Morgunblaðið - 29.05.2021, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 29.05.2021, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. MAÍ 2021 41 Blaðberar Upplýsingar veitir #,&)"-/% í síma %!" $#$$ Morgunblaðið óskar eftir blaðber(# $ *(#%,%-&."*)!+%, $ .('!+*$' Aðstoðarskólameistari Kvennaskólans í Reykjavík Kvennaskólinn í Reykjavík auglýsir starf aðstoðarskólameistara til næstu fimm ára laust til umsóknar frá og með 1. ágúst 2021. Aðstoðarskólameistari er staðgengill skólameistara og vinnur með honum við daglega stjórn og rekstur skólans sbr. 8. grein laga um framhaldsskóla nr. 92/2008. Aðstoðarskólameistari skal uppfylla skilyrði í ákvæðum laga um lögverndun á starfsheiti og starfsréttindum grunnskólakennara, framhaldsskólakennara og skólastjóra. Reynsla og menntun í stjórnun menntastofnana er æskileg. Laun eru í samræmi við kjarasamning KÍ og stofnanasamning Kvennaskólans í Reykjavík. Ekki þarf að sækja um á sérstöku umsóknareyðublaði en í umsókn þarf að greina frá menntun (og staðfesta með afriti af prófskírteinum), fyrri störfum og öðru því sem umsækjandi telur að máli skipti. Umsóknir sendist rafrænt til Hjalta Jóns Sveinssonar skólameis- tara í netfangið hjalti@kvenno.is fyrir 14. júní 2021, sem gefur jafnframt frekari upplýsingar. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Á heimasíðu skólans, www.kvenno.is, er að finna ýmsar upplýsingar um skólann og starfsemi hans. Skólameistari Laust er til umsóknar fullt starf ritstjóra kennsluskrár Háskóla Íslands. Útgáfa kennsluskrár heyrir undir kennslusvið Háskóla Íslands. Ritstjóri er starfsmaður kennslusviðs og vinnur með ritnefnd og fulltrúum fræðasviða og deilda að gerð kennsluskrár, sem gefin er út árlega á vefnum. Vefritstjórn og umsjón með ýmsum upplýsingasíðum kennslusviðs tilheyrir einnig starfinu, svo og ýmis önnur tengd verkefni. Ráðið verður í starfið frá og með 1. september 2021. Umsóknarfrestur er til og með 9. júní 2021 Sækja skal um starfið á starfatorg.is Nánari upplýsingar veitir Róbert H. Haraldsson, robhar@hi.is – 525 4277 Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert. Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests. Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans. Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands. Helstu verkefni og ábyrgð: • Hlutverk ritstjóra er að stýra vinnu við kennsluskrá Háskóla Íslands í samvinnu við ritnefnd. Í því felst m.a. að skipuleggja innihald kennsluskrár og framsetningu efnis, að leiðbeina starfsfólki sem kemur að gerð kennsluskrár og virkja fólk til samvinnu, að stuðla að samræmi í efnis- tökum, að setja einstökum verkþáttum tímamörk og að stýra breytingum. • Ritstjóri tryggir að vandað sé til verka við gerð og útgáfu kennsluskrár. • Ritstjóri tekur þátt í mati á tillögum að nýjum náms- leiðum og veitir leiðbeiningar og ráðgjöf varðandi undirbúning og stofnun námsleiða. • Ritstjóri hefur umsjón með upplýsingasíðum kennslusviðs sem varða umsóknir, kennslu, nám og próf, á innri og ytri vef. • Í samvinnu við skrifstofu rektors annast ritstjóri yfirferð og uppsetningu á regluskjölum sem send eru til birtingar í Stjórnartíðindum, svo og birtingu reglna á vef háskólans. Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn: • Ferilskrá. • Bréf þar sem áhuga á starfinu er lýst og fjallað um hvað umsækjandi telur sig geta lagt af mörkum til þess. • Staðfest afrit af prófskírteinum. • Upplýsingar um umsagnaraðila. Hæfnikröfur: • Meistarapróf sem nýtist í starfi, viðbótarmenntun er kostur. • Haldbær þekking á skipulagi menntunar á háskóla- stigi er kostur. • Gott vald á upplýsingatækni og hæfni til að tileinka sér nýjungar á því sviði. • Góð íslenskukunnátta, bæði í ræðu og riti. • Góð enskukunnátta, reynsla af þýðingum úr og á ensku er kostur. • Reynsla af framsetningu efnis á vefmiðlum. • Reynsla af verkefnastjórnun. • Frumkvæði, sjálfstæði, skipulagshæfni og nákvæmni í starfi. • Hæfni í mannlegum samskiptum. RITSTJÓRI KENNSLUSKRÁR 7,%:%= U9 ZH= P,5XG !T W, &F 6#* &F W9F= Kjarafélag viðskiptafræðinga og hagfræðinga er framsækið stéttar- félag og hefur þann megin tilgang að vinna að bættum kjörum félagsmanna og gæta réttinda þeirra. Félagsmenn starfa á öllum vinnumarkaðinum og félagið er óháð starfsvettvangi, vinnu- veitanda og ráðningarformi. Félagið er þriðja fjölmennasta stéttar- félag innan Bandalags háskólamanna. Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðfinnur Þór Newman, framkvæmdastjóri KVH (gudfinnur@bhm.is) í síma 595-5141 Umsóknir, ásamt starfsferilsskrá og kynningarbréfi óskast sendar á netfangið gudfinnur@bhm.is. Umsóknarfrestur er til og með 2. júní nk. Starfssvið: • Upplýsingagjöf um réttinda- og kjaramál • Þátttaka við gerð stofnanasamninga og kjarasamninga • Aðstoð við gerð ráðningarsamninga • Afgreiðsla umsókna um félagsaðild • Gagnavinnsla tengd kjarasamningsgerð • Kynningarmál og umsjón vefsíðu KVH Menntunar- og hæfniskröfur: • Háskólamenntun sem nýtist í starfi • Þekking á kjarasamningum og stofnanasamningum æskileg • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð • Rík þjónustulund • Góð greiningarhæfni • Góð tölvuþekking, sérstaklega á töflureikni (excel) www.kjarafelag.is Lausar kennarastöður við Öxarfjarðarskóla, Norðurþingi. Öxarfjarðarskóli er heildstæður samrekinn leik- og grunnskóli með um alls 50 nemendur. Við leitum eftir umsækjendum í eftirfarandi stöður: • Íþróttakennara í 50% stöðu. • Leikskólakennara við báðar leikskóladeildir skólans. Viðkomandi þurfa að vera áreiðanlegir, samviskusamir og sýna lipurð og jákvæðni í samskiptum og hafa gott vald á íslensku. • Almenna kennslu á unglingastigi, 50% • Almenna kennslu á yngsta stigi Öxarfjarðarskóli er í nánu samstarfi við Grunnskóla Raufarhafnar sem einnig er samrek- inn leik- og grunnskóli með alls 9 nemendur á leik- og grunnskólastigi. Nemendur þar sækja kennslu í list- og verkgreinum, íþróttum og sundi í Öxar- fjarðarskóla auk tónmenntar og tónlistarkennslu. Skólarnir eru að innleiða uppeldisstefnuna Jákvæðan aga og starfa eftir henni. Lögð er áhersla á fjölbreytta, skapandi og sveigjan- lega kennsluhætti, samvinnu og vellíðan starfsfólks og nemenda. Frekari upplýsingar veitir Guðrún S. Kristjánsdóttir skólastjóri. Sími 4652246/8925226/4652220 Tölvupóstur: gudrunsk@oxarfjardarskoli.is Umsóknarfrestur er til 15. júní 2021 Norðurþing er öflugt sveitarfélag sem einkennist af fjölbreyttu mannlífi og miklum sköpunarkrafti manns og náttúru. Síðumúla 5 • 108 Reykjavík • 511 1225 • intellecta.is RÁÐNINGAR RÁÐGJÖF RANNSÓKNIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.