Fréttablaðið - 07.10.2021, Síða 20
Sjöfn
Þórðardóttir
sjofn
@frettabladid.is
Að eiga sér draum og koma
honum í framkvæmd er
afrek út af fyrir sig og öðrum
hvatning til eftirbreytni.
Gauja Hálfdánardóttir er ein
þeirra sem létu drauminn
rætast þegar hún stofnaði
fyrirtækið MEMO Iceland
sem hannar og selur silki-
slæður.
„Ég stofnaði MEMO Iceland árið
2014 með vinkonu minni. Það hafði
lengi blundað í mér draumur um
að eiga og reka mitt eigið fyrir-
tæki og sá draumur rættist þegar
hugmyndin með silkislæðurnar
kviknaði,“ segir Gauja en hún er
með BS í ferðamálafræði og master í
mannauðsstjórnun og ákvað síðan
að bæta við sig stjórnendamark-
þjálfun árið 2018.
„Hingað til hef ég starfað við nán-
ast allt sem snýr að mannauðsmál-
um og sinni fyrirtækinu í frítíma.
Reynslan mín á vinnumarkaðnum
nýtist vel í fyrirtækjarekstrinum
því mannleg samskipti skipa þar
stóran sess. Ég starfa í dag sem
mannauðsráðgjafi á velferðarsviði
hjá Reykjavíkurborg og kem þar að
mjög fjölbreyttum verkefnum. Mér
finnst gaman að vinna með fólk og
aðstoða stjórnendur í sínu starfi.
Því fer það mjög vel saman að vera
bæði með mannauðsstjórnun og
markþjálfun.“
Aðspurð segist Gauja alltaf hafa
haft áhuga á hönnun og tísku og
hugmyndina að hönnun ávallt
blundað í henni.
Er einhver saga bak við hönnun
þína á slæðunum og ástríðu fyrir
því sem þú ert að gera?
„Já, eftir að löngunin kviknaði til
að stofna fyrirtæki voru stöðugt að
poppa upp hugmyndir í kollinum
á mér. Það var svo árið 2013 þegar
ég sá mynd af fallegum vasaklút á
Pinterest með mynd af fjöllum og
náttúru. Það sem greip strax augað
var mynstrið og litirnir í nátt-
úrunni á klútnum og ég sá um leið
fyrir mér fallega silkislæðu með
mynd af íslenskri náttúru.
Við vinkonurnar vorum snöggar
að taka ákvörðun um að kýla á
þessa hugmynd og láta verða af
þessu. Ég sá um hönnun, sölu og
markaðsmál en hún um pantanir,
bókhald og reikninga, sem voru
mjög góð skipti. Þegar kom að því
að finna myndir á slæðurnar, þá
horfði ég annars vegar á þekkta og
fallega ferðamannastaði en ekki
síður mynstrin og litina.
Ég leitaði ekki langt yfir skammt
og fann tvær ljósmyndir í fjöl-
skyldualbúminu, annars vegar af
Veiðivötnum sem pabbi hafði tekið
Silkislæður skreyttar íslenskri náttúru
Gauja Hálf-
dánardóttir
segir að það hafi
verið frábær
tilfinning, eftir
langt og strangt
ferli, að fá fyrstu
sýnishornin í
hendurnar.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ANTON BRINK
Slæðurnar er hægt að nýta á margvís-
legan hátt, eins og myndirnar sýna.
Þessi fallega slæða sýnir vel norður-
ljósin. Litirnir eru stórkostlegir.
„Það sem greip strax augað var
mynstrið og litirnir í náttúrunni á
klútnum og ég sá um leið fyrir mér
fallega silkislæðu með mynd af
íslenskri náttúru,“ segir Gauja.
Gauja er ánægð með hversu vel ís-
lenskar konur hafa tekið slæðunum.
og Jökulsárlóni sem frænka mín
tók. Ég fékk leyfi frá þeim að nota
myndirnar og þá þurfti að finna
framleiðanda og fá prufur. Það var
frábær tilfinning, eftir langt og
strangt ferli, að fá fyrstu sýnis-
hornin í hendurnar.
Slæðurnar koma til okkar í plasti
og mér fannst það alls ekki koma
til greina að selja þær þannig. Ég
lét því hanna svartar öskjur með
silfurlógói og endurpakka slæð-
unum í silkipappír. Með hverri
slæðu fylgir jafnframt kort með
myndinni og texta um staðinn á
ensku og íslensku. Með þessum
umbúðum fannst mér varan vera
orðin fullkomin og tilbúin í sölu.
Umbúðirnar gera silkislæðuna líka
miklu fallegri og hentugri sem gjöf.“
Augnablikið fangað í upplifun
Gauja segir að heitið á vörumerki
slæðanna, MEMO Iceland, sé tengt
við minningar eða „memories“.
„Okkur fannst það passa vel við þá
hugmynd sem lá að baki hönnun-
inni enda eru slæðurnar hugsaðar
bæði sem minjagripir og fylgihlutir.
Hugmyndin mín var að slæðurnar
myndu fanga augnablikið sem
ferðamaðurinn upplifði á Íslandi.
Með því að kaupa sér slæðu þá væri
viðkomandi bæði með minningu
frá fallegum stað á Íslandi sem og
glæsilegan fylgihlut sem hægt er að
nota við ýmis tækifæri.
Á þessum tíma var ekki mikið
til af íslenskum minjagripum í
verslunum. Ferðamönnum var að
fjölga hratt og margar verslanir
fyrir erlenda ferðamenn að opna.
Ég setti mig fljótlega í samband við
stærstu söluaðilana, bæði á höfuð-
borgarsvæðinu og úti á landi. Það
var virkilega ánægjulegt að finna
hversu jákvæð viðbrögðin voru
enda voru engar sambærilegar
vörur til á þessum tíma. Fljótlega
voru slæðurnar komnar í sölu í Saga
Shop, Fríhöfninni og víðast hvar
um landið.“
Jökulsárlón og Veiðivötn
Fyrstu slæðurnar voru af Jökulsár-
lóni og Veiðivötnum og seldust þær
strax mjög vel að sögn Gauju. „Með
tímanum bætti ég svo við fleiri
týpum og hlýrri litum því ég áttaði
mig á því að litirnir í Jökulsárlón-
slæðunni eru kaldir og henta ekki
öllum. Þegar ég sá ljósmynd hjá vin-
konu minni af Landmannalaugum,
með brúnum og gylltum litum,
fékk ég leyfi til að nota hana á eina
silkislæðu. Síðan þá hafa bæst við
slæður með mynd af Seljalandsfossi
og Skeiðarársandi, með gráum,
brúnum og dröppuðum tónum
og tvær með myndum af norður-
ljósunum sem eru með þessum
fjólubláu og grænu litum. Þær eru
vinsælastar á meðal erlendra ferða-
manna, sem kemur kannski ekki á
óvart. Nú ættu allar konur að finna
slæðu við sitt hæfi með litum sem
fara þeim.“
Hvernig voru viðtökurnar á
slæðunum?
„Þær voru virkilega góðar. Eins og
ég nefndi var hugmyndin upphaf-
lega sú að hanna silkislæður sem
íslenska minjagripi fyrir erlenda
ferðamenn en fljótlega fann ég að
áhugi íslenskra kvenna á slæðunum
var mjög mikill og er enn. Þær hafa
verið stór kúnna hópur og eru bæði
að kaupa fyrir sjálfa sig en einnig
mikið í gjafir. Mér þykir afskaplega
vænt um það hvað íslenskar konur
hafa verið hrifnar af slæðunum og
mér hlýnar alltaf um hjartarætur
að sjá konu með silkislæðu frá mér.“
Þegar kemur að vali að formum
og myndum, er eitthvað sem heillar
þig frekar en annað?
„Já, þegar ég sé mynstur í nátt-
úrunni með fallegum litum. Brúnir
og bláir tónar saman heilla mig
gjarnan og oftast sé ég mynstrið
fyrir mér á silkislæðu. Þegar þú ert
með slæðuna, þá sérðu ekki endi-
lega að þetta sé ljósmynd heldur
frekar bara fallegt mynstur á silki.
Ég er ekki mikið fyrir skræpótt
mynstur og ég viðurkenni það alveg
að ég átti fyrst erfitt með gera slæðu
með norðurljósamynd því mér
fannst litirnir svo sterkir. En svo
komu þær báðar svo vel út að ég sé
ekki eftir því.“
Spennandi tímar fram undan
Fyrir tveimur árum ákvað vin-
kona Gauju að snúa sér að öðrum
verkefnum og í dag á Gauja fyrir-
tækið ein. „Mér finnst virkilega
spennandi að velta fyrir mér meiri
vöruþróun og er með ýmsar spenn-
andi hugmyndir á teikniborðinu.
Covid var erfiður tími fyrir þennan
rekstur þar sem allir endursöluaðil-
arnir okkar lokuðu verslunum
sínum.
En nú eru bjartari tímar fram
undan og um þessar mundir er ég
að setja mig í samband við verslanir
og koma silkislæðunum aftur í hill-
urnar. Nú er ferðamannastraumur-
inn að fara aftur af stað og þá lifna
verslanirnar við. Eins langar mig að
leggja meiri áherslu á að selja silki-
slæðurnar í tískuvöruverslunum
á landsbyggðinni. Ég nýtti Covid-
tímann vel í að bæta vefverslunina
memoiceland.is og þar hefur salan
verið að aukast jafnt og þétt.“ ■
info@arcticstar.is - www.arcticstar.is
Síðumúli 31 - 108 Reykjavik - S: 562-9018 / 898-5618
MARINE COLLAGEN FYRIR HÚÐ, HÁR OG NEGLUR
Kollagen er eitt helsta uppbyggingarprótein líkamans.
Kollagen er í öllum liðum, liðamótum, vöðvum, sinum
og beinum mannslíkamans og:
• Seinkar öldrun húðarinnar
• Dregur úr sýnilegum hrukkum og fínum
línum í húðinni
• Eykur rakastig og stinnleika húðarinnar
• Lagfæra háræðaslitasvæði
• Stuðlar að upptöku kalsíums og
kalsíumuppbótar.
Vítamín C:
• Stuðlar að eðlilegri myndun kollagens
fyrir starfsemi brjósks, beina og húðar
• Stuðlar að eðlilegri starfsemi tauga- og
ónæmiskerfisins
• Stuðlar að því að verja frumur fyrir
oxunarálagi og draga úr þreytu
• Stuðlar að endurnýjun afoxaðs forms
E-vítamíns og aukinni upptöku járns.
ÍSLENSK FRAMLEIÐSLA,
Framleiðandi er Arctic Star ehf.
Allar nánari upplýsingar fast á
www.arcticstar.is
Arctic Star Marine Collagen
Varan fæst í flestum apótekum, heilsubúðum,
Hagkaupum, og Fjarðakaup.
4 kynningarblað A L LT 7. október 2021 FIMMTUDAGUR