Morgunblaðið - 08.05.2021, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 08.05.2021, Qupperneq 29
29 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. MAÍ 2021 Á Íslandi eru ótal tækifæri til atvinnu- uppbyggingar í græn- um orkusæknum iðn- aði. Í fyrri grein Landsvirkjunar og Samtaka iðnaðarins var fjallað um þau grænu tækifæri sem felast í gagnaversiðn- aði, en tækifærin eru sannarlega fleiri. Græn og endurnýjanleg orka gefur okkur kost á að framleiða græn og heilnæm matvæli. Sama græna orkan gefur okkur færi á að hætta tugmillj- arða króna innkaupum á bensíni og ol- íu á hverju ári og framleiða vetni og annað umhverfisvænt eldsneyti. Þá kallar rafbílavæðingin á stóraukna framleiðslu á rafhlöðum. Allt eru þetta tækifæri sem ætti að sækja til að skjóta styrkari stoðum undir hag- kerfið um leið og við leggjum enn meira af mörkum í baráttunni gegn loftslagsvánni þar sem við njótum sér- stöðu á heimsvísu með framleiðslu og nýtingu grænnar orku. Um leið skap- ast ný, eftirsótt störf, aukin verðmæti og orkusjálfstæði landsins verður tryggt. Hátæknimatvæli Til að sporna við loftslagsáhrifum og vinna að sjálfbærni er matvæla- framleiðsla heimsins í endurskoðun. Miklar breytingar blasa við í einni stærstu iðngrein heims. Hér á landi höfum við gott aðgengi að raforku frá endurnýjanlegum auðlindum og varma frá jarðhita. Þá sérstöðu getum við nýtt til að byggja upp hátækni- matvælaframleiðslu. Við höfum um aldir stundað hefð- bundna matvælaframleiðslu til að fæða þjóðina og til útflutnings. Við getum byggt á þeim sterka grunni, sótt fram og byggt upp fleiri greinar innan matvælaframleiðslu með okkar grænu orku og hreina vatni. Ræktun í hátæknigróðurhúsum, örþörunga- ræktun, framleiðsla próteina, ýmis líf- tækni, þurrkun, frostþurrkun, eiming og úrvinnsla eru aðeins nokkur dæmi um þau tækifæri sem bíða þess að vera sótt. Til mikils er að vinna því með há- tæknimatvælaframleiðslu hér á landi getum við framleitt matvæli með minna umhverfisfótspor, bætt nýt- ingu orkuauðlinda, tengt saman þekk- ingu úr hefðbundinni matvælafram- leiðslu við hátæknimatvæla- framleiðslu, skapað ný og eftirsótt störf um land allt og aukið útflutnings- tekjur. Vetni og annað rafeldsneyti Til að draga úr losun gróðurhúsa- lofttegunda þarf að leita fleiri grænna orkugjafa til að knýja stærri farar- tæki svo sem flutningabíla, vinnu- vélar, skip og flugvélar á umhverfis- vænan hátt, enda er rafvæðing slíkra tækja ekki fýsileg í öllum tilvikum. Framleiðsla græns eldsneytis, svo sem vetnis eða annars rafeldsneytis í formi ammóníaks, metanóls eða met- ans er dæmi um fleiri græn tækifæri sem bíða þess að vera sótt. Vetnis- og rafeldsneytisframleiðsla krefst mikillar orku og eftirspurn eftir grænu vetni, sem framleitt hefur verið með rafgreiningu vatns og endurnýj- anlegri orku, er talin fara vaxandi á komandi árum samhliða markmiðum í loftslagsmálum. Samkvæmt orku- stefnu Íslands ætlum við að vera laus við jarðefnaeldsneyti svo sem olíu og bensín sem helstu orkugjafa í sam- göngum fyrir árið 2050. Við erum enn komin stutt á veg í framleiðslu á grænu eldsneyti en tækifærin eru til staðar. Vinnsla græns eldsneytis hefur margvíslegan ávinning í för með sér: Samdráttur í innflutningi á bensíni og olíu þýðir minni losun gróðurhúsa- lofttegunda og gjaldeyrissparnað fyr- ir þjóðarbúið. Við gætum með tím- anum orðið algjörlega orkusjálfstæð. Rafhlöðuframleiðsla Rafbílum fjölgar ört og sú þróun kallar á stóraukna framleiðslu á raf- hlöðum. Rafhlöðufyrirtæki svipast nú um eftir heppilegum framleiðslu- stöðum í Evrópu. Í þeirra hópi eru bæði rótgróin rafhlöðufyrirtæki og önnur sem eru að hefja framleiðslu. Ísland er góður kostur fyrir raf- hlöðuframleiðslu, sem er orkusækin, skapar mörg störf og þarf stórt land- svæði. Þá leggja mörg fyrirtæki áherslu á lágt kolefnisspor framleiðsl- unnar sem græna orkan okkar getur tryggt. Staðsetning landsins milli Evrópu og Ameríku er einnig styrkur. Sækjum tækifærin Með frekari uppbyggingu gagna- vera, framleiðslu á hátækni- matvælum, vetnis- og rafeldsneyti og rafhlöðum hér á landi væri fjölbreytt- ari stoðum skotið undir atvinnulífið með aukinni verðmætasköpun, um leið og við tökum virkan þátt í orku- skiptum heimsins. Að öllu framan- sögðu er óhætt að fullyrða að tækifær- in í grænum orkusæknum iðnaði eru fjölmörg. En höfum við það sem þarf til að grípa tækifærin? Nú reynir á samstarfsvilja stjórnvalda, sveitar- félaga og annarra hagaðila að skapa þá umgjörð sem þarf til að hægt verði að byggja enn frekar upp grænan orkusækinn iðnað hér á landi. Ótal tækifæri í grænum orkusæknum iðnaði Eftir Ríkarð Ríkarðsson og Sigurð Hannesson »Nú reynir á sam- starfsvilja stjórn- valda, sveitarfélaga og annarra að skapa um- gjörð til að byggja enn frekar upp grænan orkusækinn iðnað hér á landi. Ríkarður Ríkarðsson Ríkarður er framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar- og ný- sköpunarsviðs hjá Landsvirkjun og Sigurður er framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins. Sigurður Hannesson Þingflokkur Við- reisnar lagði nýlega til að blásið yrði lífi í þingsályktun vinstri stjórnarinnar frá 2009 um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Fyrir utan það metn- aðarleysi þingflokks- ins að hengja sig á 12 ára gamla þingsálykt- un vinstri stjórn- arinnar vekur helst athygli að þessi tillaga komi ekki fram fyrr en nú við lok kjörtímabilsins. Jafn- vel þótt hún yrði samþykkt myndi hún ekki binda hendur nýs þing- meirihluta eða ríkisstjórnar að loknum kosningum sem fara fram eftir nokkra mánuði. Ekki minnst á auðlindir landsins Það segir einnig ákveðna sögu um alvöruleysið sem þarna býr að baki að ekki er minnst á auðlindir landsins í greinargerð Viðreisnar með tillögunni. Hver væru samningsmark- miðin varðandi sjáv- arútveg, landbúnað og orkuauðlindir landsins? Að því er ekki vikið einu orði. Hins vegar er það tínt til að Icesave- deilan hafi verið leyst vegna regluverks Evrópusambandsins! Deilan átti þó upptök sín í óraunhæfu regluverki sambands- ins. Stofnanakerfi ESB, aðild- arríki sambandsins og sambandið sjálft gerðu óbilgjarnar kröfur á Ísland, sátu um landið efnahags- lega árum saman og stefndu Ís- landi að lokum fyrir dóm þar sem kröfunum var hafnað. Helstu for- svarsmenn Viðreisnar lögðust á árarnar með ESB og keyptu há- karlaauglýsingar til að hræða Ís- lendinga til þess að undirgangast hinar löglausu kröfur. Ónægt tilefni Landsfundir Sjálfstæðisflokks- ins hafa hafnað tillögum um að Ís- land gangi í Evrópusambandið. Vegna gremju með þessa lýðræð- islegu niðurstöðu í stærsta stjórn- málaflokki landsins var Viðreisn að því er virtist stofnuð árið 2016. Samstarf við Evrópusambandið er undarlegt mál til að láta steyta á með þessum hætti því með EES- samningnum er Ísland í mjög nán- um tengslum og samskiptum við ESB. Svo nánum að ýmsum þykir nóg um þótt ekki liggi endilega í augum uppi hvað gæti komið í staðinn. Enda segir í greinargerð með tillögu Viðreisnar: „Ísland hefur nú í rúman aldarfjórðung verið aðili að innri markaði Evr- ópusambandsins með aðildinni að samningnum um Evrópska efna- hagssvæðið. Innri markaðurinn er kjarninn í starfi Evrópusam- bandsins. Aðild EFTA-þjóðanna að honum felur því í raun í sér aukaaðild að sambandinu.“ Þegar þetta er haft í huga er skrítið að geta ekki umborið það að mörgum þyki vænt um fullveldi og sjálf- stæði landsins og kæri sig ekki um meira en „aukaaðild“ að ESB. ESB ekki skilyrði Eftir þingkosningar haustið 2017 myndaði Viðreisn „þing- bandalag“ með Samfylkingu og Pírötum með það að markmiði að mynda vinstri stjórn í landinu. Það var eins konar lokatilraun til að koma í veg fyrir myndun nú- verandi ríkisstjórnar. Hinn 6. nóv- ember 2017 birti Ríkisútvarpið fréttina „Viðreisn myndi ekki setja ESB sem skilyrði“ á vef sín- um. Þar sagði: „Þorgerður Katrín Gunnars- dóttir, formaður Viðreisnar, met- ur stöðuna við stjórnarmyndun þannig í dag að flokkarnir verði að koma sér saman um stjórn með breiðri skírskotun. Flokk- urinn myndi ekki setja atkvæða- greiðslu um aðild að ESB sem skilyrði fyrir þátttöku í ríkis- stjórn.“ Þetta voru svo sem engin ný tíðindi því tæpu ári áður hafði Viðreisn sest í ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar án þess að sú stjórn hefði það að markmiði að endurvekja viðræður um aðild. En vissulega var það nokkur nýlunda að farga stefnumálinu án þess að fara í stjórn. Málefni eða menn? Það er eitt að stofna sérstakan flokk um eitt tiltekið mál. En þá er ekki mjög sannfærandi að fórna því aftur og aftur og fylgja málinu ekki eftir á þingi fyrr en rétt fyrir kosningar og þá með hangandi hendi. Þessi framganga bendir til að stofnun flokksins hafi fremur snúist um menn og þeirra persónulega metnað en málefnið. Eftir Sigríði Ást- hildi Andersen »Helstu forsvarsmenn Viðreisnar lögðust á árarnar með ESB og keyptu hákarlaauglýs- ingar til að hræða Ís- lendinga. Sigríður Á. Andersen Höfundur er þingmaður og formaður utanríkismálanefndar. saa@althingi.is Einskis máls flokkur? Reykjavíkurborg er sokkin í skuldir. Á löngum starfstíma Dags B. Eggertssonar hófst sú fordæmalausa skuldasöfnun sem Reykvíkingar sitja nú uppi með. Árið 2013 var ríkissjóði skilað hallalausum í fyrsta sinn eftir bankahrunið 2008 og í kjölfarið hóf ríkið að greiða niður skuldir í stórum stíl. Rétt er að rifja upp að viðspyrnan í þeim að- gerðum var að í tengslum við nauðasamninga slitabúa föllnu fjár- málafyrirtækjanna og undanþágu þeirra frá gjaldeyrishöftum lögðu slitabúin fram stöðugleikaframlög sem runnu í ríkissjóð í forsætisráð- herratíð Sigmundar Davíðs Gunn- laugssonar. Sú aðgerð var án for- dæma og var töluð niður af flestum þingmönnum allra flokka og þekktum fjármála- og hag- fræðispekúlöntum sem töldu þessa aðgerð óframkvæmanlega. Að vísu var þessum góða árangri í ríkisfjármál- unum glutrað niður á örfáum árum og 2019 var ríkissjóður kominn á ný í halla og hefur verið það síðan. Þessi árangur varð til þess að ríkissjóður var vel í stakk búinn til að mæta þeim áföllum sem hlotist hafa vegna Covid en það er mikið áhyggjuefni hvað skuldasöfnunin er mikil síðustu mánuði. Lítum nú til Reykjavíkur. Á sama tíma eða árið 2013 er þessi stórkostlegri árangur náðist í ríkisfjármálum byrjaði Reykjavíkurborg að safna skuldum og er skuldastaðan nú yfirþyrm- andi. Ekkert borð var fyrir báru í rekstrinum að taka við fjárhags- legum áföllum. Skuldir samstæðu Reykjavíkurborgar jukust um 41 milljarð milli áranna 2019 og 2020 eða úr 345 milljörðum í 386 millj- arða – um 800 milljónir á viku að meðtöldum rauðum dögum – eða um 3,5 milljarða á mánuði! Sam- kvæmt lántökuáætlun fyrir árið 2021 er áætlað að samstæðan auki skuldir sínar um 52 milljarða og á borgarsjóður 34 milljarða af þeirri lántökuupphæð – eða einn milljarð á viku að meðtöldum rauðum dög- um – eða um 4,4 milljarða á mán- uði! Í árslok 2021 er áætlað að sam- stæðan skuldi 438 milljarða. Samkvæmt ársreikningi fyrir árið 2020 hækkuðu allir tekjupóstar á milli ára og því hefði verið vand- ræðalaust að reka borgina réttum megin við núllið. Það var hins vegar ekki raunin því eyðslan var botn- laus á árinu og sem dæmi þá hækk- uðu laun og launatengd gjöld um 12% og stöðugildi voru aukin um 5% á milli ára. Fjölgun starfsmanna Reykjavíkur á þessu kjörtímabili fer langt yfir 1.000 manns þegar stytting vinnuvikunnar kemur til framkvæmda. Það er staðreynd. Engar tillögur eru bornar upp af borgarstjóra eða meirihlutanum til hagræðingar í rekstri eða sparnað- ar. Það er gefið í og slegin ný lán. Lánakjörum borgarinnar hrakar sí- fellt eins og nýjustu útboðin gefa til kynna. Borgarstjóri sér ekki lengur upp úr skuldafeninu og hefur misst sjónar á fjárhagsstöðu borgarinnar. Að slá lán út á komandi kynslóðir til að friða samviskuna gagnvart óþörfum og tilgangslausum gælu- verkefnum nútímans hefur aldrei verið góð uppskrift. Þessi gríð- arlega skuldasöfnun skilar sér í það minnsta ekki í lögbundna þjónustu eða innviði. Svo mikið er víst, þegar litið er yfir þjónustuleysi og eigur sem grotna niður fyrir framan nefið á meirihlutanum. Sveitarstjórnar- ráðherra, sem ber ábyrgð á sveitar- félögunum, lítur í hina áttina þrátt fyrir þessar staðreyndir og hjálpar til við Reykjavíkursukkið með framlengingum á reglugerðum og kýs að líta framhjá úrskurðum úr- skurðarnefnda ríkisins. Með þeim aðgerðum heldur borgarstjóri áfram að gefa ranga mynd af rekstri samstæðunnar með froðu- bókhaldi. Kannski er búið að meta það sem svo að „borgin er of stór til að falla“. Eftir Vigdísi Hauksdóttur » Árið 2013 er þessi stórkostlegri árang- ur náðist í ríkisfjár- málum byrjaði Reykja- víkurborg að safna skuldum. … Í árslok 2021 er áætlað að sam- stæðan skuldi 438 milljarða. Vigdís Hauksdóttir Höfundur er lögfræðingur og borgarfulltrúi Miðflokksins. vigdis.hauksdottir@reykjavik.is Skuldafenið í Reykjavík

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.