Morgunblaðið - 02.06.2021, Page 21

Morgunblaðið - 02.06.2021, Page 21
Fjölskylda Eiginkona Hafliða er Maja Þ. Guðmundsdóttir, f. 1.5. 1941, hús- móðir og fv. tanntæknir. Þau gengu í hjónaband 27.4. 1963 en þau kynntust í Gagnfræðaskóla Austur- bæjar 1957. Þau eru búsett í Hafn- arfirði. Foreldrar Maju voru hjónin Guð- mundur Ingi Ágústsson, f. 13.3. 1917, d. 26.3. 1978, og Guðfinna Sig- rún Ólafsdóttir, f. 2.7. 1918, d. 17.3. 2009. Þau ráku lengst af söluturninn Ingaskýli við Bústaðaveg og bjuggu í sama hverfi. Börn Hafliða og Maju eru: 1) Björn Ingi, f. 14.6. 1968, flugmaður, búsettur í Garðabæ, kvæntur Sig- ríði Ómarsdóttur, f. 28.2. 1970, skrifstofustjóra. Sonur þeirra er Bergsveinn Snær, f. 19.12. 2005; 2) Bjarni Pétur, f. 12.7. 1969, BS í flug- rekstri og leiðsögumaður, búsettur í Hafnarfirði, kvæntur Margréti Benediktsdóttur, f. 4.5. 1971. Börn þeirra eru Benedikt, f. 7.12. 2003, og Snædís Björk, f. 22.6. 2008. Sonur Péturs úr fyrra sambandi er Hafliði, f. 11.11. 1991; 3) María Rún, f. 19.10. 1972, viðskiptafræðingur og MS í stjórnun og stefnumótun, búsett í Garðabæ, gift Vigfúsi Björnssyni, f. 30.12. 1967, framkvæmdastjóra. Börn þeirra eru Kristín Rós, f. 19.6. 2006, og Davíð Mar, f. 13.5. 2009. Systkini Hafliða eru Hilmar Þór Björnsson, f. 28.8. 1945, arkitekt, búsettur í Reykjavík; Steinunn Ásta Björnsdóttir, f. 20.10. 1948, ritari, búsett í Reykjavík, og Sigríður Birna Björnsdóttir, f. 18.8. 1956, arkitekt, búsett í Kaupmannahöfn. Foreldrar Hafliða voru hjónin Björn Jónsson, f. 25.1. 1915, d. 21.3. 1995, yfirflugumferðarstjóri, og Jó- hanna María Hafliðadóttir, f. 6.1. 1920, d. 12.1. 1999, húsfreyja. Þau voru lengst af búsett við Laugateig í Reykjavík. Hafliði Örn Björnsson Þuríður Jónsdóttir húsfreyja í Fremri-Langey Eggert Thorberg Gíslason bóndi í Fremri-Langey á Skagaströnd Ástríður María Eggertsdóttir húsfreyja í Reykjavík Jón Eyjólfur Bergsveinsson skipstjóri og framkvæmdastjóri Slysavarnafélags Íslands, bjó í Reykjavík Björn Jónsson yfirflugumferðarstjóri, lengstum á Laugateigi 37 Ingibjörg Jónsdóttir húsfreyja í Hvallátrum Bergsveinn Jónsson bóndi í Hvallátrum Ingibjörg Gísladóttir húsfreyja á Þórisstöðum Þórður Þórðarson bóndi á Þórisstöðum í Gufudalssveit, A-Barð. Steinunn Þórðardóttir húsfreyja í Skáleyjum Hafliði Pétursson bóndi í Skáleyjum síðan í Þerney og Víðinesi Sveinsína Sveinsdóttir húsfreyja í Svefneyjum Pétur Hafliðason bóndi og sjómaður í Svefneyjum Úr frændgarði Hafliða Arnar Björnssonar Jóhanna María Hafliðadóttir húsfreyja, lengstum á Laugateigi 37 í Reykjavík DÆGRADVÖL 21 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. JÚNÍ 2021 „PASSA PRÝÐILEGA. ÞESSI ERU FRÁ EGGERTI KLÆÐSKERA.“ „SPEGILLINN ER Á HVOLFI.“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að fagna elskunni sinni innilega. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann HEITT KAKÓ … LEIÐ MÓÐUR NÁTTÚRU TIL AÐ BÆTA FYRIR SUMARLOK ÉG ER BÚINN AÐ FÁ MEIRA EN NÓG AF ÞVÍ AÐ LAGA HURÐIRNAR EFTIR YKKUR! Ljóð Páls Ólafssonar eru einþeirra bóka, sem ég hef á nátt- borðinu hjá mér. Það er útgáfan frá 1955, sem er úrval úr óprentuðum ljóðum Páls, sem Páll Hermannsson fyrrv. alþingismaður valdi og bjó til prentunar. Þar er þessi braghenda, sem Vilhjálmur á Brekku fór með menntamálaráðherra á fjölmenn- um fundi í Háskólabíói: Aldrei bilar beinharkan í besefanum. Eg hef gigt í útlimonum öllum nema bara honum. Páll kvað við Þórunni Gísladóttur Wíum: Settu nú rjómann og sykrið í bollann, svolítið koníak, hrærðu svo í. Kysstu mig síðan og kærðu þig skollann þó Kristín og mamma þín hlæi að því. Mér þykir alltaf vænt um þessa braghendu: Sólskríkjan mín situr þarna á sama steini og hlær við sínum hjartans vini honum Páli Ólafssyni. Þetta rifja ég upp af því að á sunnudag var nýr bautasteinn af- hjúpaður á leiði Páls og Ragnheið- ar Björnsdóttur konu hans með við- höfn í Hólavallakirkjugarði. Það var merkilegt og gott framtak. Páll er eitt af okkar ástsælustu skáldum og ég held að þetta sé fyrsta vísan sem ég lærði eftir hann, en faðir minn kenndi mér hana. Skáldið sá hey í skóm konu sinnar: Ég vildi ég fengi að vera strá og visna í skónum þínum, því léttast gengirðu eflaust á yfirsjónum mínum. Þessi staka varð fleyg: Eg hef selt hann yngra Rauð er því sjaldan glaður. Svona er að vanta veraldarauð og vera drykkjumaður. Hér er lítið ljóð, sem Páll orti 1877, fimmtugur að aldri: Lífs er orðinn lekur knör, líka ræðin fúin, hásetanna farið fjör og formaðurinn lúinn. Því er best að vinda upp voð, venda undan landi og láta byrinn bera gnoð beint að heljar sandi. Þar mun brim við bláan sand brjóta um háa stokka. En þegar ég kem á lífsins land ljær mér einhver sokka. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Og hlær við sínum hjartans vini

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.