Morgunblaðið - 29.05.2021, Blaðsíða 33
MINNINGAR 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. MAÍ 2021
✝
Kristín Guð-
ríður Þorleifs-
dóttir fæddist á
Þverá í Eyjahreppi
29. nóvember
1923. Hún lést í
Brákarhlíð, Borg-
arnesi, 18. maí
2021. Foreldrar
hennar voru Þor-
leifur Sigurðsson,
f. í Syðra-Skógar-
nesi 1888, d. 1958
og Halldóra Ásgeirsdóttir, f. á
Rauðkollsstöðum 1886, d. 1962.
Þau hófu búskap í Syðra-
Skógarnesi en bjuggu lengst af
eftir það á Þverá. Tvö elstu
systkini Kristínar létust í
bernsku, Ásgeir Jóhann, f.
1911, d. 1914 og Kristín Guð-
ríður, f. 1912, d. 1919. Svo kom
Ásgeir Jóhann, f. 1921, d. 2007.
Það er tilviljun að systurnar og
alnöfnurnar voru báðar fæddar
29. nóvember.
Kristín giftist 16. ágúst 1947
Jóni Gunnarsyni, f. á Kirkju-
bóli í Önundarfirði 8. ágúst
1921, d. á Þverá 6. ágúst 1991.
f. 1955. Þeirra börn eru Hall-
dóra, Linda Björk, Árni Sig-
urður, Þorleifur og Anna Rún.
Barnabörn þeirra eru ellefu.
5. Sigurður Rúnar, f. 1957,
maki Ragnheiður Lýðsdóttir, f.
1959. Synir þeirra Atli og Dav-
íð. Ásdís Írena, barnsmóðir
Dóra Kristín Traustadóttir, f.
1961, Telma, barnsmóðir Hólm-
fríður Berglind Birgisdóttir, f.
1967. Barnabörn þeirra eru
þrjú.
6. Súsanna Þórkatla f. 1959,
maki Gylfi Sigurðsson, f. 1958.
Dætur þeirra: Katrín og Nína
Kolbrún. Hákon Örn, barns-
faðir Árni Kr. Einarsson, f.
1959. Barnabörn þeirra eru
tvö.
7. Sólveig Gyða, f. 1965,
maki Jón Ásgeir Einarsson, f.
1959. Sonur Sólveigar Gyðu,
með Kristjáni Ragnarssyni,
Ragnar, f. 1990, og með Thor-
vald Smára: Hafsteinn Þor-
berg, f. 1995. Dætur Jóns eru
Þórey Huld og Vala Rún.
Barnabörn þeirra eru fjögur.
Kristín ólst upp á Þverá í
Eyjahreppi við hefðbundin bú-
störf þess tíma. Hún hlaut sína
menntun heima í upphafi, þá
tók við farskóli sem þar var
rekinn eins og víða til sveita.
Síðan lá leiðin suður til Reykja-
víkur í Kvennaskólann. Kristín
lærði að spila á orgel og spilaði
um árabil við allar sóknar-
kirkjur Miklaholtsprestakalls
frá fimmtán ára aldri en lengst
við Rauðamelskirkju.
Kristín og Jón hófu búskap í
Skála 20 sem var braggi við
Háteigsveg í Reykjavík. Þau
fluttu að Þverá 1950 og bjuggu
þar með hefðbundinn búskap
og vélaútgerð til 1991, þegar
Jón dó. Eftir að þau brugðu búi
starfaði hún við mötuneyti
Laugargerðisskóla. Eftir að
Jón lést flutti hún til Reykja-
víkur en var áfram á Þverá yf-
ir sumartímann. Kristín og Ás-
geir bróðir hennar voru mjög
samrýmd og dvaldi Ásgeir mik-
ið hjá henni á Þverá. Kristín
var mikill ættfræðigrúskari og
hafði óvenju sterkt minni. Hún
vann m.a. hluta Rauðkolls-
staðaættar, mikils rits sem
liggur í handriti nánast tilbúið
til prentunar.
Kristín átti sæti í hrepps-
nefnd Eyjahrepps fyrst
kvenna.
Ævistarf Kristínar var eins
og margra kvenna af hennar
kynslóð búskapur og barna-
uppeldi.
Útförin fer fram frá Borg-
arneskirkju í dag, 29. maí
2021, klukkan 11. Jarðsett
verður í Miklaholti.
Foreldrar hans
voru Gunnar Guð-
mundsson, f. 1898,
d. 1987, uppalinn í
Borgarfirði og á
Reykjanesi. Móðir
Guðmunda Jóna
Jónsdóttir, f. 1905,
d. 1991, frá fyrr-
nefndu Kirkjubóli.
Börn þeirra:
1. Ásgeir Gunn-
ar, f. 1948, maki
Guðrún Gunnarsdóttir, f. 1949.
Þeirra börn eru Kristín Guð-
rún, Erla Ósk og Gunnar.
Barnabörn þeirra eru fjögur.
2. Þorleifur Alexander, f.
1950, d. 1980, maki Alda Gísla-
dóttir, f. 1953. Sonur Jón Þór.
Sonur Öldu af seinna hjóna-
bandi er Ingi Einar Jóhann-
esson.
3. Guðmundur Þorsteinn, f.
1951. Fyrrverandi maki Svan-
hildur Eyjólfsdóttir, f. 1953.
Synir Svanhildar eru Þór og
Snorri. Barnabörn sex.
4. Halldór Kristján, f. 1955,
maki Áslaug Guðmundsdóttir,
Ungleg Kristín er í kvöld
af henni ljómi stafar.
Þó hafi hún lifað hálfa öld
hérna megin grafar.
Hún giftist þúsund þjala smið
þau hafa gæfu hlotið.
Þeirra framlag þökkum við
þess hafa margir notið.
Átthaganna ástin heit
er alltaf tryggðar merki.
Kristín elskar sína sveit
og sýnir það í verki.
Hér eru öll þín æskuspor
áin til þín kallar.
Hér þú sýnir þrek og þor
og þrautir vinnur allar.
Ellin verður eflaust mát
þó aðeins gráni hárin.
Njóttu lífsins nett og kát
næstu fimmtíu árin
(Margrét Guðjónsdóttir,Dalsmynni)
Nú hefur hún mamma kvatt
þótt árin yrðu ekki hundrað,
eins og segir í kveðju Mar-
grétar, þegar hún hélt í sum-
arlandið sólskinsdaginn 18. maí.
Hún var fædd á Þverá og sleit
þar sínum barnsskóm. Má segja
að hún hafi búið á Þverá nær
alla tíð eða til 68 ára aldurs,
með viðkomu í Reykjavík þar
sem hún stundaði nám við
Kvennaskólann, fann föður okk-
ar og lagði grunn að afkom-
endum sínum. Þótt hún flyttist
á mölina dvaldi hún löngum í
sveitinni sinni og nutu mörg
barnabarna hennar þess að
vera þar með henni. Mamma
var mikil félagsvera og naut
þess að eiga í samskiptum við
fólk og minntist oft á hvað sam-
gangur á milli bæja í Eyja-
hreppi var alltaf góður og
hversu gott var að eiga góða
nágranna. Á þeim tíma sem for-
eldrar okkar hófu búskap var
búið á flestum bæjum í Eyja-
hreppi, heimili barnmörg og ið-
uðu af lífi.
Gestrisni var sjálfsögð á
Þverá og ekki sparað í veit-
ingum fyrir þá sem leituðu til
föður okkar varðandi viðgerð á
vélum enda gestakoma kær-
komin og þá spurt og sagðar
fréttir af bændum og búaliði.
Í fjarverum föður okkar við
vegagerð var það hún sem sá
um börn og bú, má geta þess að
þegar hann vann að því að gera
veginn um Heydal voru það
kýrnar á Þverá og handtök
hennar við mjaltir sem greiddu
fyrir olíu á jarðýtuna. Honum
hafði fundist ófært að stöðva
framkvæmdir og samdi um að
fá greitt fyrir þessa vinnu og
þau útgjöld sem fylgdu árið eft-
ir. Þannig var fólk þess tíma,
þessi kynslóð taldi ekki eftir sér
sporin.
Mamma var formaður kven-
félags Eyjahrepps um árabil og
fórst það verk vel úr hendi
enda skipulag og útsjónarsemi
henni í blóð borið.
Í dag eigum við erfitt með að
ímynda okkur þær framfarir og
breytingar sem kona á 98. ald-
ursári hefur lifað. Við getum
ekki gert okkur í hugarlund þá
útsjónarsemi og aðhald sem
hefur þurft á barnmörgu heim-
ili þar sem gestakomur voru
tíðar. Öll sú eldamennska,
þvottar og þrif ásamt því að sjá
um skepnur hefur tekið tímann
sinn og fáar lausar stundir til
að sinna sínu eða fá hvíld.
Hvar var hvíldin þín mamma
og hvar voru stundirnar þínar?
Svar hennar var; það voru
plönturnar, að setja niður tré,
bera á þau áburð, huga að þeim
og sjá þær vaxa og dafna. Fyrir
ofan æskuheimilið grær stór
skógur, minnisvarði mömmu
sem var henni kær og veitti
hvíld frá daglegu amstri. Þessi
skógur ber vinnu hennar vitni
en við sem áttum hana að
geymum í hjarta okkar minn-
ingu um móður sem alla tíð bar
velferð okkar fyrir brjósti og
vildi veg okkar sem mestan og
bestan.
Hafðu þökk fyrir allt, bestu
kveðjur í sumarlandið,
Ásgeir Gunnar,
Guðmundur Þorsteinn,
Halldór Kristján,
Sigurður Rúnar,
Súsanna og Gyða.
Elsku amma.
Takk fyrir allar stundirnar
okkar saman, ráðin, hvatn-
inguna og ástina.
Ég var ekki gömul þegar ég
fattaði að best væri að fara til
ykkar afa og sofa milli ykkar á
kalda koddanum mínum. Afi
sótti okkur stelpurnar sínar á
bílnum með öll loftnetin í Laug-
argerðisskóla. Afi dekraði við
mig og þú varst alltaf svo þol-
inmóð að kenna mér að baka
eða spila og fá að dunda með
þér í eldhúsinu uppi á gamla bæ
var hin mesta unun. Þar var
rætt um allt milli himins og
jarðar. Þú varst jafnvel þolin-
móð við mig þegar þú varst að
kenna mér að prjóna en við gáf-
umst báðar upp á því að reyna
það og hef ég aldrei lært að
prjóna. Það hefur alltaf verið
mikið hlátursefni hjá okkur. Ég
lærði það mikilvægasta af þér,
að spila og baka og vera þakk-
lát fyrir það sem ég hef.
Það var mér mikill missir
þegar afi dó og þú fluttir í höf-
uðborgina. Samgöngur urðu þá
ekki eins miklar þó að ég fengi
stundum að koma og vera hjá
þér. Þá var glatt á hjalla og oft
sem við fórum til Ásgeirs bróð-
ur þíns og ég spilaði á harm-
onikkuna með honum. Þegar ég
flutti heim frá Danmörku var
ég svo ánægð að geta heimsótt
þig reglulega og átt með þér
dýrmætar gæðastundir, við átt-
um margt sameiginlegt og gast
þú alltaf gefið mér ráð og hvatt
mig áfram.
Ég og börnunum þótti svo
undurvænt að koma til þín í
Hvassaleiti og spila bingó og fá
kaffi hjá ömmu sem alltaf tók á
móti okkur með opnum örmum
og kossum í kveðju. Eða taka
eina lauflétta vist með þér og
hinum í Hvassaleitinu. Nú ertu
hinsvegar ekki lengur á meðal
vor til að spila grand, en líkleg-
ast ertu komin vinstra megin
við afa í rúminu og þangað til
ég kem á kalda koddann á milli
ykkar sendi ég ykkur mínar
innilegustu ástarkveðjur með
vísunni sem við fórum með þeg-
ar ég hvíldi höfuð mitt á milli
ykkar afa.
Leiddu mína litlu hendi,
ljúfi Jesú þér, ég sendi
bæn frá mínu brjósti sjáðu,
blíði Jesús, að mér gáðu.
Takk fyrir allt, elsku amma.
Anna Rún, Alexander,
Halldór Gísli og
Christine Sif.
Strákur flytur fjögurra ára
gamall í sveit. Þekkir engan.
Heyrir að frændfólk býr á
Þverá, getur það verið að þessi
fallega húsmóðir, glæsileg,
svarthærð eins og ítölsk díva,
létt og glaðleg, sé af sömu kyn-
slóð og amma Anna? Þær voru
systkinadætur en 22 ár skildu
þær að.
Já, Kristín Guðríður Þorleifs-
dóttir, fædd 1923, hún Stína á
Þverá, var líklega einn síðasti
tengiliður Skógarnesættarinnar
við nútímann. Mér fannst hún
af kynslóð pabba, en þó gerði
hún sér far um að kynnast okk-
ur systkinum sem jafningjum.
Siggi Árna og Rúna og aðrir af
Stóra-Hrauns kyninu komu að
Þverá, því þar var samastaður.
Þverárrétt var miðjan á hverju
hausti, að vel heppnuðum göng-
um. Húsmóðirin á Þverá sá um
að allir fengju sitt.
Stína á Þverá var ein þeirra
húsmæðra í Eyjahreppi æsku
minnar sem héldu öllu saman.
Níu börn í Hrútsholti, ellefu í
Dalsmynni, sjö á Þverá. Það
þótti fátt í Söðulsholti að við
vorum aðeins fjögur börnin
þar. Það var því títt sótt á
næstu bæi að fá félagsskap. Á
Þverá var Jón jarðýtustjóri,
hagur jafnt á járn og tré og
strákarnir ekki síður. Stína sá
um allt innan stokks og víst
fleira líka því Jón var oft fjar-
verandi vegna sinnar vinnu.
Glettin húsmóðir, gjarnan með
spurningar á vörum, var félagi
okkar gestanna, jafnt sem
sinna barna. Hún hafði þann
eiginleika, sem ég ekki kann
að lýsa, að spyrja og svara
með glettinni kímni. Stundum
spurt með svari um leið. Hún
kunni líka þá list að ræða mál í
sveitasímann þannig að aðeins
viðmælandinn skildi.
Mamma sagði mér skemmti-
lega sögu, þegar hún og pabbi
komu vestur sumarið 1961 til að
kynna sig fyrir komandi prest-
kosningar. Þau koma að Jörfa
og þá er Stína gestkomandi þar.
Vippar sér upp á eldhúsborðið,
dökk og falleg, eins og af öðrum
heimi. Slík mynd lifir.
Stína var músíkölsk og spil-
aði sem organisti. Virðing
hennar og umhyggja og henn-
ar afkomenda fyrir kirkjunni
að Ytri-Rauðamel er falleg.
Eftir ferð á Svartafjall, ofan
við Þverá, kom gönguhópurinn
heim að Þverá fyrir nokkrum
árum. Stína var í eldhúsinu,
falleg og björt eins og alltaf.
Heimafólk var prúðbúið að lok-
inni messu að Ytri-Rauðamel.
Allt var með miklum mynd-
arbrag. Þar opnaði hún sitt
hús og spurði tíðinda, vissi þó
flest. Gleði og fallegur svipur
hennar dvelja hjá mér.
Við fjölskyldan þökkum
samfylgd sem bætti okkur og
gladdi.
Megi minning góðrar konu,
Stínu á Þverá, dvelja með okk-
ur sem nú lifum hana.
Þökk fyrir samfylgdina,
elsku frænka.
Kær kveðja,
Þórólfur Árnason.
Kristín Guðríður
Þorleifsdóttir
Sálm. 17.5-6
biblian.is
Skref mín eru örugg
á vegum þínum,
mér skrikar ekki
fótur. Ég hrópa til
þín því að þú svarar
mér, Guð,...
Okkar ástkæra
HÓLMFRÍÐUR ÁSGEIRSDÓTTIR,
Halllandi 4,
Svalbarðsströnd,
lést á heimili sínu í faðmi fjölskyldunnar
sunnudaginn 23. maí.
Útför hennar mun fara fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Gunnar B. Jóhannsson
Ásgeir Jón Guðmundsson
Guðrún Guðmundsdóttir
Helgi Guðmundsson
Heiðrún Guðmundsdóttir Guðmundur Gunnarsson
Haraldur Guðmundsson Sigurbjörg Þorsteinsdóttir
Ásrún Elín Guðmundsdóttir Jón Rúnar Þorsteinsson
Guðmundur H. Guðmunds. Lára Magnea Rogers
Máni Guðmundsson Hólmfríður Freysdóttir
Hlynur Guðmundsson Ester Jónsdóttir
Már Guðmundsson Sigurbjörg Hlöðversdóttir
ömmu- og langömmubörn
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
HÓLMSTEINN STEINGRÍMSSON,
Hófgerði 11, Kópavogi,
lést á Landspítalanum sunnudaginn 23.
maí. Útförin fer fram frá Hjallakirkju
fimmtudaginn 3. júní klukkan 13.00.
Helga Hólmsteinsdóttir
Steingrímur Hólmsteinsson
Baldur Garðarsson
Ása Baldursdóttir Pétur Gunnarsson
Davíð Arnar Baldursson
Harpa Steinunn
Steingrímsdóttir
Unnar Örn Unnarsson
Rafn Steingrímsson Nicolas Bizub
Orri Steinar Steingrímsson Sandra Blöndal
og barnabarnabörn
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
KATRÍN KRISTJÁNSDÓTTIR
frá Geirakoti,
lést á hjúkrunarheimilinu Fossheimum
Selfossi miðvikudaginn 26. maí.
Útförin fer fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Munda K. Aagestad
Roar Aagestad Halldóra S. Ásgeirsdóttir
Anna Gína Aagestad Guðmundur Árni Bjarnason
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
BERGSVEINN ÞÓRÐUR ÁRNASON
húsasmíðameistari,
Iðnbúð 4, Garðabæ,
sem lést þriðjudaginn 18. maí á Hrafnistu
Boðaþingi, verður jarðsunginn frá Árbæjarkirkju miðvikudaginn
2. júní klukkan 13. Þeir sem vilja heiðra minningu Bergsveins eru
velkomnir. Börnum hans þætti vænt um að fá símaskilaboð frá
þeim sem sjá sér fært að vera viðstaddir athöfnina svo fjölda-
takmarkanir verði virtar. Athöfninni verður streymt og hægt að
nálgast það á mbl.is/andlat
Auðbjörg Bergsveinsdóttir Jón Baldur Þorbjörnsson
Friðrik Már Bergsveinsson Júlíana Sóley Gunnarsdóttir
Berglind Bergsveinsdóttir Guðjón Grétar Engilbertsson
Árni Örn Bergsveinsson Sólrún Axelsdóttir
afa- og langafabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
HULDA JÓNSDÓTTIR,
lést á Landspítalanum við Hringbraut
miðvikudaginn 26. maí.
Kristjana Markúsdóttir Jón Albert Sighvatsson
Ingibjörg E. Markúsdóttir Helgi Kristjánsson
Elín Erna Markúsdóttir Páll Gíslason
Auður Ásdís Markúsdóttir Viðar Einarsson
Stefán Markússon
ömmu-, langömmu-
og langalangömmubörn