Fréttablaðið - 07.10.2021, Side 26
1391 Birgitta Birgisdóttir tekin í dýrlingatölu.
1828 Konungur gefur út úrskurð um að kirkjudyr skuli
opnast út.
1893 Skipstjóra- og stýrimannafélagið Aldan stofnað.
1920 Konur fá að útskrifast með prófgráður frá Oxford-
háskóla.
1949 Austur-Þýskaland stofnað.
1954 Minjasafn Reykjavíkur stofnað. Síðar er því skipt í
Árbæjarsafn og Borgarskjalasafn.
1989 Fyrstu fjöldamótmælin gegn stjórn Austur-Þýska-
lands hefjast í Plauen.
1992 Flóðljós á Laugardalsvelli í Reykjavík tekin í notkun.
1998 South Park-þátturinn „Chef Aid“ er sendur út, þar
sem Chewbacca-vörninni er lýst.
2001 Stríðið í Afganistan hefst.
2003 Arnold Schwarzenegger kjörinn fylkisstjóri Kali-
forníu.
2008 Íslenska fjármálaeftirlitið tekur yfir
rekstur Landsbanka Íslands.
2008 Rússland býðst til að veita
Íslandi lánafyrirgreiðslu
upp á fjóra milljarða
evra.
2008 Davíð Oddsson segir
í Kastljósi: „Við ætlum
ekki að borga erlendar
skuldir óreiðumanna.“
2013 Stöð 3 hefur göngu sína
á Íslandi.
Bandaríska sjónvarpsstöðin Fox News var upprunalega
búin til af fjölmiðlarisanum Rupert Murdoch, sem réð fyrr-
verandi yfirmann á NBC-sjónvarpsstöðinni, Roger Ailes,
sem forstjóra. Útsendingar hófust á þessum degi árið 1996.
Þá náði stöðin til um sautján milljóna áhorfenda.
Nú nær stöðin til yfir 100 milljóna heimila í Bandaríkj-
unum. Sjónvarpsstöðin hefur verið harðlega gagnrýnd fyrir
hlutdrægni í fréttaflutningi og fyrir að ýta undir íhaldssam-
ar stjórnmálaskoðanir. Þá hefur stöðin hlotið gagnrýni fyrir
að hygla Repúblikanaflokknum þar í landi. Fjöldi yfirmanna
og annarra starfsmanna sjónvarpsstöðvarinnar hefur
neitað þessum ásökunum opinberlega í gegnum tíðina.
Árið 2008 safnaðist hópur fólks saman fyrir utan skrif-
stofur Fox til þess að mótmæla fréttaflutningi stöðvarinnar
sem hópurinn taldi yfirfullan af rasisma, meðal annars
í garð Barack Obama, sem þá var að bjóða sig fram fyrir
Demókrataflokkinn. Stöðin hafði þá ítrekað tengt Obama
við hryðjuverk og gert grín að húðlit hans.
Hópurinn, sem samanstóð af um 150 manns, afhenti
forsvarsmönnum Fox undirskriftalista frá um sex hundruð
þúsund manns sem allir mótmæltu fréttaflutningi stöðvar-
innar. n
Þetta gerðist: 7. október 1996
Sjónvarpsstöðin Fox News hóf göngu sína
Fréttamaðurinn Bill Hemmer les fréttir í myndveri Fox-stöðvar-
innar. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Merkisatburðir
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og systir,
Heiðbjört Erla Árnadóttir
Þórðarsveig 5, Reykjavík,
lést miðvikudaginn 29. september.
Hún verður jarðsungin frá Hjallakirkju í
Kópavogi mánudaginn 11. október kl. 13.
Magnús Magnússon Tuna Hauge
Sigrún Gísladóttir Flosi Jónsson
Jóhannes Helgi Gíslason
barnabörn og systkini.
Ástkær móðir okkar,
Ólöf Inga Klemenzdóttir
Naustabryggju 15,
lést föstudaginn 10. september sl.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey
að ósk hinnar látnu.
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug.
Fyrir hönd aðstandenda,
Þórunn og Hrafnhildur Inga Halldórsdætur
Þökkum innilega öllum þeim sem
sýndu okkur samúð og stuðning við
andlát og útför okkar hjartkæra
Jóns Sigurðssonar
fyrrverandi skólastjóra,
sem lést 10. september síðastliðinn.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk líknardeildar Landspítalans
og HERU, sérhæfðrar líknarheimaþjónustu, fyrir samhug,
aðstoð við aðstandendur og einstaka umönnun.
Sigrún Jóhannesdóttir
Óli Jón Jónsson Ágústa Kristófersdóttir
Snorri Jónsson Bára Ósk Einarsdóttir
Kristín Emilsdóttir Helgi Björnsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Guðmundur Valgeir
Ingvarsson
garðyrkjumaður,
Borgarheiði 41, Hveragerði,
lést 2. október á Heilbrigðisstofnun
Suðurlands. Útförin fer fram frá
Hveragerðiskirkju, föstudaginn 8. október kl. 14.
Lilja Guðmundsdóttir Símon Arnar Pálsson
Guðrún Guðmundsdóttir Össur Emil Friðgeirsson
Björn Guðmundsson Sigríður Magnúsdóttir
afabörn og langafabörn.
Glímusambandið hefur þurft að
verja glímuna sem séríslenska
íþrótt. Nú er hún komin í sér-
stakan hóp með laufabrauðinu,
brúnuðu kartöflunum og hand-
ritunum, sem viðurkennd menn-
ingararfleifð Íslendinga.
kristinnpall@frettabladid.is
Íslenska glíman hefur hlotið viðurkenn-
ingu Menningarmálastofnunar Samein-
uðu þjóðanna (UNESCO) sem sérstakur
hluti af af menningararfleifð Íslendinga.
„Þetta er viðurkenning af hálfu
UNESCO á Íslandi á að íslensk glíma sé
hluti af þjóðarhefð landsins og auðvitað
langar okkur að fara lengra með þetta.
Við teljum glímuna vera í stakk búna til
þess,“ segir Svana Hrönn Jóhannsdóttir,
formaður Glímusambandsins.
Hún segir viðurkenninguna færa
glímunni ákveðna viðurkenningu,
vernd og samþykki og opna um leið aðra
glugga til framtíðar.
Íslandsglíman er elsta íþróttamót
landsins, sem hefur verið keppt á frá
1906 ef undanskilin eru fimm ár þegar
fyrri heimsstyrjöldin gekk yfir.
Á heimasíðu UNESCO á Íslandi kemur
fram að menningarleg fyrirbæri á listan-
um séu menningarminjar sem hafi sér-
stakt varðveislugildi. Hægt er að senda
inn umsóknir og hefur fólk meðal ann-
ars sótt um að laufabrauð, slátur, þjóð-
dansar, ljóð, tröll og brúnaðar kartöflur
komist á listann.
Svana segir viðurkenningu UNESCO
mikils virði fyrir glímuna.
„Þetta er um leið ákveðin kynning
fyrir íþróttina, að vera þarna inni, og
samþykki á okkar starfi. Við erum að
berjast við fólk sem er að reyna að eigna
sér þessa íþrótt eða breyta því sem er í
okkar eigu. Þessi glíma sem við erum að
æfa og keppa í er alíslensk frá grunni.
Þetta er eitt af skrefunum sem við erum
að taka til þess að taka íþróttina okkar
til baka,“ segir Svana sem tekur undir að
glíman sé ekki jafn sýnileg og oft áður.
„Íþróttin er því miður orðin örlítið
falin, því starfið er í fullum gangi og
mörg mót á hverju ári. Við erum auð-
vitað að berjast við aðrar íþróttir og
afþreyingu,“ segir Svana og tekur undir
að með þessu sé verið að undirstrika að
íslensk glíma sé þjóðaríþrótt Íslendinga.
„Við tölum alltaf um þetta sem íþrótt
þjóðarinnar, enda er hvergi annars
staðar keppt í þessari íþrótt. Það er hægt
að rekja sögu glímunnar alveg aftur til
landnáms og þetta er sennilega ein af
elstu íþróttunum sem þekkjast.“ n
UNESCO viðurkennir glímu
sem íslenska þjóðararfleifð
Menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna viðurkennir íslenska glímu sem hluta af þjóðarhefð. MYND/GLÍMUSAMBAND ÍSLANDS
Viðurkenningin veitir vernd og opnar
möguleika. MYND/GLÍMUSAMBAND ÍSLANDS.
TÍMAMÓT FRÉTTABLAÐIÐ 7. október 2021 FIMMTUDAGUR