Morgunblaðið - 08.05.2021, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 08.05.2021, Blaðsíða 36
36 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. MAÍ 2021 ✝ Ingimar Þor- björnsson fæddist í Andr- ésfjósum 13. júní 1939. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands 29. apríl 2021. Foreldrar hans voru Þorbjörn Ingimundarson frá Gíslastöðum, f. 5.2. 1908, d. 19.7. 1968, og Ingigerður Bjarna- dóttir frá Hlemmiskeiði, f. 6.11. 1912, d. 16.10. 2009. Systkini Ingimars eru Her- mann Ágúst, f. 9.9. 1933, d. 3.1. 2021, Bjarni Þorbjörnsson, f. 21.7. 1940, d. 12.6. 1966, Ingveldur Þorbjörnsdóttir, f. 26.8. 1945, Marel Ingvi Þor- björnsson, f. 14.5. 1951, d. 2.9. 2008. Þann 12. júní 1969 kvæntist Ingimar Magneu Ástmunds- Rún Heiðarsdóttir, f. 18.6. 1978, og eiga þau þrjá syni, Heiðar Snæ, f. 11.12. 2004, Bjarna Val, f. 28.1. 2006, og Brynjar Inga, f. 28.12. 2011. Ingimar ólst upp í Andr- ésfjósum á Skeiðum og gekk í barnaskólann í Brautarholti. Eftir barnaskólann fór hann í íþróttaskólann í Haukadal. Eftir skólagöngu stundaði hann sjómennsku og var nokkrar vertíðir á Fróða ÁR 33 frá Stokkseyri og vann á sumrin hjá Búnaðarfélagi Skeiðamanna ásamt því að sinna bústörfum heima fyrir. Hann vann hjá Rækt- unarsambandi Flóa og Skeiða og sem mjólkurbílstjóri hjá Mjólkurbúi Flóamanna þar til hann tók við búi foreldra sinna árið 1966 og stundaði bústörf ásamt verktakavinnu út starfs- ævina. Útför Ingimars fer fram frá Ólafsvallakirkju í dag, 8. maí 2021, klukkan 14. Vegna Co- vid-19-fjöldatakmarkana verð- ur athöfninni streymt á: https://promynd.is/ingimar Streymishlekk má finna á: https://www.mbl.is/andlat dóttur frá Grund, f. 19.2. 1945. Börn þeirra eru: 1) Ingigerður, f. 24.11. 1965. Eig- inmaður hennar er Guðjón Guð- mundsson og eiga þau þrjá syni, Ægi, f. 3.12. 1991, sambýliskona hans er Una Guð- rún Gautadóttir, sonur Ægis er Hjálmar Guð- jón, f. 7.1. 2012, Guðmundur Ingi, f. 12.12. 1997, sambýlis- kona hans er Rebekka Sif Gunnþórsdóttir. Ingimar, f. 16.6. 2000. Fyrir á Ingigerður eina dóttur, Ingunni, f. 15.12. 1987, eiginmaður hennar er Lárus Guðmundsson, sonur þeirra er Arnar Magni, f. 24.2. 2016. 2) Bjarni, f. 20.11. 1976. Eiginkona hans er Valgerður Elsku pabbi. Það er ótrúlega erfitt að kveðja þig þrátt fyrir að hafa verið búinn að undirbúa hugann fyrir það sem koma skyldi. Síðasta árið hafði heils- unni hrakað og mjög hratt síð- ustu dagana. Þér fannst nóg komið og hvíldin kærkomin. Hugurinn fer á flug og minning- arnar eru margar bæði í leik og starfi. Við unnum vel saman og gilti þá einu hvort við vorum að laga eitthvað í skúrnum, í bú- störfum eða verktakavinnunni, þú varst handlaginn og ófáir sem hafa notið aðstoðar þinnar við viðgerðir á hinum ýmsu hlutum. Það er ekki sjálfgefið að pabbi manns sé einnig góður vinur en það varst þú og það var gott að leita ráða hjá þér og gerði ég það oft og fengu hugmyndirnar ým- ist jákvæða eða neikvæða um- sögn og var það yfirleitt án ein- hverra orðalenginga. Eins varstu bóngóður og aldrei stóð á að hjálpa gætir þú komið því við og áttu þó nokkur handtökin í húsi okkar hjóna. Eins voru dreng- irnir mínir þrír ávallt velkomnir í sveitina hvort sem var í heim- sókn eða næturgistingu. Við vor- um mjög nánir og töluðumst við í síma flesta daga ársins og hafðir þú það á orði að langt væri síðan þú heyrðir í mér ef það hafði dottið út dagur á milli símtala. Við gátum talað um hin ýmsu mál og hafðir þú alltaf mikinn áhuga á að vita hvað ég hefði fyr- ir stafni og svo sagðir þú mér hvað væri í gangi í sveitinni því þú varst forvitinn og vissir yf- irleitt ef einhverjar framkvæmd- ir voru í gangi. Þegar þið mamma hættuð bú- skap hafðir þú tíma til að rækta áhuga þinn á gömlum vélum og tækjum og gerðir upp tvo öld- unga í vélasafni þínu. Þú hafðir mikinn áhuga á gömlum vélum og sérstaklega ef þú hafðir ein- hverja hugmynd um hver hefði átt eða unnið á viðkomandi vél. Á áttræðisafmælisdaginn þinn fór ég með þér í bíltúr í Skagafjörð- inn til að skoða samgöngusafnið í Stóragerði en þú hafðir oft rætt um að þig langaði þangað, í leið- inni fundum við svo annað véla- safn sem var að sjálfsögðu einnig skoðað. Þessi dagur er mér mjög minnisstæður og mikils virði bæði vegna þess hversu gaman þú hafðir af því að skoða söfnin og af bílferðinni og eins þar sem þetta var síðasta ferðalagið sem við fórum saman. Nú ertu farinn í Sumarlandið og það er erfitt að sætta sig við það en svona er lífsins gangur, hafðu þökk fyrir allt og allt Þinn sonur Bjarni. Nú ertu búinn að fá hvíldina elsku tengdapabbi minn. Ég kveð þig með miklum söknuði og dýrmætum minningum. Tengdapabbi var einstaklega tryggur og hjálpsamur maður, hann vildi allt fyrir mig og Bjarna gera. Hann hjálpaði okk- ur mikið við húsbyggingar, allt frá fyrstu skrefum húsbygging- ar, að sækja möl að Ingólfsfjalli á vörubílnum sínum og að flutn- ingum. Einnig voru hann og tengdamamma mín dugleg að passa drengina okkar. Þeir máttu koma í sveitina hvenær sem er. Tengdapabbi lá ekki á skoð- unum sínum, hann sagði alltaf hvað honum fannst. Ég var ekki alltaf sammála honum en það er eitthvað sem skiptir ekki máli. Hann var húsbóndi á sínu heimili og þegar við Bjarni byrjuðum saman hafði ég aldrei séð eins mikla verkaskiptingu á einu heimili. Hann sá um útiverkin og móðir hans og tengdamamma mín sáu um inniverkin. Hann átti sitt sæti við eldhúsborðið og það vissu allir og það byrjaði enginn á undan honum að fá sér að borða. Mér fannst þetta mjög sérstakt og áhugavert til að byrja með því þetta hafði ég aldrei séð áður en þetta var eitt af því sem ég vandist. Hann var harður karl sem hafði upplifað ýmislegt í gegnum árin og hann sýndi ekki alltaf til- finningar sínar en þegar ég kynntist honum betur og betur sá ég að hann var mikil tilfinn- ingavera. Ef drengirnir okkar voru veikir fylgdist hann vel með og hringdi reglulega í Bjarna til að athuga með líðan þeirra. Hann var einstaklega stríðinn og honum fannst gaman að gant- ast í drengjunum okkar. Þegar ég og Bjarni vorum nýbyrjuð saman horfði hann á skóna mína í forstofunni og spurði mig hvernig ég héldi jafnvægi á þess- um skóm en honum fannst þeir frekar litlir. Nú ertu kominn í sumarlandið elsku tengdapabbi, takk kærlega fyrir allt, ég kveð þig með þessu ljóði. Blessuð sértu sveitin mín! sumar, vetur, ár og daga. Engið, fjöllin, áin þín – yndislega sveitin mín! – heilla mig og heim til sín huga minn úr fjarlægð draga. Blessuð sértu sveitin mín! sumar, vetur, ár og daga. (Sigurður Jónsson) Valgerður Rún Heiðarsdóttir. Það er skrítið að sitja hér og skrifa minningargrein um afa sinn, afa sem alltaf hefur verið til staðar fyrir mig og gott betur en það. Þú sýndir mér snemma mikið traust og hafðir mikla trú á stelpuskottinu sem fylgdi þér um allt, oft á tíðum hafðir þú meiri trú á mér en ég sjálf. Þú hvattir mig til dáða hvort sem um var að ræða nám, vinnu eða lífið sjálft. Um leið og ég náði niður á ol- íugjöfina var tími til kominn að kenna mér á traktorana og önn- ur tæki fylgdu svo í kjölfarið. Við áttum gott samstarf í heyskapn- um sem og annars staðar og gátu samskiptin oft á tíðum farið fram án orða, oft fóru þau fram með táknum milli traktora og alltaf skildum við hvort annað. Hey- skapurinn var oft erfiður tími og var stundum mikill hamagangur þegar mikið lá flatt, svo ég tali nú ekki um ef rigning var á næsta leiti, þá var hugur þinn einbeitt- ur og eins gott að ganga rösklega til verks. Stundum var þó eins og þú værir í einhverri rúllettu við veðuröflin, náðir í kíkinn til að líta upp í Hrepp til að athuga hversu nærri rigningin væri komin og hvenær væri tími til kominn að heyja okkar tún því best var að heyið fengi að liggja og þorna sem lengst. Þegar vel tókst til var fagnað og ánægjan og léttirinn skein af andliti þínu. Þér hefur alltaf verið umhug- að um fólk, fylgdist vel með þínu fólki og þér líkaði illa ef of langur tími leið á milli símtala eða heim- sókna. Alltaf spurðir þú hvað Lárus og „litla dýrið“, eins og þú kallaðir Arnar Magna, væru að gera og varst sérlega áhuga- samur ef einhverjar fram- kvæmdir voru í gangi svo ég tali nú ekki um ef kaup á nýjum bíl- um bar á góma. Það var síðast í mars síðastliðnum sem þú spurðir mikið um bílakaupin okkar og fannst þér greinilega ekkert ganga í þeim efnum, það tókst þó að lokum en því miður náðum við ekki bíltúr á þeim bíl. Elsku afi minn, það er sárt að sakna en minning þín lifir með okkur og mun ég segja Arnari Magna sögur af þér um ókomna tíð. Hann talar núna um að afi Ingimar sé orðinn engill á himn- um og er viss um að þú vakir yf- ir og gætir okkar og það er ég líka. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti, þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Ingunn Helgadóttir. Lífið er ferðalag sem mótar mann þar til á leiðarenda er komið. Á ákveðnum tímapunkt- um staldrar maður við og horfir yfir farinn veg og rifjar upp hvaða atvik og einstaklingar hafa áhrif á mann á tilteknum áföngum ferðlagsins, áður en haldið er áfram. Í síðastliðinni viku lést Ingi- mar Þorbjörnsson, frændi minn, og á slíkum stundum hægir maður á fyrrnefndu ferðalagi, sest ef til vill á þúfu og rifjar upp. Ég var 11 eða 12 ára gamall þegar ég gerðist vikapiltur (seinna vinnumaður) hjá Ingi- mari og Möggu í Andrésfjósum. Fyrir þekkti ég auðvitað Ingi- mar sem bróður hennar mömmu en foreldrar mínir voru tíðir gestir í Andrésfjósum, þá sérstaklega yfir álagstíma s.s. við heyskap. Ingimari kynntist ég þó ekki af alvöru fyrr en ég hóf störf hjá honum og Möggu. Ingimar var reglumaður og fylgdi því eftir að störfum væri sinnt eftir ákveðnum hætti, hvort sem um var að ræða girð- ingavinnu eða viðhald vinnu- véla. Á morgnana var heimilis- fólkið ræst, gengið til mjalta og á eftir skyldustörfum í fjósinu beið grautur, lýsi og súrt slátur. Ég hins vegar viðurkenni fús- lega að hafa ekki haft mikla að- dáun á slátrinu og mögulega var sykurkarið nýtt fullhraustlega með grautnum. Ingimar hugsaði vel um skepnur og viðhald húsa og véla. Fjósið skyldi þrifið og kalkað einu sinni á ári svo ekki sé minnst á að bera mjallarbón á allar vinnuvélar um haustið. Ingimar var í eðli sínu alvar- legur maður þegar kom að bú- rekstri en hann var glettinn og stríðinn á sinn hátt þó svo að sú hlið á honum hafi ekki öllum verið kunn nema þeim sem þekktu hann betur. Á seinustu árum gerði Ingi- mar upp a.m.k. tvær dráttarvél- ar, þar á meðal gamlan Farmal sem Þorbjörn faðir hans hafði keypt á sínum tíma. Líftími vinnuvéla byggist meðal annars á því hversu margar vinnu- stundir liggja undir vélarhlíf- inni en ef hugsað er vel um vél- ina hefur sá þáttur minni áhrif á endingu vélarinnar og alltaf er hægt að bæta hráolíu eða bens- íni á tankinn. Það er því miður ekki svo með okkur mannfólkið. Í lokin var tankurinn tómur hjá frænda mínum en vinnustund- irnar voru ófáar. Ég sé hann allt- af fyrir mér í hugskotum sem há- vaxinn grannan mann í vinnusamfestingi og stígvélum, það grillir í köflótta vinnuskyrtu undir samfestingnum. Hann virðist hugsi og brosir lítillega í kampinn. Þorbjörn Jónsson. Þeir slitna smám saman strengirnir sem tengja mann við ævintýri bernskunnar á Skeiðun- um. Við hvern sem fer vantar í hljóminn. Fyrstu kynni mín af Ingimari urðu í sameiginlegum kartöflu- görðum í Skeiðháholti. Þangað kom hann að hausti með sinni fjölskyldu að taka upp kartöflur. Það voru margar fjölskyldur með smá kartöflugarða á sand- bökkunum í Skeiðháholti. Þau kynni voru ekkert sér- staklega ánægjuleg. Ég, krakk- inn, var skíthræddur við hvatvísa háværa manninn með yfirlýsing- arnar, sem talaði svo hratt að maður skildi hann varla. Það var því með hálfum huga nokkrum árum síðar fyrir áeggj- an föður míns, sem hafði ofurtrú á honum, að ég með bilaðan gír- kassa í Cortínu leitaði ásjár hjá Ingimari í Andrésfjósum, dauð- hræddur um að ég bakkaði á verkstæðishurðina eða klúðraði einhverju í stresskasti ef ég skildi ekki hröð og óskýr fyrir- mælin. Allt fór þó vel. Cortínunni bakkað inn í snyrtilegasta og flottasta verkstæði í heiminum í einkaeign. Hurðin lokaðist og Ingimar fór í sloppinn. Þá breyttist allt. Það eins og lygndi yfir Ingimari. Hávaðinn og stressið á bak og burt og snill- ingurinn birtist. Í fullkominni sátt við mekanískt viðfangsefni sitt, sem skipulega, skref fyrir skref í uppraðaðri snyrti- mennsku var leyst. Ég fór með bílinn einhverjum tímum síðar í toppstandi, alsæll og fannst áður glötuð veröld brosa við mér. Á þeim tíma tók ég ekki einu sinni eftir aðalatriði þessa við- burðar. Ég hafði eignast vin og sam- ferðamann sem ég alla tíð síðan hef litið upp til og dáðst að. Ótaldar ánægjustundir við eldhúsborðið hjá þeim Möggu í Andrésfjósum, við verklegar framkvæmdir út um allt, rök- ræður um menn og málefni, tækni og eiginlega hvað sem var. Ég steinhætti að vera stress- aður nálægt honum og naut þess að vera á öndverðum meiði við hann, láta hann hjóla í mig með gassagangi og látum og hrekja mig í endalausa vörn um hitt og þetta. Krefja mig um að standa á minni skoðun, þó hún væri allt önnur en hans, og ef ég í öng- stræti tapaðrar rökræðu kom með einhverja nothæfa athuga- semd, þá snarstoppaði hann, tilbúinn í að skoða fleiri fleti málsins, kímnin komin í svipinn og setningin: „Ja satt segir þú“ kvittaði fyrir glímuna, sem í hvert sinn skerpti vináttuna. Oft hef ég gripið til frasanna hans og jafnvel aðeins stælt hann, ef ég þurfti að vera fynd- inn. Ég vona að með því hafi ég komið til skila að þarna fór ein- stakur karakter sem alltaf naut aðdáunar minnar og væntum- þykju. Það er sagt að svokallaðar „stereotypur“ einkenni sam- félagið. Allir eru „eins og ein- hver“. Þetta á ekki við um Ingi- mar í Andrésfjósum. Hann var bókstaflega engum líkur. Ég kveð vin minn og sam- ferðamann og votta Möggu og fjölskyldunni samúð, og svo vitn- að sé í einn frasann hans: „Sann- leikurinn er sagna bestur, sama hver hann er, mér er engin laun- ung á því.“ Jón Bjarnason frá Skeiðháholti. Ingimar Þorbjörnsson Minningarkort á hjartaheill.is eða í síma 552 5744 Ástkær eiginkona mín, móðir, dóttir, systir, tengdadóttir og mágkona, EDDA ÞÖLL HAUKSDÓTTIR, Tangabryggju 18, Reykjavík, lést á krabbameinsdeild Landspítalans miðvikudaginn 5. maí. Útför auglýst síðar. Haraldur Þór Sveinbjörnsson Hera Lind Haraldsdóttir Hera Sveinsdóttir Kristján Gunnarsson Arinbjörn Hauksson Lára Sigríður Lýðsdóttir Sveinbjörn Þór Haraldsson Inga Björk Sveinbjörnsdóttir Ágúst Heiðdal Friðriksson Berglind B. Sveinbjörnsd. Sveinar Valur Ægisson Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, stjúpfaðir, tengdafaðir og afi, SIGURÐUR PÉTURSSON, lögreglumaður og atvinnukylfingur, sem lést mánudaginn 19. apríl, verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju miðvikudaginn 12. maí klukkan 13. Vegna fjöldatakmarkana verða einungis nánustu ættingjar og vinir viðstaddir. Útförinni verður streymt á www.sonic.is/siggip Þeim sem vilja minnast hans er bent á líknar- og hjálparsjóð Landssambands lögreglumanna. Guðrún Ólafsdóttir Pétur Óskar Sigurðsson Nína Björk Geirsdóttir Hannes Freyr Sigurðsson Kristjana Erlingsdóttir Hanna Lilja Sigurðardóttir Jónas Bjarnason Ragnar Sigurðsson Anna Margrét Sigurðardóttir Bjarni Þór Guðmundsson Ólafur Örn Jónsson Nana Jónsson og barnabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, HELGI SIGURÐSSON véltæknifræðingur, Skógarseli 43, lést miðvikudaginn 5. maí á krabbameins- deild Landspítalans. Útförin fer fram frá Seljakirkju miðvikudaginn 19. maí klukkan 13. Einnig verður streymt frá athöfninni á www.seljakirkja.is. Árný Kristjánsdóttir Gunnur Helgadóttir Baldvin Þ. Kristjánsson Sigrún Helgadóttir Jón Bragi Bergmann barnabörn og langafabörn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.