Morgunblaðið - 08.05.2021, Page 43

Morgunblaðið - 08.05.2021, Page 43
DÆGRADVÖL 43 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. MAÍ 2021 Útsölustaðir: Apótek, heilsuverslanir og heilsuhillur stórmarkaðanna. Vítamín í munnúðaformi skila hámarksupptöku í gegnum slímhúð í munni sem gerir þau afar hentug í notk DLúx 3000 D-vítamín alltaf fyrir alla B12 Boost Áhrifaríkur munnúði sem getur komið í veg fyrir B12 skort. MUNNÚÐAR SEM VIRKA Líndal, f. 17.11. 1957, myndlistar- maður. Þau eru búsett á Tómasar- haga í Vesturbæ Reykjavíkur. For- eldrar Önnu voru hjónin Elín Hólmfreðsdóttir Líndal, f. 24.8. 1917, d. 16.11. 1984, og Sigurður J. Líndal, f. 29.11. 1915, d. 8.12. 1991. Börn Magnúsar og Önnu eru 1) Rögnvaldur Líndal Magnússon, f. 29.1. 1989, eðlisfræðingur, býr á Sel- tjarnarnesi. Kona hans er Saori Fukasawa; 2) Katla Sigríður Magn- úsdóttir, f. 24.2. 1993, lærði kvik- myndafræði og er nú í framhalds- námi í viðskiptafræði, býr í Kópa- vogi, í sambúð með Jónasi Sverris- syni. Systkini Magnúsar eru Már Guð- mundsson, f. 20.6. 1954, hagfræð- ingur og fyrrverandi seðlabanka- stjóri, býr í Reykjavík; Svava Sigríður Guðmundsdóttir, f. 21.8. 1955, d. 20.10. 1987, tækniteiknari; Snorri Guðmundsson, f. 28.5. 1960, tölvufræðingur, býr í Skotlandi; Elísabet Vala Guðmundsdóttir, f. 4.12. 1963, námsráðgjafi, býr í Reykjavík. Foreldrar Magnúsar voru hjónin Guðmundur Magnússon, f. 28.9. 1927, d. 14.4. 1987, verkfræðingur, og Margrét Rakel Tómasdóttir, f. 20.8. 1927, d. 16.5. 2017, skrifstofu- maður. Þau voru búsett í Reykjavík Jens Tómasson jarðfræðingur Úr frændgarði Magnúsar Tuma Guðmundssonar Magnús Tumi Guðmundsson Rakel Jakobsdóttir ljósmóðir á Berjadalsá Elías Jónsson útvegsbóndi á Berjadalsá á Snæfjallaströnd Elísabet Elíasdóttir húsfreyja í Reykjavík Margrét Rakel Tómasdóttir skrifstofumaður í Reykjavík Haukur S. Tómasson jarðfræðingur Georg Guðni Hauksson listmálari Svava Sigríður Guðmundsd. háskólanemi í Reykjavík Guðmundur Pétursson tónlistar- maður Tómas Tómasson sjómaður og verkamaður í Reykjavík Tómas Jónsson sjómaður og verkamaður í Vík í Mýrdal Daníel Daníelsson útvegsbóndi í Garðbæ í Grindavík Sigríður Daníelsdóttir húsfreyja í Grindavík Guðmundur Magnússon verkfræðingur í Reykjavík Magnús Guðmundsson trésmiður í Grindavík Guðmundur Pétursson bóndi og sjómaður á Þórkötlustöðum í Grindavík Sigríður Hermannsdóttir húsfreyja á Þórkötlustöðum Agnes Jónsdóttir húsfreyja í Ísólfsskála í Grindavík Jóhanna Guðleif Vilhjálmsdóttir húsfreyja í Ísólfsskála Guðbergur Bergsson rithöfundur Þóra Jónsdóttir húsfreyja í Garðbæ í Grindavík Margrét Jónsdóttir húsfreyja í Vík í Mýrdal „VEISTU, ÉG HELD AÐ VIÐ KLÓRUM OKKUR ALDREI ÚT ÚR ÞESSU.“ „ÓKEI, ÞÚ ERT RÁÐINN. EN VERTU BÚINN AÐ BORÐA MORGUNMAT ÁÐUR EN ÞÚ MÆTIR.“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að njóta náttúrunnar saman. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann NÝJA HOLAN MÍN ER EKKERT SÉRLEGA HENTUG EN HÚN ER MEÐ FRÁBÆRU ÚTSÝNI HRÓLFUR, SJÁÐU ÞETTA! ÞAÐ ER GÍGUR Í ELDHÚSINU MÍNU! FRÁBÆRT! HEFUR ÞÚ EKKI EINMITT VERIÐ AÐ TALA UM AÐ VERA MEÐ MOLTUKASSA?! Gátan er sem endranær eftirGuðmund Arnfinnsson: Hygg ég væri á Hólum sá. Hljóðfærinu þjóna má. Úti’ á miði má hann sjá. Mega lúnir hvíld þar fá. Hér kemur lausn Helga Þorláks- sonar: Biskup stýrði stólnum frá, stóll er líka fiðlu á, skipastól á sjónum sá, sig á stólnum hvíla má. Guðrún B. svarar: Á Hólum biskupsstóllinn stóð, og strengjatón hann mótar best. Um skipastólinn skapar ljóð það skáld, er fyrst á stólinn sest. Þessi er lausn Helga R. Ein- arssonar: Hólastóll í Hjaltadal. Hljóðfærum stóll er á. Skipastóll frá ströndu skal. Á stólnum sitja má. Þannig skýrir Guðmundur gát- una: Hólastóll er staður sá. Stóll er hljóðfærinu á. Skipastóllinn stikar sjá. Á stólnum lúinn hvílast má. Þá er limra: Hann er mælskur og stígur í stól og stólræður heldur um jól, hann er gæfur sem lamb og laus við dramb, þó leynist í honum fól. Og síðan ný gáta eftir Guðmund: Hélt ég út á sónar svið, sett var á mig pressa, sat með skalla sveittan við að semja gátu þessa: Á gæsafjöður glöggt má sjá. Gilja milli liggur sá. Varpar ljósi veg þinn á. Víst þig höggi ljósta má. Í Skruddu segir frá því, að um- komulítil kona, sem Steinunn hét, hafi dáið og verið grafin, en svo vildi til að næsta dag fór fram jarð- arför einnar drottningar hér í álf- unni. Kvað þá bóndi einn þessa vísu: Ólíkan þó hefðu hag hinsta jöfn er borgun. Steinku á að dysja í dag en drottninguna á morgun. Og hér er gömul mannlýsing: Mangi er eins og biluð bók úr bandi slitin. Saurug spjöldin, svört á litinn, saumur fúinn, blöðin skitin. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Stungið undir stól

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.