Morgunblaðið - 29.05.2021, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 29.05.2021, Blaðsíða 50
50 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. MAÍ 2021 Tvær sýningar verða opnaðar í dag, laugardag, í Listasafninu á Akur- eyri milli kl. 12 og 17. Er það annars vegar samsýning norðlenskra myndlistarmanna, Takmarkanir, og hins vegar sýning á verkum úr safn- eign Listasafnsins sem ber yfir- skriftina Nýleg aðföng. Sýningar- stjóri beggja sýninga er Hlynur Hallsson. Samsýningin er tvíæringur og nú haldin í fjórða sinn. Að þessu sinni var unnið út frá þemanu takmark- anir sem er augljóslega bein tilvísun í ástandið í heiminum þessi miss- erin, segir í tilkynningu, en safnið auglýsti eftir umsóknum um þátt- töku í sýningunni og dómnefnd valdi verk eftir 17 listamenn af þeim 44 sem sóttu um. Sum verkin voru unnin sérstaklega fyrir sýninguna og er henni ætlað að gefa innsýn í fjölbreytta flóru myndlistar sem tengist Norðurlandi og vekja um- ræður um stöðu norðlenskra lista- manna og myndlistar almennt, svo vitnað sé í tilkynningu. Listamenn- irnir sem sýna eru Aðalheiður S. Eysteinsdóttir, Auður Lóa Guðna- dóttir, Árni Jónsson, Bergþór Mort- hens, Brák Jónsdóttir, Egill Logi Jónasson, Guðmundur Ármann Sig- urjónsson, Hekla Björt Helgadóttir, Hrefna Harðardóttir, Íris Ólöf Sigurjónsdóttir, Jonna – Jónborg Sigurðardóttir, Joris Rademaker, Jón Laxdal Halldórsson, María Sigríður Jónsdóttir, Sigurður Mar Halldórsson, Stefán Boulter og Tanja Stefanovic. Ekkert fjármagn Um Nýleg aðföng segir að eitt af meginhlutverkum listasafna sé að safna myndlist og miðla safneign- inni en því miður sé ekkert fjár- magn áætlað á fjárhagsáætlun Listasafnsins á Akureyri til kaupa á listaverkum og þannig hafi það ver- ið í meira en áratug. Það standi þó til bóta og nýlega hafi verið lögð fram drög að samþykkt um lista- verkakaup í stjórn Akureyrarstofu sem jafnframt er stjórn Listasafns- ins. Listasafninu hafa borist margar góðar gjafir á síðustu árum og byggist sýningin á hluta af þeim verkum. Listamenn sem eiga verk á sýningunni eru Elín Pjet Bjarnason, Friðgeir Helgason, Jessica Tawc- zynski, Louisa Matthíasdóttir, Magnús Helgason, Óli G. Jóhanns- son og Tomas Colbengtson. Takmarkanir og Nýleg aðföng - Opnanir í Listasafninu á Akureyri Sumarnótt Hluti verks eftir Bergþór Morthens, unnið á þessu ári. Nú finnur þú það sem þú leitar að á FINNA.is IÐNAÐARMENN VERSLANIR VEITINGAR VERKSTÆÐI BÓKHALDSÞJÓNUSTA OG FLEIRA Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Þetta er nýtt og ögrandi samtíma- verk sem vakið hefur verðskuldaða athygli erlendis,“ segir Marta Nor- dal, sem leikstýrir útskriftarnem- endum leikarabrautar Listaháskóla Íslands í leikritinu Krufning á sjálfsmorði eftir Alice Birch í íslenskri þýðingu Sölku Guðmunds- dóttur. Upp- færslan, sem unnin er í sam- vinnu Listahá- skóla Íslands, Þjóðleikhússins og Leikfélags Akureyrar, er frumsýnd í Kassanum í Þjóðleikhús- inu annað kvöld kl. 20. Að sögn Mörtu er Alice Birch eitt áhugaverðasta unga leikskáld Breta, en Krufning á sjálfsmorði var frumsýnt í Royal Court-leikhúsinu í London 2017 í leikstjórn Katie Mitchell og hlaut Susan Smith Blackburn-verðlaunin árið 2018. Hvað mótar manneskjurnar? „Í verkinu er höfundurinn að skoða hvað mótar okkur mest sem manneskjur. Eru það erfðir, uppeldi eða samfélagsleg áhrif og umhverf- ið. Áhorfendur fá að sjá þrjár kyn- slóðir kvenna segja sögu sína sam- tímis á sviðinu. Hver saga nær yfir mislangan tíma, en alls spannar leikritið tíma sem nær frá um 1967 til 2030. Þetta er gífurlega krefjandi verkefni vegna þess að við erum eig- inlega að æfa þrjú verk sem fara fram samtímis. Fyrir vikið held ég að áhorfendur muni upplifa upp- færsluna með mjög ólíkum hætti, því það er mismunandi hvaða saga grípur hvern mest,“ segir Marta og líkir leikritinu við tónverk. „Þar sem hver nóta skiptir máli, en textinn er í senn meitlaður og ljóðrænn. Þetta er því góð áskorun fyrir krakkana,“ segir Marta og vísar þar til útskriftarnemendanna. Útskriftarnemendur ársins eru Almar Blær Sigurjónsson, Björk Guðmundsdóttir, Ellen Margrét Bæhrenz, Fannar Arnarsson, Kristrún Kolbrúnardóttir, Níels Thibaud Girerd, Stefán Þór Þorgeirsson, Urður Bergsdóttir og Örn Gauti Jóhannsson. „Þetta er ekki síður krefjandi fyr- ir okkur leikstjórana,“ segir Marta og vísar þar til sín og Önnu Maríu Tómasdóttur. „Hún kom inn í verk- efnið sem verkefnastjóri og aðstoð- arleikstjóri, en varð með tímanum meðleikstjóri minn sökum þess hversu krefjandi verkefnið er, hún frábær leikstjóri og við sammála um leiðina sem farin er,“ segir Marta og rifjar upp að Anna María hafi lokið námi frá sviðshöfundabraut LHÍ áður en hún hélt til New York í leik- stjórnarnám. Hún leikstýrði The Last Kvöldmáltíð og var aðstoðar- leikstjóri í Kópavogskróníkunni og Framúrskarandi vinkona. Aðrir listrænir stjórnendur eru Brynja Björnsdóttir sem hannar leikmynd og búninga, Ólafur Ágúst Stefánsson sem hannar lýsingu og Ísidór Jökull Bjarnason sem semur tónlistina, en Ísidór er útskriftarefni í tónsmíðum frá tónlistardeild LHÍ. „Hann er eitt stór talentbúnt,“ segir Marta og tekur fram að það sé dýr- mætt að vera með blöndu af ungu hæfileikafólki og miklum reynslu- boltum. Safaríkar senur Iðulega hefur verið horft til þess að útskriftarverkefni leikaraefna bjóði upp á bitastæð hlutverk fyrir alla í hópnum. Hentar þetta leikrit vel til þess að öllum í leikhópnum gefist færi á að láta ljós sitt skína? „Já, ég myndi segja það. Fimm þeirra leika sömu hlutverkin alla sýninguna, þar af eru þrjár leik- konur í burðarhlutverkum sem mæðir mikið á þar sem þær eru all- an tímann á sviðinu,“ segir Marta, en sýningin er rúmir tveir tímar. „Allir í leikhópnum fá hins vegar bitastæð hlutverk, en sumir eru að leika mörg hlutverk í sýningunni. Í mínum huga var mjög mikilvægt að allir í leikhópnum fengju safaríkur senur til að vinna með,“ segir Marta og rifjar upp að lesinn hafi verið fjöldi leikrita meðan leitin að rétta verkinu fór fram. „Okkur langaði til að vinna með samtímaverk sökum þess að síðast vorum við að vinna með epískt verk,“ segir Marta og vísar þar til Mutter Courage eftir Bertolt Brecht sem var útskriftarverkefni nemenda af leikarabraut LHÍ vorið 2019. „Við skoðuðum mikinn fjölda erlendra verka sem voru mörg hver mjög flott. En svo kom þetta verk upp í hendurnar á okkur sem okkur fannst mjög spennandi. Það býr yfir góðum hlutverkum fyrir alla, efnis- tökin eru svo áhugaverð og það á mikið erindi við okkur,“ segir Marta og vísar þar til umræðunnar um þunglyndi og þess hvernig áföll og sorg erfist milli kynslóða. „Með því að stilla sögunni upp á þremur tíma- plönum er samtímis hægt að skoða hversu mikil áhrif umhverfið hefur sem og þau úrræði sem í boði eru. Okkur fannst áhugavert hvernig leikskáldið speglar sögur kvennanna sem eru venslatengdar og hvernig þær burðast með fortíð- ina, því það er auðvitað svakalegt að missa móður sína úr sjálfsvígi. Sam- tímis beinir verkið sjónum sínum að tengslum og tengslaleysi,“ segir Marta og tekur fram að tilrauna- mennskan í formi verksins hafi ekki síður heillað. „Verkið reynir mikið á tækni leikarans og hlustun,“ segir Marta og bendir á að þó texti verks- ins sé ljóðrænn sé raunsæið ríkjandi í kringumstæðum verksins. „Fyrir vikið erum við samkvæmt forskrift bæði með börn og dýr í sýningunni, sem er skemmtileg áskorun,“ segir Marta, en auk útskriftarhópsins leika í sýningunni stúlkurnar Anna María Tryggva- dóttir og Arnþrúður Karen Viktors- dóttir sem og kanínan Skúli. Hefur þú haft einhver kynni af út- skriftarhópnum í námi þeirra hing- að til? „Nei, ég kem alveg fersk að þess- um hóp. Ég held að þau hafi, á þessu stigi málsins, mjög gott af því að fá leikstjóra sem nálgast þau með alveg ferskum augum. Það eru ótrú- lega mikil forréttindi að fá að leik- stýra útskriftarnemum af leik- arabraut. Þau eru svo áhugasöm, opin, ósérhlífin og örlát, auk þess sem þau hafa stutt vel hvert við annað í kófinu. Það er einstaklega gefandi að vinna með hóp þar sem leikhúsástríðan er ríkjandi.“ Flókið púsluspil Á sínum tíma var leikritið Mutter Courage frumsýnt á Akureyri og í framhaldinu sýnt í Reykjavík. Er það ekki rétt skilið að til hafi staðið að endurtaka leikinn núna, en kófið komið í veg fyrir það? „Jú, það er rétt. Það er mér auð- vitað þungbært að hafa ekki getað æft og sýnt verkið fyrir norðan út af kófinu. Ferlið allt hefur einkennst af miklu æðruleysi gagnvart þeim breytingum sem þurft hefur að gera. Við höfum aldrei eytt tím- anum í að fárast yfir hlutunum held- ur bara tekið því sem að höndum ber og gert gott úr öllu með bros á vör.“ Sýndar verða sex sýningar á næstu sex dögum og eru aðeins örfáir miðar lausir. Aðgangur er ókeypis en bóka þarf miða á tix.is. Spurð hvort ekki standi til að bæta við fleiri sýningum í ljósi þess hversu hratt miðarnir eru rifnir út svarar Marta að það sé snúið. „Enda er þetta flókið púsluspil þar sem margt þarf að ganga upp. Það er alltaf mikil ásókn í sýningar út- skriftarhópsins,“ segir Marta og rifjar upp að fyrir tveimur árum hafi líka þurft að hætta sýningum á Mutter Courage fyrir fullu húsi. „Það er auðvitað alltaf grátlegt þeg- ar ekki er hægt að leyfa fleirum að njóta afrakstursins, ekki síst þegar búið er að leggja miklu vinnu í upp- færsluna,“ segir Marta. Ljósmynd/Margrét Seema Takyar „Nýtt og ögrandi“ - Útskriftarnemendur frumsýna Krufningu á sjálfsmorði - „Áhugasöm, opin, ósérhlífin og örlát“ segir leikstjórinn Krefjandi „Þetta er gífurlega krefjandi verkefni vegna þess að við erum eiginlega að æfa þrjú verk sem fara fram samtímis,“ segir Marta Nordal leikstjóri um leikritið Krufning á sjálfsmorði eftir Alice Birch í Kassanum. Marta Nordal
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.