Fréttablaðið - 07.10.2021, Side 1

Fréttablaðið - 07.10.2021, Side 1
1 9 7 . T Ö L U B L A Ð 2 1 . Á R G A N G U R f rettab lad id . i s F I M M T U D A G U R 7 . O K T Ó B E R 2 0 2 1 Bakar í minningu mömmu Bond heilsar, Craig kveður Lífið ➤ 30 Lífið ➤ 28 Mmm ... Safaríkar perur eru bestar núna! Pssst ... það má líka leika sér með perurnar! Krónan mælir með! Isavia og Icelandair telja að björt spá um endurreisn far- þegaflugs í Evrópu rætist ekki að fullu hér, vegna strangra aðgerða á landamærunum. gar@frettabladid.is FLUGMÁL „Það er gríðarlega mikil- vægt fyrir Keflavíkurflugvöll, fyrir Icelandair, fyrir Play og íslenskan efnahag allan, að við stöndum okkur jafn vel í endurreisninni og áfangastaðir í kring um okkur,“ segir Guðmundur Daði Rúnarsson, framkvæmdastjóri viðskipta og þróunar hjá Isavia. Ný spá Alþjóðaflugmálastofnun- arinnar, IATA, gerir ráð fyrir því að á næsta ári muni farþegaflug innan Evrópu aukast um 75 prósent og milli Norður-Ameríku og Evrópu um 65 prósent frá tölum ársins 2019. „Ef við eigum að ná sama ávinn- ingi og önnur lönd í Evrópu þá verða að vera sambærilegar aðgerðir á landamærunum hér og eru þar,“ segir Guðmundur. Þar vegi mest skimanir fyrir alla á landamær- unum hér. Ekki sé eins þægilegt að koma til Íslands og samkeppnis- landanna. „Ef löndin í kring um okkur verða með mun léttari aðgerðir getum við ekki ætlast til þess að ná sama árangri. Við höfum alveg séð það skýrt að harðar aðgerðir á landa- mærum hafa áhrif á ferðavilja og á orðspor Íslands sem áfangastaðar,“ segir Guðmundur. Að sögn Guðmundar stefndi í það í lok sumars að hingað myndu fljúga nítján f lugfélög, en þau séu nú komin niður í fimmtán. „Flug- félög hafa verið að segja við okkur að þau séu að hugsa um að hætta að fljúga til Íslands vegna þess að það sé minni ferðavilji og þau hafa fullyrt við okkur að það sé út af aðgerðum á landamærum.“ Bogi Nils Bogason, forstjóri Ice- landair, segir ljóst að aukið flækju- stig hafi neikvæð áhrif. „Við skerum okkur úr miðað við önnur Evrópuríki hvað varðar þessa þætti og það hefur áhrif á eftir- spurnina,“ segir Bogi. Samræmi í aðgerðum milli landa og fyrirsjáan- leiki skipti mjög miklu máli. „Það er ágætis eftirspurn eftir ferðum hingað núna en ef það verð- ur þannig fram á næsta ár að það verði f lóknara og dýrara að koma hingað en annað, þá hefur það áhrif á samkeppnishæfni Íslands sem ferðamannalands,“ segir Bogi. n Óttast að björt farþegaspá rætist ekki Guðmundur Daði Rúnarsson, framkvæmda- stjóri viðskipta og þróunar hjá Isavia Raufarhólshelli var breytt í kvikmyndasal í fyrsta skipti í gærkvöldi en þá var myndin Labyrinth sýnd þar í iðrum jarðar. Myndin, sem skartar David Bowie heitnum í aðalhlutverki, er hluti af hinni alþjóðlegu kvikmyndahátíð RIFF sem nú er haldin í átjánda skipti. Sátu 65 gestir innst í hellinum og nutu þessarar einstöku sýningar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI HEILBRIGÐISMÁL Umfjöllun um offitu sem sjúkdóm í Kveik á RÚV í fyrrakvöld vakti misjöfn viðbrögð. Sláandi munur er á landsbyggðinni og höfuðborgarsvæðinu hvað varð- ar fjölda barna í ofþyngd. Brynja Þorgeirsdóttir, frétta- maður á RÚV, segir fordóma skýra að hluta hve umfjöllun um holda- far og heilsu er viðkvæm. „Þetta er hópur sem hefur orðið fyrir kerfis- bundinni smánun og fordómum frá upphafi vega,“ segir hún. Tara Margrét Vilhjálmsdóttir, for- maður Samtaka um líkamsvirðingu, segist hafa saknað þess að ekki væri fjallað um þyngdarhlutlausa nálgun í Kveiksþættinum. SJÁ SÍÐU 4 Skiptar skoðanir á þætti um offitu

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.