Morgunblaðið - 29.05.2021, Blaðsíða 46
46 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. MAÍ 2021
50 ára Eygló hefur
lengst af átt heima í
Reykjavík en hefur bú-
ið í Kópavogi frá 2002.
Hún er sjúkraþjálfari
að mennt frá Háskóla
Íslands og vinnur hjá
og er einn af eig-
endum Sjúkraþjálfunar Íslands. Eygló
hefur hlaupið nokkur maraþon og stefn-
ir á 106 km hlaup í Henglinum í næstu
viku.
Börn: Guðjón Trausti Skúlason, f. 1994,
Garðar Elí Jónasson, f. 1999, og Hildur
María Jónasdóttir, f. 2002.
Foreldrar: Guðrún Stella Gunnarsdóttir,
f. 1945, fyrrverandi ritari, og Trausti
Finnsson, f. 1947, rafvirki. Þau búa í
Kópavogi.
Eygló
Traustadóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Stundum sýnir það mestan styrk að
aðhafast ekkert um sinn. Gerðu svo það
sem þér þykir réttast að gera en vertu sam-
kvæmur sjálfum þér.
20. apríl - 20. maí +
Naut Vinur eða kunningi lætur ekki vel að
stjórn þessa dagana, sama hvað þú reynir.
Lífið snýst um að leysa vandamál, og því er
betra að þau liggi í augum uppi.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Þú vilt gera það besta úr til-
teknum aðstæðum og horfa á björtu hliðar
tilverunnar. Atvinnutækifærin sem þú girn-
ist eru nær en þig grunar.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Einhver óróleiki ríkir á vinnustað
þínum og þér finnst erfitt að átta þig á
stöðu mála. Treystu á sjálfan þig og varastu
áhrif frá öðrum.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Þú þarft að setja öðrum úrslitakosti og
það veldur þér hugarangri. Ekki láta kúga
þig til þess sem þú vilt ekki.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Þú ert í góðu jafnvægi andlega sem
líkamlega og mátt ekki láta neitt verða til að
trufla það. Að samþykkja fólk eins og það er
bætir sambönd og líka heilsuna.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Af einhverri undarlegri ástæðu heillast
þú af yfirskilvitlegum hlutum í dag. Haltu
áfram að einblína á það jákvæða fremur en
það neikvæða.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Ekki hanga heima, farðu út og
vertu meðal fólks. Nú væri upplagt að gera
sér glaðan dag í góðra vina hópi.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Þú ræður ekkert við ýtnina í dag
og ert staðráðinn í því að fá aðra til þess að
samsinna þér. Sjáðu til þess að þú fáir útrás
fyrir sköpunargleði þína.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Ef þú freistast til þess að skipta
þér af annarra málefnum skaltu ekki búast
við því að geta sinnt eigin skyldum á meðan.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Segðu hug þinn tæpitungulaust
og þá muntu fá áheyrendur. Flas er ekki til
fagnaðar og það á við á öllum sviðum, hvað
svo sem þér finnst málið lítilvægt.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Fjölskyldusamkomur og uppgjör
vegna gamalla mála hafa tafið þig að
undanförnu. Vandamálin eru til þess að
leysa þau svo gakktu hreint til verks og út-
kljáðu málin.
anskildum tveim árum sem for-
stöðumaður Kynningarskrifstofu
Ferðamálaráðs í New York. Hann
sneri aftur á Fréttastofu Útvarps til
1980. Um áramótin 1981 hóf hann
störf á Fréttastofu Sjónvarps og
starfaði þar til starfsloka í árslok
2006.
„Það var ævintýri að starfa hjá
Sjónvarpinu. Þegar ég hóf störf var
enn frí á fimmtudögum og í júlí.
Sjónvarpið var eitt á markaðnum og
meirihluti þjóðarinnar horfði á
fréttatímann. Vinnuálag var mikið.
Fréttamenn voru sex, þrír á vakt í
einu. Í innlendum fréttum voru þeir
Ómar Ragnarsson og Helgi E.
mismunandi mannlífi og lífskjörum
sem hún bjó við.“
Fréttamannsferillinn
Ævistarf Ólafs hefur verið á sviði
upplýsingastarfsemi, lengst af í
fréttum. Hann starfaði sem blaða-
maður á dagblaðinu Vísi í tvö ár, áð-
ur hafði hann skrifað kvikmynda-
gagnrýni í blaðið og hélt því áfram í
Morgunblaðinu í nokkur ár. Hann
starfaði um skeið við kynningar-
starfsemi hjá Upplýsingaþjónustu
Bandaríkjanna og Félagi íslenskra
iðnrekenda. Hann hóf störf hjá
Fréttastofu Útvarpsins 1974 og
starfaði þar til ársloka 1980, að und-
Ó
lafur Sigurðsson fæddist
í Hraungerði í Flóa 30.
maí 1936 og verður því
85 ára á morgun. Hann
ólst upp í Hraungerði
til 16 ára aldurs. Þá fór hann að
heiman til starfa, til að vinna fyrir
námi í heimavist í menntaskóla og
var eftir það aldrei heimilisfastur í
foreldrahúsum.
„Það var skemmtilegt að alast
upp í Hraungerði. Þar var stórt
heimili og óstöðvandi gestagangur.
Sóknarbörn áttu oft erindi og
kirkjukaffi var eftir hverja messu.
Símstöð var í Hraungerði og þurfti
þá að sækja fólk í símann eða af-
henda símskeyti. Í þessu eins og
öðru hvíldi þetta meira á Páli bróður
mínum, sem er tveim árum eldri.
Hann var mér fyrirmynd og hjálp-
arhella á þessum árum. Hann hefur
alltaf haft sérstaka hæfileika til að
umgangast fólk, eins og hans mörgu
vinir þekkja. Þetta varð til þess að
við börnin í Hraungerði þekktum
sveitunga okkar alla og höfðum
komið á flest heimilin. Síðar kom
sveitasími, þá voru níu bæir tengdir
inn á eina línu og gátu allir hlustað á
allt sem talað var.
Gestagangur á heimilinu var stöð-
ugur og viðvarandi. Hann skapaði
álag á heimilið, en hvorki foreldrar
mínir né við börnin hefðum viljað
vera án hans. Á þessum árum var
ekki óalgengt að fólk kæmi í heim-
sókn og stæði við í nokkra daga.
Þegar þetta fólk sat og ræddi mál-
efni sóttumst við börnin eftir að fá
að hlusta, en vorum að sjálfsögðu
send í rúmið þegar leið á kvöld. Á
tímabili hafði ég fundið leið til að
fela mig í stofunni til að hlusta og
lengi vel tók enginn eftir þessu.
Foreldrar okkar lögðu mikla
áherslu á að allir væru jafnir fyrir
skaparanum, burtséð frá þjóðfélags-
stöðu eða litarhætti. Langt borð var
í borðstofunni og þar borðuðu allir
saman aðalmáltíðir dagsins, hvort
sem gestir voru flækingur í sveitinni
eða forseti Íslands, óþægt bleyju-
barn eða vinnumaður með súrheys-
lykt. Ég hef alltaf litið á það sem
forréttindi að hafa kynnst fjölbreyti-
leika íslensku þjóðarinnar og því
Helgason á annarri vaktinni og Guð-
jón Einarsson og ég á hinni. Er-
lendu fréttunum skiptu þeir með sér
Ögmundur Jónasson og Bogi
Ágústsson. Þetta voru góðir sam-
starfsmenn.
Gagnstætt því sem margir halda
er það gerólík atvinna að segja sjón-
varpsfréttir og útvarpsfréttir. Vinna
í sjónvarpsfréttum er erfiðari en í
útvarpi. Sérstaklega er það ólíkt
hvað vinnuferli fréttar er langt. Ef
fréttamaðurinn hefur ekki nægar
upplýsingar getur engin myndataka
bjargað því. Ef myndatökumaður
vandar sig ekki er fréttin skemmd.
Ef sá sem skipuleggur vinnu töku-
manna bregst og hann mætir á stað-
inn hálftíma of seint, getur atburð-
urinn verið búinn. Ef klipparinn
bregst getur fréttin orðið verri eða
ónýt. Ef nafn á viðmælanda er staf-
að rangt er skaði skeður. Ef þýðing
texta er röng, eða birtist ekki á rétt-
um tíma verður fréttin ótrúverðug.
Ef hljóðið á einum viðmælanda er
svo lágt að það heyrist varla er allt
ómögulegt og ef fréttamaðurinn er
úfinn, illa til fara eða óöruggur í fasi
hefur það mikil áhrif á fréttina, en
verst af öllu er þegar þarf að leið-
rétta villur í frétt í sjálfum frétta-
tímanum. Í sjónvarpsfréttum er
enginn öðrum mikilvægari ef vel á
að fara, en þegar eitthvað bregst
lendir skömmin oftast á fréttamann-
inum sem sést í mynd.
Þrátt fyrir þetta er gaman að
vinna í fréttum. Harry Reasoner,
sem sumir muna eftir úr fréttaþætt-
inum 60 minutes, var spurður hvort
það væri gaman að vinna í sjón-
varpsfréttum. Hann brosti og sagði:
„Þú gerir ekkert skemmtilegra,
nema helst í rúminu.“ Þetta er besta
skýring sem ég hef á því að ég entist
við þetta í 25 ár.
Hvað verður um fréttir almennt
er óvíst. Við erum í miðri byltingu,
sem enginn sér fyrir endann á. Þeg-
ar ég hætti störfum fyrir nærri 15
árum var Facebook tveggja ára.
Youtube varð til það ár og Twitter
tveim árum síðar, og svo allt hitt.
Internetið og smartsíminn hafa fært
okkur ótrúleg tækifæri og ómæld
þægindi og gleði. Því miður er fátt
Ólafur Sigurðsson, fyrrverandi fréttamaður – 85 ára
Brúðkaupsdagur Albína og Ólafur með Stefaníu og séra Sigurði árið 1981.
Stödd í miðri fjölmiðlabyltingu
Stórfjölskyldan Samankomin í Toronto í tilefni af 80 ára afmæli Ólafs árið
2016. Sá eini sem vantar á myndina er sonurinn Brandur sem tók myndina.
30 ára Andrea er
Hafnfirðingur en býr í
Breiðholti. Hún er leik-
kona að mennt frá
Kvikmyndaskóla Ís-
lands og hefur m.a.
leikið í sjónvarpsþátt-
unum Burðardýr. Hún
starfar einnig sem tanntæknir. Andrea
lék fótbolta með meistaraflokki Vals og
var í yngri landsliðum.
Maki: Arnar Freyr Tómasson, f. 1993,
kvikmyndagerðarmaður og vinnur í
markaðsteymi Nova.
Sonur: Tómas Franklín, f. 2020.
Foreldrar: Hjördís Ingvarsdóttir, f. 1966,
eigandi Höndlarans ásamt eiginmanni
sínum, býr í Reykjavík, og Gústav Al-
freðsson, f. 1965, smiður, býr í Garðabæ.
Andrea Ýr
Gústavsdóttir
Til hamingju með daginn
Reykjavík Tómas Franklín fæddist 8.
september 2020 kl. 6.52 á Landspítal-
anum. Hann vó 3.274 g og var 51 cm
langur. Foreldrar hans eru Andrea Ýr
Gústavsdóttir og Arnar Freyr
Tómasson.
Nýr borgari