Morgunblaðið - 02.06.2021, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 02.06.2021, Qupperneq 12
12 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. JÚNÍ 2021 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Bandalagstarfs-manna ríkis og bæja, BSRB, hefur lengi háð baráttu fyrir auknum opin- berum rekstri og gegn einka- rekstri. Þetta er í senn þröng og afar augljós sérhags- munagæsla þeirra sem stýra félaginu og vilja efla það, en um leið lýsir þetta mikilli skammsýni. Það sem stjórn- endur verkalýðsfélaga opin- berra starfsmanna eiga stund- um erfitt með að viðurkenna, en er engu að síður staðreynd, er að til að hægt sé að greiða opinberum starfsmönnum laun verður að vera til öflugt einka- rekið atvinnulíf sem greiðir fólki á almennum vinnumark- aði laun. Frá þessum fyrir- tækjum og starfsmönnum þeirra koma skatttekjurnar sem ríkinu og sveitarfélög- unum eru nauðsynlegar til að halda úti stofnunum hins op- inbera. En það skiptir líka máli að fjármununum sem hið opin- bera hefur úr að spila sé varið með sem hagkvæmustum hætti. Sé hægt að láta einka- aðila reka þjónustu með minni tilkostnaði en hið opinbera get- ur gert, þá borgar sig fyrir alla að það sé gert, líka fyrir þá sem starfa hjá hinu opinbera. Og ef slíkt fyrirkomulag felur í sér að starfsmönnum hins op- inbera fækkar og starfs- mönnum almenna markaðarins fjölgar, þá er ekkert slæmt við það. Launþegafélag opinberra starfsmanna, eða í það minnsta þeir sem halda þar um stjórn- völinn, virðast líta á þetta með öðrum hætti. Þeir óttast lík- lega að missa spón úr aski sín- um færist launamenn úr opin- bera geiranum í einkageirann. Þessi þrönga sérhagsmuna- gæsla stjórnenda opinberu verkalýðsfélaganna birtist með ýmsum hætti, til að mynda í því þegar þeir á dögunum létu gera könnun um áhuga al- mennings á einkarekstri í heil- brigðiskerfinu og túlkuðu nið- urstöðuna svo á þann veg að „afgerandi meirihluti“ almenn- ings væri „andvígur frekari einkarekstri“ í heilbrigðiskerf- inu og drógu þessa ályktun ekki síst af því að flestir lands- menn vilji að sjúkrahús séu fyrst og fremst hjá hinu op- inbera. Og formaður BSRB sagði að þetta sýndi að „þjóðin hafnar aukinni einkavæðingu í heilbrigðiskerfinu okkar“. Nú er það svo að hér á sér ekki stað aukin einkavæðing í heilbrigðiskerfinu, nær væri að tala um að þar fari fram aukin ríkisvæðing undir núverandi ráð- herra heilbrigð- ismála. Þar fyrir utan, eins og Þór- arinn Guðnason, formaður Læknafélags Reykjavíkur, benti á í samtali við Morgun- blaðið, sýndi könnun BSRB ekki það sem formaðurinn hélt fram. Þórarinn benti á að flestir væru sammála um að ríkið ætti að reka sjúkrahús, um það væri enginn ágreiningur, en að könnunin sýndi að „landsmenn styðja fjölbreytt rekstrar- form“. Hann benti á að ef lögð væru saman svör þeirra sem vildu blandað kerfi í heilbrigð- isþjónustunni og þeirra sem vildu fyrst og fremst einka- rekstur, svo sem þjónustu sjúkraþjálfara, tannlækna, sjálfstætt starfandi sér- fræðilækna á stofu og sálfræð- inga, þá væri stuðningurinn við það frá 58% upp í 71%. Þá bendir Þórarinn á að heilsugæslan sé að talsverðum hluta einkarekin og að kann- anir sýni mikla ánægju með einkareknu heilsugæslurnar, þær hafi raðað sér í efstu sæti könnunar um ánægju með þjónustu heilsugæslustöðva. Það er mikið umhugsunar- efni hvernig forystumenn launþegasamtaka hér á landi eru farnir að beita þeim í póli- tískum tilgangi. Í þessu tilviki er sláandi hvernig forysta BSRB notar félagið til að reyna að fjölga félögum sínum á kostnað einkaaðila í heil- brigðisþjónustu. Þetta er vita- skuld mjög óeðlilegt og gagn- rýnivert. Þessi sérhagsmunabarátta forystu BSRB er einnig hluti af pólitískri baráttu sumra for- ystumanna stéttarfélaga, sem er ekkert annað en misnotkun á sjóðum félagsmanna sem eru neyddir til að greiða til félag- anna en eru fjarri því allir sam- mála forystunni um pólitískar áherslur þó að þeir kunni að hafa kosið hana vegna kjara- mála. Eða hafa ekki kosið hana, en sitja uppi með hana, ekki aðeins í þeim málum sem hún á að sinna, kjaramálunum, heldur einnig pólitískt. Forysta verkalýðshreyfing- arinnar verður að átta sig á að hún er kosin til að gæta ákveð- inna hagsmuna launamanna, ekki til að stunda pólitíska bar- áttu eða skara eld að eigin köku. Beri hún ekki skynbragð á þetta er orðið afar brýnt að breyta fyrirkomulagi þessara mála hér á landi með því að auðvelda launþegum að segja sig frá félögum sem eru mis- notuð með slíkum hætti. Verkalýðsfélög má ekki misnota} Sérhagsmunir og pólitík É g hef ákveðið að láta móta og inn- leiða samræmt verklag fyrir heil- brigðisstofnanir vegna þjónustu við þolendur heimilisofbeldis. Drífa Jónasdóttir afbrotafræð- ingur hefur verið ráðin til að vinna verkefnið. Ákvörðun um að móta samræmt verklag hvað þetta varðar byggist á niðurstöðum skýrslu sem Finnborg Salome Steinþórsdóttir, nýdokt- or í kynjafræði, vann fyrir heilbrigðisráðu- neytið og felur í sér mat á því hvernig heil- brigðisþjónustan mætir ólíkum þörfum kynjanna og tillögur að úrbótum. Þar segir m.a. að leggja þurfi mat á árangur verkferla og úrræða við móttöku þolenda ofbeldis í nánum samböndum, skoða hvernig miðlun upplýsinga er háttað milli þjónustukerfa og mismunandi úrræða, auk þess sem byggja þurfi á þekkingu um valdaójafnvægi kynjanna og öðrum þáttum sem hafa áhrif á félagslega stöðu fólks og aðstæður Í skýrslu Finnborgar kemur m.a. fram að ofbeldi í nán- um samböndum hefur meiriháttar afleiðingar fyrir lýð- heilsu og fyrir þátttöku kvenna í samfélaginu. Ofbeldi í nánum samböndum geti leitt til áverka, krónískra sjúk- dóma, örorku og dauða, en rúmlega þriðjung morða á kon- um í heiminum má rekja til slíks ofbeldis. Ofbeldi í nánum samböndum getur haft alvarleg áhrif á andlega heilsu þol- enda, s.s. þunglyndi, áfallastreituröskun og aðrar kvíða- raskanir. Jafnframt hefur heimilisofbeldi neikvæð áhrif á heilsu og líðan barna sem alast upp við slíkar aðstæður. Í skýrslunni kemur líka fram að rannsóknir bendi til þess að tæplega fjórðungur kvenna á Íslandi hafi orðið fyrir ofbeldi í nánu sambandi einhvern tímann frá 16 ára aldri. Ofbeldið er falið vandamál og kemur sjaldan inn á borð heilbrigðisyfirvalda. Á árunum 2005 til 2014 voru komur kvenna á Landspítala vegna of- beldis í nánum samböndum 1,69 fyrir hverjar 1.000 konur 18 ára og eldri. Rúmlega þriðj- ungur þolenda hafði áður leitað til spítalans vegna ofbeldis í nánum samböndum. Fjöldi kvenna leitar til Kvennaathvarfsins árlega. Rannsóknir meðal erlendra kvenna sem leitað hafa til Kvennaathvarfsins benda til þess að þær skorti upplýsingar um rétt sinn hér á landi og að gerendur hafi jafnvel notað sér þekkingarleysi þeirra. Sterkar vísbendingar eru um að ofbeldi í nánum samböndum hafi aukist í heimsfaraldri Covid-19. Verkefni Drífu er sem fyrr segir að móta og innleiða samræmt verklag fyrir heilbrigðisstofnanir vegna þjón- ustu við þolendur heimilisofbeldis. Við þessa vinnu verður haft samráð við heilbrigðisstofnanir, barnaverndaryfir- völd og lögreglu. Þetta er að mínu mati sérstaklega mikilvæg vinna. Ég hef lagt áherslu á kvennaheilsu og heilsu út frá jafnréttis- sjónarmiðum í embætti og verkefnið sem ég hef fjallað um hér er sérstaklega mikilvægt í þeirri vinnu. Svandís Svavarsdóttir Pistill Samræmt verklag fyrir þolendur heimilisofbeldis Höfundur er heilbrigðisráðherra. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen SVIÐSLJÓS Ómar Friðriksson omfr@mbl.is N otkun lyfja við athyglis- bresti og ofvirkni (ADHD) hefur aukist mikið hér á landi á und- anförnum árum. Notkunin tók enn eitt stökkið í fyrra þegar hún jókst um 19,4% frá árinu á undan og fjölg- aði bæði börnum og fullorðnum sem fengu ávísuð ADHD-lyf á seinasta ári. Hlutfallslega varð fjölgun mest hjá konum á aldrinum 35 til 66 ára. Þessar upplýsingar koma fram í nýjum Talnabrunni landlæknis en þar fjalla Védís Helga Eiríksdóttir og Ólafur B. Einarsson um þróun í notk- un lyfja við ADHD. Metýlfenidat er mest notaða lyfið í þessum flokki örv- andi lyfja en þau rifja upp að í úttekt embættis landlæknis á seinasta ári kom í ljós að heildarfjöldi barna sem fengu ávísað metýlfenidat tvöfald- aðist milli áranna 2010 og 2019 en heildarfjöldi fullorðinna rúmlega þre- faldaðist. „Þegar litið er til síðustu fimm ára má sjá um 42% aukningu í notkun lyfja í þessum lyfjaflokki frá árinu 2016 og um 152% aukningu frá árinu 2011 [...],“ segir í greininni. Greint er frá nýjustu tölum um notkun ADHD-lyfja á seinasta ári í Talnabrunni en þá fengu alls 13.696 einstaklingar metýlfenidat ávísað a.m.k. einu sinni á árinu, 5.426 börn og 8.270 fullorðnir. Er þetta sagt sam- svara því að 38 af hverjum 1.000 íbúum hafi fengið metýlfenidat ávísað á síð- asta ári. Var hlutfall þeirra sem fengu ávísað metýlfenidat í fyrra mun hærra hjá börnum en fullorðnum eða 67 af hverjum 1.000 börnum samanborið við 29 af hverjum 1.000 fullorðnum. Spurð hvort faraldur kór- ónuveirunnar og lokanir vegna sótt- varna hafi mögulega ýtt undir aukna notkun þessara lyfja í fyrra segir Védís að ekki sé hægt að segja til um það og bendir á að notkunin hafi farið vaxandi ár frá ári og sú þróun haldið áfram á seinasta ári. Íslendingar hafa skorið sig úr í notkun lyfja við ADHD miðað við Norðurlöndin að sögn hennar en samanburður sem gerður var á seinasta ári leiddi m.a. í ljós að Svíar voru næstir Íslendingum í sölu á örvandi lyfjum með 14,9 dag- skammta á þúsund íbúa samanborið við að seldir voru 30,8 dagskammtar hér á landi. Tvöfalt meiri hjá drengjum Notkun ADHD lyfja er tvöfalt meiri hjá drengjum en stúlkum en óverulegan kynjamun er að finna í notkun þessara lyfja meðal fullorð- inna. Í úttektinni í Talnabrunni á notkuninni í fyrra kemur fram að notkun metýlfenidats er mest meðal drengja á aldrinum 10-14 ára þar sem 156 af hverjum 1.000 drengjum fengu ávísað metýlfenidat a.m.k. einu sinni á árinu 2020. „Á meðal stúlkna er notkun metýlfenídats svipuð í aldurs- hópunum 10-14 ára og 15-17 ára. Um 79 og 85 stúlkur af hverjum 1.000 stúlkum í fyrrnefndum aldurshópum fengu metýlfenidat ávísað a.m.k. einu sinni árið 2020. Mest var aukning milli áranna 2019 og 2020 á meðal elstu barnanna (15-17 ára) eða 16% hjá drengjum og 14% hjá stúlkum [...],“ segir þar. Notkunin hefur þó einnig aukist mikið á undanförnum árum meðal fullorðinna. Í fyrra var hún mest meðal einstaklinga á aldrinum 18-24 ára en almennt dregur úr notkun þessara lyfja með hækkandi aldri. Að sögn Védísar er brýnt að rannsaka hvað veldur síaukinni notkun þessara lyfja. Í greininni segja Védís og Ólafur að skoða þurfi m.a. fjölda þeirra sem fá lyfin ávísuð einu sinni samanborið við þá sem nota þau til lengri tíma, hvort notkunin sé mismunandi eftir landssvæðum, tryggja þurfi eft- irfylgni með meðferðinni og meta hvort þörf sé fyrir meðferðarhlé þegar við á. Notkun ADHD-lyfja jókst um 19,4% í fyrra Ávísanir á metýlfenidatlyf* 2011-2020 Fjöldi af hverjum 1.000 íbúum sem fengu a.m.k. eina ávísun á árinu 80 60 40 20 0 Konur Karlar Stúlkur Drengir 18 ára og eldri Yngri en 18 ára *M.a. selt undir sérlyfjaheitunum Rítalín og Concerta Heimild: Embætti landlæknis 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018 2019 2020 Í umfjöllun í Talnabrunni um ávísanir ADHD-lyfja er sér- staklega undirstrikað mikilvægi faglegrar og hófstilltrar um- ræðu um notkun þessara lyfja og ástæður hennar. Höfundar greinarinnar segja ljóst að leita þurfi leiða til að skýra þá þróun sem orðið hefur í notkun þessara lyfja undanfar- inn áratug og stemma þurfi stigu við mögulegri ofnotkun eða misnotkun þessara lyfja. En gæta þurfi þess að aðgerðir hafi ekki neikvæðar afleiðingar fyrir þá fjölmörgu sem nauðsynlega þurfa á lyfjunum að halda í dag- legu lífi. Í fyrri umfjöllunum um þessi mál í Talnabrunni landlæknis kemur fram að einstaklingar með ADHD stríða gjarnan við ýmsar fylgiraskanir sem geta haft mikil áhrif á líf viðkomandi. Algengar fylgiraskanir eru sagðar vera m.a. hegðunar- röskun, kvíði, þunglyndi og geð- hvarfasýki. Að auki eigi þeir oft við námsörðugleika að stríða, m.a. vegna einbeitingarerfið- leika. Umræðan sé hófstillt VIÐBRÖGÐ VIÐ VANDANUM

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.