Morgunblaðið - 02.06.2021, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. JÚNÍ 2021
DUXIANA Reykjavik | Ármuli 10 | Reykjavik | +354 5 68 99 50 | www.duxiana.is
GÆÐI OG ÞÆGINDI
SÍÐAN 1926
DUX 6006 - SVÆÐISMEÐFERÐ
Í örfáum einföldum skrefum geturðu sett upp rúmið þitt til að mæta þörfum þínum.
Það var forvitnilegt að horfa áhinsta Silfur vorsins, en þangað
voru komnir forystumenn stjórn-
málaflokka á Alþingi í upphitun
kosningabaráttunnar. Þar bárust
málefni Samherja í
tal, en helstu vitr-
ingar stjórnarand-
stöðunnar töldu að
málskvaldur þriggja
starfsmanna útgerð-
arinnar opinberaði
sérstaka hættu, sem
lýðræðinu væri búin
af fiskveiðistjórn-
unarkerfinu og þess vegna yrði að
breyta því ekki seinna en strax, svo
þjóðin svæfi betur.
- - -
Bjarni Benediktsson fjármála-ráðherra benti á rökvilluna, því
auðvitað kæmi þetta ekki kvótakerf-
inu við. Þetta snerist um meðferð
auðs og valds, hvernig auðmenn
beittu sér, sama hvaðan auðurinn
væri kominn:
- - -
’’
Þetta er ekki fyrsta málið.
Man fólk ekki eftir því hvern-
ig Baugur byggði upp sitt veldi
hérna á sínum tíma? Eignaðist sitt
eigið dagblað? Muna menn ekki
hvernig var auglýst hér í prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins: Strikið yfir
Björn Bjarnason, þetta er vondur
dómsmálaráðherra!? Jóhannes heit-
inn Jónsson birti heilsíðuauglýs-
ingar í helstu blöðum. Voru það af-
skipti af stjórnmálum á Íslandi? Já,
ég held það.“
- - -
Bjarna þótti þessi auma og mis-heppnaða tilraun Samherja
hlægileg við hliðina á grímulausum
aðgerðum Baugsmanna á sinni tíð,
en sýndi þá tillitssemi að minnast
ekki á það hverjir vörðu Baugsmenn
með oddi og egg þá. Nú reyndu arf-
takar þeirra „að nota ferðina“ í
Samherjamálinu til þess að koma
höggi á fiskveiðistjórnunarkerfið,
sem þeir treystu sér ekki til þess að
ræða með málefnalegum hætti.
Bjarni
Benediktsson
Skákað í skjóli
Samherja
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Trausti Thorberg Ósk-
arsson, rakari og tón-
listarmaður, lést 27.
maí sl. á hjúkrunar-
heimilinu Boðaþingi,
93 ára að aldri.
Trausti fæddist í
Reykjavík 19. nóv-
ember 1927. Foreldrar
hans voru Óskar Thor-
berg Jónsson og Edith
Victoria Thorberg
Jónsson, fædd Julin,
frá Borgundarhólmi,
en foreldrar hennar
voru sænskir.
Trausti byrjaði snemma að spila á
gítar og kaus að gerast rakari frekar
en bakari til að fara betur með hend-
urnar, eins og fram í viðtali við hann
í Morgunblaðinu þegar hann varð 90
ára. Trausti byrjaði sem lærlingur á
rakarastofu í Eimskipahúsinu en
stofnaði eigin stofu á Vesturgötunni.
Meðfram þessu var hann byrjaður
að spila og var mikið á Borginni á
seinni stríðsárunum. Lék hann með
fyrstu gerð KK-sextettsins sem hóf
að spila árið 1947. Trausti spilaði
einnig mikið með Carl Billich og með
hljómsveit Eyþórs Þorlákssonar á
sjöunda áratugnum. „Hann klippti á
daginn og spilaði á nóttunni,“ sagði
m.a. í viðtalinu. Að auki hafði
Trausti mikinn áhuga
á ljósmyndun. Ásamt
eiginkonu sinni, Dóru
Sigfúsdóttur, setti
hann á fót
ljósmyndavöru-
verslunina Fótóhúsið
árið 1963 og ráku þau
hana í rúm 20 ár.
Trausti hafði spilað
sem rytmagítarleikari
en sneri sér síðan að
klassískum gítar, fór í
Tónlistarskólann á
sextugsaldri og út-
skrifaðist sem gít-
arleikari á áttunda stigi árið 1985.
Hann kenndi á gítar í Tónlistarskóla
Mosfellsbæjar og síðan í Tónlistar-
skóla Hafnarfjarðar.
Trausti var mikill safnari tónlist-
arbóka og nótna og batt inn gömul
nótnahefti, en eftir að hann seldi
Fótóhúsið lærði hann bókband.
Jafnframt útsetti hann lög en árið
2007 kom út bókin 30 íslensk söng-
lög, útsett fyrir klassískan gítar.
Trausti og Dóra eignuðust þrjú
börn, Elsu Thorberg, f. 1950, Edith
Thorberg myndlistarmann, f. 1953,
d. 2014, og Óskar Thorberg, f. 1958.
Barnabörn Trausta og Dóru eru átta
og barnabarnabörnin eru orðin 16.
Dóra lést árið 2007.
Andlát
Trausti Thorberg
Óskarsson
Bólusett var með bóluefni Pfizer í
Laugardalshöll í gær. Um var að
ræða seinni bólusetningu og áfram-
haldandi bólusetningu forgangs-
hópa. Þegar ljóst varð að afgangur
yrði af bóluefninu var í fyrsta skipti
dregið úr bólusetningakrukkunni.
Þegar 2.500 skammtar voru eftir
fengu karlar fæddir 1999 og konur
fæddar 1982 boð. Þegar ljóst varð að
erfitt yrði að koma þeim út dró
Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir,
framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá
Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins,
tvo aðra árganga úr krukkunni; kon-
ur fæddar 1996 og karla fædda 1987.
Fimm greindust með kórónuveir-
una innanlands í fyrradag. Einn var
utan sóttkvíar við greiningu en fjórir
í sóttkví. Smit kom meðal annars
upp í verslun H&M í Kringlunni og
var versluninni lokað vegna þessa.
Þá greindust tvö kórónuveirusmit á
Vopnafirði en smitin má rekja til
ferða viðkomandi utan svæðis. Voru
þeir í sóttkví við greiningu.
Þórólfur Guðnason sóttvarna-
læknir kvaðst í gær búast við því að
sjá svipaðar smittölur á næstu dög-
um. Hann er þó enn jákvæður gagn-
vart afléttingum og telur ekki þörf á
hertum aðgerðum að svo stöddu.
„Við erum náttúrulega komin með
útbreiddar bólusetningar og svo er
mikill fjöldi sem er að passa sig
varðandi sýkingavarnir.“
Fjórir árgangar voru dregnir út
- Handagangur í öskjunni við bólusetningu í Laugardalshöll - 5 smit greindust
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Dráttur Ragnheiður Ósk í Höllinni.