Morgunblaðið - 02.06.2021, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 02.06.2021, Qupperneq 11
FRÉTTIR 11Erlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. JÚNÍ 2021 Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170 CHANEL kynning í Snyrtivöruversluninni Glæsibæ 2.-4. JÚNÍ Við kynnum nýju varalitina Rouge Coco Bloom – Varalitur sem er mjúkur og nærandi. Hann er mjög litsterkur og gefur vörunum aukna fyllingu. Gréta Boða verður á staðnum og veitir faglega ráðgjöf 20% afsláttur af CHANEL vörum kynningar- dagana Verið velkomin Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna varaði við því í gær að rúmlega 90% íbúa í Tigray-héraði Eþíópíu þyrftu bráðnauðsynlega á mataraðstoð að halda, og kölluðu forsvarsmenn áætl- unarinnar eftir um 200 milljónum bandaríkjadala, eða sem nemur 24 milljörðum íslenskra króna, til þess að geta sinnt íbúum héraðsins. Um er að ræða um 5,2 milljónir manns, sem sagðar eru í hættu vegna átakanna í héraðinu. Þau hófust í nóv- ember síðastliðnum, en þá sendi Abiy Ahmed, forsætisráðherra Eþíópíu, hersveitir til héraðsins til þess að handtaka og afvopna leiðtoga aðskiln- aðarsinna, sem tilheyra þjóðflokki Tígra, en þeir höfðu áður ráðist á bækistöðvar hersins. Tomson Phiri, talsmaður matvæla- áætlunarinnar, sagði að hún hefði veitt rúmlega milljón manns aðstoð frá því hún tók til starfa í héraðinu í mars, en þegar væri mikil hætta á hungursneyð þar. „Við höfum þungar áhyggjur af þeim fjölda sem við sjáum í þörf á næringaraðstoð og neyðarmatvælaaðstoð,“ sagði Phiri. Hvatt til vopnahlés Mark Lowcock, yfirmaður neyðar- aðstoðar Sameinuðu þjóðanna, til- kynnti öryggisráðinu í síðustu viku að alvarleg hætta væri á því að hung- ursneyð myndi hefjast í Tigray-hér- aði, ef ekkert yrði að gert á næstu tveimur mánuðum. Sagði hann að um 90% uppskeru hefði verið eyðilögð, og um 80% búfénaðar hefði verið stolið eða slátrað. Joe Biden Bandaríkjaforseti for- dæmdi í kjölfarið átökin og víðtæk og gróf mannréttindabrot, þar á meðal kynferðisbrot og fjöldamorð, sem hefðu verið framin af hersveitum frá bæði Eþíópíu og nágrannaríkinu Eri- treu. Hvatti Biden til vopnahlés og að all- ar hersveitir yrðu dregnar til baka frá Tigray-héraðinu. Þá yrði um leið að leyfa neyðaraðstoð að komast til hér- aðsins svo fljótt sem verða mætti. Ákvað Bandaríkjastjórn um leið að beita embættismenn í Eþíópíu refsi- aðgerðum vegna átakanna, en stuðn- ingsmenn stjórnvalda mótmæltu þeim á fjöldafundi í höfuðborginni Addis Ababa á sunnudaginn. Stjórnvöld í Eþíópíu segja að þau muni rannsaka allar ásakanir um mannréttindabrot í átökunum, en kenndu um leið skæruliðum Tígra um truflanir á matvælaaðstoð við héraðið. AFP Hungursneyð Börn á flótta frá Tigray-héraði bíða hér eftir mat í flóttamannabúðum sínum í Súdan. Varað við hungursneyð - Rúmlega 90% í Tigray-héraði sögð þurfa mataraðstoð - Stjórnarhermenn sakaðir um gróf mannréttindabrot Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Nicola Sturgeon, forsætisráðherra skosku heimastjórnarinnar, ákvað í gær að framlengja sóttvarnaráðstaf- anir vegna kórónuveirufaraldursins í sumum hlutum Skotlands, en stefnt hafði verið að því að færa landið allt niður á næstminnsta viðbúnaðarstig næsta mánudag. Sagði Sturgeon ástæðuna fyrir ákvörðuninni vera þá að indverska af- brigðið hefði náð nokkurri dreifingu, en rúmlega helming allra nýrra til- fella í Skotlandi má nú rekja til þess. Munu því hertar aðgerðir vera áfram í gildi í 13 héruðum Skotlands, en inn- an þeirra eru m.a. borgirnar Glas- gow, Edinborg, Dundee og Stirling. „Þetta eru erfiðar og flóknar ákvarð- anir sem við höfum tekið í dag,“ sagði Sturgeon og bætti við að það endur- speglaði hversu viðkvæm staðan í far- aldrinum væri. Vilja staldra við Ákvörðun Sturgeon kemur á sama tíma og nokkur umræða er í Eng- landi um hvort rétt sé að halda sig við fyrri afléttingarákvarðanir, en þar er stefnt að því að öllum sóttvarnaað- gerðum verði aflétt 21. júní næstkom- andi. Sérfræðingar í bólusetningarráði Englands hafa hins vegar varað við því að þriðja bylgja faraldursins gæti verið í startholunum, og að því sé ástæða til þess að hinkra við og tefja fyrirhugaðar afléttingar. Nú hafa rúmlega 3.000 ný tilfelli greinst af kórónuveirunni á hverjum degi undanfarna viku, og er það nokkur aukning, þar sem nýjum til- fellum hafði fækkað mjög í apríl vegna velgengni bólusetningar- herferðar Breta. Adam Finn, prófessor og ráðgjafi stjórnvalda í bólusetningarmálum, sagði hins vegar við breska ríkisút- varpið BBC í gær að enn væri fjöldi fólks sem hefði hvorki fengið smit né bólusetningu, og því væri ástandið viðkvæmt. Varaði hann við því að fólk teldi sigurinn vísan í baráttunni. Sagði Finn að það myndi vera verra til lengri tíma að opna samfélagið of snemma, ef það leiddi til þess að aftur þyrfti að loka síðar. Talsmaður Borisar Johnson, for- sætisráðherra Bretlands, sagði hins vegar að málið væri enn í skoðun, en stefnt er að því að tilkynna í næstu viku hvort haldið verði við fyrri aflétt- ingaráform. Tók hann fram að John- son hefði enn ekki séð neitt sem benti til þess að fresta þyrfti síðustu aflétt- ingunum, en að þegar til þess kæmi yrði horft á gögnin, ekki dagsetning- ar. Óánægja innan Íhaldsflokksins Margir af óbreyttum þingmönnum Íhaldsflokksins vilja að ekki verði vikið frá þeirri leið sem mörkuð hefur verið, þar sem þeir telja að efnahag- urinn hafi beðið mikinn skaða af þeim sóttvarnaráðstöfunum sem ráðist hefur verið í. Þannig hvatti Iain Duncan Smith, fyrrverandi leiðtogi Íhaldsflokksins, Johnson til þess að standa fast við áætlunina, þar sem með bólusetningu hefði tekist að verja helstu áhættu- hópana gegn veirunni, en nærri 50% Breta teljast nú fullbólusettir. Þá hefur einnig verið horft til þess, að þó að tilfellum hafi fjölgað nokkuð síðustu daga, virðist sem fjöldi inn- lagna á sjúkrahús vegna kórónuveir- unnar hafi ekki aukist að sama skapi. Þá voru engin dauðsföll í Bretlandi af völdum kórónuveirunnar í gær, og er það í fyrsta sinn frá því faraldurinn náði flugi á síðasta vori sem það ger- ist. AFP London Þetta skilti í Lundúnum hvetur Breta til þess að hafa enn varann á. Tekist á um afléttingu - Sérfræðingar óttast að þriðja faraldursbylgjan sé að hefjast í Bretlandi - Skot- ar framlengja sóttvarnaráðstafanir - Þrýst á Johnson að halda óbreyttri stefnu Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, lýsti því yfir í gær að Rússar gerðu sér engar væntingar um stórtíðindi frá leiðtogafundi Vladimírs Pútín Rússlandsforseta og Joes Biden Bandaríkjaforseta, sem fram fer í Genf 16. júní nk. Lavrov sagði Rússa ekki ætla að gefa því undir fótinn að á fundinum yrðu teknar einhverjar sögulegar ákvarðanir, eða að samskipti ríkjanna myndu fara snarlega batn- andi eftir fundinn. „En sú staðreynd að leiðtogar tveggja helstu kjarnorkuvelda heimsins munu funda er að sjálf- sögðu mikilvæg,“ sagði Lavrov. Þetta verður í fyrsta sinn sem Pútín og Biden hittast eftir að sá síðarnefndi tók við embætti, en spennan í samskiptum stórveld- anna tveggja hefur ekki verið meiri um árabil. Biden hét því á sunnudaginn að hann myndi nefna viðkvæm mál við Pútín, og að Bandaríkjamenn hygð- ust ekki líta fram hjá meintum mannréttindabrotum Rússa. RÚSSLAND AFP Fundur Biden og Pútín hittust árið 2011, þegar Biden var varaforseti. Gera ekki ráð fyrir árangri á fundinum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.