Fréttablaðið - 16.10.2021, Page 92

Fréttablaðið - 16.10.2021, Page 92
Cybertruck, Roadster og Sema trukkurinn fara í fram­ leiðslu árið 2023. Smíðuð verður sérstök Evrópuútgáfa Cybertruck og von er á fyrstu bílunum frá verksmiðjunni í Berlín í lok þessa árs. njall@frettabladid.is Að sögn Elon Musk, forstjóra Tesla, mun fjöldaframleiðsla hefjast á Cybertruck pallbílnum árið 2023. Áður hafði verið sagt að bíllinn kæmi ekki í sölu fyrr en seint á næsta ári en líklegt er talið að fram­ leiðsla geti hafist á honum seint á næsta ári. Þessar fréttir komu í kjöl­ far hluthafafundar Tesla en þar var einnig tilkynnt að Tesla Semi flutn­ ingabíllinn og Tesla Roadster sport­ bíllinn færu einnig í framleiðslu árið 2023. Musk tilkynnti einnig að höfuð­ stöðvar Tesla myndu f lytja frá Kaliforníu til Austin í Texas á næst­ unni. Að sögn Musk hefur árið í ár einkennst af skorti á íhlutum, og þá ekki aðeins tölvukubbum. „Mjög líklegt er að við sjáum framleiðslu á Cybertruck hefjast í lok árins 2022. Vonandi getum við einnig hafið framleiðslu á Semi og Roadster árið 2023 líka, og verðum laus við skort á íhlutum árið 2023, en ég er von­ góður um það,“ sagði Musk við þetta tækifæri. Þessar fréttir munu ekki hafa áhrif á evrópska markaðinn þar sem ólíklegt er talið að Cybertruck fari á markað þar. Er það vegna strangra Evrópureglna um öryggi fótgangandi farþega, en Cyber­ truck þykir ekki góðu í því tilliti. Hvað það þýðir fyrir þá sem pantað hafa Cybertruck í Evrópu og á Íslandi á þó eftir að koma í ljós en alls hefur meira en hálf milljón ein­ taka verið pöntuð af bílnum. Áætlað er að hann verði framleiddur í 250­ 300.000 eintökum á ári svo að taka mun tíma að sinna þeim biðlista. Að sögn Musk er þó verið að íhuga að koma með minni útgáfu Cyber­ truck á markað sem yrði seldur utan Bandaríkjanna. Fyrir Evrópumarkað Tesla eru það ef laust góðar fréttir að fyrstu bílarnir munu rúlla út af færiband­ inu í nýrri verksmiðju Tesla í Berlín í nóvember eða desember. Lét Elon Musk hafa það eftir sér á hátíð sem haldin var í verksmiðjunni um síðustu helgi. „Það að byrja fram­ leiðslu er auðveldi hlutinn, en að ná fjöldaframleiðslu er sá erfiði.“ Hann áætlar að verksmiðjan geti framleitt 5­10.000 bíla á viku og meðal þeirra verði einnig Semi f lutningabíllinn, en hann verður einnig framleiddur í Berlín. ■ Cybertruck fer í framleiðslu 2023 Cybertruck pallbíllinn verður ekki framleiddur með þessu lagi fyrir Evrópumarkað vegna strangari árekstrarprófa meðal annars, en brúnir hans þykja of hvassar fyrir fótgangandi vegfarendur og bíllinn líka of stór á markaðinn. njall@frettabladid.is Mercedes­Benz er um þessar mund­ ir að prófa nýja jepplingsútgáfu EQE sem áætlað er að fari á markað á næsta ári. Nýlega náðust myndir af bílnum við prófanir í Þýskalandi, en bíllinn á meðal annars að keppa við Tesla Model X. Bíllinn verður búinn nýjum MEA undirvagni og verður bíllinn að öllum líkindum öflugri heldur en EQC sem er 402 hestöfl. Drægi nýs EQE jepplings verður líka meira og verður í kringum 600 km. Engar dagsetningar eða frekari tækni­ upplýsingar hafa verið gefnar upp um nýja bílinn enn þá. ■ Njósnamyndir af EQE jepplingnum Njósnamyndin sýnir bíl sem er ekki ólíkur EQC bílnum í útliti. njall@frettabladid.is Kawasaki mótorhjólaframleið­ andinn ætlar sér greinilega að vera í fararbroddi þegar kemur að raf­ væðingu mótorhjóla. Í skjali um framtíðaráætlanir Kawasaki kemur fram að ætlunin er að öll framleiðsla þeirra verði orðin rafvædd árið 2035. Einnig hefur framleiðandinn látið hafa eftir sér að tíu ný rafhjól verði kynnt fyrir 2025. Hvaða hjól það verða hefur ekki verið tilkynnt ennþá en getgátur eru uppi um að allavega tvö þeirra verði torfæru­ hjól. Nær öruggt má telja að einhver þeirra verði tvinnhjól, og þá bæði búin bensínmótor og rafmótor. Kawasaki sýndi tilraunarafhjól á EICMA mótorhjólasýningunni 2019 en það vakti ekki mikla lukku þá, enda þótti það kraftlaust miðað við samkeppnina. Þrátt fyrir það hafa komið upplýsingar síðan sem gefa tilefni til þess að ætla að Kawasaki sé full alvara, eins og sú staðreynd að Kawasaki hefur þróað rafdrifið mótorhjól með gírkassa. Ef laust verður forvitnilegt að fylgjast með fréttatilkynningum frá Kawasaki á næstunni. ■ Kawasaki rafvæðist fyrir 2035 Tilraunahjól Kawasaki sem frumsýnt var 2019 gefur innsýn í hugsanlegt útlit rafhjóla þeirra í framtíðinni. Ætlunin er að öll fram- leiðslan verði orðin rafvædd 2035 og að 10 ný rafhjól verði kynnt fyrir 2025. Musk tilkynnti einn- ig að höfuðstöðvar Tesla myndu flytja frá Kaliforníu til Austin í Texas. Áætlað er að nýr EQE jepplingur komi á markað 2022. Nýjustu fregnir herma að næsta rafvædda hjól Kawasaki verði blendingshjól með rafmótor og bensínmótor byggt á Ninja 400 götuhjólinu. INFLÚENSUBÓLUSETNINGAR ERU HAFNAR HJÁ HEILSUGÆSLU HÖFUÐBORGARSVÆÐISINS FORGANGSHÓPAR TIL 31. OKTÓBER Þau sem tilheyra þessum hópum eru velkomin á heilsugæsluna sína virka daga milli kl. 8:30 og 15:30. Ekki þarf að panta tíma. Munið eftir grímu og best er að vera í stuttermabol. • Þau sem eru 60 ára eða eldri • Fólk með langvinna sjúkdóma, s.s. hjarta-, lungna-, nýrna- og lifrarsjúkdóma, sykursýki, illkynja sjúkdóma og aðra ónæmisbælandi sjúkdóma • Barnshafandi konur Þessir hópar fá bóluefnið frítt en greiða komugjald, 500 kr., nema 67 ára og eldri og öryrkjar. A.m.k. fjórtán dagar þurfa að líða á milli bólusetningar gegn COVID-19 og inflúensubólusetningar. ALLIR AÐRIR FRÁ 1. NÓVEMBER Þá eru allir velkomnir í inflúensubólusetningu á heilsugæslunni sinni, virka daga milli kl. 8:30 og 15:30, án tímapöntunar. Þau sem eru yngri en 60 ára og tilheyra ekki forgangshópum greiða bæði komugjald, 500 kr, og bóluefnið. Nánari upplýsingar: heilsugaeslan.is, netspjall á heilsuvera.is eða heilsugæslan þín. BÍLAR FRÉTTABLAÐIÐ 16. október 2021 LAUGARDAGUR
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.