Morgunblaðið - 02.06.2021, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 02.06.2021, Qupperneq 13
13 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. JÚNÍ 2021 Þvottur Sandfok af Suðurlandi í liðinni varð til þess að bílar og mannvirki urðu nánast drullubrún og því vissara að taka fram þvottakústana. Þá er bara að bíða eftir næsta sandfoki. Árni Sæberg Ég hygg að mér sé óhætt að fullyrða að eng- inn íslenskur stjórn- málamaður hafi skilið eftir sig jafnmikið vel ígrundað og rökstutt efni – ræður, blaða- og fræði- greinar – og Bjarni Benediktsson (eldri). Efnið er fjölbreytt; efna- hags- og atvinnumál, ut- anríkis- og varnarmál, stjórnskipun, menning, saga og sjálf- stæði þjóðarinnar. Yfirburðaþekking og skilningur Bjarna á fjölbreyttum viðfangsefnum er augljós. Fyrir þann sem gert hefur stjórnmál að aðalstarfi, um lengri eða skemmri tíma, er lær- dómsríkt að kynna sér hugmyndir og skoðanir Bjarna á hlutverki og skyld- um stjórnmálamannsins. Á fimm ára afmælisfagnaði Vöku, félags lýðræðissinnaðra stúdenta, í mars 1940, gerði Bjarni að umtalsefni eiginleika forystumanna og hlutverk stjórnmálamanna. „Stjórnmálamað- urinn verður m.a. að þekkja land sitt, gæði þess og torfærur, þjóð sína, kosti hennar og galla, viðskipti henn- ar við aðrar þjóðir og geta gert sér grein fyrir, hver áhrif atburðir með þeim munu hafa á hag hennar,“ sagði Bjarni og bætti við: „Svo verður hann [stjórnmálamaðurinn] að þekkja sjálfan sig, mannlegt eðli, veilur þess og styrkleik.“ Bjarni, sem þá var 32 ára, vitnaði í Bismarck sem hélt því fram að stjórn- mál væru ekki vísindi heldur listin til að sjá hvað væri mögulegt á hverjum tíma og hrinda því í framkvæmd. En ekki sé nægjanlegt að gera sér grein fyrir möguleikunum. „Til viðbótar verður að hafa kjark til að standa með því, sem maður telur rétt, og þora að framkvæma það, hvað sem tautar.“ Þekkingu á góðum stjórnarháttum er hægt að öðlast með námi en Bjarni brýndi fyrir háskólanemum að listin „að stjórna rétt og þrekið til að fylgja máli sínu eftir, hvað sem á dynur, lærist ekki og er fáum gefið. En eng- inn verður mikill listamaður fyrir náðargáfuna eina, til þess þarf þrot- laust nám og ástundun. Ávöxturinn af starfi stjórnmálamannsins kemur seint í ljós, og yfirleitt verður ekki réttilega um það dæmt, fyrr en ævi- skeiði hans er lokið.“ Freistingar stjórnmálanna Bjarni varaði við þeim hættum eða freistingum sem stjórnmálamenn standa frammi fyrir: „Starf stjórnmála- mannsins hlýtur því ætíð að verða örðugt, en örðugast er það, þar sem lýðræðisstjórn rík- ir. Annars staðar geta stjórnmálamenn látið sér í léttu rúmi liggja, hverja dægurdóma störf þeirra fá. En í lýðræðislandi verður hver sá, sem halda vill áhrifum sínum, þ.e. sá er trúir á eigin málstað, að sannfæra almenning um, að ákvarðanir hans og athafnir séu réttar. Þetta leiðir þann, sem til for- ystu hefur verið settur, eðlilega oft í þá freistni að velja heldur þá leiðina, sem almenningi er geðþekkari, held- ur en hina, sem forystumaðurinn tel- ur rétta. En um leið er forystan farin og stjórnmálamaðurinn þar með bú- inn að bregðast skyldu sinni.“ Tveimur árum síðar átti Bjarni í ritdeilum við Árna Jónsson alþing- ismann frá Múla. Þar sagðist Bjarni oft hafa spurt sjálfan sig að því hvað það væri sem fengi hann og aðra til að leggja stjórnmál fyrir sig. Til væru önnur arðbærari störf og minna lýj- andi. Hann hafi hins vegar ætíð litið svo á að „sá gerði lítið gagn í stjórn- málum, sem eigi fengist við þau af einhverri innri þörf. Vegna þess, að honum fyndist að þau væri hans verk- efni í lífinu. Vegna þess, að hann þættist hafa komið auga á einhver slík sannindi, að hann væri minni maður, ef hann legði sig ekki allan fram til að berjast fyrir þeim.“ Það „sem ég álít rétt“ Árið 1942 hafði Bjarni setið í stóli borgarstjóra í tvö ár, aðeins 34 ára gamall. Í ritdeilunni við Árna Jónsson skýrði hann með einföldum og skýr- um hætti af hverju hann hefði lagt stjórnmál fyrir sig: „En ég skal játa, að ég hef teygst til stjórnmálaafskipta, af því að ég hef ákveðna sannfæringu um, að ef ís- lensku þjóðinni eigi að vegna vel, þá verði sjálfstæðisstefnan að verða ráð- andi í málum hennar. Ég segir það satt, og ég er áreiðanlegan ekki einn um það af þeim, sem við stjórnmál fást, að ég hef oft heitstrengt það að skipta mér ekki framar af þeim málum. En þegar til hefur átt að taka, þá hefur mér fundist ég vera minni maður, ef ég legði eigi fram krafta mína til þess að vinna fyrir það, sem ég álít rétt.“ Ég hef stundum velt því fyrir mér hvaða dóm Bjarni gæfi stjórnmálum samtímans. Hugsjónir hans og skoð- anir voru skýrar, byggðar á þekkingu og innsæi. En um leið virti hann ólík- ar skoðanir – sagði það grunn lýð- ræðis að „virða skoðanir hver ann- ars“. Í ræðu á 17. júní 1945 lagði Bjarni áherslu á að lýðræðið „fær ekki staðist, nema viðurkennt sé, að sjónarmiðin eru mörg og skoðanir þar af leiðandi ólíkar“. Spyrna við fótum En eitthvað segir mér að Bjarna Benediktssyni hefði lítið þótt til svo- kallaðra samræðustjórnmála koma. Hefði átt erfitt með að skilja stjórn- málamenn sem forðast hugmynda- fræðilega baráttu en eru uppteknir af tæknilegum útfærslum og ferlum. Hann hefði hins vegar verið fljótur að átta sig á að undir yfirborði sam- ræðustjórnmála kraumar stjórnlyndi – sannfæringin um að samfélagið sé ekki annað en tæknilegt úrlausn- arefni – verkefni samfélagsverkfræð- inga – og uppspretta pólitískrar rétt- hugsunar sem grefur undan samkeppni hugmynda. Ég er sannfærður um að Bjarni hefði varað eindregið við því hvernig reynt er að þurrka út pólitísk og hugmyndafræðileg mörk milli stjórnmálamanna og stjórnmála- flokka með innihaldslausri orðræðu, klisjum og brigslyrðum. Hann hefði brýnt félaga sína í Sjálfstæðis- flokknum til að spyrna hart á móti og leita aldrei viðurkenningar við hringborð samræðustjórnmála. Byggja hins vegar allt sitt starf á skýrum hugmyndum um frelsi ein- staklingsins og fullveldi þjóðarinnar. Treysta enn frekar á „frumkvæði, manndóm og dug borgaranna“ þar sem stjórnvöld „greiða fyrir fram- kvæmdum þeirra“ en leggja „ekki á þær hömlur og hindranir“. Í sinni einföldu mynd: Trúa á undramátt frelsisins. Eftir Óla Björn Kárason » Bjarni hefði brýntfélaga sína í Sjálf- stæðisflokknum til að spyrna hart á móti og leita aldrei viður- kenningar við hringborð samræðustjórnmála. Óli Björn Kárason Höfundur er alþingismaður Sjálfstæðisflokksins. Að trúa á undramátt frelsisins Undanfarna daga hefur staðið yfir um- ræða á Alþingi um frumvarp til fjár- aukalaga. Einkum er þar um að ræða til- lögur um fjármögnun brýnna vinnumarkaðs- aðgerða sem tengjast viðbrögðum við Covid- faraldrinum ásamt viðbótarstuðningi við starfsemi hjúkrunarheimila. Af hálfu stjórnarandstöðunnar beinist gagnrýnin á málið helst að því að ekki sé aukið enn meira við fjárveitingar til þeirra verkefna, sem þar er fjallað um. Einnig hefur mikill tími farið í umræður um ým- is önnur atriði og jafnvel alls óskyld. En umræður að þessu tagi geta verið fróðlegar, jafnvel afhjúpandi, eins og nú er í tísku að segja. Þannig má greina þann rauða þráð í gegnum ræður allflestra þing- manna stjórnarandstöðunnar, að helsti ljóður á ráði þessarar rík- isstjórnar sé sá að halda of fast um budduna og auka ekki ríkisútgjöld meira en gert hefur verið. Krafan í umræðunum er sú, að auka til muna útgjöld á flestum ef ekki öll- um sviðum ríkisrekstrarins. Og það er ekki bara bundið við þær tíma- bundnu aðgerðir sem nú er gripið til vegna viðbragða við heimsfar- aldri. Nei. Hér er um að ræða al- menna kröfu stjórnarandstöðunnar um stóraukin, varanleg ríkisút- gjöld. Þetta er svolítið glannalegur málflutningur. Jafnvel þótt við setj- um til hliðar tímabundin útgjöld vegna bráðavanda, þá hefur þróun- in um langt árabil verið sú að op- inber útgjöld hér á landi, bæði hjá ríki og sveitarfélögum, hafa farið vaxandi. Umsvif hins opinbera hafa á heildina litið aukist og þótt á köflum hafi náðst árangur við draga úr þeim á ákveðnum sviðum hefur það verið bætt upp með út- gjaldaaukningu annars staðar. Mér finnst mikilvægt að halda þessu til haga því að ef eitthvert mark væri takandi á opinberri umræðu mætti halda að hér hafi ríkisútgjöld verið skorin niður með blóðugum hætti ár eftir ár, ekki síst á sviði heilbrigðismála og velferðarmála. Staðreyndirnar tala hins vegar öðru máli. Útgjöldin hafa vaxið frá ári til árs og ein- mitt mest á sviði heil- brigðismála og velferð- armála. Veruleikinn í þess- um efnum er ekki svarthvítur. Ég er talsmaður minni rík- isumsvifa en við- urkenni að skynsamlegt og æski- legt geti verið að ríkið hafi með höndum margvíslega þjónustu við borgarana og reki þá starfsemi af myndarbrag. Þar má víða gera bet- ur með bættri þjónustu. Á sama tíma má draga saman annars stað- ar í opinberum rekstri, nýta fjár- muni betur og forgangsraða með öðrum hætti en nú er. Það að finna jafnvægi í þessum efnum er viðvarandi verkefni stjórnmálanna og þar liggja marg- ar átakalínur. Ríkið á að sinna vel þeirri starfsemi sem það hefur með höndum. Það verður hins vegar að gæta þess að ríkið færist ekki of mikið í fang, verði ekki of umfangs- mikið og leggi ekki of þungar byrð- ar á heimilin og fyrirtækin til að að standa undir kostnaðinum. Í þeim efnum er mikil hætta á að jafn- vægið raskist – ekki síst ef þau stjórnmálaöfl komast til meiri áhrifa sem stöðugt krefjast aukinna útgjalda og líta á aukin ríkisumsvif sem lausn á hverjum vanda. Það er alltaf viss freisting fyrir stjórn- málamenn að láta undan kröfum um aukin útgjöld. Til skamms tíma getur þannig pólitík verið til vin- sælda fallin. Til lengri tíma er á hinn bóginn varasamt að láta und- an freistingum af því tagi. Eftir Birgi Ármannsson » Það má skilja á stjórnarandstöðunni að helsti ljóður á ráði þessarar ríkisstjórnar sé að halda of fast um budduna. Höfundur er formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins. Glannaleg umræða um ríkisútgjöld Birgir Ármannsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.