Fréttablaðið


Fréttablaðið - 07.10.2021, Qupperneq 14

Fréttablaðið - 07.10.2021, Qupperneq 14
Tilkoma klæðinga leiddi til þess að unnt var að leggja bundið slitlag á þrefalt til fjórfalt lengri kafla en annars hefði verið. Þeim fækkar sem aldir voru upp við að vegakerfið á Íslandi væri nær allt malarvegir. Fyrir 40-45 árum voru nánast allir vegir malar- vegir og bundið slitlag var einungis innanbæjar og í nágrenni höfuð- borgarinnar. Átakið um að koma bundnu slitlagi á vegakerfið hófst fyrir alvöru og af krafti upp úr 1980, þegar þróaðar höfðu verið ódýrari leiðir en áður, svokallaðar vegklæð- ingar. Á fyrstu árum þess áratugar var mikið lagt af klæðingum og sum árin skiptu kílómetrarnir hund- ruðum sem fengu bundið slitlag. Nú er svo komið að um 5.800 km af tæplega 13.000 km vegakerfi eru lagðir bundnu slitlagi á landinu öllu. Tölurnar segja þó ekki alla söguna því um 97 prósent af öllum akstri fara fram á bundnu slitlagi, enda tekur forgangsröðun framkvæmda mikið tillit til umferðarþunga. Eigi að síður eru mörg verk óunnin í þessu efni, enda eru ennþá 500 km af malarvegum í stofnveganetinu og stór hluti tengi- og héraðsvega eru malarvegir. Með aukinni umferð hefur Vega- gerðin lagt sífellt f leiri kílómetra af malbiki, sem er mun dýrara og end- ingarbetra en klæðing. Mestur hluti bundinna slitlaga á vegakerfinu er þó ennþá lagður klæðingu. Nú er svo komið að malbik hefur verið lagt til Reykjanesbæjar, austur að Þjórsá og upp í Borgarnes, auk þess sem malbikað hefur verið í nágrenni Akureyrar og á fyrsta kafla Biskups- tungnabrautar. Hér er það umferð- arþunginn sem mestu ræður en því meiri sem umferðin er þeim mun hagkvæmara verður að leggja mal- bik í stað klæðingar. Tilkoma klæðinga leiddi til þess að unnt var að leggja bundið slitlag á þrefalt til fjórfalt lengri kafla en annars hefði verið, þar sem kostn- aðurinn er miklu lægri. Klæðingin hentar vel á fáfarnari vegi og hefur gert kleift að fara mun hraðar í þessar framkvæmdir en annars hefði verið. Vegagerðin fjallaði um bundin slitlög á ráðstefnunni Bundin slitlög – betri vegir, í Hörpu 14. september síðastliðinn. Fjallað var um málefn- ið frá mörgum áhugaverðum sjónar- hornum og einnig með erlendum augum en gestafyrirlesarar komu frá Hollandi, Norður-Írlandi og Sví- þjóð. Hægt er að horfa á upptöku af ráðstefnunni og nálgast glærur fyr- irlesara á vefsíðu Vegagerðarinnar, vegagerdin.is. n Bundið slitlag – bylting vegakerfisins Trúarlíf okkar Íslendinga er fjöl- skrúðugt og með þeim innf lytj- endum sem bæst hafa í hóp nýrra Íslendinga verður flóran enn blóm- legri. Fjölmenning kallar á nýjar leiðir til að skilja og miðla trúararf- leifð og með nokkurri einföldun má segja að það séu tvær leiðir færar í þeim efnum. Önnur leiðin er að fela hið trúarlega, á grundvelli þess að ekki skuli halda á lofti því sem aðgreinir okkur, og hin er að fagna fjölbreytileika trúarhefða. Ríkissjónvarpið hefur þar viða- miklu hlutverki að gegna og RÚV sker sig úr í samanburði við Norð- urlöndin þegar kemur að miðlun á trúarmenningu á Íslandi. Útvarps- guðsþjónustur eru dýrmæt hefð sem standa ber vörð um, en saman- borið við Norðurlöndin gætir þar fábreytni. Á Norðurlöndum fá fjöl- breytt trúfélög sýndar samkomur í útvarpi og sjónvarpi. Opinberir miðlar í nágrannalöndum okkar sinna allir því hlutverki að sjón- varpa frá guðsþjónustum. Danska ríkisútvarpið starfrækir svokallaða „DR kirken“, þar sem eru sjónvarpsútsendingar frá guðs- þjónustum dönsku kirkjunnar. Sænska sjónvarpið SVT f lakkar á milli kirkna á sunnudagsmorgnum og hefur í upphafi stutta umfjöllun um hverja kirkju fyrir sig, söfnuð og prest. Lögð er áhersla á að sýna sem f lestar kirkjur og greina frá sögu þeirra og munum. Reglulega er leitað til safnaða á borð við Hjálp- ræðisherinn og sent út frá samkom- um þeirra. Norska ríkissjónvarpið NRK sendir út guðsþjónustur frá kirkjum landsins og er með stutta umfjöllun um takt kirkjuársins og kirkjur landsins í upphafi, líkt og í Svíþjóð, og Finnar hafa útsendingar á YLE frá guðsþjónustum á sænsku og finnsku. Jafnvel Færeyingar með sitt litla opinbera sjónvarp KFV sýna viku- legar sjónvarpsútsendingar frá guðs- þjónustum í mismunandi kirkjum. Ríkissjónvarpið hefur skyldum að gegna við að sinna miðlun á trúar- og menningararfi þjóðarinnar. Þeirri skyldu væri sinnt af sóma með sjónvarpsútsendingum frá kirkjum landsins, þar sem færi saman helgi- hald og fræðsla um kirkjur til sjávar og sveita. Það er óhætt að fullyrða að RÚV sé eftirbátur sjónvarpsstöðva á Norðurlöndum þegar kemur að útsendingum frá helgihaldi og það er áhugavert að spyrja hvað liggur þar að baki? Um er að ræða ódýrt sjónvarpsefni sem í öllum tilfellum er unnið í samstarfi við heima- menn. Fríkirkjan í Reykjavík hefur árlega fengið úthlutað einni útvarpsguðsþjónustu í kringum afmæli safnaðarins og í ár var jafn- vel þeirri tímasetningu hnikað í óþökk safnaðarins. Það færi vel á því að þriðja stærsta trúfélag landsins fengi meira rými í Ríkisútvarpinu. Fríkirkjan tók upp og framleiddi til sýningar útvarpsguðsþjónustuna þann 26. september síðastliðinn og sinnti þarmeð skyldu sem RÚV ætti með réttu að rækja. Þar má heyra og sjá jazzaða sálma, barnakórinn við Tjörnina, magnaðan einsöng og hugleiðingu frá formanni Píeta- samtakanna. „Útvarpsguðsþjónustan sem sást“ er sýnd á þeim netmiðlum sem Frí- kirkjan í Reykjavík hefur yfir að ráða. n Útvarpsguðsþjónustan sem sást Magnús Valur Jóhannsson framkvæmdastjóri mannvirkjasviðs Vegagerðarinnar Dr. Sigurvin Lárus Jónsson prestur við Fríkirkjuna í Reykjavík Ristil- og endaþarmskrabbamein er þriðja algengasta krabbameinið í heiminum og er einnig með þriðju hæstu dánartíðnina. Þetta er mikið heilsufarsvandamál og því hafa næstum öll Evrópulöndin tekið upp reglubundna skimun fyrir ristil- og endaþarmskrabbameini. Flest landanna nota FIT-skimunar- próf sem skima eftir duldu blóði í hægðum, ef blóð greinist við skimun þá fer fólk í ristilspeglun í frekari rannsókn. FIT-skimunin er einföld og er hægt að framkvæma hana heima. Tilgangur krabbameinsskimana er að greina krabbamein á frum- stigi/forstigi og þannig lækka nýgengi sjúkdómsins sem skimað er fyrir, auka líkur á lækningu og lækka dánartíðni. Í einföldu máli þá segir þetta okkur að því fyrr sem við finnum krabbamein, því auð- veldari verður meðferðin og mun meiri líkur á bata. Langur tími getur liðið frá því að ristilkrabbameinsfrumur myndast í kirtilæxli (sepum) þar til einkenni koma fram og því er skimun nauð- synleg. Landlæknir gaf út tilmæli árið 2001 sem mæla með skimun fyrir ristil- og endaþarmskrabbameini fyrir alla einstaklinga 50 ára og eldri, með leit að blóði í hægðum. Árið 2008 skipaði heilbrigðisráð- herra ráðgjafarhóp sem átti að meta þörfina fyrir reglubundna skimun; niðurstöðurnar voru skýrar: Það væri kostnaðarhagkvæmt og að skimunin drægi úr dánartíðni. Landlæknisembættið sendi erindi til ráðherra árið 2015 og óskaði eftir því að tilmælum ráðgjafarhópsins yrði framfylgt og undirbúnings- vinna er hafin samkvæmt Land- læknisembættinu. Stefnt var að því að hefja reglubundna skimun snemma árs 2018, en hún er ekki enn hafin í dag. Það er oft erfitt að fá fjármagn til að hefja svona verkefni. Það getur spilað inn í hve lengi við erum að sjá árangur af skimunum. Það er kostn- aðarsamt að hefja slík verkefni en ágóðinn kemur ekki í ljós fyrr en mörgum árum síðar. Þeir sem settu verkefnið á laggirnar eru þá jafnvel ekki lengur við völd til að uppskera árangur erfiðisins, en þar sem þetta er stórt lýðheilsumál ætti þetta að vera á forgangslista og mun skila hagnaði eins og rannsóknir sýna. Ég vann á almennri skurðdeild í langan tíma og hef séð með eigin augum hversu mikill munur það er að meðhöndla fólk á fyrri stigum krabbameins samanborið við á seinni stigum. Þetta eru ekki bara tölur á blaði heldur alvöru fólk sem er að ganga í gegnum erfið veikindi. Mér finnst það samfélagsleg skylda að hefja þessa skimun sem fyrst og þetta á að vera forgangsmál fyrir lýðheilsu landsmanna. Eftir hverju er verið að bíða? n Eftir hverju erum við að bíða? Helga María Guðmundsdóttir B.Sc. í hjúkrunar­ fræði, MA í fjölmiðlafræði og nemi í viðbótar­ diplóma í lýð­ heilsuvísindum OTINsn11av PRDf�IIIDNALS • HH Workwear regnjakkar fást hjá Rubix. Verð á Gale: kr. 16.114,- Þægilegir og 100% vatnsheldir. Neoprene stroff við úlnið. Vatnsheldur símavasi. is.rubix.com | Dalvegur 32a 14 Skoðun 7. október 2021 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.