Fréttablaðið - 16.10.2021, Page 36
Ég hef tekið
sæbjúgnahylkin í
tvö ár og fer allra minna
ferða án óþæginda. Það
er algjör bylting.
Magnús Friðbergsson mælir
með sæbjúgnahylkjum frá
Arctic Star, en hann finnur
mun á sér eftir að hann fór
að nota þau. Sæbjúgu inni-
halda yfir fimmtíu tegundir
af næringarefnum.
Magnús Friðbergsson mælir með
sæbjúgnahylkjum frá Arctic Star, en
hann finnur mun á sér eftir að hann
fór að nota þau. Sæbjúgu innihalda
yfir fimmtíu tegundir af næringar
efnum.
Í Kína eru sæbjúgu þekkt sem
heilsubótarfæði og notuð til bóta
við hinum ýmsu meinum. Kín
verjar kalla sæbjúgu gjarnan „gin
seng hafsins“ og til eru sagnir um
notkun sæbjúgna þar fyrir meira en
þúsund árum.
Arctic Star sæbjúgnahylkin inni
halda yfir fimmtíu tegundir af nær
ingarefnum sem geta haft jákvæð
áhrif á lífeðlisfræðilega starfsemi
mannslíkamans, til dæmis er mikið
kollagen í þeim, en það er eitt helsta
uppbyggingarprótein líkamans.
Finnur mikinn mun á sér
Á síðustu árum hefur Arctic
Star sérhæft sig í þróun á fæðu
bótarefnum, svo sem framleiðslu,
markaðssetningu og sölu á hágæða
sæbjúgnahylkjum. Hylkin eru
framleidd úr íslenskum, hágæða,
villtum sæbjúgum sem eru veidd í
Atlantshafinu.
Magnús Friðbergsson hefur
tekið sæbjúgnahylkin frá Arctic
Star undanfarin ár. „Vinur minn
kynnti mig fyrir sæbjúgnahylkj
unum og þar sem ég hafði lengi
verið slæmur í hnjám, með liðverki
og lítið getað beitt mér, ákvað ég að
prófa. Tveimur til þremur vikum
seinna fann ég mikinn mun.
Nú hef ég tekið sæbjúgnahylkin
í tvö ár og fer allra minna ferða án
óþæginda. Það er algjör bylting
frá því sem áður var. Nú get ég
gert hluti eins og að fara í langar
gönguferðir, sem ég gat varla gert
áður. Að minnsta kosti gerði ég
það ekki með bros á vör og það tók
mig langan tíma að jafna mig eftir
álag,“ útskýrir hann. Magnús, sem
er 71 árs, hafði fengið að heyra frá
lækni að mikið slit væri í hnjám
hans og ekki væri von á að það
gengi til baka. „Hann sagði mér að
kíkja á fæðingardaginn minn og
að ég gæti ekki búist við að fara
aftur í tíma. Mér fannst vont að
heyra þetta og var því tilbúinn að
prófa ýmislegt sem gæti mögulega
lagað þetta. Sæbjúgnahylkin frá
Arctic Star virka mjög vel á mig og
ég mæli með að fólk prófi þau.“ n
Arctic Star sæbjúgnahylki+D3 fást
í flestum apótekum og heilsubúð-
um ásamt Hagkaupum, Fjarðar-
kaupum og á Heimkaup.is.
Sæbjúgnahylkin eru bylting
Magnús er betri í hnjám og finnur minna fyrir liðverkjum eftir að hann fór að taka
sæbjúgnahylkin. Hylkin eru nú komin í nýjar umbúðir eins og sjá má á myndinni.
Þegar rökkva tekur og
veturinn fer að minna á sig
er ekkert dásamlegra en að
kalla saman saumaklúbb-
inn, matarklúbbinn eða bara
góða vini heim í kósíheit
og ljúffengar kræsingar við
kertaljós.
sjofn@frettabladid.is
Sig ríður Björk Braga dótt ir, eða Sirrý
eins og hún er yf ir leitt kölluð, hefur
byggt upp öfl ugt fræðslu starf fyr ir
áhuga menn um matseld og kræs
ing ar ásamt eiginmanni sínum,
Sigurði Grendal Magnússyni, í Salt
Eldhúsi og kann svo sannarlega að
gleðja sína þegar kemur að klúbba
kvöldum. Sirrý veit vel að með
ljúffengum kræsingum verður sam
veran eftirminnilegri og gleðilegri,
hægt er að snúa máltækinu „Maður
er manns gaman“ við í „Matur er
manns gaman“. Sirrý er matreiðslu
maður og fyrrverandi ritstjóri
Gestgjafans og annálaður sælkeri
í áranna rás. Hér deilir Sirrý með
lesendum nokkrum skotheldum
uppskriftum sem eiga vel við á fal
legum haust og vetrarkvöldum.
Rauðrófuhummus
300 g rauðrófur, afhýddar og
skornar í bita
1 dós kjúklingabaunir
1 tsk. kumminduft
1 lítill hvítlauksgeiri
2 msk. tahini
1 msk. Pomegranate Molasses
(má sleppa)
½ sítróna, safinn
Ofan á: granateplakjarnar
Setjið rauðrófurnar í bakka með
álpappír, dreypið ólífuolíu yfir
og saltið. Hyljið rófurnar með
pappírnum og bakið þetta í 3040
mínútur. Sigtið safann frá kjúkl
ingabaununum og geymið safann.
Látið mesta hitann rjúka úr þeim
og setjið síðan í matvinnsluvél
ásamt öllu í uppskriftinni. Maukið
vel saman og bætið 23 mat
skeiðum af kjúklingasafanum í svo
þið fáið mjúkt mauk. Setjið í skál
og stráið granateplakjörnum yfir
í lokin.
Grænbaunahummus
150 g frosnar grænar baunir, af-
þíddar
1 dós kjúklingabaunir
3 stilkar af ferskri myntu, bara
blöð notuð
1 lítill hvítlauksgeiri
2 msk. tahini
1 sítróna, safi af henni
Salt eftir smekk
Ofan á:
50 g fetaostur
1 msk. ólífuolía
Hellið safanum af kjúklingabaun
unum og geymið hann. Setjið allt
hráefni nema fetaost og olíu í mat
vinnsluvél og maukið vel. Bætið
23 matskeiðum af baunasafanum
út í ef þarf til að fá mjúkt mauk.
Smakkið til með salti. Setjið í skál
og kurlið fetaost ofan á. Dreypið
ólífuolíu ofan á í lokin.
Gulróta-baunahummus
500 g gulrætur, afhýddar ef þarf
og sneiddar
3 msk. ólífuolía
½ appelsína, safinn
½ tsk. kumminfræ
½ tsk. kóríanderfræ
1 dós smjörbaunir (má líka nota
skyr)
1 lítill hvítlauksgeiri
salt og sítrónusafi eftir smekk
Ofan á: 2 msk. dukkah
Hitið ofninn í 180°C (170 á
blástur). Leggið bökunarpappír
í botninn á ofnskúffu og setjið
gulrætur, ólífuolíu , appelsínu
safa og örlítið salt í hana. Bakið í
30 mínútur, látið kólna svolítið.
Þurrristið kummin og kórían
derfræ á pönnu og malið síðan í
morteli eða kryddkvörn. Hellið
safanum af baununum og geymið.
Setjið nú allt (nema dukkah) í
matvinnsluvél og maukið fínt.
Bætið 23 matskeiðum af bauna
safanum út í ef þarf til að fá mjúkt
mauk. Setjið í skál og stráið duk
kah og ef til vill örlítið af ólífuolíu
ofan á.
Indverskt tómat-chutney
4 msk. olía
1 msk. kumminfræ
1 msk. svört sinnepsfræ
5 stk. indversk karrýlauf (fást
frosin í Asíu-búðum, má sleppa)
6 stórir tómatar, saxaðir
1 msk. ferskt engifer
2 hvítlauksgeirar, saxaðir
½ tsk. túrmerikduft
2 græn chili, saxað, nota fræ með
ef þið viljið hafa þetta sterkt
Setjið olíuna í pott og steikið
kumminfræ, sinnepsfræ og
karrýlauf þar til allt fer að ilma
vel. Bætið þá öllu út í og látið
sjóða góða stund saman. Setjið
lok á pottinn og látið þetta malla
í 1520 mínútur, hrærið í annars
lagið. Takið lokið af og ef blandan
er vatnskennd sjóðið áfram í 5
mínútur í viðbót. Hellið í krukkur,
þetta er magn í tvær meðalstórar
krukkur, lokið strax.
Geymist í einn mánuð í ísskáp.
Flatbrauð með smjöri –
Katmer
300 g hveiti
2 dl mjólk
1 tsk. salt
100 g smjör, mjúkt
Setjið hveiti, mjólk og salt í hræri
vélaskál og hnoðið allt vel saman
í samfellt deig. Breiðið klút yfir
og látið bíða í 10 mínútur. Skiptið
deiginu í 12 parta. Fletjið út köku
í ca. 1416 cm í þvermál. Penslið
smjöri á kökuna og rúllið upp í
þétta rúllu eins og pönnuköku.
Rúllið lengjunni upp í snúð og
rúllið aftur út í þunna köku, um
það bil 10 cm. Steikið kökurnar
á heitri pönnu þar til gullnar og
fallegar. Það þarf ekki að nota feiti
á pönnuna frekar en vill, ágætt að
þurrsteikja þær. n
Hollir og góðir réttir fyrir kósíheitin
Rauðrófu-
hummus,
grænbauna-
hummus,
gulróta-bauna-
hummus, ind-
verskt tómat-
chutney og
flatbrauð með
smjöri – Katmer.
Sigríður BJörk
Bragadóttir
býður hér upp
á skemmtilegt
meðlæti fyrir
kósíkvöld.
4 kynningarblað A L LT 16. október 2021 LAUGARDAGUR