Morgunblaðið - 29.05.2021, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 29.05.2021, Blaðsíða 56
Mótettukórinn, sem áður starfaði við Hallgrímskirkju í Reykjavík, heldur vortónleika sína í Langholtskirkju í dag, laugardag, kl. 17. Stjórnandi er Hörður Áskelsson. Á efnisskránni eru fimm til átta radda mótettur og sálmavers eftir J.S. Bach og H. Schütz. Auk þess syng- ur kórinn útsetningar á bænum Hallgríms Péturssonar eftir Jón Hlöðver Áskelsson og Smára Ólason og orgel- verk eftir J.S. Bach. Lára Bryndís Eggertsdóttir leikur einleik á Noack-barokkorgel Langholtskirkju. Tónleik- arnir eru samvinnuverkefni Mótettukórsins og Listvina- félagsins á 39. starfsári þeirra beggja. Vortónleikar Mótettukórsins í dag Fyrir líkama og sál w w w. i t r. i s S ýnum hver t öðru tillit s semi og njótum líf sins í laugunum L augarnar í Rey k javí kLAUGARDAGUR 29. MAÍ 149. DAGUR ÁRSINS 2021 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 Í lausasölu 1.268 kr. Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr. PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr. Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Íslenska karlalandsliðið í fótbolta sem mætir Mexíkó í vináttulandsleik í Arlington í Texas í nótt er blanda af reyndum leikmönnum og óreyndum og ljóst að nokkrir munu fá tækifæri til að spila sinn fyrsta A-landsleik gegn mjög sterkum andstæðingum. Aron Einar Gunn- arsson, Birkir Bjarnason og Kolbeinn Sigþórsson eru allir í íslenska liðinu en einnig margir sem ekki hafa spilað landsleik til þessa. »49 Blandað íslenskt lið mætir Mexíkó ÍÞRÓTTIR MENNING Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Eggert Guðmundsson hefur lengi ekki komist út af heimili sínu en ber sig vel. „Dóttir mín kaupir til búsins og eldamennskan hjá mér er frekar einföld; ég sýð mér kjöt og fisk til skiptis,“ segir kappinn, sem verður 100 ára á morgun. „Ég get orðið ekkert hreyft mig, er svo stirður, og svo þarf ég að fá mér gleraugu. Ég átti að vera búinn að því fyrir löngu en hélt að ég færi að drep- ast og það tæki því ekki. En nú verð ég að fara að drífa í því.“ Eftir að Eggert hætti að vinna sjötugur byrjaði hann að mála landslagsmyndir. „Ég hef dundað við þetta en er eiginlega hættur,“ segir hann um málverkin sem hann hefur einkum málað með olíu- og akríllitum. „Ég hafði ekkert að gera en hafði lengi haft löngun til að mála og lét af því verða. Kannski lifnar aftur yfir mér ef ég fæ mér gleraugu.“ Sjómennskan heillaði Foreldrar Eggerts, Guðmundur Eyjólfsson og Þórunn Jónsdóttir, bjuggu á Starmýri í Suður-Múlasýslu og þar ólst hann upp. Systkinin voru níu og þar af þrennir tví- burar. „Ég byrjaði snemma að fara á sjóinn með pabba, um fermingaraldurinn,“ rifjar hann upp. „Var fyrst á árabátum en síðan á trillu með Guðjóni Eyjólfssyni, föð- urbróður mínum á Framnesi við Berufjörð. Ég var með honum eina vertíð, en hann dó stuttu seinna.“ Veðrið gerði mönnum oft lífið leitt á sjónum og Styrm- ishöfn gat verið erfið. „Höfnin var ekki góð og það þurfti að sæta lagi við að komast þar inn. En fiskurinn var stundum alveg uppi við landsteina og menn sóttu í að fá nýjan fisk, orðnir leiðir á kjötinu þegar fór að vora. Þeg- ar gott var veður komu menn af næstu bæjum og sóttu í það að fara á sjóinn með okkur.“ Seinna fór Eggert á síldveiðar frá Norðfirði og eftir að hann flutti suður fór hann í Hvalfjarðarsíldina. „Ég var meðal annars á Birni Jónssyni í þrjú ár og eitt síldar- sumar á Eldborginni 1. Svo var ég á síld fyrir austan á báti frá Hafnarfirði, fór líka á línu og troll, en síðustu 20 árin var ég á handfæraskaki frá Reykjavík.“ Fátt annað en sjómennska kom til greina hjá Eggerti, en eftir að hann kom í land vann hann í kerskála í ál- verinu í Straumsvík í 18 ár. „Ég fæddist við sjóinn og sjórinn blasti við þegar litið var út um gluggann, hann kallaði stöðugt á mig og ég þráði hann,“ segir Eggert. Sjómannslífið hafi enda átt vel við sig og sérstaklega hafi síldveiðarnar verið mikið ævintýri. „Ég hafði líka ánægju af handfærunum en það var erfið vinna.“ Segist samt aldrei hafa lent í lífsháska. „En ég var lengi kvalinn í maga og magaveikin háði mér mikið, ég var kvalinn í þessu helvíti. Þegar ég var á færunum og færið rann út eftir að ég var búinn að draga fiskinn inn ældi ég oft mik- ið á meðan. Það var ekki glæsilegt en ég hef ekki fundið til síðan ég fór á spítala og var skorinn upp rúmlega fimmtugur. Þeir tóku 60% af maganum, sagði lækn- irinn.“ Töluvert langlífi er í fjölskyldunni, en Eggert segist ekki hafa sérstaka skýringu á því. „Við krakkarnir vor- um alltaf á ferðinni, mikið að hlaupa úti og í leikjum. Það segir kannski eitthvað.“ Morgunblaðið/Eggert Tímamót Eggert Guðmundsson hefur málað mörg landslagsmálverk og verður 100 ára á morgun. Ekki til setunnar boðið - Eggert Guðmundsson verður 100 ára á morgun
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.