Morgunblaðið - 29.05.2021, Side 25
FRÉTTIR 25Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. MAÍ 2021
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Vladimír Pútín Rússlandsforseti
hampaði í gær sterkum vináttu-
böndum Rússa og Hvít-Rússa þegar
Alexander Lúkasjenkó, forseti
Hvíta-Rússlands, heimsótti Svarta-
hafsborgina Sochi í gær. Fór vel á
með forsetunum, en sótt hefur verið
að Lúkasjenkó á Vesturlöndum
vegna handtöku blaðamannsins
Romans Protasevich á sunnudaginn.
Rússar hafa hins vegar varið að-
gerðir Hvít-Rússa og sagt þær inn-
an löglegra marka.
Lúkasjenkó sagði á fundi sínum
með Pútín að Vesturveldin væru að
nota handtökuna til þess að „rugga
bátnum“ í Hvíta-Rússlandi, en Prot-
asevich var handtekinn eftir að flug-
vél Ryanair, þar sem hann var far-
þegi, var neydd til lendingar í
Minsk, höfuðborg Hvíta-Rússlands,
svo að hægt væri að handtaka hann.
Leiðtogar Evrópusambandsríkj-
anna hafa brugðist hart við og sakað
stjórnvöld í Hvíta-Rússlandi um að
hafa stundað flugrán til þess að
klekkja á stjórnarandstæðingi for-
setans. Hafa evrópsk flugfélög í
kjölfarið hætt að fljúga yfir lofthelgi
Hvíta-Rússlands, og hvítrússnesk-
um flugfélögum er að sama skapi
meinað að ferðast til ríkja Evrópu-
sambandsins.
Stjórnvöld í Hvíta-Rússlandi hafa
sagt að flugvélinni hafi verið skipað
að lenda í Minsk, þar sem sprengju-
hótun tengd átökunum fyrir botni
Miðjarðarhafs hefði borist. Sviss-
neska tölvupóstsfyrirtækið Proton
Technologies lýsti því hins vegar yf-
ir í gær að samkvæmt gögnum sín-
um væri augljóst, að sprengjuhót-
unin hefði verið send eftir að búið
var að neyða vélina af leið.
„Tæknilegar ástæður“ að baki
Ástandið hefur einnig haft áhrif á
flugsamgöngur milli Evrópu og
Rússlands, þar sem rússnesk flug-
málayfirvöld hafa neitað evrópskum
flugfélögum um heimild til þess að
breyta flugáætlunum sínum, svo að
leið þeirra liggi framhjá Hvíta-
Rússlandi.
Rússnesk stjórnvöld lýstu því yfir
í gær að „tæknilegar ástæður“ liggi
að baki höfnuninni þar sem allar
breytingar á flugáætlunum geti
valdið töfum, en áhyggjur hafa
vaknað innan Evrópusambandsins
um að Rússar séu kerfisbundið að
neita flugfélögum um lendingar-
heimild sem vilji sniðganga Hvíta-
Rússland. Sagði Josep Borrell,
utanríkismálastjóri ESB, að þetta
væri til skoðunar. María Zakharova,
talskona rússneska utanríkisráðu-
neytisins, sagði hins vegar að Vest-
urveldin væru að tefla öryggi flug-
farþega í hættu með því að banna
ferðir flugfélaga yfir Hvíta-Rúss-
land.
Samráðsvettvangur í uppnámi
Mál Protasevich hefur ekki orðið
til þess að bæta samskipti Evrópu-
ríkja og Rússlands, sem hafa þótt
stirð hin síðari ár. Greint var frá því
í vikunni í þýska dagblaðinu Frank-
furter Allgemeine Zeitung að sam-
skipti Þjóðverja og Rússa hefðu náð
nýjum lægðum eftir að rússnesk
stjórnvöld ákváðu á miðvikudaginn
að meina þrennum þýskum félaga-
samtökum og stofnunum að starfa í
Rússlandi.
Sagði í grein blaðsins, að ákvörð-
unin hefði sett samráðsvettvang
þjóðanna, sem kenndur er við St.
Pétursborg, í uppnám, en hann var
settur á fót árið 2001.
Samtökin þrenn sem bönnuð voru
höfðu öll það hlutverk að greiða fyr-
ir skoðanaskiptum milli Þjóðverja
og Rússa, en þau hafa nú verið sett á
lista yfir „óæskileg“ samtök, og geta
þeir Rússar sem starfa með þeim nú
átt yfir höfði sér allt að sex ára fang-
elsisdóm.
Sú ákvörðun saksóknara í Rúss-
landi að setja samtökin á þennan
svarta lista byggist á löggjöf frá
2015, sem ætlað er að koma í veg
fyrir að svokölluð „litabylting“ geti
átt sér stað í Rússlandi, líkt og í
nokkrum nágrannaríkjum þess.
Hafa sumir þýskir stjórnarmenn
Pétursborgar-samráðsins sagt að
ekki sé að óbreyttu hægt að halda
því áfram, þar sem ekki sé hægt að
halda uppi samfélagslegri umræðu
þegar hún sé að hluta til bönnuð.
Í greiningu blaðsins segir að
ákvörðunin sé merki um vaxandi
óbilgirni Rússa gagnvart öllum öfl-
um, innanlands sem utan, sem ekki
beygi sig í einu og öllu undir vilja
stjórnvalda í Moskvu, og benda höf-
undar hennar á að fyrir rússneska
þinginu liggi nú nokkur frumvörp,
sem miði að því að herða á baráttu
stjórnvalda gegn óánægjuöflum, en
kosið verður til rússneska þingsins í
september.
AFP
Forsetar á fundi Vel fór á með þeim Alexander Lúkasjenkó og Vladimír Pútín á fundi þeirra í Sochi í gær.
Styðja þétt við Lúkasjenkó
- Pútín hampar sterkum vinaböndum Rússa og Hvít-Rússa - Rússar segja
„tæknilegar ástæður“ koma í veg fyrir að hægt sé að breyta flugleiðum
Hans Kluge, yfirmaður Evrópu-
deildar Alþjóðaheilbrigðisstofn-
unarinnar, WHO, varaði við því í
gær að bólusetningarherferðir Evr-
ópuríkjanna væru enn of hægar, og
að faraldrinum myndi ekki ljúka
fyrr en um 70% heimsbyggðarinnar
hefðu fengið bólusetningu.
Kluge sagði í viðtali við AFP-
fréttastofuna að hans helsta
áhyggjuefni væru ný afbrigði sem
væru mun meira smitandi. „Við vit-
um t.d. að B.1617 [indverska af-
brigðið] er meira smitandi en B.117
[breska afbrigðið], sem var þegar
meira smitandi en fyrri afbrigði,“
sagði Kluge.
Það skipti því miklu máli að
bregðast við faraldri á skjótan hátt.
Segir Kluge að sum ríki hafi jafnvel
beðið með viðbrögð sín eftir að
WHO lýsti yfir heimsfaraldri á síð-
asta ári, og þannig hefði dýrmætur
tími farið í súginn.
Þá þyrfti að flýta mjög fyrir
bólusetningum. „Besti vinur okkar
er hraðinn. Tíminn vinnur gegn
okkur og dreifing bóluefnanna er
enn of hæg,“ sagði Kluge, en undir
Evrópudeild WHO falla 53 mis-
munandi ríki og héruð, sem sum
hver eru landfræðilega í Mið-Asíu.
Þar hafa um 26% allra íbúa þegar
fengið að minnsta kosti einn
skammt af þeim tveimur sem bólu-
setning flestallra bóluefna felur í
sér.
Meðal aðildarríkja Evrópusam-
bandsins er það hlutfall um 36,6%,
en til samanburðar má nefna að hér
á landi hafa um 58% af fullorðnum
einstaklingum fengið einn eða tvo
skammta af bóluefni, og í Bretlandi
hafa um 73% af fullorðnum ein-
staklingum fengið að minnsta kosti
einn skammt af bóluefni.
sgs@mbl.is
Evrópa spýti í lóf-
ana í bólusetningum
- Um 70% þurfa að vera bólusett
AFP
Bólusetning Flýta þarf bólusetn-
ingum í Evrópu að mati WHO.
Utanríkis-
ráðherra Þýska-
lands, Heiko Ma-
as, viðurkenndi í
gær þátt Þýska-
lands í þjóð-
armorðinu í
Namibíu í upp-
hafi 20. ald-
arinnar. Hét
Maas því að Þjóð-
verjar myndu verja milljarði evra í
fjárhagsaðstoð ætlaða afkom-
endum fórnarlamba þjóðarmorðs-
ins. „Í ljósi sögulegrar og siðferðis-
legrar ábyrgðar Þýskalands biðjum
við Namibíu og afkomendur fórn-
arlambanna fyrirgefningar á voða-
verkunum sem voru framin,“ sagði
Maas.
Morðin upphófust árið 1904 og
stóðu yfir næstu fjögur ár. Á þeim
tíma myrtu Þjóðverjar tugþúsundir
frumbyggja af Herero- og Nama-
ættbálkunum í nýlendu sinni í
Namibíu. Sagnfræðingar segja
morðin fyrstu fjöldamorð 20. ald-
arinnar og hafa þau leitt af sér
mikla erfiðleika í samskiptum
Namibíu og Þýskalands.
ÞÝSKALAND
Viðurkenna þátt
sinn í þjóðarmorði
Heiko Maas
Repúblikanar í
öldungadeild
Bandaríkjaþings
komu í gær í veg
fyrir að hægt
væri að taka
frumvarp um
þverpólitíska
rannsóknar-
nefnd þingsins til
umræðu, en
nefndinni hafði verið falið að rann-
saka í þaula árás stuðningsmanna
Donalds Trumps, þáverandi Banda-
ríkjaforseta, á bandaríska þing-
húsið hinn 6. janúar síðastliðinn.
Þurfti 60 atkvæði af 100 til þess
að koma málinu á dagskrá, en það
féll með 56 atkvæðum gegn 35.
Sagði Mitch McConnell, leiðtogi
repúblikana í deildinni, að störf
nefndarinnar yrðu nýtt í pólitísku
hefndarskyni gegn repúblikönum.
BANDARÍKIN
Komu í veg fyrir
rannsóknarnefnd
Mitch McConnell