Fréttablaðið - 07.10.2021, Qupperneq 22
Simpsonfjölskyld-
una þekkja allir
enda hefur hún verið á
skjánum í 34 ár.
Það var heldur betur óvænt
uppákoma á tískuvikunni í
París um síðustu helgi þegar
Balenciaga kynnti sumar-
tískuna 2022. Það var engin
önnur en Simpsonfjölskyld-
an sem mætti til leiks.
elin@frettabladid.is
Gestir tískuvikunnar eru vanari
því að fylgjast með frægum
fyrirsætum á borð við Hadid-syst-
urnar en teiknimyndapersónum.
Balenciaga hafði útbúið móttök-
una eins og um frumsýningu í
Hollywood væri að ræða. Rauður
dregill og rauðir veggir blöstu við
gestum og módelum sem klæddust
sumarfatnaði Balenciaga. Fyrir-
sæturnar voru myndaðar um leið
og þær gengu inn og sýndar á
stórum skjá í salnum. Það var því
ekki hefðbundin sviðsframkoma.
Fyrirtækið hafði látið gera tíu
mínútna Simpson-mynd þar sem
Balenciaga var í aðalhlutverkinu
með fjölskyldunni í Springfield.
Í myndinni fær Marge Simpson
að upplifa draum sinn um að
klæðast Balenciaga. Ekki versnar
það þegar íbúum í Springfield er
boðið til Parísar til að taka þátt í
tískusýningu fyrirtækisins. Við
þekkjum persónurnar úr teikni-
myndinni þegar þær koma fram á
sviðið hver af annarri í glæsilegum
klæðnaði frá Balenciaga. Áhorf-
endur eru ekki af verri endanum,
Kim Kardashian, Kanye West og
Justin Bieber. Að auki má sjá Önnu
Wintour, ritstjóra tískutímaritsins
Vogue, sem lætur sig yfirleitt ekki
vanta á tískusýningar þekktustu
tískuhönnuða. Hönnuður Balenci-
aga, Demna Gvasalia, sést einnig í
myndinni.
Simpsonfjölskylduna þekkja
allir enda hefur hún verið á
skjánum í 34 ár. Hönnuðurinn
Gvasalia mun hafa verið ein-
lægur aðdáandi allt frá barnsaldri
en hann er ættaður frá fyrrum
Sovétríkjunum. Þetta mun ekki
vera í fyrsta skipti sem Gvasalia fer
aðrar og nýjar leiðir til að kynna
hönnun sína.
Simpson-myndin er stór-
skemmtileg og það má horfa á
hana á YouTube. ■
Homer Simpson tók yfir sviðið hjá Balenciaga
Homer Simpson
tekur sig vel út
á sviðinu hjá
Balenciaga í
rauðri úlpu með
sólgleraugu.
Ritstjóri Vogue, Anne Wintour, er að sjálfsögðu með í „showinu“.
Rapparinn Cardi B klæðist hér kápu og hatti frá Balenciaga. Kápan er skreytt
með úrklippum blaða. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Ritstjórinn Anna Wintour mætti líka í eigin persónu í kápu frá Balenciaga.
Fyrirsætan Naomi Campell í dragt
frá Balenciaga úr sumaratískunni.
Fyrirsætur á rauða dreglinum í
sumartísku Balenciaga fyrir 2022.
FERMINGARGJAFIR
Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út
bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal
hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum.
Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst
gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi.
Tryggðu þér gott auglýsingapláss
í langmest lesna dagblaði landsins.
Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402
eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is
Nán ri upplýsi ar um blaðið veitir:
Ruth Bergsdóttir, sölu- og markaðsfulltrúi Fréttablaðsins.
Sími: 694-4103 / ruth@frettabladid.is
Golfhermar
Sérblað um golfherma kemur út laugardaginn 16. október.
Í blaðinu gefst fyrirtækjum og klúbbum tækifæri til að koma á framfæri
því sem þau bjóða upp á fyrir golfáhugamenn í vetur.
Tryggðu þér auglýsingapláss í mest lesna dagblaði landsins.
6 kynningarblað A L LT 7. október 2021 FIMMTUDAGUR