Morgunblaðið - 29.04.2021, Page 56

Morgunblaðið - 29.04.2021, Page 56
Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Það er mjög viðeigandi að frumsýna í apríl, bæði er þetta afmælismánuður Elísabetar auk þess sem verkið kallast sterklega á við Aprílsólar- kulda,“ segir Edda Björg Eyjólfsdóttir, leikkona og framleiðandi leikverksins Haukur & Lilja – Opnun eftir Elísabetu Kristínu Jökulsdóttur í leikstjórn Maríu Reyndal sem frumsýnt verður í Ásmundarsal í kvöld. Spurð um tilurð uppfærsl- unnar segir Edda Björg að þau Svein Ólaf Gunn- arsson hafi langað að leika saman. „Við erum góðir vinir og finnst gaman að vinna saman. Við fórum því að leita að rétta verkinu og þá datt Svenna þetta leikverk í hug sem hann lék á móti Mörtu Nordal árið 2010 í útvarpinu,“ segir Edda Björg og bendir á að gaman sé að sviðsetja verk sem aðeins hafi hljómað í útvarpi fram til þessa. „Það er alltaf spennandi að takast á við verk sem er ekki alveg hefðbundið,“ segir Edda Björg og rifjar upp að hún hafi strax heillast af verkinu þegar hún las það. „Það fjallar um parið Hauk og Lilju sem eru á leið í veislu. Hún veit ekki í hvaða kjól hún á að fara, hún vill að Haukur ákveði það. Tíminn líður og veislan bíður meðan Lilja reynir af veikum mætti að vinna bug á óttanum og kvíð- anum sem hefur gagntekið hana,“ segir Edda Björg og tekur fram að meðal vangaveltna Lilju sé hvort hún eigi að halda ræðu og hvort hún muni setjast hjá rétta fólkinu í veislunni. „Við kynnumst þannig Hauki og Lilju og þeirra innra lífi og sambandi meðan þau hafa sig til fyrir veisl- una – en lífið sjálft er auðvitað veisla. Það er mikil elísabetíska í þessu verki þar sem ekki er fyrir- sjáanlegt hvernig samtalið milli persónanna tveggja þróast. Elísabet er svolítið eins og Pinter – maður skilur texta hennar með hjartanu en ekki alltaf með höfðinu,“ segir Edda Björg og tekur fram að textar Elísabetar séu oft á tíðum ljúfsárir í senn. „Verkið myndar ákveðna lúppu sem gengur í hringi eins og lífið, sem minnir sumpart á Beðið eftir Godot eftir Beckett,“ segir Edda Björg og rifjar upp að þegar leikhópurinn las Aprílsólarkulda, sem út kom í fyrra og hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin í flokki fagur- bókmennta, hafi hópurinn séð í hendi sér að kjör- ið væri að grípa búta úr þeirri bók og tvinna sam- an við Hauk & Lilju – Opnun. „Enda er sterk speglun milli Kjartans og Védísar í Aprílsólar- kulda og Hauks og Lilju. Við fengum því leyfi hjá Elísabetu til að stækka leikritið með þessum hætti. María Reyndal leiddi handritavinnuna af sinni alkunnu snilld og næmni. Hún heldur sem leikstjóri einnig einstaklega fallega utan um leik- hópinn,“ segir Edda Björg og bendir á að tengsl- in við Aprílsólarkulda hafi einnig gefið leikverk- inu ákveðna jarðtengingu og gert útvarpsverkið leikbærara á sviði. „Í grunninn fjallar verkið um það að vera manneskja með öllu því sem það inni- ber, bæði af sorg og gleði sem eru bara tvær hlið- ar á sama peningi. Elísabet skrifar svo fallega um lífið, manneskjuna, ástina og óttann við höfn- un að það má auðveldlega finna mikla sjálfshjálp í textum hennar,“ segir Edda Björg og tekur fram að textabrot úr verkinu hafi verið prentuð út, römmuð inn og prýði veggi Ásmundarsalar eins og um listaverkasýningu væri að ræða, en hægt er að fjárfesta í völdum innrömmuðum setningum úr verkinu. „Þetta er því nánast orðið sýning á sýningu,“ segir Edda Björg og bendir á að sér hafi fundist efnið kalla á óhefðbundið leik- rými og af þeim sökum hafi Ásmundarsalur orðið fyrir valinu, en Haukur & Lilja – Opnun mun vera fyrsta leikverkið sem þar er sett upp. „Okk- ur langaði að þurrka út mörkin milli listgreina og vinna með samruna listforma,“ segir Edda Björg og bendir á að áhorfendur mæti yfirleitt með ólíkar væntingar eftir því hvort leikverk sé sett upp í hefðbundnu leikrými eða óhefðbundnu rými. „Okkur fannst líka gaman að aðlaga okkur að breyttum heimi. Þetta er stutt sýning sem inniheldur allt í senn leikverk, tónleika, myndlist og gjörning,“ segir Edda Björg og tekur fram að í þeim skilningi sé uppfærslan líka mjög elísabet- ísk. Verðum einfaldlega að treysta englunum Að sögn Eddu Bjargar virðist uppfærslan vera fædd undir heillastjörnu. „Þegar ég sótti um styrk fyrir uppsetningunni var ég á sama tíma að kveðja afa minn inni á líknardeild, en það er eins og englarnir sem sóttu hann hafi líka vakað yfir þessu verkefni,“ segir Edda Björg og bendir á að þrátt fyrir ýmsar hindranir á tímum heimsfar- aldurs hafi hlutirnir alltaf blessast þegar til kast- anna kom. „Maður verður einfaldlega að treysta englunum og treysta því að allt fari vel. Þegar lit- ið er um öxl er hreint ótrúlegt að sjá hvernig allt hefur leyst á farsælan hátt, sem maður sá ekkert endilega fyrir í ferlinu meðan leitin að réttu lausninni fór fram,“ segir Edda Björg og undir- strikar mikilvægi þess að fylgja innsæinu og vera óhræddur við að sleppa takinu og treysta. Verkið er um 50 mínútur í flutningi og leikið án hlés. „Aðeins komast 24 áhorfendur á hverja sýn- ingu, þannig að þetta er lítil og náin sýning með þeim fjarlægðartakmörkunum sem í gildi eru. Fólk getur því hæglega fengið þá tilfinningu að við séum að leika sérstaklega fyrir það, sem er skemmtilegt,“ segir Edda Björg að lokum. Auk ofangreindra listamanna koma að uppfærslunni María Th. Ólafsdóttir sem hannar leikmynd og búninga, Ólafur Ágúst Stefánsson sem hannar lýsinguna og hljóðfæraleikararnir Þorvaldur Þór Þorvaldsson á trommur og Stefán Magnússon á gítar, en sá síðarnefndi hefur umsjón með tónlist uppfærslunnar. Ljósmynd/Gunnlöð Jóna Rúnarsdóttir Opnun Edda Björg Eyjólfsdóttir og Sveinn Ólafur Gunnarsson í hlutverkum sínum. „Mikil elísabetíska í þessu verki“ - Haukur & Lilja – Opnun eftir Elísabetu Kristínu Jökulsdóttur í leikstjórn Maríu Reyndal frumsýnt í Ásmundarsal - „Lífið sjálft er auðvitað veisla,“ segir Edda Björk Eyjólfsdóttir sem leikur Lilju 56 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 2021 Barnabókaverðlaun Reykjavíkur- borgar 2021 voru afhent í Höfða í gær. Verðlaunin hlutu að þessu sinni Freydís Kristjánsdóttir fyrir bókina Sundkúna Sæunni í flokki myndlýs- inga, Jón St. Kristjánsson í flokki þýðinga fyrir þýðingu sína á Ótrúleg ævintýri Brjálínu Hansen 3 eftir Finn-Ole Heinrich og Rán Flygen- ring, og Snæbjörn Arngrímsson fyr- ir Dularfullu styttuna og drenginn sem hvarf í flokki frumsaminna bóka. Borgarstjóri, Dagur B. Egg- ertsson, afhenti verðlaunin. Þetta eru elstu barnabókverðlaun á Íslandi en þau voru fyrst veitt árið 1973 á vegum fræðsluyfirvalda í Reykjavík. Árið 2016 voru Dimma- limm-myndlýsingaverðlaunin og Barnabókaverðlaun Reykjavíkur sameinuð og urðu flokkarnir þá þrír. Verðlaunafé er 350 þúsund kr. Hrífandi, skapandi, á erindi Í ár fékk dómnefndin 116 bækur til skoðunar. Fimm bækur voru til- nefndar í hverjum flokki og skar svo valnefnd úr um að þessar þrjár hlytu verðlaunin. Valnefndina skipuðu Tinna Ásgeirsdóttir, Ásmundur Kristberg Örnólfsson, Guðrún Lára Pétursdóttir, Karl Jóhann Jónsson og Valgerður Sigurðardóttir. Í rökstuðningi um að Freydís Kristjánsdóttir hljóti verðlaun fyrir myndlýsingar í bókinni Sundkýrin Sæunn segir að myndir hennar séu „listilega unnar, hrífandi og vinna vel með textanum og hvort tveggja vísar á skemmtilegan hátt í sígildar íslenskar barna- og þjóðsögur. Myndirnar eru í raunsæisstíl, unnar með vatns-/gvasslitum, og bera færni Freydísar vitni. Hún hefur frábært vald á þeim miðli sem hún hefur valið sér og um leið mikla næmni við að túlka dýr og menn.“ Um verðlaunaþýðingu Jóns Stef- áns Kristjánssonar, Ótrúleg ævin- týri Brjálínu Hansen 3, segir að þýð- andinn glími „við afar fjölbreytt verkefni í þessari sögu. Hann þarf ekki aðeins að búa til skapandi staðarheiti á borð við Brjálivíu og Plastgerði og nýyrði eins og Blappír og Brús-ís, hann þarf líka að þýða fjölda uppskrifta og myndasagna og halda takti í iðandi frásögn sem lýt- ur sínum eigin lögmálum. Allt ferst þetta honum afar vel úr hendi. Hann fangar einstök blæbrigði verksins og skilar bæði sorgum og sigrum Brjál- ínu til íslenskra lesenda á lipru og leikandi máli svo unun er að lesa.“ Snæbjörn Arngrímsson hlaut Barnabókaverðlaunin fyrir bestu frumsömdu bókina á liðnu ári, Dularfulla styttan og drengurinn sem hvarf. Um hana segir að höf- undur fari „ákaflega létt með að véla lesandann inn í söguheiminn með lágstemmdum stíl og meitlaðri per- sónusköpun. Snæbjörn ber virðingu fyrir ungum lesendum og skilur margt eftir handa þeim til að ráða úr í textanum og lesa á milli línanna. En fyrir þá sem eru styttra á veg komnir standa fléttan og spennan fyllilega fyrir sínu og bókin á því erindi til margra.“ Snæbjörn, Freydís og Jón verðlaunuð - Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar afhent í gær - Skáldsaga Snæbjörns Arngrímssonar valin best - Freydís Kristjánsdóttir verðlaunuð fyrir myndlýsingu - Þýðing Jóns St. Kristjánssonar best Morgunblaðið/Árni Sæberg Valin best Snæbjörn Arngrímsson, Freydís Kristjánsdóttir og Jón St. Kristjánsson tóku við verðlaununum í Höfða.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.