Morgunblaðið - 22.05.2021, Síða 30

Morgunblaðið - 22.05.2021, Síða 30
30 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. MAÍ 2021 ✝ Þorbjörg J. Ólafsdóttir fæddist á Hvamms- tanga 8. janúar 1950. Hún lést á krabbameinsdeild Landspítalans 11. maí 2021. Foreldrar henn- ar voru hjónin Ólaf- ur Þórhallsson, f. 2. júní 1924, d. 18. ágúst 2013, og Hall- dóra Kristinsdóttir, f. 9. janúar 1930, d. 31. janúar 2013. Þau bjuggu á Syðri-Ánastöðum á Vatnsnesi í V-Húnavatnssýslu. Systkini Þorbjargar: Ólöf Þórhildur, f. 1953; Halldór Krist- inn, f. 1956, d. 1985; Bergur Helgi, f. 1960, d. 1988; Júlíus Heimir, f. 1965. Eiginmaður Þorbjargar er Jón M. Benediktsson, f. 26. febr- úar 1951, frá Staðarbakka í Mið- firði, V-Húnavatnssýslu. Börn þeirra eru: 1) Þórólfur, f. 5. sept- ember 1974. Eiginkona hans er Nanna Viðarsdóttir. Börn þeirra: Jón Ívar, f. 19. febrúar 2006, Logi, f. 14. september 2008, Kári, f. 28. október 2017. Fyrir átti Þórólfur Þorgerði, f. 16. apríl 2000, og fyrir átti Nanna Eddu Eik, f. 12. mars 1998. 2) Ragnheiður, f. 8. febr- úar 1979. Hún er í sambúð með Erlend Nicolaisen. Börn Ragnheiðar eru: Ulrich Skírnir, f. 31. maí 2015, og Isadora, f. 10. jan- úar 2017. 3) Þór- hildur, f. 8. febrúar 1979. Eiginmaður hennar er Jón Há- kon Hjaltalín. Börn þeirra eru: Styrmir, f. 21. ágúst 2006, Þorbjörg Sara, f. 15. júlí 2010, og Hákon Emil, f. 1. ágúst 2013. Þorbjörg ólst upp á Syðri- Ánastöðum þar sem foreldrar hennar stunduðu búskap. Hún lauk gagnfræðaprófi frá Reykja- skóla í Hrútafirði og útskrifaðist úr Ljósmæðraskóla Íslands 1972. Lengst af starfaði hún á fæðingardeild Landspítalans en einnig á Reykjalundi og í mæðravernd á heilsugæslu Mosfellsumdæmis. Þá leiðbeindi hún um skeið við handavinnu í félagsmiðstöðvum eldri borgara í Reykjavík. Hún hafði mikinn áhuga á ým- iss konar hannyrðum og hand- verki og sótti margvísleg nám- skeið á því sviði hér á landi og erlendis. Útförin fór fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Það er erfitt að vakna við þá staðreynd að mamma sé ekki lengur hér. Alla ævi hefur hún verið til staðar, fasti í lífinu og í kallfæri. Tilbúin í spjall við eld- húsborðið, símtal á ferðinni í lok vinnudags. Við áttum auðvelt með að tala saman, hún skildi mig vel og til hennar var gott að leita. Á erfiðum tímum var móðurfaðmur- inn alltaf hlýjastur. Ævi hennar var talsverðum þyrnum stráð. Ung kona sá hún á bak tveimur kærum bræðrum sínum sem létust vegna veikinda. Það reyndi mjög á hana og skildi eftir djúp sár sem aldrei greru. Um fertugt veiktist hún og náði aldrei fullri heilsu eftir það. Starfsþrekið þvarr en fram til þess hafði hún sinnt fullri vinnu við ljósmóðurstörf. Það íþyngdi henni og olli hugarangri. Heilsu- leysið ágerðist síðan, þar til mein- semdin sem hún þurfti að kljást við náði loks undirtökunum og hrifsaði hana burt frá okkur, langt fyrir eðlilegan vitjunartíma. Mamma bjó yfir mjög mikilli alúð og næmi og hafði ríka þörf fyrir að styðja við og hjálpa þeim sem næst henni stóðu. Hún var málsvari lítilmagnans, hvort sem um var að ræða smáfugla á sól- palli, viðkvæm blóm eða ung börn. Smáfólkið átti alltaf stóran hlut í hjarta hennar og réð sjálfsagt miklu um val hennar á ævistarfi. Hún naut sín aldrei betur en þeg- ar barnabörnin voru nærri. Þrátt fyrir skerta orku þreyttist hún ekki á að púsla með þeim, leggja kapal eða kenna þeim hannyrðir. Hún fylgdist vel með þeim öllum, viðfangsefnum þeirra og áhuga- málum og lagði mikið upp úr að vel væri hlúð að þeim og enginn færi nú út af sporinu. Eins og með okkur systkinin vildi hún að þau væru hrein, strokin og vel til fara og ég stríddi henni á að hún léti það jafnan vera sitt fyrsta verk að þvo börnum í næturpössun hátt og lágt jafnskjótt og foreldrarnir væru farnir. Börnin mín minnast stundanna í Urriðakvísl með mik- illi hlýju og eftirsjá. Mamma var mjög heimakær og lítið fyrir mannfagnaði. Hún var viðkvæm og tilfinningarík og vildi ekki bera sín mál á torg. Hún var nægjusöm og naut sín best í ró og næði heima fyrir eða í sumarbú- staðnum sem þau pabbi höfðu byggt sér í Skorradal, þar þótti henni mjög gott að dvelja. Hún lagði upp úr að heimilið væri hlý- legt og fallegt og þar eru margir fallegir munir sem hún bjó til og vitna um listfengi hennar, smekk- vísi og hæfileika. Það er varla hægt að minnast mömmu án þess að nefna föður minn í sömu andrá. Hann var kletturinn í lífi hennar, stoðin og styttan. Fram á síðustu stund var hún óró ef hann var ekki nærri. Með honum leið henni best. „Áttu enga ömmu lengur,“ spurði þriggja ára sonur minn afa sinn. Þótt í því sé nokkur sannleikur er málið flóknara en svo. Afi mun eiga ömmu áfram og amma hann, því verður ekki breytt úr þessu. Í honum átti hún traustan og hlýjan vin og lífsförunaut. Pabbi var enda óþreytandi samherji hennar, hjálpaði henni, ekki síst við hand- verkið, og fáir hafa fylgt konum sínum í fleiri handavinnubúðir en hann. Móður minni er ég endalaust þakklátur fyrir allt það góða sem hún kenndi mér og færði. Megi minning hennar lifa. Þórólfur Jónsson. Í dag eru tekin þung skref þeg- ar við fylgjum tengdamóður minni til hinstu hvílu. Það er mik- ið og þungt högg fyrir fjölskyldu þegar amma hverfur á braut og skilur eftir stórt skarð. Það er með þakklæti og vinsemd sem ég skrifa nokkur orð um tengda- mömmu mína sem kom fram við mig og börnin af hlýju. Ég er þakklát fyrir þann tíma sem við áttum saman fjölskyldan og þær stundir sem við sátum saman við hannyrðir. Það eru fáir sem hafa tærnar þar sem hún hafði hælana þegar kom að handavinnu hvers konar og á ég henni mikið að þakka fyrir allt sem hún kenndi mér. Má þar sér- staklega nefna útsauminn og kassagerðina sem var hennar helsta áhugamál á síðustu árum. Ég var heppin að hafa sjálf þetta sama áhugamál og núna þegar við sitjum eftir án hennar er dýrmætt að eiga þessar minningar, ég tala nú ekki um öll verkin sem hún skildi eftir handa mér og börnum okkar Þórólfs. Elsku Jón, tengdapabbi minn, situr nú uppi með þá staðreynd að veröldin er breytt og mikið tóma- rúm í hjartanu. Hvernig getur það verið að lífið haldi bara áfram eftir svona áfall en það gerir það hins vegar og Þorbjörg verður með okkur hér eftir en með öðr- um hætti. Við höldum minningu hennar á lofti og minnumst henn- ar eins og hún var þegar við kom- um í heimsókn í Urriðakvíslina, svo hlý og góð og natin við mig og börnin. Mér finnst textinn í ljóð- inu eftir Valdimar Hólm Hallstað eiga vel við en þar segir: „Þú fagra minning eftir skildir eina, sem aldrei gleymist meðan lífs ég er.“ Þín tengdadóttir, Nanna Viðarsdóttir. Amma Þorbjörg var einstak- lega hlý kona. Ég var ósjaldan í pössun hjá henni og afa í Urr- iðakvíslinni þegar ég var yngri. Þá fannst mér ekkert betra en að kúra á milli þeirra í holunni á milli samskeytanna á rúmunum. Þar leið mér best og mér fannst ég örugg. Amma var með hreinlæti okkar barnanna á heilanum og í hvert sinn sem ég kom til hennar var ég böðuð og skrúbbuð hátt og lágt, neglur klipptar og fötin þvegin. Ég man hvað mér þótti gott að láta ömmu stjana svona við mig. Amma var líka einstakur listamaður með mikla sköpunar- gleði. Hún leyfði mér líka að spreyta mig í saumum og bakstri og tók öllum hugmyndum að skálduðum uppskriftum fagnandi. Það var alltaf gaman að spjalla og slúðra með ömmu og afa. Amma hafði svo mikinn og óþrjótandi áhuga á öllu sem ég og hin barna- börnin tókum okkur fyrir hendur. Ég er þakklát fyrir hana og okkar tíma saman, þó svo að ég hefði viljað að hann yrði lengri. Þorgerður Þórólfsdóttir. Þorbjörg systir mín er dáin eft- ir löng og erfið veikindi. Sem barn leit ég mikið upp til Þorbjargar og vildi gera allt eins og hún, dáðist að ljósa síða hárinu hennar, vand- virkni og dugnaði í einu og öllu. Við ólumst upp í sveit og þar þurfti margt að gera; við systurn- ar vorum oftast saman í þeim verkum. Sérstaklega eru mér minnisstæðar sjóferðir með pabba til að veiða hrognkelsi á vorin. Í þeim ferðum fengum við alltaf að róa heim af miðunum, ég hafði lítið við systur minni sem var hinn fínasti ræðari og alls ekki sjóhrædd þegar ég sjálf var oft smeyk við öldurnar og dýpið sem var undir bátnum. Mér finnst að á þessum árum hafi systir mín verið minn verndarengill, eins og hún var mér reyndar alveg fram á full- orðinsár. Hún var með mér í heimavistarskóla í barnæsku, var byrjuð í Reykjaskóla þegar ég kom þangað. Alltaf var Þorbjörg til staðar og ég fann fyrir hennar hlýju nærveru og vissi að hún myndi vernda mig ef eitthvað kæmi fyrir. Þorbjörg hafði snemma mjög gaman af handa- vinnu. Þegar við vorum litlar voru vetrarkvöldin gjarnan notuð til að prjóna og sauma. Hún var lista- kona við allt slíkt, líka við að teikna, ég man hvað ég dáðist að því sem hún gerði og hvað hún var mikill snillingur í þeim efnum. Alla sína ævi hefur hún haft mjög mikla ánægju af ýmiss konar handverki. Hún hefur sótt mörg námskeið í þeim fræðum bæði á Íslandi, í Danmörku og Frakk- landi. Þeir fallegu munir sem hún skilur eftir sig væru efni í margar sýningar. Hún fékkst við búta- saum, útsaum, dúkkugerð og síð- ustu árin við að búa til kassa skreytta dásamlega fíngerðum útsaumi og klædda fallegum efn- um. Þorbjörg var mjög barngóð. Hún hændi að sér öll börn, fyrst og fremst bræður okkar, Kristin og Berg sem nú eru löngu dánir og auðvitað örverpið Júlíus sem fæddist þegar hún var fimmtán ára. Litlir sumargestir sem voru margir á þeim árum og börn sem dvöldu í sveitinni hjá okkur sum- arlangt hændust að Þorbjörgu sem gaf sér góðan tíma til að leika við þau. Ég er viss um að þau minnast hennar með hlýju. Þegar Þorbjörg var í Ljósmæðraskólan- um og ég í Menntaskólanum við Hamrahlíð var ómetanlegt fyrir mig að vita af stóru systur svo ná- lægt og geta talað við hana ef eitt- hvað bjátaði á. Ég bjó þá hjá Ingi- björgu föðursystur okkar og þar hittumst við oft. Þorbjörg hætti ekki að hugsa um litlu systur sína þó að ég færi í nám í Frakklandi um tvítugt. Þegar ég eignaðist dóttur mína þar komu þau Jón með Þórólf litla til að athuga hvort ég kláraði mig í móðurhlutverk- inu. Það var ómetanlegt fyrir unga móður, ég held að ég hafi aldrei þakkað henni nógu vel fyrir það. Þorbjörg var mikil fjöl- skyldumanneskja og þrátt fyrir langvinn veikindi hugsaði hún mjög vel um foreldra okkar alveg þar til þau létust bæði árið 2013. Eftir að mamma og pabbi dóu bjó ég alltaf hjá henni og Jóni þegar ég kom til Íslands. Ég hugsa líka með þakklæti til góðu stundanna sem við áttum á allra síðustu ár- um þegar við fórum saman á handavinnusýningar í London og París og á námskeið í kassagerð bæði heima hjá henni og heima hjá mér. Þrátt hversu henni leið oft illa sagði Þorbjörg að hún fyndi miklu minna fyrir veikind- unum þegar hún væri að gera svona skemmtilega hluti. Það sem ég held að hafi tengt okkur sterk- ast saman var bernskan á Syðri- Ánastöðum, minningarnar frá lífi stórfjölskyldunnar í sveit og sam- félags sem nú er horfið. Henni fannst gott að koma á sínar gömlu heimaslóðir, sérstaklega ef hún gat farið með litlum barnabörnum í gönguferðir í fjöru og á túni í leit að alls konar fjársjóðum, skeljum, steinum og blómum. Vonandi hitt- umst við systurnar einhvern tím- ann í gamla heimalandinu sem mun áreiðanlega fagna okkur. Mínar hlýjustu samúðarkveðjur sendi ég Jóni manni hennar, börn- um og barnabörnum. Meira á: www.mbl.is/andlat/. Þórhildur. Þorbjörg Ólafsdóttir svilkona mín er látin. Með Jóni mági og Þorbjörgu tókust æskuástir og þau bönd héldu vegferðina á enda. Við vorum svo lánsöm að eiga samleið með þeim um langa hríð og fylgjast með hinu hefðbundna basli ungs fólks við að koma börn- um á legg og þaki yfir höfuðið. Þau hjón voru samhent og sam- huga og ekki fór framhjá þeim sem til þekktu gagnkvæm virðing þeirra í milli. Reykjaskóli í Hrútafirði var um margt merkileg stofnun. Námið var formlega aðalatriði dvalarinnar, en þar ófust líka var- anleg vinabönd. Stofnað var til kynna við skólafélaga hvaðanæva af landinu. Og þó ekki sé ýkja langt milli Staðarbakka í Miðfirði og Ánastaða á Vatnsnesi lágu engar leiðir milli bæjanna, enda hvað höfðu unglingar í Miðfirði að sækja út á Vatnsnes og gagn- kvæmt? Það þurfti sem sagt að fara til náms vestur í Reykjaskóla til að finna svar við þeirri spurn- ingu. Þorbjörg lærði ljósmóðurfræði og starfaði um árabil á Fæðing- ardeild Landspítalans. Ég var svo lánsamur að eiga þess kost að fylgjast með hennar faglegu og fumlausu handtökum þegar hún tók á móti yngsta barni okkar. Sagt var að nýbakaður faðir hefði kallað upp er hann leit son sinn augum: „En hvað hann er líkur mér“ og ljósmóðirin svaraði með huggunarrómi: „Það gerir ekkert til, aðalatriðið er að hann er heil- brigður og hraustur.“ Gæti hafa verið Þorbjörg því hún bjó yfir kímnigáfu sem hún beitti af hóf- semd og smekkvísi. Í lífsins amstri verður iðulega vík milli vina og samverustundir færri en vera skyldi. Að leiðarlok- um er efst í huga þakklæti fyrir dýrmætar minningar. Við kveðj- um Þorbjörgu sem hefur nú horf- ið inn í nóttlausa veröld vorsins. Kærum mági og fjölskyldu biðj- um við blessunar. Ólafur H. Jóhannsson. Þorbjörg J. Ólafsdóttir Ástkær eiginkona mín, móðir og amma, SÓLVEIG HJÁLMARSDÓTTIR, Lækjartúni 23a, Hólmavík, lést á líknardeild Landspítalans laugardaginn 8. maí. Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Einar Hákonarson Hákon Einarsson Ira Ojala Hjálmar Einarsson og barnabörn Ástkær móðir mín, ÓLAFÍA ÁSKELSDÓTTIR, er látin. Útför mun fara fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Áslaug Erla Haraldsdóttir Ástkær eiginmaður minn, faðir, sonur, bróðir og tengdasonur, VÖLUNDUR HELGI ÞORBJÖRNSSON, Kanada, lést á heimili sínu föstudaginn 14. maí. Útförin fer fram á útfararheimilinu Blair & Son í Perth í Kanada miðvikudaginn 26. maí klukkan 17 að íslenskum tíma. Streymt verður frá athöfninni og slóðin mun verða sett á blairandson.com og á hans Facebook-síðu. Dæja Björk Kjartansdóttir Ísabella Völundardóttir William Thor Völundarson Agnes Eva Völundardóttir Kristjana Inga Völundardóttir og aðstandendur Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÚN ÞORLEIFSDÓTTIR, lést á Hrafnistu í Hafnarfirði fimmtudaginn 20. maí. Gyða Gísladóttir Helgi Bragason Þórir Gíslason Bergþóra Jónsdóttir Sigríður Gísladóttir Sigurður Sverrir Gunnarsson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær sonur okkar og bróðir, PATREKUR JÓHANN KJARTANSSON EBERL, lést miðvikudaginn 12. maí. Útförin fer fram frá Garðakirkju fimmtudaginn 27. maí klukkan 15. Í ljósi aðstæðna verða aðeins nánasta fjölskylda og vinir viðstödd. Athöfninni verður streymt á www.ebkerfi.is/streymi. Veronika Eberl Kjartan Þór Kristgeirsson Þórhildur Lotta Kjartansdóttir Eberl Þormar Fálki Kjartansson Eberl Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, SVALA VALDEMARSDÓTTIR, Arkarholti 14, Mosfellsbæ, lést á hjúkrunarheimilinu Eir hinn 15. maí. Útför fer fram í Grafarvogskirkju fimmtu- daginn 27. maí klukkan 13. Jarðsett verður í Gufuneskirkjugarði. Þeim sem vildu minnast Svölu er bent á Alzheimersamtökin. Gunnar Rafn Jóhannesson Helga Gunnarsdóttir Sigurður H. Ásgeirsson Sigurður Rafn Gunnarsson Nicola Winterson Thelma Gunnarsdóttir Georg Vilhjálmsson Vala Gunnarsdóttir Gísli Finnsson og barnabörn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.