Fréttablaðið - 07.10.2021, Blaðsíða 10
Hæsti tindur Dyngjufjalla er Þorvaldstindur sem gnæfir
1.516 metra hár á norðanverðu hálendinu. Þorvalds
tindur er afar fáfarinn en hann er nefndur í höfuðið á
Þorvaldi Thoroddsen (18551921), einum frægasta jarð
og náttúrufræðingi Íslendinga fyrr og síðar, en þann
28. september síðastliðinn voru 100 ár frá andláti hans.
Þorvaldur var hraustmenni og mikill ferðagarpur sem
ferðaðist ríðandi um landið vítt og breitt í fjölda rann
sóknarleiðangra. Varð hann heimsfrægur fyrir rann
sóknir sínar en hann ritaði fjölda vísindaritgerða og bóka
sem margar teljast tímamótaverk. Má þar nefna Lýsingu
Íslands, Ferðabók, Landfræðisögu Íslands, Landskjálfta á
Íslandi og Oversigt over de islandske Vulkaners Historie
en einnig gaf hann út jarðfræðikort af Íslandi.
Það var í rannsóknarferð í Öskju sumarið 1876 sem
Þorvaldur heillaðist af hálendi Íslands. Leiðangrinum
stýrði danski jarðfræðingurinn Fredrik Johnstrup og
var tilgangurinn að rannsaka umbrotin árið áður þar
sem gríðarlegt sprengigos varð í Víti og 8 ferkílómetra
stórt og 220 metra djúpt Öskjuvatn varð til. Það var engin
lognmolla í kringum Þorvald frekar en Öskjusvæðið sem
tindur hans vakir yfir, en frá andláti hans hafa orðið þar
nokkur eldgos og sumarið 2014 varð þar stærsta berg
skrið frá landnámi.
Tilvalið er að hefja göngu á Þorvaldstind frá bílastæð
inu við Vikraborgir. Haldið er suður að Víti, meðfram
Bátshrauni og síðan upp brekkur austan Öskjuvatns. Þar
er fylgt fjallgarði að Þorvaldstindi beint suður af vatninu.
Brekkurnar eru aðallega laus vikur og því mikilvægt að
halda sig frá ótraustum brúnum sem snúa að vatninu.
Hátindinn prýða tignarleg ókleif björg en meðfram þeim
sést vel yfir Öskju og sést nánast beint ofan í heiðblátt
Öskjuvatn. Í suðri sést vel í Vatnajökul og Kverkfjöll, í
vestri Trölladyngju og norðan hennar Kollóttudyngju og
Herðubreið, en lengra í austur Snæfell. Af Þorvaldstindi
má halda göngunni áfram til vesturs og ganga þannig í
kringum Öskjuvatn, en hringurinn frá Vikraborgum er
samtals í kringum 25 kílómetrar. Annar valkostur, og
7 kílómetrum lengri er að hefja gönguna í skála Ferða
félags Akureyrar í Drekagili og er þá fyrst gengið yfir
norðanverð Dyngjufjöll að áðurnefndum hrygg að Þor
valdstindi. Í göngu á Þorvaldstind er tilvalið að minnast
garpsins sem þessi tilkomumikli tindur er nefndur eftir,
en verðugri bautastein er varla hægt að hugsa sér um einn
mesta vísindamann okkar Íslendinga. n
Í suðri sést vel í Vatnajökul og Kverk-
fjöll, í vestri Trölladyngju og norðan
hennar Kollóttudyngju og Herðu-
breið, en lengra í austur Snæfell.
Ólafur Már
Björnsson
augnlæknir og
ljósmyndari
Tómas
Guðbjartsson
hjartaskurð
læknir og náttúru
unnandi
XXXXXX FRÉTTABLAÐIÐFÓKUS Á HJARTA LANDSINS 7. október 2021 FIMMTUDAGUR
Þorvaldstindur
gnæfir yfir
sunnanverðu
Öskjuvatni en
það varð til við
eldsumbrot
í Öskju sum-
arið 1875. Hér er
horft í vesturátt
að tindinum en
norðan hans
er eyjan Askur.
MYND/TG
Efsta hluta
Þorvaldstinds
prýða tignarleg
en illkleif björg
sem best er
að láta eiga
sig, enda mikil
hætta á grjót-
hruni.
MYND/TG
Þorvaldstindur
séður úr vestri
frá Mývetninga-
hrauni.
MYND/TG
Bautasteinn
vísindarisa