Morgunblaðið - 22.05.2021, Page 18
Morgunblaðið/Eggert
Leiðarlok Gunnar Bragi Sveinsson, þingflokksformaður Miðflokkssins, kveður stjórnmálin sáttur í haust.
Andrés Magnússon
andres@mbl.is
Gunnar Bragi Sveinsson, þing-
flokksformaður Miðflokksins, hefur
ákveðið að leita ekki endurkjörs á
Alþingi í komandi kosningum og
segja skilið við stjórnmálin. Gunnar
Bragi var upphaflega kjörinn á þing
fyrir Framsóknarflokkinn í Norð-
vesturkjördæmi árið 2009, en situr
nú fyrir Miðflokkinn í Suðvest-
urkjördæmi. Hann var utanrík-
isráðherra 2013–2016, sjávarútvegs-
og landbúnaðarráðherra 2016–2017.
„Ég er búinn að vera í eða í kringum
pólitík nánast alla ævi. Byrjaði sem
krakki að sendast og snúast í kring-
um kosningar og fór fyrst í framboð
23 ára gamall, þá til bæjarstjórnar,
en var síðan kjörinn á þing 2009,
beint eftir hrun og hef verið þar síð-
an. Mér finnst þetta vera orðinn
góður tími og réttur tími til þess að
snúa mér að öðru í lífinu.“
Ætlaði aldrei á þing
Ætlaðir þú þér að verða atvinnu-
stjórnmálamaður frá byrjun?
„Nei, alls ekki. Ætlaði aldrei að
verða þingmaður. Ég hafði brenn-
andi áhuga á stjórnmálum og fór í
framboð heima á Sauðárkróki af því
að ég vildi láta gott af mér leiða í
minni heimabyggð. En ég var alls
ekkert að stefna að því að gera
stjórnmálin að starfi, hvað þá að
fara á þing.
Reyndar var það þannig þegar ég
fór í þingframboð, að ég hugsaði
með mér að ég gæti verið í lands-
málunum í 2-3 kjörtímabil, að 12 ár
væru hæfilegur tími. Og nú eru
komin 12 ár, svo þetta er rétti tím-
inn til þess að hætta hér og byrja á
næsta kafla.
Síðan er það nú líka hitt, að fjöl-
skyldan verður sjálfsagt fegin að
það gerist eitthvað nýtt; það er allt-
af snúið fyrir fjölskylduna þegar
menn eru í stjórnmálum. En að-
allega er það nú bara þetta, það er
kominn tími til að gera eitthvað ann-
að, eitthvað nýtt og spennandi.“
Feginn að sleppa?
„Já, kannski á sinn hátt,“ segir
Gunnar Bragi og hlær. „En þetta er
búinn að vera ákaflega áhugaverður
og skemmtilegur tími og maður er
búinn að gera nánast allt í pólitík,
sem hægt er að hugsa sér.“
Breytt stjórnmál
Hvað stendur upp úr á þessum
tíma? Hverju ertu hreyknastur af á
ferlinum?
„Það sem stendur upp úr er
hvernig stjórnmálin hafa þróast á
þessum tíma og allt það góða fólk, í
öllum flokkum, sem maður hefur
kynnst, unnið með og eignast að vin-
um. Hvað minn feril varðar, þá er
ómögulegt að tína til eitthvað eitt.
Ég gæti nefnt svo margt úr utanrík-
isráðuneytinu sérstaklega, en einnig
landbúnaðar- og sjávarútvegsráðu-
neytinu, og svo auðvitað fjölmargt af
Alþingi þann tíma, sem ég var ekki
ráðherra.
En á þessum tíma, þá hefur mað-
ur náttúrlega upplifað breytingu á
stjórnmálunum. Svona eftir á að
hyggja, þá er það kannski hún sem
stendur upp úr. Þegar ég varð að-
stoðarmaður Páls Péturssonar ráð-
herra skömmu fyrir aldamót, þá
voru stjórnmálin með talsvert öðr-
um brag. Þau voru yfirvegaðri og
það var meira traust og virðing,
milli bæði manna og sjónarmiða.
Þetta er miklu meira stál í stál núna
og minni vilji til þess að ná mála-
miðlunum.“
Skortir upp á traustið
Þú kemur auðvitað inn á þing
beint eftir bankahrunið og það er
óþarfi að rifja upp óðagotið og upp-
námið í þjóðlífi og stjórnmálum á
þeim tíma. Finnst þér það ekki hafa
tekist að koma stjórnmálunum í
fastari skorður?
„Ég held að það sé nokkuð langt í
land með að fólk virði skoðanir
hvert annars með þeim hætti sem
var. Ég er viss um að það má end-
urreisa það traust, sem var og þarf
að vera í stjórnmálunum, en það
tekur tíma.
Ég efast ekki um að það er góður
vilji til þess hjá öllu því góða fólki,
sem er á Alþingi. En það þarf að
taka umræðu um það hvernig við
gerum það, því það er slæmt fyrir
þennan tiltölulega litla vinnustað 63
þingmanna ef það er svona mikið
vantraust í þingsalnum.“
Særindin sitja eftir
Nú yfirgáfuð þið nokkrir Fram-
sóknarflokkinn og stofnuðuð Mið-
flokkinn. Komast menn yfir slík
særindi?
„Auðvitað er fólk í báðum flokk-
um, sem getur talað saman og
myndað traust, en það er ekki al-
mennt. Það var erfitt fyrir okkur
mörg að stíga þetta skref, en ég sé
ekki eftir því. Það var óhjá-
kvæmilegt. Það var einfaldlega ekki
hægt að sitja undir þeirri forystu,
sem þar var og er. Það getur vel
verið að við getum unnið með þessu
ágæta fólki, en við getum ekki verið
saman í flokki.
Og það eru auðvitað særindi, eðli-
lega, þegar það eru undirmál og
óheilindi, eins og voru í Framsókn á
þessum tíma. Það hjálpar ekki held-
ur þegar maður sér að þeir sem
mest og verst höfðu sig í frammi
með óheilindum þá, eru núna að
reyna að lappa upp á ímyndina með
því að fara í viðtöl og tala um æsk-
una eða annað slíkt til þess að breiða
yfir sína framgöngu í stjórnmálum.“
Hættur og alveg hættur
Þú ert að hætta á þingi en ert
varla ópólitískur maður. Gætirðu
hugsað þér eitthvað annað í pólitík-
inni?
„Nei, ég ætla að hætta og þá
hætti ég alveg. En svo veit maður
auðvitað ekki hvað gerist síðar á
lífsleiðinni. Kannski þessi baktería
taki sig upp síðar, hver veit?
En ég er 53 ára gamall og stóð
frammi fyrir spurningunni hvort ég
vildi halda áfram í þessu sama eða
gera eitthvað nýtt. Ég valdi að gera
eitthvað nýtt.“
Hvað ætlarðu að gera?
„Ég er nú ekki búinn að finna mér
nýjan farveg, en ég hef hálft ár frá
kosningum til þess að ráða fram úr
því. Ég horfi í kringum mig og leita,
eins og aðrir sem standa frammi
fyrir að skipta um vinnu, en það er
ekkert í hendi og ekkert eitt, sem ég
mun leita að.
Ég fór í tvo áfanga á Bifröst, sem
var mjög skemmtilegt, kannski ég
haldi því áfram.
Hvað sem verður, þá hef ég smá
umþóttunartíma, svo það er ekkert
stress að finna sér annað að gera,
það kemur.“
Er auðvelt fyrir þingmenn að
finna sér nýja vinnu?
„Það er örugglega upp og ofan, en
ég segi fyrir sjálfan mig, að sú
reynsla, sem ég hef öðlast í pólitík-
inni, er ákaflega dýrmæt og mik-
ilvæg.
Þetta hefur verið mjög áhuga-
verður tími, sem ég hef verið hér á
Alþingi. Ég kom inn 2009 þegar allt
var í hers höndum og við tóku fjögur
ár í stjórnarandstöðu, þar sem var
verið að fást við stór mál og síðan í
ríkisstjórn með ekki minni mál.
Allt var það ákaflega lærdómsríkt
og gefandi þótt sumt væri það vissu-
lega erfitt. En þetta er orðið gott.“
„Réttur tími til að snúa sér að öðru“
- Gunnar Bragi Sveinsson ætlar að hætta á Alþingi eftir tólf viðburðarík ár - Tími kominn til þess
að breyta til og takast á við ný verkefni - Hefur áhyggjur af breyttri umræðuhefð í stjórnmálunum
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. MAÍ 2021
Áætlað er að fjöldi brottfara frá
Keflavíkurflugvelli verði tvöfalt
meiri en í fyrra. Þetta kemur fram í
svari Isavia við skriflegri fyrir-
spurn Morgunblaðsins. „Þetta eru
þó ekki endanlegar tölur þar sem
flugfélög eru mörg hver enn ekki
búin að fastsetja sínar ákvarðanir
og eru að hinkra eftir t.d. nánari
upplýsingum um atriði eins og regl-
ur á landamærum og litakóð-
unarkerfi,“ segir í svarinu.
Þar kemur fram að Isavia sé
bjartsýnt á sumarið og telji mikla
eftirspurn eftir flugferðum til Ís-
lands. Þetta endurspeglast meðal
annars í ákvörðun bandaríska flug-
félagsins Delta um að hefja flug til
Íslands í dag frá Boston og er það
fyrsta nýja alþjóðlega flugleið þess
félags frá því Covid-19-heimsfar-
aldurinn hófst.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Flug Isavia ræður svipað marga starfs-
menn þetta sumarið og síðasta sumar.
Væntanlega tvöfalt
fleiri brottfarir í júní
569 7000 | miklaborg.is
Óskar R. Harðarson og Jason Guðmundsson, löggiltir fasteignasalar
Skrifstofuhúsnæði
óskast
Traust fyrirtæki óskar eftir
að taka skrifstofuhúsnæði á leigu
æskileg stærð 800 - 1000 fm
• Staðsetning, höfuðborgarsvæðið
• Afhendingartími, haust 2021
• Ástand, fullinnréttað
Nánari upplýsingar veitir:
Þröstur Þórhallsson
lögg. fasteignasali
sími:8970634
throstur@miklaborg.is