Fréttablaðið


Fréttablaðið - 07.10.2021, Qupperneq 8

Fréttablaðið - 07.10.2021, Qupperneq 8
Viðmælendur Markaðarins telja að fyrirtækin muni nýta sér fyrirtækjaskuldabréfa- markaðinn til fjármögnunar í meiri mæli á komandi miss- erum. magdalena@frettabladid.is Á undanförnum árum hefur fyrir- t æk ja sk u ld abréf a ma rk aðnu m vaxið fiskur um hrygg en þó ekki jafn hratt og margir höfðu vonað. Umfangið hefur nánast staðið í stað frá áramótum en viðmælendur Markaðarins eru sannfærðir um að hann muni vaxa allhratt á komandi misserum. Magnús Harðarson, forstjóri Kauphallarinnar á Íslandi, segir að það séu vonbrigði að ekki hafi orðið meiri vöxtur á þessum markaði en raun ber vitni. „Það sem slær mig er að stærðin hefur nokkurn veginn staðið í stað þegar maður lítur á umfang fyrirtækjaskuldabréfa í Kauphöllinni núna og síðan um áramótin eða fyrir ári, þótt það hafi verið örlítill vöxtur frá áramótum. Þetta er svipuð þróun og við sjáum í útlánum bankanna,“ segir Magnús og bætir við að hann hafi átt von á að sjá meiri færslu frá bönkunum yfir í markaðsfjármögnun. Steingrímur Finnsson, fram- kvæmdastjóri markaðsviðskipta hjá Fossum mörkuðum, segir að fyrirtækjaskuldabréfamarkaðurinn hafi þroskast umtalsvert á undan- förnum árum. „Við verðum að líta til þess í þessari umræðu hversu fábrotinn íslenskur verðbréfamarkaður var lengi vel eftir 2008 og í mörg ár voru afar fá félög skráð á markað og skuldabréfamarkaðurinn var meira og minna nýttur af ríkinu og örfáum sveitarfélögum. Þannig að ef við tökum tillit til þess þá sjáum við að hann hefur sannarlega tekið stakkaskiptum,“ segir Steingrímur og bætir við að þróunin hafi verið í takt við væntingar. „Það er mikil gróska á markaðnum og hún mun færast í aukana.“ Þeir kveðast báðir vera mjög bjartsýnir á það að fyrirtækja- skuldabréfamarkaðurinn muni þróast enn frekar á komandi árum. Magnús segir að með sterku hag- kerfi skapist grundvöllur fyrir frek- ari þróun markaðarins. „Við erum með sterkt hagkerfi, og undirstöð- urnar í hagkerfinu eru svo miklu sterkari en áður, þannig að ég tel líklegt að fjárfestar horfi til fjöl- breyttari kosta á skuldabréfamark- aði, ekki einungis ríkistryggðra og eignatryggðra bréfa.“ Steingrímur tekur í sama streng og segir að fyrirtækjaskuldabréfa- markaðurinn muni koma til með að taka stórt stökk á komandi árum. „Ég tel einsýnt að f leiri fyrirtæki, sveitarfélög og viðlíka aðilar muni sjá sér hag í að nýta sér markaðinn til fjármögnunar, enda jarðvegur- inn frjór í þeim efnum, “ segir hann og bætir við að það hafi skipti miklu máli fyrir grósku markaðarins að ekki sé um að ræða einsleitar útgáf- ur. „Markaðurinn grundvallaðist lengi vel að mestu á tiltölulega ein- sleitum verðtryggðum útgáfum til handa stofnanafjárfestum. En nú er svo komið að markaðurinn býður upp á ýmiss konar útgáfur miðaðar að mismunandi fjárfestahópum. Einnig hafa verið stigin stór skref í útgáfu grænna og sjálfbærra skulda- bréfa sem hafa hlotið mjög góðar viðtökur á markaði.“ Magnús tekur undir að áherslan á grænar og sjálfbærar útgáfur muni koma til með að hafa jákvæð áhrif á markaðinn. „Ef við lítum til þess- ara grænu bréfa eða sjálfbæru bréfa sérstaklega þá liggja þar sérstök tækifæri því þar liggur svo mikill áhugi í dag og þar erum við með ónotuð tækifæri gagnvart erlendu fjárfestunum. Ýmis fyrirtæki eins og til dæmis í orku- og fasteignageir- anum eru í góðri stöðu til að nýta sér græna fjármögnun. Við höfum verið að sjá töluverðan vöxt í sjálf- bæru bréfunum.“ Steingrímur bætir við að Ísland sé eftirbátur annarra þjóða ef litið er til þróunar á fyrirtækjaskulda- bréfamarkaði en telur að fljótt verði breyting þar á. „Ísland er eitt af þróuðustu ríkjum heims með tiltölulega vanþróaðan fjármagnsmarkað. Ef við horfum á hið alþjóðlega umhverfi hefur svo- kallað skuggabankakerfi og mark- aðsfjármögnun orðið mun stærri farvegur við miðlun fjármagns í hagkerfinu á undanförnum áratug. Ísland er eftirbátur í þeim efnum og er markaðurinn að mínu mati um fimm til sjö árum á eftir þeirri þróun sem orðið hefur á erlendri grundu. Ég tel ljóst að skuldabréfamarkað- urinn muni verða enn raunhæfari kostur við fjármögnun fyrirtækja, sveitarfélaga og annarra útgefenda – og þegar fram líða stundir fýsilegasti valmöguleikinn sem þessum aðilum mun bjóðast.“ n Horfa fram á vöxt í útgáfu fyrirtækjaskuldabréfa Steingrímur Finnsson segir að fyrirtækjaskuldabréfamarkaðurinn hafi þroskast umtalsvert á undanförnum árum. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Magnús Harðar- son, forstjóri Kauphallarinnar á Íslandi Laugardaginn 9. október frá 10:00 til 16:00 á Grand Hótel - Gullteigur Dagskrá: 10:00 - 10:15 Opnun - Dóra Ingvadóttir formaður GÍ 10:15 - 10:25 Tónlist - Tryggvi H. Gígjuson 10:25 - 10:50 Barnagigt - Og hvað svo? - Judith Amalía Guðmundsdóttir, barnagigtarlæknir, Sólrún W. Kamban, barnahjúkrunarfræðingur, Zinajda A. Licina, félagsráðgjafi og Drífa Björk Guðmundsdóttir, sálfræðingur 10:55 - 11:20 Barnagigt - Nýleg íslensk rannsókn, hreyfing og verkir - Judith Amalía Guðmundsdóttir, barnagigtarlæknir, Þjóðbjörg Guðjónsdóttir, lektor í sjúkraþjálfun HÍ 11:25 - 11:40 Kaffihlé 11:40 - 11:45 Tónlist - Tryggvi H. Gígjuson 11:45 - 12:10 Barnagigt - Nýleg íslensk rannsókn, líðan, lífsgæði og upplifun af heilbrigðisþjónustu - Sólrún W. Kamban, barnahjúkrunarfræðingur og Drífa Björk Guðmundsdóttir, sálfræðingur 12:15 - 13:05 Matarhlé 13:05 - 13:10 Tónlist - Tryggvi H. Gígjuson 13:10 - 13:35 Slitgigt - Stóraukin þekking, en hvenær er von á læknandi lyfjum? Helgi Jónsson, prófessor og gigtarlæknir 13:40 - 14:05 Hefur lífstíll áhrif á iktsýki - Sædís Sævarsdóttir, gigtarlæknir 14:10 - 14:25 Kaffihlé 14:25 - 14:30 Tónlist - Tryggvi H. Gígjuson 14:30 - 14:55 Líftæknilyfjameðferð á Íslandi, hvað er nýtt - Gerður Gröndal gigtarlæknir 15:00 - 15:25 Skóli og barn – Fríða Kristín Magnúsdóttir, móðir 15:30 - 15:45 Samantekt- Emil Thoroddsen, framkvæmdarstjóri GÍ 15:45 Málþingi slitið - Dóra Ingvadóttir formaður GÍ Hægt verður að fylgjast með dagskránni á Facebooksíðu Gigtarfélagsins. Gigtarfélag Íslands - 45 ára Málþing - Gigtarsjúkdómar frá bernsku til efri ára Tímapantanir á opticalstudio.is og í síma 511 5800 SMÁRALIND • HAFNARTORG • KEFLAVÍK Sjónmælingar eru okkar fag helgivifill@frettabladid.is Ingólfur Bender, aðalhagfræðingur Samtaka iðnaðarins (SI), segir að stýrivaxtahækkun Seðlabankans í gær um 0,25 prósent, eða alls í 1,5 prósent, hafi verið viðbúin. Verð- bólga, sem sé 4,4 prósent, hafi verið þrálát að undanförnu og verðbólgu- væntingar yfir 2,5 prósenta mark- miði bankans. Verðhækkun íbúða hafi stuðlað að aukinni verðbólgu. „Horft fram hjá húsnæðislið er verðbólga nánast við markmið Seðlabankans. Það sýnir að stýri- vaxtahækkunin nú er til að bregðast við hækkunum á íbúðaverði,“ segir hann. Ingólfur segir að verðhækkun íbúða megi annars rekja til þess að framboðsskortur hrjái íbúðamark- aðinn á sama tíma og eftirspurn sé mikil. Sögulega lágir vextir hafa, ásamt vaxandi kaupmætti launa, leitt til aukinnar eftirspurnar. Hins vegar sé vandinn sá að framboð af íbúðum sé tiltölulega lítið. „Hill- urnar fyrir nýjar íbúðir eru tómar. Lítið framboð af lóðum af hálfu sveitarfélaga takmarkar fram- boðið. Afleiðingin er hækkun verðs íbúða, aukin verðbólga og hærri vextir. Afborganir lána heimilanna hækka og kaupmáttur ráðstöfunar- tekna rýrnar. Veldur þetta óróleika á vinnumarkaði en ljóst er að íbúða- málin verða stór þáttur í komandi kjaraviðræðum. Afleiðingarnar eru því alvarlegar,“ segir hann. Ingólfur bendir á að Samtök iðnaðarins hafa á síðustu misserum bent á hættumerkin. Samdrátt í íbúðum á fyrstu byggingarstigum í talningu SI mátti greina árið 2018. Vöruðu samtökin strax þá við þeirri þróun. „Í fyrra var samdrátturinn orðinn það mikill að íbúðir á þess- um byggingarstigum voru orðnar sögulega mjög fáar. Er þetta að koma fram í framboðsskorti nú. Staðan var fyrirséð. Athafnir sveitarfélaga fylgdu ekki varnaðarorðum. Því eru vextir hækkaðir nú,“ segir Ingólfur. Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri sagði í gær þegar stýrivaxtahækkun var kynnt að Seðlabankinn teldi að hækkanir á fasteignaverði væru tímabundnar. Rannveig Sigurðar- dóttir aðstoðarseðlabankastjóri sagði að búið væri að „toga í ýmsar bremsur“. Stýrivextir hefðu verið hækkaðir, veðlánahlutföll aukin og komið á hámarki á greiðslubyrði kaupenda. Hún sagði einnig að von væri á auknu framboði af íbúðum. n Vextir hækkuðu eftir að sveitarfélög fylgdu ekki varnaðarorðum Ingólfur Bender, aðalhagfræð- ingur Samtaka iðnaðarins 8 Fréttir 7. október 2021 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐMARKAÐURINN FRÉTTABLAÐIÐ 7. október 2021 FIMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.