Morgunblaðið - 08.05.2021, Side 12

Morgunblaðið - 08.05.2021, Side 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. MAÍ 2021 Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Þ etta byrjaði á því að við fór- um á bókasafnið hér í skól- anum til að leita að ein- hverjum bókum til að lesa og fundum eina hryllingsbók sem heitir Gæsahúð. Þá langaði okkur að finna fleiri bækur og spurðum hvort það væri einhver hryllingsbóka- klúbbur til á safninu,“ segja þær vin- konurnar Bylgja Stefanía Þorsteins- dóttir og Aníta Líf Ragnarsdóttir sem eru í fjórða bekk í Breiðholts- skóla, en þegar þær fengu það svar að enginn væri slíkur klúbburinn, tóku þær sig til og stofnuðu sjálfar hryllingsbókaklúbb. „Unnur María sem vinnur á bókasafninu hjálpaði okkur að skipuleggja og framkvæma. Þetta var heilmikil vinna og við fengum leyfi heima til að vera hjá henni eftir skóla til að gera allt sem þurfti. Við bjuggum til skrímslabókamerki sem eru líka gatakort og þeir krakkar sem ganga í klúbbinn geta látið gata fyrir hverja hryllingsbók sem þau klára. Þegar þau eru búin að lesa tuttugu bækur fá þau smá glaðning og viðurkenningarskjal sem við hönnuðum og útbjuggum. Svo er hægt að fá nýtt bókamerki til að gata fyrir næstu tuttugu hryllings- bækur og þá er annar glaðningur og annað viðurkenningarskjal, fyrir að hafa klárað að lesa fjörutíu bækur. Krakkar sem eru í hryllingsbóka- klúbbnum fá líka blöð þar sem þau geta gefið bókunum einkunn eða hryllingsstjörnur, með því að lita eina eða fleiri litlar myndir af ein- hverju hryllilegu, hauskúpum, draugum, köngulóm og öðru slíku.“ Algerlega slegið í gegn Þær Bylgja og Aníta raða hryll- ingsbókunum í flokka eða stig á blöðum sem klúbbfélagar fá, eftir því fyrir hvaða aldur bækurnar eru. „Í fyrsta stigi eru bækur fyrir krakka í fyrsta til þriðja bekk, en bækur í öðru stigi eru fyrir krakka í fjórða bekk og upp úr. Bráðum ætl- um við að bæta stigi þrjú við, þar sem verða kannski eingöngu bækur á ensku. Þetta er allt í þróun hjá okk- ur ennþá,“ segja þær og bæta við að umsjónarkennarinn þeirra, Rakel Þórhallsdóttir, hafi nýlega gefið út sína fyrstu bók, Martröð í Hafnar- firði, og það hafi líka kveikt áhuga þeirra á hryllingsbókum. Þær stöllur hafa kynnt hryllingsbókaklúbbinn í skólanum og vinsældir hans eru þegar orðnar mjög miklar, enda mjög hvetjandi kerfi sem þær hafa sett upp. „Þetta hefur algerlega slegið í gegn. Mappan með klúbbfélögunum er orðin stútfull og þegar ég ætlaði sjálf að ganga í klúbbinn þá höfðu eyðublöðin klárast,“ segir Bylgja og hlær. „Þetta er „hryllilega“ vinsæll klúbbur,“ bætir Unnur María Sól- mundsdóttir við, en hún og Leonora Elshani, starfsmenn bókasafnsins, halda utan um skipulagið og gata fyrir krakkana og veita viðurkenn- ingar. „Þegar við vorum að hanna þetta allt saman, útlitið og fleira, þá tók við mikil leit á netinu að myndum til að setja á einkunnablöðin og viðurkenningarskjölin. Við þurftum líka að semja „hræðilegar hryllings- bókareglur“ fyrir klúbbinn. Stelp- urnar hafa lagt mikið á sig til að gera þetta að veruleika.“ Spennandi og pínu hræðilegt „Á sama tíma og við erum að gera þetta þá erum við að uppgötva jafnóðum hryllingsbækur og fá ábendingar frá öðrum, til dæmis frá öðrum bókasöfnum,“ segja Bylgja og Aníta og bæta við að það sé skemmtilegast að lesa bækur þar sem gerist eitthvað spennandi og pínu hræðilegt, ef þær endi vel. Unnur María segir að Aníta og Bylgja séu sannarlega frumkvöðlar sem hafi haft jákvæð og hvetjandi áhrif á aðra krakka í skólanum. „Eftir að þær fóru að vinna að þessum klúbbi þá hafa fleiri krakkar komið með hugmyndir til mín. Til dæmis strákur í þriðja bekk sem hef- ur mikinn áhuga á norrænni goða- fræði, en hann er að lesa allar slíkar bækur sem hann kemst í og hann býr til spurningar upp úr þeim. Við ætlum að reyna að setja eitthvað saman næsta haust.“ Í framtíðinni langar Anítu að vera fimleikaþjálfari, enda hefur hún æft fimleika frá því hún var þriggja ára. Bylgja gæti vel hugsað sér að skrifa bækur í framtíðinni. „Við viljum skora á barnabóka- höfunda á Íslandi að skrifa fleiri hryllingsbækur, svo við getum fjölg- að bókum í hryllingsbókaklúbbnum.“ Stofnuðu hryllingsbókaklúbb Þær tóku málin í sínar hendur þegar þeim fannst vanta hryllingsbókaklúbb. Bylgja og Aníta skora á barnabókahöfunda á Íslandi að skrifa fleiri hryllings- bækur, fyrir hryllilega vinsæla klúbbinn þeirra. Morgunblaðið/Eggert Bylgja og Aníta Stofnendur hryllingsbókaklúbbsins stoltar með möppu klúbbs fyrir þá sem þora. Dúkkur geta ver- ið hryllilegar, eins og fram kemur í bók Gerðar Kristnýjar sem heitir Dúkka, og fær hárin til að rísa. Morgunblaðið/Eggert Flott Bylgja og Aníta hönnuðu viðurkenningarskjal sem krakkar fá fyrir að standa sig hræðilega vel og hafa lokið við að lesa 20 hryllingsbækur. Nýverið setti Már Gunnarsson sund- kappi heimsmet í 200 metra bak- sundi á Íslandsmóti í 50 metra laug. Sló hann þar 30 ára gamalt met, synti á 2:32,31 mínútu og bætti gamla metið um rúma sekúndu. Í tilefni af afrekinu ákváðu for- svarsmenn hótelsins Courtyard by Marriott í Reykjanesbæ að heiðra Má með því að setja upp afreksplatta í anddyri hótelsins. Einnig ætlar hót- elið að styrkja Má til keppni á Evr- ópumeistaramótinu í sundi á Madeira og Ólympíuleikunum í Tókýó með því að bjóða gestum hótelsins og veitingastaðarins The Bridge að bæta 250 krónum við reikninga sína. Var plattinn afhjúpaður sl. þriðju- dag og við sama tækifæri söng Már og spilaði á hljómborð fyrir við- stadda, en hann hefur sem kunnugt er einnig getið sér gott orð í tónlist- inni. Samkvæmt fréttatilkynningu frá hótelinu fer framlag gesta beint í styrktarsjóð Más Gunnarssonar. Heimsmethafinn og sundkappinn Már Gunnarsson heiðraður Afreksplatti settur upp á Marri- ott-hótelinu í Reykjanesbæ Heimsmethafi Már Gunnarsson við afreksplattann á Marriott-hótelinu. HLÍÐASMÁRI 19, 2.HÆÐ · 201 KÓPAVOGI · SÍMI 534 9600 Hljóðnemi í hlustinni notar hæfni eyrans til að safna upplýsingum sem heilinn þarf til að skilja hljóðin. Auðveldara að taka þátt í samræðum í virku hljóðumhverfi. Betri talgreining um leið og bakgrunnshávaði er lágmarkaður í háværu hljóðumhverfi. Fjarþjónusta. Fáðu heyrnartækin þín stillt án þess að mæta á staðinn. NÝ TÆKNI! NÝ BYLTINGARKENND HEYRNARTÆKI MEÐ ÞREMUR HLJÓÐNEMUM FAGLEG ÞJÓNUSTA HJÁ LÖGGILTUM HEYRNARFRÆÐINGI

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.