
sem hafa bæst við með Ágúst Hlyns-
son og Vuk Oskar Dimitrijevic
fremsta í flokki gætu látið mikið til
sín taka. Vuk var efnilegasti leik-
maður 1. deildar með Leikni í
Reykjavík á síðasta tímabili og
Ágúst var í stóru hlutverki hjá Vík-
ingum en hann er í láni hjá FH frá
Horsens í Danmörku.
Atli Guðnason er hættur og Bald-
ur Sigurðsson farinn í Fjölni og þar
eru vissulega tveir reynsluboltar
horfnir á braut. Þá er Daníel Haf-
steinsson kominn til KA eftir að hafa
verið í láni hjá FH frá Helsingborg á
síðasta tímabili. En með óbreytta
varnarlínu þar sem Guðmundur
Kristjánsson er í lykilhlutverki,
Björn Daníel, Eggert Gunnþór og
Þóri Jóhann á miðjunni og þá Steven
Lennon og Jónatan Inga Jónsson
með Matthíasi í sóknarleiknum fer
ekki á milli mála að FH-liðið gæti
orðið firnasterkt.
Geta Blikar, KR eða FH
stöðvað öflugt Valslið?
- Góð breidd hjá liðunum fjórum sem líklegast er að raði sér í efstu sætin
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Valur Patrick Pedersen er þriðji
markahæsti Valsarinn frá upphafi.
Ljósmynd/Þórir Tryggvason
KR Atli Sigurjónsson varð efstur í
M-gjöf Morgunblaðsins 2020.
Morgunblaðið/Eggert
Breiðablik Höskuldur Gunn-
laugsson er fyrirliði Blika.
Morgunblaðið/Eggert
FH Steven Lennon skoraði 17 mörk
fyrir FH í deildinni í fyrra.
Fimmtán íþróttafréttamenn og leiklýsendur Morgunblaðsins, mbl.is
og K100 spáðu fyrir um röð liðanna í Pepsi Max-deild karla 2021.
1. sæti: Valur með 163 stig. Besta spá 1. sæti, versta spá 2. sæti.
2. sæti: Breiðablik með 145 stig. Besta spá 1. sæti, versta spá 5. sæti.
3. sæti: KR með 139 stig. Besta spá 1. sæti, versta spá 5. sæti.
4. sæti: FH með 130 stig. Besta spá 2. sæti, versta spá 6. sæti.
Önnur lið: Stjarnan 120, Víkingur R. 89, KA 80, Fylkir 69, HK 57,
ÍA 48, Keflavík 33, Leiknir R. 19.
Spá Morgunblaðsins 2021