Morgunblaðið - 29.05.2021, Qupperneq 1
Presturinnog Dylan
Afsláttardagarí Netapó
Séra Henning E. Magnússon skoðar
trúarþroska í lögum Bobs Dylans
sem átti stórafmæli í vikunni. 18SUNNUDAGUR
Um gæfu-ríkan vegBeggi Morthens aðhyllist búddisma, þarsem grunnstoðin er umburðarlyndi. Hannræðir einnig um tónlistina, sem er honumalltaf jafn kær, og veikindi sem hannhefur glímt við að undanförnu. 12
30. MAÍ 2021
Díana &
vélráð
BBC
Fyrir rúmum aldarfjórðungi
birti breska ríkisútvarpið BBCafdrifaríkt viðtal við Díönuprinsessu af Wales, semskók breska konungdæmið.Nú er komið á daginn að
BBC beitti hana blekkingumtil þess að fá viðtalið. 8
L A U G A R D A G U R 2 9. M A Í 2 0 2 1
.Stofnað 1913 . 125. tölublað . 109. árgangur .
HEKLA · Sími 590 5000 · Laugavegur 170 · www.hekla.is/audisalur
Rafmögnuð nærvera
sem tekið verður eftir
Q4 e-tron Verð frá 5.790.000 kr.
KRUFNING Á
SJÁLFSMORÐI
Í KASSANUM
SIGRUÐU
EFTIR HARÐA
RIMMU
EINVÍGINU LOKIÐ 48NÝTT OG ÖGRANDI 50
Esther Hallsdóttir
esther@mbl.is
Læknafélag Íslands hefur vísað
ágreiningi við Landspítalann um
viðbótarálagsgreiðslur til lækna
vegna aukavakta til Félagsdóms.
„Þetta er ákvæði sem hefur verið í
kjarasamningi lækna frá 2002 um að
ef fyrirvari á breytingu á vakt er
skemmri en 24 tímar er greidd við-
bótarálagsgreiðsla fyrir þessa nýju
vakt. Nú hefur Landspítalinn tekið
það upp einhliða að túlka þetta þann-
ig að það þurfi ekki að greiða það,
með rökum sem við skiljum ekki,“
segir Reynir Arngrímsson, formaður
Læknafélags Ís-
lands.
Mikil óánægja
meðal lækna
Reynir segir
mikla óánægju
vera meðal þeirra
lækna sem breyt-
ingarnar hafa
áhrif á. Þær komi
sérstaklega illa
við yngri almenna lækna sem eru
mikið á staðarvöktum sem krefjast
þess að læknirinn sé í húsi allan vakt-
artímann.
Hann segir ákvörðun Landspítal-
ans koma flatt upp á Læknafélagið.
„Það hafa aldrei verið neinar deilur
um þetta, um framkvæmdina eða
greiðslurnar, og Landspítalinn hefur
aldrei tekið þetta upp í samráðshópi
Landspítala og Læknafélagsins. Það
kom okkur algjörlega í opna skjöldu
að þeir vildu breyta þessu,“ segir
Reynir. „Við sjáum ekki nein önnur
úrræði en að fara með þetta fyrir Fé-
lagsdóm.“
Læknar verði að mæta á vaktir
Spurður hvort hann hafi heyrt af
því að læknar neiti að mæta á auka-
vaktir eftir breytinguna segir Reynir
að það sé skýrt í kjarasamningum
lækna að þeim beri að vinna yfirvinnu
og taka aukavaktir þegar þörf er á.
Læknafélagið hafi ráðlagt læknum
að mæta á vaktirnar séu þeir boðaðir
en gera jafnframt fyrirvara um að
þeir telji sig eiga rétt á viðbótar-
greiðslu. „Við göngum út frá því að
félagsdómur muni falla okkur í vil og
þá verði þetta gert upp,“ segir hann.
Læknafélagið sendi áskorun á for-
stjóra spítalans um að halda óbreyttu
greiðslufyrirkomulagi á meðan beðið
er úrskurðar. Það hafi fengið þau
svör að forstjórinn myndi meta málið
með framkvæmdastjórn spítalans.
Ekki náðist í forsvarsmenn Land-
spítala við vinnslu fréttarinnar
Kjaradeila um aukavaktir
- Læknafélag Íslands stefnir Landspítala fyrir Félagsdóm vegna ágreinings um
greiðslur fyrir aukavaktir - Ákvörðun spítalans kom flatt upp á Læknafélagið
Reynir
Arngrímsson
_ Rútufyrirtæki sjá fram á bjartari
tíma í sumar og hafa bókanir aukist
jafnt og þétt síðustu misseri. Morg-
unblaðið ræddi við Þóri Garðars-
son, stjórnarformann Gray Line,
Árna Gunnarsson, framkvæmda-
stjóra Iceland Travel, og Björn
Ragnarsson, framkvæmdastjóra
Kynnisferða, sem allir voru sam-
mála um að tíðin yrði bráðum betri.
Aðsókn í einstaklingsferðir hefur
þó aukist í stað rútuferða. »6
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Rútur Bjartari horfur eru fram undan.
Haustið verður
betra en sumarið
Þorsteinn Már Baldvinsson, stjórn-
arformaður Síldarvinnslunnar,
reiknar með að fleiri sjávarútvegs-
fyrirtæki muni feta í fótspor Síldar-
vinnslunnar og skrá sig á markað á
næstu misserum.
Tilefnið er að Síldarvinnslan var í
fyrradag hringd inn í kauphöllina við
hátíðlega athöfn um borð í togar-
anum Berki II NK við frystihús fé-
lagsins í Neskaupstað.
Eftir annasaman dag settist Þor-
steinn Már niður með Morgun-
blaðinu en hann telur aðspurður að
dreifðari eignaraðild geti verið liður
í að skapa meiri sátt um greinina.
„Ég held að útboð Síldarvinnsl-
unnar verði svolítill prófsteinn á það
hvort fleiri fyrirtæki í sjávarútvegi
fylgja í kjölfarið,“ segir hann. »22
Morgunblaðið/Baldur
Uppbygging Framkvæmdir við
athafnasvæði Síldarvinnslunnar.
Útgerðum í
kauphöllinni
gæti fjölgað
Um helgina lýkur Nýsköpunarviku, sem fjöl-
mörg fyrirtæki og stofnanir koma að. Í tilefni
þess bauð sprotafyrirtækið Feed the Viking í sjó-
sund og súpu í Nauthólsvíkinni. Meðal þeirra
sem stungu sér til sunds var forseti Íslands,
Guðni Th. Jóhannesson, og virðist hann ekki
hafa látið neinn bilbug á sér finna. Hér sést hann
ásamt Eddu Konráðsdóttur, einum stofnanda
Nýsköpunarviku, alsæll á leiðinni aftur í land.
Morgunblaðið/Eggert
Stakk sér til sunds með súpuþyrstum víkingum