Morgunblaðið - 08.05.2021, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. MAÍ 2021
Vetrarsól er umboðsaðili Sláttuvélar& sláttuorf
Snjóblásarar
Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is
Gulltryggð gæði
Sláttutraktorar
40 ár
á Íslandi
Slakað verður á sóttvarnareglum á
mánudaginn og munu þá samkomu-
takmarkanir miðast við hámark 50
manns í stað 20 eins og nú er.
Þá verður miðað við 75% af leyfi-
legum hámarksfjölda í sundlaugum
og líkamsræktarstöðvum. Veitinga-
staðir og krár fá að hafa opið
klukkustund lengur en áður. Fleiri
mega koma í leikhús en áður og í
verslunum verður miðað við að allt
að 200 manns megi vera í sama sótt-
varnahólfi. Nýja reglugerðin tekur
gildi á mánudaginn og gildir í 16
daga, eða til miðvikudags tveimur
vikum síðar.
Fimm smit
Fimm greindust með Covid-19
innanlands á fimmtudag og var einn
þeirra utan sóttkvíar. Eitt virkt smit
greindist við fyrri skimun á landa-
mærunum en auk þess biðu tveir eft-
ir niðurstöðu mótefnamælingar.
Afgreiðslutími
veitingastaða
lengist um
klukkustund
eða frá kl. 21
til kl. 22
Gestir þurfa að hafa yfirgefið
staðinn fyrir kl. 23.00
Breytingar á fjöldatakmörkunum frá 10. maí
Almennar fjölda-
takmarkanir fara úr 20 í
50 manns en börnfædd 2015 og síðar
verða áfram undanþegin
Hámarksfjöldi þátt-
takenda í íþróttum og
sviðslistum verður
75 í stað 50 í hverjusóttvarnahólfi
en á sitjandi viðburðum
150 mannsí hverju
hólfi í stað 100
Almenn nándarregla verð-
ur áfram tveir metrar og
grímuskylda óbreytt
Hámarksfjöldi
viðskiptavina í
verslunum verður
200 í stað100
Líkamsræktarstöðvar,
sund- og baðstaðir,
skíðasvæði, tjaldsvæði
og söfn verða opin fyrir
75% af leyfi-legum
hámarksfjölda gesta
Í skólastarfi verður hámarks-
fjöldi barna/nemenda
100 í hverju rými enfullorðinna 50
í hverju rými Heimild: Stjórnarráðið
Slakað á sóttvarna-
reglum á mánudag
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Það eru margir sem eiga góðar
minningar þaðan,“ segir Emma
Marie Swift ljósmóðir og einn að-
standenda Fæðingarheimilis
Reykjavíkur sem áformað er að
taki til starfa síðar á árinu eftir
langt hlé.
Fæðingarheimilið var rekið á
horni Þorfinnsgötu og Eiríksgötu á
árunum 1960-1995. Lengst af var
reksturinn á forræði Reykjavíkur-
borgar en heyrði undir Borgarspít-
alann síðustu árin. Ekki er þó um
að ræða að Reykjavíkurborg ætli
sér að blanda sér í þennan rekstur
á ný. Þvert á móti og segja má að
klippt hafi verið á naflastrenginn í
vikunni þegar samþykkt var í borg-
arráði Reykjavíkur að afsala sér
nafninu góða.
Við því tekur Emma Marie
ásamt Emblu Ýri Guðmundsdóttur
og með þeim í teymi eru Edythe L.
Mangindin og Stefanía Ósk Mar-
geirsdóttir. „Næsta skref er að
finna húsnæði sem hentar,“ segir
Emma.
Höfða til erlendra kvenna
„Við viljum bæta samfellda þjón-
ustu fyrir konur í barneignarferl-
inu,“ segir hún um hugmyndafræð-
ina á bak við Fæðingarheimili
Reykjavíkur. Hugmyndin er að fólk
geti leitað til Fæðingarheimilisins
og fjölskyldan þekki sitt ljós-
mæðrateymi. Fólki standi til boða
meðgönguvernd, fæðingarþjónusta
og heimaþjónusta.
„Ef verðandi foreldrar þekkja þá
sem annast þau myndast traust og
öryggi og fyrir vikið gengur fæð-
ingin betur,“ segir Emma.
Að auki verður boðið upp á ann-
ars konar þjónustu á Fæðingar-
heimilinu, svo sem ýmis námskeið
og fræðsluhópa auk ráðgjafar um
getnaðarvarnir.
„Við leggjum líka áherslu á að ná
til erlendra kvenna á Íslandi. Þær
eru um 15% þeirra sem fæða börn
á Íslandi. Þess vegna er heimasíðan
okkar öll bæði á íslensku og ensku.
Við vonumst líka til að geta boðið
upp á námskeið á pólsku ef við get-
um fundið einhvern sem getur
sinnt því,“ segir Emma en hægt er
að kynna sér fyrirhugaða starfsemi
Fæðingarheimilis Reykjavíkur á
heimasíðunni faedingarheimilid.is.
Fæðingarheimili Reykja-
víkur opnað eftir langt hlé
- Leitað að hentugu húsnæði - Borgin afsalar sér nafninu
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Minningar Fæðingarheimili Reykjavíkur var rekið fram til 1995.
Stofnendur Edythe, Emma, Embla
og Stefanía endurvekja hið forn-
fræga Fæðingarheimili Reykjavíkur.
Hefja á starfsemi síðar á þessu ári.