Morgunblaðið - 08.06.2021, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 08.06.2021, Blaðsíða 1
Þ R I Ð J U D A G U R 8. J Ú N Í 2 0 2 1 .Stofnað 1913 . 133. tölublað . 109. árgangur . HANSEN BJARGAÐI STIGI FYRIR VÍKINGA LEIRLIST OG NÁTTÚRUÖFL ÍSLAND VEL FALLIÐ TIL BÍLAFERÐALAGA BRENNUVARGAR SÝNA Á NÝ 28 FALLEG NÁTTÚRA 11ÍÞRÓTTIR 26 Hraunflæðið leitaði hátt til lofts frá eldgígnum í Geldinga- dölum þegar ljósmyndari Morgunblaðsins kom þar að með þyrlu í gær, en útsýnishóllinn er ekki lengur fær gangandi Þrjár myndavélar sýna nú beint frá gosinu á mbl.is fyrir þá sem vilja fylgjast með því. Hraunið leitar nú suður Nátthaga og hafa verið gerð drög að frekari varnargörðum. » 6 vegfarendum. Sást þar þó gjörla hversu gríðarlegt magn hraunflæðis gat gosið upp, inn á milli þess sem gígurinn lá í dvala og beið þess að næsta hrina hæfist. Mikilfengleg eldfjallasýn við útsýnishólinn óaðgengilega Morgunblaðið/Árni Sæberg Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Verktakafyrirtækið ÍAV hf. hefur höfðað mál á hendur fagfjárfesta- sjóðnum 105 Miðborg slhf., sem rek- inn er af dótturfélagi Íslandsbanka, Íslandssjóðum, og Íslandssjóðum vegna riftunar 105 Miðborgar á samningi vegna uppbyggingar á Kirkjusandi. Þetta kemur fram í út- boðslýsingu Íslandsbanka sem birt var í gær. Eins og greint var frá í Morgun- blaðinu í mars sl. sendi ÍAV frá sér yfirlýsingu snemma í þeim mánuði um að fyrirtækið hefði ekki fengið neitt greitt fyrir vinnu sína frá því í nóvember á síðasta ári. Krefst ÍAV nú rúmlega 3,8 milljarða króna í skaðabætur auk greiðslna vegna tafa og lögfræðikostnaðar. Eins og áður hefur komið fram rifti 105 Miðborg samningi sínum við ÍAV og réð nýja verktaka til að ljúka við húsnæðið. Meðal ágreiningsefna milli aðila er frágangur á annað hundrað íbúða sem reistar voru á Kirkjusandi en 105 Miðborg telur að galli hafi ver- ið á þeim. Í útboðslýsingunni hafna Íslands- sjóðir aðild sinni að málinu á þeim grunni að viðsemjandi ÍAV hafi verið 105 Miðborg slhf. Hefur sjóðurinn mótstefnt ÍAV fyrir sömu upphæð auk skaðabóta vegna tafa og lögfræði- kostnaðar og brota á samningi. Ís- landsbanki á 6,25% hlut í 105 Miðborg slhf. samkvæmt útboðslýsingunni. Metinn á 150 milljarða króna Hlutafjárútboð Íslandsbanka hófst í gær en til sölu eru að lágmarki 25% af útgefnu og útistandandi hlutafé bankans. Heimilt verður, sem hluti af útboðinu, að stækka útboðið í allt að 35% af útgefnu útistandandi hlutafé bankans. Áætlað markaðsvirði Ís- landsbanka í kjölfar útboðsins er 150 milljarðar króna en leiðbeinandi verð er á bilinu 71 til 79 krónur á útboðs- hlut. MSkerði ekki tilboð … »12 ÍAV krefst 3,8 milljarða vegna Kirkjusandsreits - Íslandssjóðir hafna aðild að málinu og stefna ÍAV á móti Skólabörn í grunnskólanum í Þor- lákshöfn veittu þeim Guðna Th. Jó- hannessyni forseta og Elizu Reid forsetafrú hlýjar og góðar mót- tökur er forsetahjónin litu inn á vorhátíð skólans í gær. Forsetahjónin voru í opinberri heimsókn í sveitarfélaginu Ölfusi og var dagskráin þétt. Kynntu þau sér m.a. ýmsa starfsemi í sveitar- félaginu og fóru á fund með félagi eldri borgara í Þorlákshöfn. »6 Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Guðna og Elizu vel tekið í heimsókn sinni til Ölfuss

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.