Morgunblaðið - 08.05.2021, Qupperneq 42

Morgunblaðið - 08.05.2021, Qupperneq 42
42 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. MAÍ 2021 Verslun Tunguhálsi 10 - Sími 415 4000 – www.kemi.is - kemi@kemi.is NÚ FÁST BOSCH BÍLAVARAHLUTIR HJÁ KEMI TUNGUHÁLSI 10 50 ÁRA Ingi Rafn ólst upp á Seltjarnarnesi en býr í Reykjavík. Hann er með BS-gráðu í prentrekstrarfræði frá Rochester í New York-ríki og MBA-gráðu frá Ed- inborgarháskóla. Ingi Rafn er framkvæmdastjóri World Printers Forum hjá WAN-IFRA, sem eru alþjóða- samtök dagblaða og fréttamiðla. Markmið samtakanna er að halda frelsi fjölmiðla á lofti ásamt því að aðstoða aðildarfyrirtæki sín við að koma fréttum og öðru efni á framfæri eftir þar til bærum leiðum hvort, það er með prentaðri útgáfu eða stafrænni tækni. Um 3.000 frétta- veitur og tæknifyrirtæki eiga aðild að samtökunum. Ingi Rafn syngur í 1. bassa í Karlakórnum Fóstbræðrum og eru áhuga- mál hans tónlist, ferðalög og útivera, kvikmyndir og bóklestur. FJÖLSKYLDA Kona Inga Rafns er Nathalía Druzin Halldórsdóttir, f. 1974, söngkona og atvinnuráðgjafi. Börn þeirra eru Elísabet, f. 2001, Pétur Óli, f. 2007, og Halldór Ari, f. 2010. Foreldrar Inga Rafns: Ólafur Ingi Jónsson, f. 1945, d. 1989, prentsmiðjustjóri hjá DV, og Sigríður Sigurjóns- dóttir, f. 1947, fyrrverandi bankastarfsmaður. Hún er búsett á Seltjarnar- nesi. Ingi Rafn Ólafsson Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl , Hrútur Láttu það ekki hvarfla að þér að kasta til höndunum við verk þín því þú færð þau bara í hausinn aftur. Tengslanet þitt er ein þinna verðmætustu eigna. 20. apríl - 20. maí + Naut Það er engin ástæða til þess að deila með öðrum ef þú vilt það ekki. Skynsemi þín og innsæi mun koma þér þangað sem þú vilt. 21. maí - 20. júní 6 Tvíburar Áhugaverðu tilboði verður skotið inn á borð hjá þér í dag. Ekki bregðast trausti vinar. 21. júní - 22. júlí 4 Krabbi Þú ættir að líta vandlega í eigin barm áður en þú kemur sökinni á aðra. Þú ert á bleiku skýi og munt verða það áfram. 23. júlí - 22. ágúst Z Ljón Óvæntar fréttir frá öðru landi eða fjarlægum stað gætu borist. Reyndu að létta af þér einhverjum verkefnum, þú getur ekki gert allt ein/n. 23. ágúst - 22. sept. l Meyja Þegar í öngstræti er komið er gott að hugsa málin alveg upp á nýtt. Þér mun takast það ómögulega, bara ef þú vilt það. 23. sept. - 22. okt. k Vog Þú vekur athygli annarra og finnst notalegt að láta hana leika um þig. Leyfðu barninu í þér að koma fram og ýttu öllum áhyggjum til hliðar. 23. okt. - 21. nóv. j Sporðdreki Það er engin skömm að því að skipta um skoðun. Þér verður boðið í partí sem mun breyta öllu hjá þér. 22. nóv. - 21. des. h Bogmaður Þú þarft að gefa þér tíma til þess að styrkja þau tengsl við aðra sem eru þér einhvers virði. Þú munt standast prófin. 22. des. - 19. janúar @ Steingeit Þú verður að láta heilsuna ganga fyrir öllu öðru. Spurðu sjálfa/n þig að því hvað þú getir gert strax til að bæta hana. 20. jan. - 18. febr. ? Vatnsberi Vinir og félagar þínir gera miklar kröfur til þín. Ef líkaminn er hraust- ur og geðið gott er eins og allur heim- urinn sé á þínu bandi. 19. feb. - 20. mars = Fiskar Þú hefur mikla þörf fyrir að tala við einhvern í dag. Vandamálin hafa hrúg- ast upp og þú sérð ekki út úr þeim. ur ár. Upp úr því varð hann kennari í jarðeðlisfræði við Háskólann og hefur verið það síðan, fyrst sem dós- ent og síðan sem prófessor. „Rann- sóknasvið mitt hefur mikið tengst eldstöðvum í jöklum. Þar hafa við- fangsefnin spannað ýmis fagsvið, jöklafræði, jarðeðlisfræðilegar mæl- ingar, gossögu, gjóskulagarann- sóknir, eldfjallafræði í víðum skiln- ingi og margvíslegar mæliaðferðir. Viðfangsefnin spanna nokkuð breitt völdum að fara í framhaldsnám til London, en þar var mikið úrval góðra skóla í bæði vísindum og list- um. Það fór svo að við fórum bæði til University College London, þar sem ég tók doktorspróf í jarðeðlisfræði en Anna lauk framhaldsnámi í myndlist.“ Eftir heimkomuna frá London vann Magnús Tumi á Raunvísinda- stofnun Háskólans við jöklarann- sóknir með Helga Björnssyni í fjög- M agnús Tumi Guð- mundsson fæddist 8. maí 1961 í Reykjavík og ólst þar upp. „Ég man fyrst eftir mér í Barmahlíðinni en þegar ég var fimm ára fluttum við í hús sem foreldrar mínir byggðu í Kleppsholtinu og þar ólst ég upp. Neðan við Kleppsveginn voru móar og sjórinn þar fyrir neðan. Sunda- höfn var í byggingu og Björgun með aðstöðu í Kleppsvíkinni. Móarnir, sandhólarnir og ströndin voru spennandi staðir og þar lékum við okkur – í minningunni var alltaf sól á sumrin. Landið, fjöllin og jöklarnir voru mér mjög fljótt mikið áhugamál. Það skemmtilegasta sem ég gerði var að fara í útilegur á sumrin. Við systkinin lærðum öll á hljóðfæri. Ég lærði á klarínett. Mér fannst ekkert sérstaklega gaman að læra á hljóð- færið en það var gaman að spila í Lúðrasveit verkalýðsins, en þar var ég félagi í 11 ár þegar ég var ungur. Þegar ég var fjórtán ára tókum við nokkrir félagar okkur til og fór- um að ferðast með Ferðafélaginu. Strákunum var vel tekið, gott fólk bæði passaði upp á okkur og tók okkur sem jafningjum. Fyrir mér opnaðist landið á nýjan hátt með fjall- og jöklagöngum. Alpaklúbb- urinn varð aðalvettvangurinn fyrir fjallabröltið og farið var á fjöll og jökla flestar helgar á sumrin. Ég var svo heppinn að fá sumarvinnu við virkjanarannsóknir á hálendinu um tvítugt og vann í því í nokkur sumur. Þá kynntist ég hálendinu á nýjan hátt.“ Magnús Tumi gekk í Langholts- skóla, varð stúdent frá Mennta- skólanum við Sund og fór í jarðeðl- isfræði við Háskóla Íslands. „Það var ekki erfið ákvörðun. Þeir höfðu mikil áhrif á mig, móðurbræður mínir, jarðfræðingarnir Jens og Haukur Tómassynir, og mig langaði að feta svipaðar slóðir og þeir. Í náminu kynntist ég Helga Björns- syni sem bauð mér sumarvinnu við jöklarannsóknir. Það var spennandi og vorið 1986 fór ég mína fyrstu mælingaferð á Vatnajökul. Við Anna svið, en árangur byggist ekki síst á samstarfi við kollega á mismunandi sviðum. Mín vinna fer fram á Jarð- vísindastofnun Háskólans og þar bú- um við svo vel að eiga landslið af sérfræðingum á mörgum sviðum og öflugt teymi tæknifólks. Alþjóðlegt samstarf við erlenda kollega er líka mikilvægur þáttur í starfinu. Á síðustu 25 árum hafa orðið til aðferðir við að fylgjast með eld- gosum og jarðhita undir jöklum, en mikil virkni af því tagi hefur verið síðan gaus í Gjálp 1996. Af þessu hefur leitt veruleg vinna við mat á eldgosavá og gerð hættumats fyrir hin ýmsu svæði. Málin þróuðust þannig að vöktun eldgosa og jarð- hitasvæða í jöklum hefur verið um- fangsmikill þáttur í starfinu. Úr þessu hafa gegnum árin orðið til margvísleg tengsl, m.a. hef ég gegn- um árin tekið þátt í mörgum fundum með íbúum á Suðurlandi, einkum kringum Kötlu. Þau tengsl eru mik- ilvæg og ég hef lært margt á sam- tölum við heimafólk á hinum ýmsu stöðum.“ Magnús hefur alltaf verið virkur í félagsmálum. „Á sínum tíma var ég í stjórn Alpaklúbbsins og formaður hans í nokkur ár á 10. áratugnum. Síðasta aldarfjórðunginn hafa þó störf fyrir Jöklarannsóknafélag Ís- lands verið drýgst, en þar hef ég verið formaður frá 1998. Þar starfar fólk á öllum aldri og úr öllum geir- um samfélagsins, áhugafólk og vísindafólk, sameinað á áhuganum á jöklum. Við hjónin höfum bæði verið virk í starfinu, oft farið saman í vor- ferðir á Vatnajökul og Grímsvötn hafa alla tíð verið mikilvægur stað- ur. Samanlagt hef ég varið sem nemur rúmlega einu ári á Vatna- jökli, mest í Grímsvötnum. Við hjónin höfum gaman af því að dansa, höfum verið í tímum í sam- kvæmisdansi um árabil. Núna erum við í frábærum tímum hjá Dans- skóla Köru. Svo er það útiveran og ferðalög. Maður verður aldrei leiður á að ganga um landið eða fara um á skíðum.“ Fjölskylda Eiginkona Magnúsar er Anna Magnús Tumi Guðmundsson prófessor – 60 ára Fjölskyldan Stödd í Grímsvötnum, en þar er Magnús tíður gestur. Fékk snemma áhuga á landinu Hjónin Magnús Tumi og Anna á Nýja-Sjálandi fyrir nokkrum árum. Til hamingju með daginn Akureyri Hreinn Logi Dayon Geislason fædd- ist 1. apríl 2020 kl. 03.44. Hann vó 3.136 g og var 48 cm langur. For- eldrar hans eru Allen Castro Dayon og Geisli Hreinsson. Nýr borgari

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.