Morgunblaðið - 08.05.2021, Page 35

Morgunblaðið - 08.05.2021, Page 35
MESSUR 35á morgun MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. MAÍ 2021 ÁSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 14. Séra Sig- urður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt Jóhönnu Maríu Eyjólfsdóttur djákna. Kór Áskirkju syngur. Organisti er Bjartur Logi Guðnason. Aðalsafnaðarfundur Ássóknar 2021 verður haldinn í Ási strax að guðsþjónustu lokinni. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Kosningar. Önnur mál. Kaffiveitingar. ÁSTJARNARKIRKJA | Fjölskylduguðsþjón- usta kl. 17. Barnakór Ástjarnarkirkju syngur undir stjórn Helgu Loftsdóttur og undirleik Dav- íðs Sigurgeirssonar. Prestur er Kjartan Jóns- son. Allra sóttvarna verður gætt. Kirkjugestir beri grímu. Guðsþjónustunni verður streymt á Fésbókarsíðu kirkjunnar. BREIÐHOLTSKIRKJA | Fermingarguðsþjón- usta kl. 11. Prestur er Pétur Ragnhildarson. Fé- lagar úr kór kirkjunnar syngja, organisti er Örn Magnússon. Alþjóðlegi söfnuðurinn kl. 14. Prestur sr. Toshiki Toma. BÚSTAÐAKIRKJA | Kvöldmessur hefjast á sunnudag kl. 20 og verður það messutíminn í sumar. Þetta eru messur með tónlist og messuformið óhefðbundið. Sr. Pálmi og kantor Jónas Þórir leiða stundina ásamt söngvara eða söngvurum úr Kammerkór Bústaðakirkju. DIGRANESKIRKJA | Sunnudaginn 9. maí verður guðsþjónusta kl. 11. Sr. Sunna Dóra Möller og Sólveig Sigríður organisti leiða stund- ina. DÓMKIRKJAN | Guðsþjónusta kl. 11. Prestur er Sveinn Valgeirsson Kári Þormar dómorgan- isti. Pétur Nói Stefánsson leikur for- og eftirspil á orgelið. Dómkórinn syngur undir stjórn Kára. Á uppstigningardag 13. maí er guðsþjónusta klukkan 11, þá mun Karl Sigurbjörnsson bisk- up prédika og séra Elínborg Sturludóttir þjóna fyrir altari. Kammerkór Dómkirkjunnar syngur og Kári Þormar leikur á orgelið. FELLA- og Hólakirkja | Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Guðmundur Karl Ágústsson þjónar og pré- dikar. Kór kirkjunnar syngur. Arnhildur Valgarðs- dóttir er organisti. Reynir Þormar leikur á saxó- fón. Inga Backman syngur einsöng í tilefni mæðradagsins. Kaffisopi eftir stundina. Með- hjálpari Kristín Ingólfsdóttir. FRÍKIRKJAN Reykjavík | Guðsþjónusta 9. maí kl. 14. Mæðradagurinn. Séra Hjörtur Magni Jóhannsson safnaðarprest- ur leiðir stundina. Sönghópurinn við Tjörnina og hljómsveitin Mantra leiða tónlistina undir stjórn Gunnars Gunnarssonar organista. Fermingarbörn og fjölskyldur þeirra eru hvött til að mæta. GRAFARVOGSKIRKJA | Guðsþjónustan kl. 11. Sr. Sigurður Grétar Helgason prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Grafarvogskirkju mun leiða söng. Organisti er Hákon Leifsson. Sunnudagaskóli verður á neðri hæð kirkjunnar. Hefst hann sömuleiðis kl. 11. Umsjón með honum hafa sr. Grétar Halldór Gunnarsson, Ásta Jóhanna Harðardóttir og Hólmfríður Frostadóttir. Undirleikari er Stefán Birkisson. Uppstigningardag 13. maí verður guðsþjón- usta kl. 11. Dagur eldri borgara og eldri borg- arar því sérstaklega boðnir velkomnir. Prestar kirkjunnar þjóna og sr. Guðrún Karls Helgudótt- ir prédikar. Organisti er Hákon Leifsson. Kór kirkjunnar syngur. Ef samkomureglur leyfa verður boðið upp á kaffi á eftir. GRENSÁSKIRKJA | Guðsþjónusta sunnudag kl. 11. Organisti er Ásta Haraldsdóttir og fé- lagar úr kór Grensáskirkju leiða almennan messusöng, það verður sumarstemning og sumarsálmar. Messuþjónar þjóna ásamt sr. Evu Björk Valdimarsdóttur. Við minnum á Kyrrð- arstundina alla þriðjudaga kl. 12. GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti | Ferming- arguðsþjónusta sunnudag 9. maí kl. 10.30. Prestur er Leifur Ragnar Jónsson sem þjónar og prédikar fyrir altari. Organisti er Hrönn Helgadóttir og kór Guðríðarkirkju syngur. Kirkjuvörður er Lovísa Guðmundsdóttir og meðhjálpari er Guðný Aradóttir. HAFNARFJARÐARKIRKJA | Innsetningar- messa kl. 11. Prófastur Kjalarnesprófasts- dæmis, sr. Hans Guðberg Alfreðsson, setur sr. Jónínu Ólafsdóttur í embætti sóknarprests við Hafnarfjarðarkirkju. Sr. Jón Helgi Þórarins- son þjónar fyrir altari. Barbörukórinn syngur undir stjórn Guðmundar Sigurðssonar organ- ista. HALLGRÍMSKIRKJA | Guðsþjónusta og barnastarf kl. 11. Sr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari. Hópur messu- þjóna aðstoðar. Organisti er Björn Steinar Sól- bergsson. Umsjón barnastarfs Rósa Hrönn Árnadóttir og Ragnheiður Bjarnadóttir. HÁTEIGSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Fé- lagar úr Kordíu kór Háteigskirkju leiða messu- söng. Organisti er Guðný Einarsdóttir. Prestur er Eiríkur Jóhannsson. Að guðsþjónustu lok- inni verður aðalsafnaðarfundur Háteigssókn- ar haldinn í safnaðarheimili kirkjunnar. HJALLAKIRKJA Kópavogi | Sunnudaginn 9. maí verður sameiginleg guðsþjónusta Digranes- og Hjallasóknar í Digraneskirkju kl. 11. Sr. Sunna Dóra og Sólveig Sigríður org- anisti leiða stundina. KEFLAVÍKURKIRKJA | Kvöldmessa 9. maí kl. 20. Félagar úr Kór Keflavíkurkirkju syngja undir stjórn Arnórs Vilbergssonar organista. Sr. Erla Guðmundsdóttir þjónar. KÓPAVOGSKIRKJA | Guðsþjónusta í safn- aðarheimilinu Borgum kl. 11. Sr. Sjöfn Jóhannesdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Félagar úr kór Kópavogskirkju syngja undir stjórn Lenku Mátéová, kantors kirkjunnar. LANGHOLTSKIRKJA | Fjölskyldumessa 9. maí kl. 11. Sr. Aldís Rut Gísladóttir leiðir stundina. Krúttakórinn syngur undir stjórn Sunnu Karenar Einarsdóttur og Bjargar Þórs- dóttur. LAUGARNESKIRKJA | Fermingarathöfn kl. 11. Mánudagur 10. maí. Kyrrðarkvöld kl. 20. Kirkj- an opnuð kl. 19.30. Uppstigningardagur: Guðsþjónusta kl. 14. El- ísabet Þórðardóttir organisti og Anna Sigríður Helgadóttir sópran flytja tónlist ásamt fleir- um. Sr. Davíð Þór Jónsson og sr. Sigurður Jónsson þjóna. Sr. Sigurður prédikar. Virðum sóttvarnareglur! LÁGAFELLSKIRKJA | Kyrrðar- og bæna- stund sunnudag kl. 11. Sr. Arndís Linn leiðir stundina sem stendur öllum opin. Kirkjukór Lágafellskirkju syngur undir stjórn Þórðar Sig- urðssonar organista. LINDAKIRKJA í Kópavogi | Sunnudaga- skóli kl. 11. Guðsþjónusta kl. 20. Kór Linda- kirkju leiðir lofgjörð undir stjórn Óskars Einars- sonar. Sr. Dís Gylfadóttir þjónar. NESKIRKJA | Sunnudagaskóli og guðsþjón- usta kl. 11. Í guðsþjónustunni syngja félagar úr Kór Neskirkju og leiða söng undir stjórn Stein- gríms Þórhallssonar organista. Prestur er Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir. Þetta er hinn almenni bænadagur og taka söngvar og prédik- un mið af því. Sunnudagaskólinn er í safnaðarheimili og er gengið beint inn í það. Að venju verður söngur og sögur og gleði. Umsjón hafa Hilda María, Kristrún og Ari, sem annast undirleik. ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN | Sunnudaginn 9. maí kl. 14 verður helgistund, streymt verður á vefsvæðinu ohadisofnudurinn.is, þar sem enn er ekki hægt að taka á móti gestum. Séra Pétur Þorsteinsson þjónar og Kristján Hrannar sér um tónlistina. Útvarpsmessa kl. 11 á sunnudag á Rás 1. SAUÐÁRKRÓKSKIRKJA | Messa kl. 11. Kirkjukórinn syngur sumarsálma undir stjórn Rögnvaldar Valbergssonar organista. Sigríður Gunnarsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Aðalfundur safnaðarins verður eftir messuna og hefst kl. 12.30 í safnaðarheimilinu. SELTJARNARNESKIRKJA | Fræðslumorg- unn kl. 10. Biskupar í Skálholti. Sr. Kristján Björnsson vígslubiskup talar. Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Bjarni Þór Bjarnason þjónar ásamt sr. Kristjáni Björnssyni, vígslubiskupi í Skálholti. Friðrik Vignir Stefánsson er organisti. Ólöf Ing- ólfsdóttir leiðir almennan safnaðarsöng. Aðalsafnaðarfundur verður sunnud. 16. maí kl. 12.30 í safnaðarheimili Seltjarnarneskirkju. SEYÐISFJARÐARKIRKJA | Fjölskylduguðs- þjónusta kl. 11. Biblíusaga, söngur, kirkjubrúð- ur og Hafdís og Klemmi. Fermingarbörn að- stoða í stundinni. Organisti er Rusa Petriashvili og kór Seyðisfjarðarkirkju leiðir almennan safn- aðarsöng. Prestur er Sigríður Rún Tryggvadóttir og Jóhann Grétar Einarsson er meðhjálpari. SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Messa sunnu- dag kl. 11. Sr. Egill Hallgrímsson sóknarprest- ur annast prestsþjónustuna. Organisti er Jón Bjarnason. VÍDALÍNSKIRKJA | Kyrrðar- og bænaguðs- þjónusta kl. 11. Sr. Henning Emil Magnússon leiðir stundina. Guðrún Þórarinsdóttir leikur á víólu, Jóhann Baldvinsson á orgel og félagar úr kór Vídalínskirkju syngja. VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði | Helgi- stund sunnudag 9. maí kl. 11. Kór Víðistaða- sóknar syngur undir stjórn Helgu Þórdísar org- anista og sóknarprestur þjónar. Að guðs- þjónustu lokinni verður haldið út í góða veðrið og plokkað í kring um kirkjuna á Víðistaðatúni. Eftir plokkið verður boðið upp á hressingu á kirkjutorginu. Tökum þátt í starfi kirkju á grænni leið og fegrum umhverfið. Skarðskirkja á Landi Hótel um land allt 65 Orkustöðvar um land allt Notaðir bílar Meira úrval á notadir.benni.is Reykjavík Krókháls 9 Sími: 590 2035 Opnunartímar: Virka daga 9-18 Laugardaga 12-16 Birt með fyrirvara um mynda- og textabrengl. *Forsendur: 7 ára lán hjá Lykli með 50% útborgun. Sjá nánari upplýsingar um kaupauka á notadir.benni.is Kaupauki með völdum notuðum bílum Sjö nætur á Fosshotel Eldsneytiskort Óvæntur ferðag laðningur Að verðmæti allt að 210.000 kr. Að verðmæti 50.000 kr. Dregið út vikulega Bílabúð Benna gefur þér tækifæri til að kynnast Íslandi betur í sumar og styðja við íslenska ferðaþjó nustu í leiðinni. ÍSLAND VILL SJÁ ÞIG Í SUMAR SsangYongKorandoDlx ‘18, sjálfskiptur, ekinn 33þús. km. Verð: 3.790.000 kr. Audi A3SportbackAttraction ‘13, sjálfskiptur, ekinn 92þús. km. Verð: 1.990.000 kr. Opel Astra Innovation ‘17, sjálfskiptur, ekinn 39þús. km. Verð: 2.490.000 kr. MercedesBenzViano Cdi 2200 ‘13, sjálfskiptur, ekinn 68þús. km. Verð: 3.990.000 kr. OpelMokkaX Innovation ‘18, sjálfskiptur, ekinn 71þús. km. Verð: 3.090.000 kr. Greiðsla á mánuði: 17.835 kr.* Greiðsla á mánuði: 22.096 kr.* Greiðsla á mánuði: 28.486 kr.* 4X4 4X4 Greiðsla á mánuði: 27.066 kr.* Greiðsla á mánuði: 14.285 kr.* 590351 340658 591143 446840 446516 Mörg eru gull- kornin sem hnotið hafa úr fræðasjóði þýska skáldsins Jo- hanns Wolfgangs von Goethe. Eitt þeirra segir: Der Teufel hat der Diener vier: Die Bos- heit, Dummheit, Macht und Gier. Út- leggja mætti setningu þessa: Kölski hefur húskarla fjóra: Mannvonskuna, heimskuna, valdið og græðgina. Þýsk saga á sér mjög mikla fjöl- breytni þar sem góðar og ágengar hugsanir verða að byltingum, sum- um sem leiða sitt hvað gott af sér eins og siðbótina að miklu leyti sem og rómantíkina í bókmenntum. En frjáls hugsun hefur stundum leitt til annars öllu verra eins sem verða til ills. Í Þýskalandi verða þannig til tvær öfgastefnur: Kommúnisminn laust fyrir miðja 19. öld og kenndur er við Karl Marx. Hann reyndist mannkyninu dýrkeyptur í hönd- unum á skelfilegum einræðis- herrum. Nokkrum mannsöldrum síðar kemur hin stefnan með þjóð- rembingnum nasismanum fram í riti Adolfs Hitlers, Mein Kampf. Það er uppfullt af fordómum, hroka og fyrirlitningu á mörgum mann- legum gildum. Það var skyldulesn- ing í Þýskalandi nasismans. Þessar tvær ólíku stefnur tókust oft á í þýskri sögu og fléttuðust oft saman. Staðan í dag eftir hrun komm- únismans í Austur-Evrópu Þjóðverjar hafa lengi verið þekktir fyrir mikla nákvæmni. Meira að segja nasistar skráðu ótrúlega nákvæmar upplýsingar þar sem illskan er skráð á spjöld sög- unnar. Nasistar skildu eftir mikið skjalasafn sem lenti á yfirráðasvæði Rússa eftir lok síðari heimstyrjald- arinnar. Þær urðu STASI- leyniþjónustu DDR tilefni til að komið var upp mjög þéttriðnu neti njósnara í vesturhluta Þýskalands á dögum kalda stríðsins. Aðferðin var einföld: Komist var að hvar hátt- settir SS-sveitarmenn bjuggu innan BRD og síðan var haft tal af þeim: Voru þeir tilleiðanlegir að hafa sam- vinnu við STASI eða var viðkvæmum upp- lýsingum um þá lekið til gulu pressunnar sem ætíð væri tilbúin að birta óþægilegar og hneykslanlegar upplýs- ingar? Telja verður að árangur STASI á tím- um kalda stríðsins hafi farið fram úr öllum vonum enda teygðist njósnanet þeirra jafn- vel inn í raðir æðstu stjórnenda BRD. Líklega er eitt þekktasta dæmið þegar í ljós kom að einn nánasti samstarfsmaður Willys Brandts reyndist njósnari á vegum STASI og varð það þessum vinsæla og víðsýna kanslara að falli. Á síðustu vikum DDR kepptust STASI-menn við að eyða við- kvæmum skjölum í pappírstæt- urum. Síðustu árin hafa sérfræð- ingar hjá Þjóðskjalasafninu þýska (Bundes Arkiv) verið að púsla þessu samansafnaða pappírsrusli saman. Hefur margt forvitnilegt komið í ljós sem varpar ljósi á skelfilega fortíð kommúnismans og nasism- ans. En nú er þess gætt að þessi skjöl verði einungis notuð í þágu sagnfræði enda þarf að rifja sem oftast upp söguna ef það gæti kom- ið í veg fyrir að hún endurtæki sig. Okkur ber að draga lærdóm af þeim skelfingum sem áður gengu yfir. Milljónir hafa ánetjast þessum vafasömu fræðum og lent í alvar- legri blindgötu sem mörgum hefur orðið hált á og ekki fundið rétta leið aftur. Og enn er verið að höggva í sama knérunn og er eitt nýjasta dæmið herforingjabyltingin í Mjan- mar þar sem áður var Búrma þar sem mannréttindi og frelsi borg- aranna eru fyrir borð borin í einni verstu mannvonsku sem fram hefur komið á síðustu tímum. Oft er flagð undir fögru skinni Eftir Guðjón Jensson Guðjón Jensson » Okkur ber að draga lærdóm af þeim skelfingum sem áður gengu yfir. Höfundur er leiðsögumaður og eldri borgari í Mosfellsbæ. arnartangi43@gmail.com

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.