Morgunblaðið - 08.05.2021, Side 45
kominn í þriggja leikja bann fyrir að
hafa slegið andstæðing í leik gegn
Álftanesi í 1. deild karla. Hann tók út
fyrsta leikinn í banninu í gærkvöld
þegar Sindri tók á móti Selfossi í
fyrsta leiknum í umspilinu um sæti í
úrvalsdeildinni.
_ Atli Gunnar Guðmundsson, sem
hefur verið aðalmarkvörður Fjölnis í
knattspyrnunni undanfarin tvö ár, er
genginn til liðs við FH. Atli, sem er 27
ára gamall Seyðfirðingur, lék með
Hugin til 2016 og síðan með Fram í
tvö ár en hélt þaðan í Grafarvoginn.
Þar lék hann í fyrsta skipti í úrvals-
deildinni í fyrra og varði mark liðsins í
sautján leikjum af átján.
_ Sif Atladóttir, landsliðskona Ís-
lands í knatt-
spyrnu og leik-
maður Kristian-
stad í sænsku
úrvalsdeildinni,
sneri aftur í
byrjunarliðið hjá
Kristianstad
þegar liðið tók á
móti Vittsjö í
gær. Leiknum
lauk með 1:0-sigri Kristianstad en
Elsa Edgren skoraði sigurmark leiks-
ins á 61. mínútu. Sif, sem lék allan
leikinn í hjarta varnarinnar hjá Kristi-
anstad, var síðast í byrjunarliði Kristi-
anstad í október 2019 en hún var í
barneignarleyfi á síðustu leiktíð.
Kristianstad fer með sigrinum upp í
þriðja sæti deildarinnar og er með sjö
stig, líkt og Häcken, en Rosengård er í
efsta sæti deildarinnar með fullt hús
stiga eða níu stig eftir þrjá leiki.
Sveindís Jane Jónsdóttir lék ekki
með Kristianstad vegna meiðsla en
Elísabet Gunnarsdóttir er þjálfari
liðsins.
_ KA og Leiknir úr Reykjavík mætast
í 3. umferð úrvalsdeildar karla í knatt-
spyrnu, Pepsi Max-deildarinnar, á mið-
vikudaginn kemur en leikurinn fer
fram á Dalvíkurvelli á Dalvík.
Til stóð að leikurinn færi fram á
Greifavelli á Akureyri en völlurinn er
ekki tilbúinn fyrir leikinn og lítur ekki
nægilega vel út. Akureyringar óskuðu
því eftir því við nágranna sína á Dalvík
að fá að spila leikinn þar en á Dalvík
er notast við gervigrasvöll.
_ Atvinnukylf-
ingurinn Har-
aldur Franklín
Magnús er
öruggur í gegn-
um niðurskurð-
inn á Dimension
Data-mótinu í
Suður-Afríku en
mótið er hluti af
Áskorendamótaröð Evrópu, þeirri
næststerkustu í Evrópu. Haraldur lék
sinn annan hring á mótinu í gær og
lék á 69 höggum eða þremur höggum
undir pari vallarins. Haraldur lék
fyrsta hringinn á 70 höggum, tveimur
undir pari, og er samtals á fimm
höggum undir pari í 33.-45. sæti.
ÍÞRÓTTIR 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. MAÍ 2021
KNATTSPYRNA
Úrvalsdeild karla, Pepsi Max-deildin:
Domusnovav.: Leiknir R. – Breiðab L19.15
Kórinn: HK – Fylkir.......................... L19.15
Norðurálsvöllur: ÍA – Víkingur R.... L19.15
Kaplakrikavöllur: FH – Valur .......... S19.15
Nettóvöllur: Keflavík – Stjarnan...... S19.15
1. deild karla, Lengjudeildin:
Varmá: Afturelding – Kórdrengir ........ L14
Jáverkvöllur: Selfoss – Vestri ............... L14
2. deild karla:
Hertz-völlur: ÍR – Leiknir F ................. L14
Fjarðab.höll: Fjarðabyggð – Völsung .. L14
Akraneshöll: Kári – KF ......................... L14
KR-völlur: KV – Magni .......................... S14
3. deild karla:
Dalvíkurv.: Dalvík/Reynir – Víðir......... L13
Würth-völlur: Elliði – Ægir................... L14
Fellavöllur: Huginn/Höttur – Sindri .... L14
Kópavogsvöllur: Augnablik – ÍH .......... L14
Týsvöllur: KFS – Einherji..................... L14
Samsung-völlur: KFG – Tindastóll ....... S13
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild kvenna, Dominos-deildin:
Stykkishólmur: Snæfell – Breiðablik ... L16
Borgarnes: Skallagrímur – Fjölnir....... L16
DHL-höllin: KR – Haukar..................... L16
Blue-höllin: Keflavík – Valur................. L16
1. deild kvenna:
Ísafjörður: Vestri – Ármann.................. L18
IG-höllin: Hamar/Þór – Njarðvík ......... L18
Dalhús: Fjölnir b – Tindastóll ............... L20
Umspil karla, fyrsti leikur:
Ísafjörður: Vestri – Fjölnir.................... L15
Hveragerði: Hamar – Hrunamenn ....... L16
HANDKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild kvenna, Olísdeildin:
Framhús: Fram – KA/Þór ................ L13.30
Ásvellir: Haukar – Stjarnan ............. L13.30
Vestmannaeyjar: ÍBV – FH ............. L13.30
Origo-höllin: Valur – HK .................. L13.30
Úrvalsdeild karla, Olísdeildin:
Kaplakriki: FH – Afturelding................ S14
Höllin Ak.: Þór – Selfoss ........................ S16
Austurberg: ÍR – KA.............................. S16
Vestmannaeyjar: ÍBV – Stjarnan ......... S16
Origo-höllin: Valur – Grótta................... S16
BLAK
Undanúrslit kvenna, annar leikur:
Neskaupst.: Þróttur N. – HK (0:1) .. L13.30
KA-heimilið: KA – Afturelding (0:1)..... L19
8-liða úrslit karla, fyrsti leikur:
Fylkishöll: Fylkir – HK.......................... S14
Neskaupstaður: Þróttur N. – KA.......... S14
Álftanes: Álftanes – Hamar ................... S14
Ísafjörður: Vestri – Afturelding ............ S16
UM HELGINA!
Dominos-deild karla
Þór Þ. – Þór Ak................................. 103:108
Keflavík – Valur.................................. 101:82
Staðan:
Keflavík 21 19 2 1991:1688 38
Þór Þ. 21 14 7 2053:1902 28
Stjarnan 21 13 8 1913:1840 26
KR 21 11 10 1863:1884 22
Grindavík 21 11 10 1848:1900 22
Valur 21 11 10 1794:1787 22
Tindastóll 21 9 12 1883:1893 18
Þór Ak. 21 9 12 1833:1969 18
Njarðvík 21 8 13 1747:1793 16
ÍR 21 8 13 1897:1938 16
Höttur 21 7 14 1836:1944 14
Haukar 21 6 15 1768:1888 12
Umspil karla
8-liða úrslit, fyrsti leikur:
Sindri – Selfoss ..................................... 77:69
Álftanes – Skallagrímur ...................... 92:88
1. deild kvenna
Grindavík – Stjarnan.......................... 101:55
Meistaradeild Evrópu
Undanúrslit:
Zaragoza – Pinar Karsiyaka ............. 79:84
- Tryggvi Snær Hlinason skoraði tvö stig
og tók eitt frákast fyrir Zaragoza á fimm
mínútum.
San Pablo Burgos – Strasbourg.......... 81:70
_ Zaragoza leikur við Strasbourg um
bronsverðlaunin á morgun.
Þýskaland
Würzburg – Fraport Skyliners.......... 66:95
- Jón Axel Guðmundsson skoraði 11 stig
fyrir Fraport, tók fimm fráköst og gaf tvær
stoðsendingar á 21 mínútu.
Litháen
Neptunas – Siauliai ............ 78:78 (107:106)
- Elvar Már Friðriksson skoraði 15 stig
fyrir Siauliai, gaf 17 stoðsendingar og tók
þrjú fráköst á 47 mínútum.
NBA-deildin
Charlotte – Chicago ........................... 99:120
Dallas – Brooklyn ............................. 113:109
Toronto – Washington............. (frl.) 129:131
Detroit – Memphis ............................. 111:97
Indiana – Atlanta.............................. 133:126
Golden State – Oklahoma City.......... 118:97
LA Clippers – LA Lakers.................. 118:94
_ Philadelphia, Brooklyn og Milwaukee
eru komin áfram í Austurdeild.
_ Utah, Phoenix, LA Clippers og Denver
eru komin áfram í Vesturdeild.
>73G,&:=/D
VALUR
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
„Það er alltaf gaman þegar stór
klúbbur eins og Valur sýnir manni
áhuga og vill semja við mann,“ sagði
knattspyrnumaðurinn Guðmundur
Andri Tryggvason, nýjasti leik-
maður Vals, í samtali við Morgun-
blaðið í gær.
Guðmundur Andri, sem er jafnan
kallaður Andri, er 21 árs gamall en
hann á að baki 34 leiki í efstu deild
hér á landi þar sem hann hefur
skorað átta mörk.
Þá á hann að baki 29 leiki fyrir
yngri landslið Íslands þar sem hann
hefur skorað tvö mörk.
„Sú staðreynd að tímabilið sé ný-
hafið þegar þeir ákveða að reyna að
fá mig ítrekar bara hversu mikið
þeir vildu fá mig sem er virkilega já-
kvætt. Það var lítil pressa á mér síð-
ast þegar ég kom til Íslands en
pressan er meiri núna. Að sama
skapi líður mér ágætlega undir
pressu og ég hef tæklað hana ágæt-
lega hingað til.
Það leggst mjög vel í mig að spila
á Hlíðarenda enda stór klúbbur sem
ætlar sér stóra hluti. Ég er búinn að
vera frá síðastliðið ár vegna meiðsla
en samt vill einn stærsti klúbbur
landsins semja við mig sem er virki-
lega uppörvandi,“ sagði Andri.
Andri er uppalinn hjá KR í
Vesturbæ en það ríkir ákveðinn ríg-
ur á milli KR og Vals enda stórlið í
íslenskum fótbolta.
„Það er ekki búið að skjóta neitt á
mig ennþá en ég held að flestir fé-
lagar mínir séu bara ánægðir fyrir
mína hönd. Þeim finnst gaman að fá
mig aftur heim og það verður gott
að geta eytt tíma með þeim líka.
Maður hefur líka heyrt það út-
undan sér að það séu ansi margir
uppaldir KR-ingar komnir yfir á
Hlíðarenda þannig að ég er klárlega
ekki sá fyrsti sem skiptir yfir úr KR
í Val.“
Sóknarmaðurinn gekk til liðs við
Start í Noregi frá KR, sumarið
2017, en náði sér ekki á strik hjá
norska félaginu á þeim þremur ár-
um sem hann var í herbúðum fé-
lagsins.
„Ég er mjög svekktur með að
hafa ekki náð að sýna mitt rétta
andlit í Noregi. Árið í fyrra átti að
vera árið mitt ef svo má segja því
maður kemur út ungur og það tekur
tíma að koma sér inn í hlutina. Ég
fer svo á láni til Víkinga sumarið
2019 þannig að markmiðið var að
stimpla sig inn á síðustu leiktíð.
Uppleggið hjá liðinu á þessari leik-
tíð hentaði mér ekki alveg hvað
varðar leikstíl og annað. Við kom-
umst því að samkomulagi um að það
væri því fínt að prófa eitthvað annað
og nýtt.
Ég tel mig ekki vera að taka skref
niður á við með því að koma heim
enda er Valur risastór klúbbur og
jafnvel stærri en Start. Ég ætla mér
að spila vel í sumar og þá er aldrei
að vita nema einhver lið erlendis
sýni manni áhuga eftir tímabilið,“
sagði Andri við Morgunblaðið.
Alls ekki skref niður á við
- Guðmundur Andri Tryggvason er genginn til liðs við Val eftir þrjú ár í Noregi
- Nóg af uppöldum KR-ingum á Hlíðarenda og ekki sá fyrsti sem skiptir yfir
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Heimkoma Guðmundur Andri Tryggvason er kominn til liðs við Valsmenn.
Pétur Theódór Árnason skoraði
þrennu fyrir Gróttu þegar liðið tók
á móti Þór frá Akureyri í 1. deild
karla í knattspyrnu, Lengjudeild-
inni, á Vivaldi-vellinum á Seltjarn-
arnesi í 1. umferð deildarinnar í
gær.
Leiknum lauk með 4:3-sigri
Gróttu en Sölvi Björnsson var einn-
ig á skotskónum fyrir Seltirninga.
Ólafur Aron Pétursson skoraði tví-
vegis fyrir Þórsara og þá var Liban
Abdulahi einnig á skotskónum fyrir
Akureyringa.
Þá vann Grindavík afar sterkan
3:1-sigur gegn ÍBV á Grindavík-
urvelli í Grindavík.
Sigurður Bjartur Hallsson, Sig-
urjón Rúnarsson og Viktor Guð-
berg Hauksson skoruðu mörk
Grindavíkur sem komst í 3:0 í leikn-
um en José Sito Seoane klóraði í
bakkann fyrir Eyjamenn á 76. mín-
útu.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Vörn Þórsarinn Guðni Sigþórsson umkringdur Gróttumönnum.
Þrenna í fyrsta leik tíma-
bilsins á Seltjarnarnesi
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Stjarnan tilkynnti í gær að félagið
hefði samið við knattspyrnukonuna
Katrínu Ásbjörnsdóttur um að leika
með liðinu í sumar. Katrín lék með
KR í fyrra en hafði gælt við þá til-
hugsun að taka sér frí frá boltanum
í sumar. Stjarnan hafði sett sig í
samband við Katrínu fyrr í vetur í
þeirri von að fá hana aftur til fé-
lagsins.
„Nei ég hef ekki verið að æfa
með liðinu. Ég hafði ætlað mér að
taka mér frí frá fótboltanum á
þessu keppnistímabili. Stjarnan
hafði samband nokkrum sinnum og
mér leist vel á það sem þau eru að
gera. Hvort sem það er stefnan
varðandi liðið, þjálfarinn eða leik-
mannahópurinn. Ég ákvað bara að
slá til og hlakka til að byrja að æfa
með þeim. Vonandi get ég hjálpað
þeim eitthvað,“ sagði Katrín þegar
Morgunblaðið hafði samband við
hana í gær.
„Það var annað sem gekk fyrir
hjá mér í vetur. Ég var í þungu
námi og þurfti að einbeita mér að
því. Nú er það búið og þá opnast
möguleiki fyrir fótboltann sem er
bara gott.“
Katrín er öllum hnútum kunnug í
Garðabænum
eftir að hafa leik-
ið með Stjörn-
unni á árunum
2016 til 2018 og
skoraði þá 28
mörk fyrir liðið í
efstu deild. Ís-
landsmeistaratit-
ilinn vann hún
með liðinu árið
2016. Hún veit
því að hverju hún gengur.
„Já algerlega. Ég þekki félagið.
Nú er annar þjálfari og önnur
stjórn en þegar ég var síðast. En ég
kannast við nokkra leikmenn og
þekki auðvitað umhverfið. Ég er
ánægð með þessa ákvörðun og er
bara spennt fyrir sumrinu,“ sagði
Katrín ennfremur. Hún á að baki
þrettán ára meistaraflokksferil frá
því hún lék fyrst með KR árið 2008.
Hún lék með Vesturbæjarliðinu
til 2011 en síðan með Þór/KA 2012
til 2014, með Klepp í Noregi hluta
úr tímabili og með Stjörnunni 2016
til 2018.
Eftir ársfrí lék Katrín með KR-
ingum í fyrra og hún hefur nú sam-
tals leikið 147 leiki í efstu deild og
skorað í þeim 65 mörk. Hún á að
baki 19 A-landsleiki og 27 leiki með
yngri landsliðum Íslands.
„Vonandi get ég
hjálpað eitthvað“
Katrín
Ásbjörnsdóttir