Morgunblaðið - 29.05.2021, Page 39

Morgunblaðið - 29.05.2021, Page 39
MINNINGAR 39 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. MAÍ 2021 Allur arður af þjónustunni rennur til reksturs kirkjugarðanna Tökum á móti ástvinum í hlýlegu og fallegu umhverfi Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is Öll aðstaða í samræmi við tilefnið. Hlýlegt og fallegt húsnæði og nýir glæsilegir bílar. Sjá nánari upplýsingar á utfor.is Útfararþjónusta Við veitum alla þjónustu tengda andláti ástvina – Þjónusta um allt land og erlendis – Þjónusta í heimahúsi og á stofnunum í yfir 70 ár Guðný Hildur Kristinsdóttir Framkvæmdastjóri Ellert Ingason Sálmaskrár, útfararþjónusta Emilía Jónsdóttir Félagsráðgjöf, útfararþjónusta Guðmundur Baldvinsson Útfararþjónusta Lára Árnadóttir Útfararþjónusta Sigurður Bjarni Jónsson Útfararþjónusta Magnús Sævar Magnússon Útfararþjónusta Jón G. Bjarnason Útfararþjónusta Helga Guðmundsdóttir Útfararþjónusta ✝ Helga Steinunn Jónsdóttir fæddist á Ytra- Kálfsskinni á Ár- skógsströnd 2. febrúar 1921. Hún lést á Dalbæ Dalvík 11. maí 2021. Foreldrar henn- ar voru Rósa El- ísabet Stef- ánsdóttir, f. 12.7. 1888, d. 2.2. 1929, og Jón Einarsson, f. 12.10. 1892, d. 21.11. 1981. Systkinin voru Gunnhildur og Brynhildur, f. 24.6. 1916, Helga og Bergrós, f. 2.2. 1921, Einar, f. 12.11. 1922, Þórey, f. 27.8. 1927, og hálfbróð- irinn Sveinn Elías. f. 13.1. 1932. Sveinn er nú einn eftirlifandi af systkinahópnum. Helga ólst upp í Kálfsskinni hjá foreldrum og systkinum þar til á afmælisdaginn sinn 2.2. 1929, þegar móðir hennar lést ásamt tvíburum sem hún var langt gengin með. Margrét Sveinbjarnardóttir kom þá á heimilið og tók að sér stórt hlut- Jóna, f. 26.5. 1958. Maki Hannes Sveinn Gunnarsson, f. 19.3. 1957, sonur þeirra Máni, f. 16.3. 1998. Fyrir átti Jóna Írisi Gunn- arsdóttur, f. 18.10. 1977. Barnabörn Helgu eru sjö, barnabarnabörnin 19 og barna- barnabarnabörnin tíu. Til gam- ans má geta þess að tvíburar fæddust í fimm ættliði í röð, þar af fjórum sinnum frá tvíbura til tvíbura. Helga stundaði ýmiss konar störf bæði áður og eftir að hún giftist og voru það mest störf tengd sjónum. Hún vann við síldarsöltun á Seyðisfirði og fleiri stöðum. Einnig vann hún við fiskverkun margs konar samhliða heimilisstörfum og barnauppeldi og að sauma og prjóna var henni einkar lagið. Auk þess að sauma á sína fjöl- skyldu var hún vinsæl að sauma fyrir aðra. Síðustu árin bjó Helga á Dalbæ á Dalvík. Hún náði þeim áfanga 2. febrúar sl. að verða 100 ára og hélt upp á þau tíma- mót með fjölskyldu og vinum. Útför Helgu Steinunnar fer fram frá Hríseyjarkirkju í dag, 29. maí 2021, klukkan 14. At- höfninni verður streymt á: https://fb.me/e/1sKY6iDrD Streymishlekk má finna á : https://www.mbl.is/andlat verk. Nokkrum ár- um seinna gengu Jón og Margrét í hjónaband og hálf- bróðir Helgu fædd- ist árið 1932. Jón og Margrét héldu utan um hópinn og áttu öll börnin heimili í Kálfs- skinni til fullorðins- ára. Helga giftist 1.1. 1943 Jóhanni Ásmundssyni, f. 2.10. 1915, d. 13.3. 1970. Þau bjuggu fyrst á Litla-Árskógss- andi, en fluttu síðan til Hrís- eyjar árið 1965. Helga og Jó- hann eignuðust þrjú börn: 1) Elísabet, f. 9.5. 1942, d. 27.4. 2017. Maki: Þorbjörn Jónsson, f. 10.3. 1937, d. 21.11. 1971. Þeirra börn: Óskar, f. 1962, Jónína, f. 1963, Helga, f. 1963, Ingvar, f. 1964, og Guðrún, f. 1967. 2) Ás- mundur, f. 9.5. 1942, d. 30.1. 2010. Maki (skilin) Guðrún Ólafsdóttir, f. 4.3. 1948. Hún átti áður son, Ólaf Georgsson, f. 1966 (stjúpsonur Ásmundar). 3) Margt þú gefur misjafnt reynt mörg þín dulið sárin. Þú hefur alltaf getað greint gleði bak við tárin. (J.Á.) Elskuleg systir mín Helga hef- ur lokið lífsgöngu sinni. Hún var á margan hátt mögnuð og minn- isstæð kona. Hún ólst upp við kröpp kjör á fyrri hluta síðustu aldar. Engin kynslóð Íslandssög- unnar hefur lifað aðrar eins breytingar og byltingar og átt hafa sér stað á þessum tíma. Hún lærði snemma að sparsemi og nýtni eru góðir eiginleikar til að komast af í hörðum heimi. Nú hrannast upp minninga- brot frá mínum æskudögum. Í okkar systkinahópi var oft margt að gerast, þótt leiktækin væru fá- breytt. Við þurftum sjálf að út- vega leggi, skeljar og horn og byggja okkar bæi, ásamt vegum og brúm til að líkja eftir því sem í kringum okkur var. Það kom oft í hlut Helgu systur minnar að dröslast með mig svo ég gæti verið með krökkunum, því snemma vildi ég vera með þar sem eitthvað var um að vera. Helga fór strax á unglingsár- um að vinna fyrir sér og þá að- allega við fiskverkun, en fékk samt líka tilsögn í saumaskap, sem nýttist henni vel seinna á ævinni. Hún vann við að beita og stokka upp, vann á frystihúsi og saltaði síld á ýmsum stöðum og var annáluð fyrir hve fljót hún var að salta. Vinnudagurinn var oft langur og eftir áratugastarf í frystihúsinu í Hrísey var hún ald- eilis hissa þegar henni var sagt upp störfum vegna aldurs 79 ára gamalli. Helga, Jóhann og börnin fluttu til Hríseyjar 1965. Jóhann stundaði sjóinn, en hann lést fyr- ir aldur fram og eiginmaður El- ísabetar drukknaði ungur. Árin liðu og fólkinu fækkaði óðum á Syðstabæ og bjuggu að síðustu þær mæðgur saman þar til El- ísabet lést í apríl 2017. Eftir það bjó Helga ein í stóru húsi á annað ár 96 ára gömul. Ég spurði hana eitt sinn hvort hún gæti sjálf skipt á rúminu sínu. „Já,“ var svarið, „og ég get líka þvegið og hengt upp. Annars á ég frekar bágt með að rétta upp annan handlegginn nema til hálfs.“ Hvernig ferðu þá að? spurði ég. „Nú, ég hoppa bara,“ var svarið. 29. janúar 2009 datt Helga úti í hálku og hríðarveðri. Hún var flutt á sjúkrahús og fékk þar nýja kúlu í mjaðmarlið. Seinna spurði ég Helgu hvort henni hefði ekki orðið kalt þegar hún beið á annan klukkutíma eftir hjálp og gat sig lítið hreyft. „Það er ótrúlegt, ég var í úlpu,“ var svarið. Á heilli öld hefur Helga aðeins þrisvar legið á sjúkrahúsi. Hún var ekki mikið fyrir að láta hafa fyrir sér og eitt lítið dæmi um það var að fyrr í vetur sagði hún við dóttur sína: „Ég væri alveg til í að fara núna, þetta er orðið nóg. Heyrðu, kannski væri betra að bíða til vorsins, það yrði svo erfitt að taka gröfina núna.“ Helga flutti á Dalbæ árið 2018. Þar fannst henni gott að vera. Hún dásamaði fólkið þar og fannst gaman að vera með í söng- stundum og annarri afþreyingu. Mig langar til að þakka sérstak- lega fyrir frábæra umönnun og hlýju, sem systir mín naut á Dalbæ. Takk Gunna og allir hinir sem hugsuðu svo vel um hana. Við Ása sendum Jónu og fjöl- skyldu og öllum hinum afkom- endunum innilegar samúðar- kveðjur. Megi elsku systir hvíla í friði. Sveinn Jónsson. Elsku besta amma mín! Nú þegar þú ert farin frá okkur og lögst til hvíldar, sem við vitum að var orðin langþráð hvíld, langar okkur að senda þér örlitla kveðju. Það er ansi tómlegt hjá okkur núna enda hefur þú verið fastur punktur í okkar lífi alla tíð og söknuðurinn sem fyllir hjörtu okkar er mikill, enda þykir okkur svo óskaplega vænt um þig. En þó við finnum fyrir söknuði eru minningarnar um þig og allar skemmtilegu samverustundirnar okkar svo margar og góðar að söknuðurinn víkur. Alltaf var gaman að sitja hjá þér við eld- húsborðið á Syðstabæ og hlusta á sögur sem þú sagðir okkur frá æsku þinni í sveitinni, þú hafðir einstakt lag á að lýsa fyrir okkur hvernig lífið var hér fyrr á árum þegar ekki voru til þau nútíma- þægindi sem við búum við í dag og þessum sögum miðlaðir þú til fjögurra kynslóða niðja þinna. Nú á þessari kveðjustund er í huga okkar fallega, yndislega, skemmtilega og harðduglega hörkutólið hún amma Helga á Syðstabæ. Elsku amma, takk fyrir allt og hvíl þú í friði því ef einhver á hvíldina skilið ert það þú. Guðrún (Gunna) og Pétur. Helga Steinunn Jónsdóttir Mig langar að segja nokkur orð um ömmu mína, hana ömmu Ragn- heiði. Ég var mikið í Hlaðbænum hjá ömmu og afa. Það var alltaf tekið vel á móti mér og ég fékk oft að velja hvað væri í matinn. Ég naut góðs af því að vera eina barna- Ragnheiður Magnúsdóttir ✝ Ragnheiður Magnúsdóttir fæddist 4. júlí 1931. Hún lést 7. maí 2021. Ragnheiður var jarðsungin 25. maí 2021. barnið í fimmtán ár. Amma átti alltaf epli og grjónagraut. Hún var líka mjög klár í að baka pönnukökur og kenndi mér þá list. Þegar ég var ófrísk að Sigrúnu Maríu þá sendi amma mér góðan grjónagraut og kanilsykur. Amma var ein af bestu ömmum sem hægt var að eignast. Ég mun minnast hennar með mikilli hlýju og veit að afi hefur tekið vel á móti henni. Þín ömmustelpa, Hildur Máney.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.