Fréttablaðið - 07.10.2021, Side 38
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is,
Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson
jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056:
Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
Mamma mín veiktist
af krabbameini og hún
hafði alltaf trúað mjög
mikið á okkur systk-
inin.
odduraevar@frettabladid.is
Margrét Friðriksdóttir segir að
óbólusettir muni ekki láta neinn
bilbug á sér finna í haust og ferðast
eins og þá lystir. Fréttablaðið tók
stöðuna á Margréti í ljósi þess að æ
fleiri treysta sér nú að nýju til ferða-
laga, þrátt fyrir að f lest lönd geri
ríkar kröfur um ýmisleg vottorð og
vesen.
„Ég þekki nú marga sem eru
óbólusettir og þeir eru ekki að
láta þetta stoppa sig í ferðalög-
unum,“ segir Margrét, sem sjálf
kom nýverið heim úr fríi á Tenerife
með dóttur sinni. Nokkrum dögum
eftir að heim var komið fengu þær
hins vegar sekt upp á hundrað
þúsund krónur þar sem þær fóru
ekki í skimun fyrir heimferð. Hún
segir slíkt ólöglegt og brjóta gegn
stjórnar skránni.
Margrét segist hafa heyrt af
óbólusettum ferðamönnum án
skimunarvottorða sem hafi verið
skóflað aftur heim. „Þetta er alla-
vega stjórnarskrárbrot,“ segir hún.
„Það er náttúrulega verið að mis-
muna fólki út frá einhverri bólu-
setningu sem stenst nú ekki einu
sinni væntingar.“
Aðspurð hvort óbólusettir láti
ekki slíkar kvaðir stöðva sig segir
Margrét það af og frá. „Nei, þetta
er nefnilega ekki hrædda fólkið.
Hrædda fólkið eru þessir bólusettu
og jafnvel þessir sem eru búnir að
fara í þriðja skammtinn, og jafn-
vel fjórða og fimmta og ganga um
með grímur og svo framvegis. Það
er hrædda fólkið.“
Ljóst sé að sífellt f leiri sæki í
stuttar utanlandsferðir þrátt fyrir
að sóttvarnayfirvöld hafi mælt
gegn því að fólk ferðist til útlanda.
„Það þýðir heldur ekki að lifa í ótta.
Það veikir ónæmiskerfið að lifa
í ótta og fólk ætti að huga að því
líka.“ n
Ferðast óhrædd og óbólusett
Margrét
Friðriksdóttir
Sæþór Kristinsson er fulltrúi
Íslands í tíundu seríu af raun-
veruleikaþættinum Den store
bagedyst í Danmörku, þar
sem hann hefur búið síðan
hann var sjö ára. Hann til-
einkar sjónvarpsbaksturinn
móður sinni, Kristínu Stein-
grímsdóttur, sem lést í janúar
úr krabbameini.
odduraevar@frettabladid.is
„Þetta er búið að vera klikkað,“ segir
Sæþór léttur í bragði. Fyrsti þáttur-
inn í seríunni var sýndur síðasta
laugardag en upptökur hófust í apríl
og segist Sæþór hafa bakað á svo til
hverjum einasta degi.
„Þetta var gríðarlega krefjandi,“
segir Sæþór. Hann segir móður sína
Kristínu hafa bakað mikið. „Þegar
ég var barn bakaði hún pönnukökur
eða snúða á hverjum einasta sunnu-
degi og þegar ég var lítill bakaði hún
með okkur í eldhúsinu.“
Bakaði fyrir dóttur sína
Sæþór viðurkennir þó að hann hafi
ekki séð fyrir sér að verða einhvern
daginn keppandi í slíkum þætti.
„Þegar ég eignaðist dóttur mína,
sem verður níu ára í janúar, vildi
ég baka með henni og ég vildi geta
bakað kökur fyrir hana á afmælinu
sem gætu gert vini hennar öfund-
sjúka,“ segir Sæþór.
Þá hafi ekki verið aftur snúið.
„Mamma mín veiktist af krabba-
meini og hún hafði alltaf trúað
mjög mikið á okkur systkinin. Ég á
fimm systur og mamma hafði alltaf
sagt við okkur að sama hvað við
myndum taka okkur fyrir hendur,
þá gætum við það og ættum að gera
það.“
Maður lifir aðeins einu sinni
Hún hafi minnt Sæþór á að hann lifi
bara einu sinni og hvatt hann til að
skrá sig, sem hann gerði í desember,
mánuði fyrir fráfall hennar. „Og
jarðarförin hennar fór fram fjórum
dögum fyrir fyrstu prufurnar. Og
hún var drif krafturinn og hvatti
mig áfram, því ég vissi að hún
myndi verða svekkt ef ég myndi
ekki slá til, því hvað gæti verið það
versta? Að fá nei! Sem gerðist svo
ekki,“ segir Sæþór hughrifinn.
Sæþór segir að þátttakan hafi því
verið sér ákaflega þýðingarmikil.
Tökurnar hófust í febrúar og getur
Sæþór ekki sagt meira, þar sem
fyrsti útsláttarþátturinn verður
sýndur næsta laugardag.
„Þannig að þetta er minn virð-
ingarvottur við hana,“ segir Sæþór.
Hann horfði á fyrsta þáttinn með
fjölskyldu sinni síðasta laugardag
og segist afar spenntur fyrir því að
hún sjái framhaldið. n
Bakar fyrir látna móður sína
Þótt hann búi ekki við Nørregade er Sæþór býsna lunkinn bakari sem heyr tilfinningaríka keppni í dönsku sjónvarpi.
MYND/AÐSEND
Sæþóri er margt
til lista lagt en
hann starfar
sem mann-
auðsstjóri og
CrossFit-þjálfari
þegar hann er
ekki að leika
listir sínar við
hrærivélina.
30 Lífið 7. október 2021 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
HÄSTENS VERSLUN
FAXAFENI 5, REYKJAVÍK
588 8477
VERTU
VAKANDI
Í FYRSTA
SKIPTI
Á ÆVINNI
Komdu til okkar og prófaðu
einstök gæði Hästens rúmanna.
Starfsfólk okkar er tilbúið
að aðstoða þig og veita frekari
upplýsingar.
Þegar þú vaknar í rúmi frá Hästens munt þú skilja
virði þess að ná fullkomnum nætursvefni. Rúmin
eru framleidd með einstöku samspili handverks og
hráefna þar sem hvergi eru gerðar málamiðlanir í
gæðum náttúrulegra efna eða tíma við óþreytandi
handverkið. Þú sérð það ekki en þú munt finna fyrir
því. Allan sólarhringinn. Heimsæktu Hästens í
Faxafeni eða pantaðu vörulistann á hastens.com.