Morgunblaðið - 02.06.2021, Page 22

Morgunblaðið - 02.06.2021, Page 22
22 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. JÚNÍ 2021 Elvar Már Friðriksson er í liði árs- ins í efstu deild Litháens í körfu- knattleik en hann átti frábært tíma- bil með liði sínu Siauliai í deildinni í vetur. Elvar Már, sem er 26 ára gamall, gekk til liðs við litháíska fé- lagið frá Borås í Svíþjóð síðasta sumar. Hann var bæði stoðsend- inga- og framlagahæsti leikmaður deildarinnar en hann skoraði 15 stig að meðaltali með Siauliai, tók þrjú fráköst og gaf 7,5 stoðsend- ingar. Liðið endaði í sjöunda sæti deildarinnar og féll úr leik í átta liða úrslitum úrslitakeppninnar. Elvar í liði ársins í Litháen Ljósmynd/LKL Öflugur Elvar Már hefur farið á kostum í Litháen í vetur. Knattspyrnukonan Andrea Rán Hauksdóttir er gengin til liðs við Houston Dash í bandarísku at- vinnumannadeildinni. Miðjukonan, sem er 25 ára gömul, á að baki 127 leiki í efstu deild með Breiðabliki þar sem hún hefur skorað tíu mörk. Þá á hún að baki ellefu A- landsleiki þar sem hún hefur skor- að tvö mörk. Hún hefur þrívegis orðið Íslandsmeistari með Breiða- bliki og þrívegis bikarmeistari. Houston Dash er í sjötta sæti at- vinnumannadeildarinnar með 4 stig eftir fjóra leiki. Morgunblaðið/Eggert Bandaríkin Andrea Rán er uppalin hjá Breiðabliki í Kópavoginum. Frá Breiðabliki til Houston FÓTBOLTI Kristján Jónsson kris@mbl.is Þorsteinn Halldórsson, landsliðs- þjálfari kvenna í knattspyrnu, valdi tvo nýliða í landsliðshópinn sem mætir Írlandi í tveimur vináttu- landsleikjum sem fram fara á Laugardalsvellinum 11. og 15. júní. Auður Sveinbjörnsdóttir Scheving, markvörður hjá ÍBV, og Kristín Dís Árnadóttir, varnarmaður úr Breiða- bliki, voru valdar í hópinn en eiga ekki A-landsleik að baki. Fram kom á blaðamannafundi í gær að Guðný Árnadóttir og Hlín Eiríksdóttir væru ekki leikfærar vegna meiðsla. Auk þess er fyrirliðinn Sara Björk Gunnarsdóttir barnshafandi. Í hönd fer tími sem getur reynst dýrmætur fyrir Þorstein og lands- liðskonurnar því leikirnir verða væntanlega þeir síðustu sem liðið spilar áður en undankeppni HM hefst í haust. „Já að sjálfsögðu. Þetta eru síð- ustu leikirnir sem við fáum saman og þurfum því að nota tímann vel til að skerpa á hlutum. Við reynum að undirbúa okkur vel og spila vel í þessum leikjum til að geta tekið það með í verkefnið í haust. Þetta eru mikilvægir leikir fyrir okkur að því leytinu til að við þurfum að nota þá rétt. Ef við stöndum okkur þá get- um við komið hlutunum í réttan far- veg,“ sagði Þorsteinn þegar Morg- unblaðið ræddi við hann í gær Getur teflt Ingibjörgu fram Spurður um hvort hann vildi fá svör við mörgum spurningum sem á honum brenna í þessum leikjum, sagði Þorsteinn svo ekki vera. „Nei, það er nú ekki nein gomma. En það eru atriði sem við þurfum að fara betur í og alltaf er eitthvað sem maður vill sjá hvernig kemur út í leikjum. Ég var þokkalega ánægður með Ítalíuverkefnið á heildina litið. Ég vonast til að við getum bætt of- an á það og spilað enn betur. Mér sýnist við vera á réttri vegferð og séum að ná betur og betur til liðs- ins,“ sagði Þorsteinn og bendir á að ekki sé sjálfgefið að fá lið til lands- ins á tímum heimsfaraldurs. „Það hefur verið heljarinnar púsluspil að fá leiki enda er ekki einfalt að fá tvo landsleiki hér heima á þessum tíma. Það var margt í gangi og ýmsir valmögu- leikar sem ekki gengu upp. Við vor- um mjög ánægð þegar við náðum saman við Íra um að spila tvo leiki gegn okkur. Þau eru flottir and- stæðingar og þetta verður verðugt verkefni,“ sagði Þorsteinn en kór- ónuveiran kom ekki í veg fyrir að ís- lensku konurnar kæmust í verk- efnið. Nú gat Þorsteinn til að mynda valið Ingibjörgu Sigurð- ardóttur í fyrsta sinn frá því hann tók við liðinu í janúar. _ Landsliðshópinn er að finna á mbl.is/sport. Heljarinnar púsluspil sem gekk upp Morgunblaðið/Eggert Landsliðskonur Elín Metta Jensen, Karólína Lea Vilhjálmsdóttir og Alex- andra Jóhannsdóttir eru hópnum sem tilkynnt var um í gær. - Þorsteinn er þakklátur fyrir að fá vináttuleiki í heimsfaraldrinum Mjólkurbikar kvenna 16-liða úrslit: FH – Þór/KA ............................................ 1:1 Völsungur – Valur .................................... 0:7 KR – Selfoss.............................................. 0:3 Grindavík – Afturelding .......................... 0:2 Vináttulandsleikir karla Pólland – Rússland................................... 1:1 Króatía – Armenía.................................... 1:1 Kósóvó – San Marínó ............................... 4:1 Litháen – Eistland ................................... 0:1 N-Makedónía – Slóvenía.......................... 1:1 Slóvakía – Búlgaría .................................. 1:1 50$99(/:+0$ Úrslitakeppni karla 8-liða úrslit, fyrsti leikur: KA – Valur ............................................ 26:30 Stjarnan – Selfoss................................. 24:26 Umspil karla Annar úrslitaleikur: Kría – Víkingur..................................... 20:17 .$0-!)49, Úrslitakeppni karla Undanúrslit, fyrsti leikur: Keflavík – KR ....................................... 89:81 Úrslitakeppni NBA Austurdeild, 1. umferð: Washington – Philadelphia ..............122:114 _ Staðan er 3:1 fyrir Philadelphia. Vesturdeild, 1. umferð: Memphis – Utah ............................... 113:120 _ Staðan er 3:1 fyrir Utah. 57+36!)49, Afturelding, FH, Selfoss og Valur voru síðustu liðin til þess að tryggja sér sæti í átta liða úrslitum bikarkeppni kvenna í knattspyrnu, Mjólkurbikarnum, í gær. Fyrstudeildarlið FH sló úrvals- deildarlið Þórs/KA úr leik í víta- keppni á Kaplakrikavelli í Hafn- arfirði en Elísa Lana Sigurjóns- dóttir kom FH yfir strax á 7. mínútu áður en Arna Sif Ásgríms- dóttir jafnaði metin fyrir Þór/KA á 59. mínútu. Hvorugu liðinu tókst að skora í framlengingu og FH hafði að lokum betur í vítakeppni, 5:4. Þá skoruðu þær Sara Contosh og Ragna Guðrún Guðmundsdóttir mörk Aftureldingar í 2:0-sigri gegn Grindavík á Grindavíkurvelli í fyrstudeildarslag sextán liða úr- slitanna. Brenna Lovera, Hólmfríður Magnúsdóttir og Brynja Líf Jóns- dóttir skoruðu sitt markið hver fyrir Selfoss þegar liðið heimsótti KR á Meistaravelli í Vesturbæ en lokatölur urðu 3:0, Selfossi í vil, en liðin mættust í úrslitum bikar- keppninnar á Laugardalsvelli árið 2019. Þá skoruðu þær Sólveig Jóhann- esdóttir Larsen og Ásdís Karen Halldórsdóttir tvö mörk hvor þeg- ar Valur vann 7:0-stórsigur gegn Völsungi á Vodafone-vellinum á Húsavík en þær Fanndís Friðriks- dóttir, Mist Edvardsdóttir og Elín Metta Jensen voru einnig á skot- skónum fyrir Val. Það verða því Afturelding, FH, Selfoss, Valur, Þróttur úr Reykja- vík, ÍBV, Fylkir og Breiðablik sem verða í pottinum þegar dregið verður í átta liða úrslitin en leik- irnir fara fram 25.-26. júní. FH sló Þór/ KA úr leik í vítakeppni HANDKNATTLEIKUR Úrslit kvenna, fyrsti leikur: KA/Þór – Valur...........................................18 KÖRFUKNATTLEIKUR Úrslit kvenna, þriðji leikur: Valur – Haukar......................................20:15 Umspil karla, fyrsti leikur: Hamar – Vestri ......................................19:15 Í KVÖLD! FÓTBOLTI Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is Ísak Bergmann Jóhannesson var í fyrsta skipti í byrjunarliði íslenska A-landsliðsins í knattspyrnu í leikn- um gegn Mexíkó aðfaranótt síðast- liðsins sunnudags. Ísak lék allan leik- inn, en gat ekki komið í veg fyrir 1:2-tap í vináttuleik á hinum glæsi- lega AT&T-velli í Texas. Ísak var glaður með fyrsta landsleikinn í byrjunarliði en hann lék á miðjunni við hlið Arons Einars Gunnarssonar og Birkis Bjarnasonar. „Tilfinningin er mjög góð. Ég hef unnið að þessu mjög lengi og það var geðveikt að vera með Birki og Aroni á miðjunni. Ég hef litið upp til þeirra frá því ég man eftir mér,“ sagði Ísak, sem er 18 ára gamall, á blaðamanna- fundi landsliðsins í gær. Þrátt fyrir tap var Ísak ánægður með frammi- stöðu sína og liðsins í heild. „Ég var mjög ánægður með liðs- frammistöðuna og hjá mér persónu- lega. Við vorum mjög góðir í 70 mín- útur en svo komu gæðin hjá Lozano inn á,“ sagði hann, en Hirving Loz- ano kom inn á í stöðunni 1:0 fyrir Ís- landi í seinni hálfleik og tryggði Mexíkó sigur með tveimur mörkum. Íslenski miðjumaðurinn segir leið- inlegt að tapa fyrir framan marga áhorfendur, sem flestir styðja hitt liðið. „Maður vill alltaf vinna í fótbolta og hvað þá þegar það eru 40.000 öskrandi Mexíkóar sem maður vill sussa á. Þetta var mjög skemmtilegt. Við vildum auðvitað vinna en það eru klárlega hlutir sem við getum byggt á. Við tökum þennan góða leik með okkur í Færeyjaleikinn.“ Ísak á þar við annan vináttuleik við Færeyjar á útivelli á föstudaginn kemur. „Ég held við munum stjórna þeim leik á meðan Mexíkóarnir stjórnuðu ferðinni á móti okkur. Við höfum þróað okkar leik og vonandi getum við sýnt það á móti Færeyjum að við getum líka stjórnað leikjum.“ Kórónuveiran hefur gert það að verkum að Ísak hefur aldrei spilað fyrir framan marga áhorfendur á stuttum ferli. Það voru því viðbrigði að spila fyrir tugi þúsunda í Texas. „Ég hef aldrei spilað fyrir framan einhverja áhorfendur af neinu viti. Það var sturlað að hafa þessa 40-50 þúsund áhorfendur. Það var heiður að fá að spila þennan leik.“ Ísak hefur spilað á miðjunni og kantinum til skiptis en hann hikaði ekkert þegar hann var spurður út í uppáhaldsstöðuna. „Vinstra megin á miðjunni er mín uppáhaldsstaða þótt ég spili þar sem þjálfarinn segir mér að spila. Ég hef á mínum stutta ferli alltaf verið miðjumaður og ég spái mikið í miðjumönnum þegar ég horfi á fót- bolta,“ sagði Ísak Bergmann. Hann leikur með Norrköping í Svíþjóð en hefur verið orðaður við stór félög í Evrópu. Vildi sussa á 40.000 Mexíkóa - Ísak sáttur við fyrsta byrjunarliðsleikinn - Fyrstu leikirnir með áhorfendum Morgunblaðið/Eggert Tímamót Ísak Bergmann, fyrir miðju, á æfingu á Laugardalsvelli í gær.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.